DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2992.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Erica Top

Prjónaður toppur úr DROPS Cotton Light með gatamynstri, stuttum ermum og A-formi. Stærð S - XXXL.

DROPS 169-19
DROPS Design: Mynstur nr cl-062
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
400-450-450-500-550-600 g nr 02, hvítur

DROPS PRJÓNAR NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2992.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Fækkið l innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið l á eftir 2 kantlykkjum þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið l á undan 2 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 l á undan kantlykkjum, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚRTAKA-2 (á við um handveg):
Fækkið l innan við 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið l á eftir 3 kantlykkjum þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið l á undan 3 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 l á undan kantlykkjum og prjónið 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í 2 stykkjum.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 111-117-129-141-147-159 l á prjóna nr 4 með Cotton Light.
Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið 1. l í A.1 og endið á 2 kantlykkjum í garðaprjóni – ATH: Í 7. umf í A.1 er síðasta l prjónuð á undan kantlykkju í garðaprjóni (frá réttu).

Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2A yfir næstu 18-21-27-33-36-42 l (= 6-7-9-11-12-14 mynstureiningar 3 l), prjónið A.3 (= 11 l), setjið 1 prjónamerki (= prjónamerki A), prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.4 yfir næstu 48 l (= 6 mynstureiningar 8 l), prjónið 1. l í A.4, setjið 1 prjónamerki (= prjónamerki B – nú eru 49 l á milli prjónamerkja), prjónið A.3 (= 11 l), prjónið mynstur eftir A.2B yfir næstu 18-21-27-33-36-42 l og endið á 2 kantlykkjum í garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur. ATH: A.2 og A.3 heldur nú áfram uppúr utan við prjónamerki A og B upp fyrir handveg. Á milli prjónamerki A og B er nú prjónaður gatakantur og lykkjufjöldinn á milli prjónamerkja kemur nú til með að breytast.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
MYNSTUR (á við um l á milli prjónamerkja A og B): Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er mynstur prjónað eftir A.5 þannig (l á undan prjónamerki A og á eftir prjónamerki B halda áfram eins og áður): Prjónið A.5A (= 12 l), endurtakið A.5B yfir næstu 24 l (= 2 mynstureiningar 12 l) og endið á A.5C (= 13 l).
Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er mynstur prjónað eftir A.5 aftur alveg eins og síðast. Prjónið A.1 JAFNFRAMT sem í síðustu umf frá réttu er fækkað um 4 l jafnt yfir í stærð S + M + L + XL og aukið út um 2 l jafnt yfir í stærð XXL + XXXL (á milli prjónamerkja A og B) = 45-45-45-45-51-51 l á milli prjónamerkja. Í næstu umf frá réttu er A.6 prjónað þannig: Prjónið A.6A (= 4 l), endurtakið A.6B yfir næstu 36-36-36-36-42-42 l (= 6-6-6-6-7-7 mynstureiningar 6 l) og endið á A.6C (= 5 l). Eftir A.6 er A.1 aftur prjónað og JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er fækkað um 4-4-4-4-2-2 l jafnt yfir = 41-41-41-41-49-49 l á milli prjónamerkja. Eftir A.1 er aftur prjónað A.4 JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er aukið út um 2 l í stærð XXL + XXXL = 41-41-41-41-51-51 l á milli prjónamerkja. Prjónið síðan A.7 þannig: Prjónið A.7A (= 5 l), endurtakið A.7B yfir næstu 30-30-30-30-40-40 l (= 3-3-3-3-4-4 mynstureiningar 10 l) og endið á A.7C (= 6 l). Í síðustu umf frá réttu í A.7 er fækkað um 2 l jafnt yfir í stærð XXL + XXXL = 41-41-41-41-49-49 l. Eftir A.7 er endurtekið til skiptis A.4 og A.1 upp að úrtöku fyrir hálsmáli.

ÚRTAKA Í HLIÐUM:
Þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku með 6 -6-6-4-4-4 cm millibili alls 6-6-6-9-9-9 sinnum – ATH: Þær l sem ekki ganga upp í mynstri í hlið þegar l er fækkað eru prjónaðar í sléttprjóni. Eftir úrtöku í hliðum eru 12-15-21-24-27-33 l eftir í A.2 í hvorri hlið.

HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir síðustu 14-17-23-26-29-35 l í hvorri hlið (þ.e.a.s. yfir allar l að utanverðu A.3 í hvorri hlið – aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Fellið síðan af síðustu 4-6-6-8-10-14 l í byrjun á 2 næstu umf fyrir handveg. Haldið áfram með mynstur á milli prjónamerkja A og B eins og útskýrt var frá að ofan, haldið áfram með A.3 utan við prjónamerki A og B eins og áður og prjónið garðaprjón yfir síðustu 10-11-17-18-19-21 l í hvorri hlið. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) þannig – LESIÐ ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 l alls 7-8-12-13-16-18 sinnum.

HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist ca 50-50-54-54-54-54 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu af A.1 eða A.4, fellið af miðju 31-31-31-31-37-37 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með A.3 eins og áður með 5-5-5-5-7-7 kantlykkjum í garðaprjóni við hálsmál og 3-3-5-5-3-3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm og fellið af. Endurtakið í hinni öxlinni.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 66-70-76-82-86-94 l á prjóna nr 4 og prjonið 4 umf garðaprjón. Prjónið síðan sléttprjón með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 3-3-3-4-4-4 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið – merkir hvar sauma á ermina við fram- og bakstykki. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar l. Þegar stykkið mælist 2-3-3-4-5-7 cm frá prjónamerki er fækkað um 1 l í hvorri hlið með því að prjóna 2 fyrstu og 2 síðustu l saman. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 5-4-0-0-0-0 sinnum, í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 2-4-10-7-3-0 sinnum og í hverri umf (bæði frá réttu og frá röngu) alls 0-0-5-11-19-26 sinnum = 52-54-46-46-42-42 l eftir á prjóni. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið sauma undir ermum – saumið kant í kant með 1 spori í hverja l svo að saumurinn verði flatur. Saumið hliðarsauma alveg eins. Leggið ermina undir kant á ermi og saumið niður fallega með smáu spori svo að kanturinn sjáist ekki – prjónamerki mitt undir ermi á að passa við hliðarsauma á fram- og bakstykki.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Diane wrote:

Are the 2 garter edge stitches worked on all the rows (right side and wrong side) Thank you I love this top.

11.03.2024 - 18:29

DROPS Design answered:

Dear Diane, correct, you will work 2 stitches in garter stitch (knit from RS and from WS). happy knitting!

12.03.2024 - 07:22

country flag Sanny wrote:

Hallo, eine Frage zu A1 und zum Lesen der Diagramme. Hin und Rückreihen werden angezeigt. A1 beginnt dann glatt rechts, vier Reihen und dann die zwei Reihen vor und nach der Lochmusterreihe kraus rechts?

21.01.2024 - 14:19

DROPS Design answered:

Liebe Sanny, Hin-Reihen lesen Sie rechts nach links und Rückreihen lesen Sie links nach rechts, dh 1. Reihe A.1 wird rechts bei einer Hin-Reihe gestrickt, und 2. Reihe rechts bei einer Rückreihe (= 1 Krausrippe), 3. Reihe = wie 1., 4. Reihe = wie 2., 5. Reihe stricken Sie rechts, 6. Reihe stricken Sie links, 7. Reihe stricken Sie mit Lochmuster, usw. Viel Spaß beim stricken!

22.01.2024 - 10:15

country flag Ingrid Ehret wrote:

Hallo, ich kann hier nicht verstehen, was es heisst bitte beachten bei A.2 und A.3 nun an den Außenseiten der Markierer A und B für die Armausschnitte weiterstricken. Habe die ersten 6 Reihen jeweils gestrickt. Wie geht es jetzt weiter werden die 6 Reichen wiederholt ? Wann geht es mit der 7. Reihe weiter ? Hoffe auf schnelle Antwort, ich möchte weiterstricken. Antwort da ich gerne weiterstricken möchte.

