DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10406.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lucky Charm

Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Merino með blaðamynstri, gatamynstri og garðaprjóni, prjónuð frá mitti og út í ferning. Stærð S - XXXL.

DROPS 172-3
DROPS Design: Mynstur nr cm-052
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
550-550-650-700-750-850 g nr 29, sægrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
Prjónfestan þegar mynstur A.1 til A.6 er prjónað = 21 l x 36 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10406.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað frá mitti og út í ferning.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 8 l með Cotton Merino og skiptið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 4 (= 2 l á prjóni). Prjónið eftir A.1 (= 4 mynstureiningar í umf).
Prjónið A.1 1 sinni á hæðina = 184 l í umf, síðan er prjónað þannig: *A.2 A (= 11 l), A.2 B (= 24 l), A.2 C (= 11 l) *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (= 344 l í umf), prjónið 8 síðustu umf í A.2 A-C 0-1-2-3-4-6 sinnum til viðbótar (aukið út um 40 l fyrir hvert skipti sem síðustu 8 umf eru prjónaðar) = 344-384-424-464-504-584 l. Prjónið síðan þannig: Haldið eftir fyrstu 86-96-106-116-126-146 l á prjóni, fellið af næstu 86-96-106-116-126-146 l, setjið næstu 86-96-106-116-126-146 l á þráð og fellið af síðustu 86-96-106-116-126-146 l í umf. ATH! Klippa verður nú þráðinn frá.

EFRI HLUTI:
Prjónið síðan fram og til baka yfir fyrstu 86-96-106-116-126-146 l. Prjónið fyrstu umf í A.3, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 89-97-105-113-129-145 l. Prjónið síðan þannig: A.3 yfir 88-96-104-112-128-144 l (= 11-12-13-14-16-18 mynstureiningar), endið með 1 l sem er prjónuð í fyrstu l í A.3 (slétt þegar prjónað er sl og brugðið þegar prjónað er br). Í umf með ör-1 eru felldar af miðju 31-31-33-33-35-35 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf er fækkað um 1 l við hálsmál = 28-32-35-39-46-54 l eftir á hvorri öxl. Prjónið til loka A.3, síðan er fellt af.

NEÐRI HLUTI:
Setjið til baka 86-96-106-116-126-146 l af þræði á hringprjóna og prjónið fyrstu umf í A.4, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 89-97-105-113-129-145 l. Prjónið síðan fram og til baka þannig: A.4 yfir 88-96-104-112-128-144 l (= 11-12-13-14-16-18 mynstureiningar), endið með 1 l sem prjónuð er eins og fyrsta l í A.4 (slétt þegar prjónað er sl og brugðið þegar prjónað er br). Fellið af þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til A.2 hefur verið prjónað til loka = 344-384-424-464-504-584 l.

EFRI HLUTI:
Prjónið síðan fram og til baka yfir fyrstu 86-96-106-116-126-146 l.
Prjónið fyrstu umf í A.3, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 89-97-105-113-129-145 l. Prjónið síðan fram og til baka þannig: A.3 yfir 88-96-104-112-128-144 l (= 11-12-13-14-16-18 mynstureiningar), endið með 1 l sem prjónuð er eins og fyrsta l í A.3 (slétt þegar prjónað er sl og brugðið þegar prjónað er br). Í umf með ör-2 eru miðju 25-25-27-27-29-29 l settar á þráð fyrir hálsmáli, síðan er hvor öxl prjónuð til loka fyrir sig.
Fellið af fyrir hálsmáli í hverri umf við miðju að framan: 2 l 1 sinni og 1 l 2 sinnum = 28-32-35-39-46-54 l eftir á hvorri öxl. Haldið áfram þar til A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Fellið af.

NEÐRI HLUTI:
Prjónið á sama hátt og neðri hluti á bakstykki.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar ofan frá og niður, í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 77-79-85-89-93-97 l á sokkaprjóna nr 4. Prjónið þannig: 31-32-35-37-39-41 l sléttprjón, A.5 A (= 15 l), 31-32-35-37-39-41 l sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin, fækkið með 2-2-2-1½-1½-1½ cm millibili 17-17-19-20-21-22 sinnum = 43-45-47-49-51-53 l. JAFNFRAMT þegar A.5 A hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er haldið áfram með A.5 B yfir A.5 A. Þegar stykkið mælist 43-42-41-40-38-36 cm er lykkjufjöldinn jafnaður til 40-40-48-48-48-56 l. Prjónið síðan eftir A.6 (= 5-5-6-6-6-7 mynstureiningar á breiddina). Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fellið síðan af, ermin mælist ca 51-50-49-48-46-44 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma, látið efstu 18-19-20-21-22-23 cm vera opna = handvegur. Saumið ermar í.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 80-96 l (meðtaldar l af þræði) í kringum hálsmál á stutta hringprjóna nr 4. Prjónið 4 umf garðaprjón, síðan er fellt af.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.10.2016
Leiðrétting: Texti í mynstri - tákn nr 6 og 7

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi saman, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir saman
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt/brugðið (það eiga að myndast göt)
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt/brugðið (það eiga ekki að myndast göt)
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Genevieve wrote:

Goedendag als je dit patroon op 4 naalden breid zonder knop moet je de rondte sluiten. Als je het sluit dan kan die toch niet plat worden.

08.02.2024 - 20:57

DROPS Design answered:

Dag Genevieve,

Je breit vanuit het midden naar buiten toe, dus je begint in het midden van de ster en je meerdert steeds steken, waardoor het plat wordt. Misschien ken je de gehaakte ronde tafelkleedjes wel, deze zijn ook vanuit het midden naar buiten toe gehaakt en in de rondte. Nu doe je dit met breien. Als je aan de slag gaat zul je vanzelf zien hoe het werkt.

28.02.2024 - 20:54

country flag Bianca wrote:

Ik zie dat er een correctie in het patroon wordt gemeld in telpatroon symbool 6 en 7, maar kunt u de correctie uitleggen? Ik hoor graag van u. M vr gr Bianca

26.05.2023 - 15:53

DROPS Design answered:

Dag Bianca,

De correctie is online al doorgevoerd, dus je kunt gewoon het patroon volgen. Mocht je het patroon afgedrukt hebben voor de correctiedatum, dan heb je een afdruk zonder de correctie erin verwerkt.

29.05.2023 - 15:29

country flag Gun Magnusson wrote:

I natt skrev jag förtvivlade frågor till Er om slutet på bakstycket. Jag har nu hittat orsaken till problemet och jag är glad igen. Kanske kan jag rekommendera att meningen inom parentes om ökning av de 40 maskorna i en beskrivning för svenska stickerskor formuleras så här:(För varje gång alla de sista 8 v stickats får man 40 m fler på varvet. Det är alltså ingen extra ökning på 40 m som jag trodde. Jag är klar nu och det blir ett väldigt vackert bakstycke. Fantastisk design.

27.01.2021 - 10:40

DROPS Design answered:

Hej Gun. Så bra att det löste sig, vi ska se över den formuleringen för att se om det går att göra det tydligare. Mvh DROPS Design

28.01.2021 - 10:06

country flag Gun Magnusson wrote:

Förtvivlad! Jag har stickat bakstycket tom A2A - C och har344 m på v. A2A 31m, A2B 24m,A2C31 m . Multiplicerat med 4 rapporter blir det 344 m. Jag ska nu sticka de sista 8 varven en gång till.Stl M Första varvet har A2A enl diagr 26m/rutor. Jag har 31 ,samma problem med A2C Vad ska jag göra? Alla 8 v har dessutom ökningar. + 40 m som ska ökas . Det blir tillsammans mycket mer än 384. Hur fördelas de 40 m över varvet? Sitter fast. Har st 6 av de 8 v och det blir inte rätt. Hjälp!

26.01.2021 - 23:42

country flag Diot wrote:

Bonjour je porte du 40 ou taille M combien de pelote de drops cotton merino dois-je commander pour réaliser ce pull modèle lucky charm n°cm-052 ? je n'ai pas trouvé ce renseignement sur les explications.

02.10.2019 - 17:55

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Diot, Mesurez un pull similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez les mesures à celles du schéma, vous pourrez ainsi trouver votre taille. Vous trouverez ici plus d'infos sur les tailles. Bon tricot!

03.10.2019 - 08:51

country flag Laura Menegatti wrote:

Buonasera, Vi prego gentilmente di non tener conto delle mie due domande, poste qualche giorno fa. Va tuto bene nel diagramma, è stato un mio errore. Grazie

24.04.2019 - 21:36

DROPS Design answered:

Buongiorno Laura, abbiamo inoltrato la sua segnalazione alla casa madre e il diagramma verrà corretto. Continui a tenere monitorato il sito. Buon lavoro!

30.04.2019 - 14:37

country flag Laura Menegatti wrote:

Buongiorno. Gentilmente vorrei un aiuto/spiegazione: sullo schema A2A al giro 15° dovrebbero esserci 19 maglie, ma al giro 16° sono 20 . C'è un errore nello schema o sbaglio io? Grazie

22.04.2019 - 08:36

DROPS Design answered:

Buongiorno Laura, chiederemo una verifica alla casa madre: se ci dovessero essere delle correzioni le troverà direttamente indicate nel modello il prima possibile. Buon lavoro!

24.04.2019 - 09:00

country flag Laura Menegatti wrote:

Buongiorno. Diagramma A2C: al ferro 15 avrei 21 m., ma al ferro 16 sono 20 maglie. Come è possibile? Grazie per l'aiuto.

21.04.2019 - 09:26

DROPS Design answered:

Buongiorno Laura, chiederemo una verifica alla casa madre: se ci dovessero essere delle correzioni le troverà direttamente indicate nel modello il prima possibile. Buon lavoro!

24.04.2019 - 08:59

country flag Joan Hansen wrote:

Jeg kan ikke få række 2 til at passe i a1

31.03.2018 - 19:51

DROPS Design answered:

Hei Joan. Dette mønsteret strikkes i en sirkel fra midten av ryggen. De 8 maskene som legges opp på 4 settpinner tilsvarer 4 rapporter av A1. Første omgang på A1 har 2 kast før hver av maskene på pinnen (=4 masker pr pinne, og totalt 16 masker etter avsluttet omgang). Den andre omgangen strikkes annenhver vrang og rett før det er ny økning på tredje omgangen. God fornøyelse

04.04.2018 - 13:24

Annette Große wrote:

Gibt es die Anleitung auch auf Deutsch?

30.03.2018 - 19:35

DROPS Design answered:

Ja, Sie können die Sprache unter dem Bild auswählen oder Sie gehen auf die deutsche Hauptseite, dann erscheinen auch alle Anleitungen auf Deutsch. Viel Spaß beim Stricken!

31.03.2018 - 09:36