16.05.2023 - 10:29

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ehret, A.2 und A.3 werden beidseitig von Markierer A und B gestrickt und bis Armlöcher in der Höhe wiederholt; dh wenn die 6 Reihen in A.2A/A.2B fertig sind, diese 6 Reihen wiederholen. Gleichzeitig stricken Sie die unterschiedlichen Muster/Diagramme wie in der schriftlichen Anleitung gestrickt. Je nach Muster/Diagramme werden die Muster über eine verschiedene Reihenanzahl gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

16.05.2023 - 14:18

country flag Christiane Datour wrote:

Bonjour, je ne comprends à quel moment se font les DIMINUTIONS CÔTÉS, merci de votre réponse, cordialement

22.03.2023 - 14:15

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Datour, les diminutions se font en même temps que le point fantaisie: on les commence quand l'ouvrage (dos/devant) mesure 6 cm et on les tricote 6 à 9 fois au total tous les 6 à 4 cm. Bon tricot!

22.03.2023 - 16:10

country flag Ruth Bealer wrote:

I'm confused with the instruc tion on A2A,-work pattern according to diagram A2A oner 18 stitches. (6repititons of 3 Stitches. I assumed they ment the 3 stitches in the brackets. No matter how I knit it=left to right or right to left, it doesn't come out right HELP HELP HELP Thank you Ruth Bealer PS Love the Drop patterns

23.01.2023 - 22:19

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bealer, exact, you have to repeat the 3 stitches a total of 6 times, just as shown in the diagram over 12 stitches - and make always sure that there will be alwasy as many yarn overs as decreases so that your number of stitches will be always right. Happy knitting!

24.01.2023 - 12:06

country flag Susanne wrote:

169-19, tack för svar men så har jag stickat och det blev helt fel i jämnförelse med bilden på tröjan. Man ska inte sticka som första varvet? upprepa A6B 6 ggr. och avsluta med A6 C? Hela vägen upp.

01.09.2022 - 11:02

DROPS Design answered:

Hej igen Susanne, jo da og det gør du som vi beskrev sidst :) Her ser du samme type mønster se varv 7Hålmönster A+B+C

02.09.2022 - 10:26

country flag Susanne wrote:

Tack för svar. Mönster 169-19. Men det är varven efter första varvet på A6 jag inte förstår. Svar på svenska tack!

31.08.2022 - 14:05

DROPS Design answered:

Hej igen Susanne, varv 3 stickar du såhär: 3 rm, 1omslag, lyft 1 m som om den skulle stickas rät, 2 m räta tills, drag den lyfta m över, 1omslag - upprepa varvet ut :)

31.08.2022 - 14:17

country flag Susanne Andersson wrote:

Mönstret är fullständigt bedrövligt. Jag har repat upp hur många gånger som helst.

30.08.2022 - 10:16

country flag Susanne Andersson wrote:

Hej! Stickar Erika Top, 169-19. Stora problem med mönstret. Diagram, A6A, A6B, A6C, det finns oxå beskrivning i löpande text. Jag får inte ihop det. Snälla`Hjälp mig. Hur gör man? Svara helst på svenska, tack`!

30.08.2022 - 10:14

DROPS Design answered:

Hej Susanne, Du har 45-45-45-45-51-51 m och börjar med A.6A (= 4 m), sedan A.6B (= 6 m) som du upprepar över de nästa 36-36-36-36-42-42 m, och avslutar med A.6C (= 5 m).

31.08.2022 - 13:54

country flag Kasia wrote:

Dotarlam do miejsca zamykania oczek na dekolt, oczka zamknęłam, zaczęłam przerabiać ramiona i pomiędzy tymi zamkniętymi oczkami i ramionami czyli na początku i na końcu zamkniętych oczek mam dziury. Przerabiałam to kilka razy, rozcisgniete oczka skecalam, przerabiałam z nitka z niższego rzędu i ciągle mam tam dziury- jak je wyeliminować? Dziekuje,pozdrawiam

07.05.2022 - 10:35

DROPS Design answered:

Witaj Kasiu, zdarza się takie coś czasem. Musisz jak najbardziej zaciskać nitkę w skrajnych oczkach przy zamykaniu. Możesz spruć i spróbować jeszcze raz, albo po prostu po zakończeniu pracy, zszyć dziurki za pomocą kilku małych szwów po lewej stronie robótki. Pozdrawiamy!

09.05.2022 - 10:08