DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 20240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Shades of Sky

Prjónuð ferhyrnd peysa úr 1 þræði DROPS Alpaca og 2 þráðum DROPS Kid-Silk með öldumynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.

DROPS 168-2
DROPS Design: Mynstur nr z-735
Garnflokkur A + A + A eða D
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M/L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
100-150-150-200-200 g nr 6205, ljós blár
200-200-250-250-250 g nr 100, natur
og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
75-100-100-125-125 g nr 08, gráblár
75-75-100-100-100 g nr 07, ljós gráblár
100-100-125-125-150 g nr 01, natur

ATH: Ef stykkið er prjónað með einum lit þá þarf 250-300-300-350-400 g Alpaca (= 1 þráður) og 200-250-250-275-300 g Kid-Silk (= 2 þræðir) = 3 þræðir alls.

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 14 l x 16 umf með sléttprjóni með 1 þræði af Alpaca og 2 þráðum Kid-Silk verði 10 x 10 cm og 1 mynstureining A.1 verði 11 cm á breiddina og 4 cm á hæðina með 1 þræði Alpaca og 2 þráðum Kid-Silk (= 3 þræðir).
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 7 fyrir ermi.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 20240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umf frá séð frá réttu!

RENDUR:
Allar rendur eru prjónaðar með 1 þræði Alpaca + 2 þráðum Kid-Silk (= 3 þræðir) þannig:
RÖND 1: Prjónaðar eru 6 mynstureiningar af A.1b og A.2b á hæðina með 1 þræði Alpaca natur + 2 þráðum Kid-Silk natur.
Prjónið síðan 2 mynstureiningar á hæðina af mynstri A.1b og A.2b í hverja rönd að neðan.
RÖND 2: 1 þráður Alpaca natur + 1 þráður Kid-Silk ljós gráblár + 1 þráður Kid-Silk natur.
RÖND 3: 1 þráður Alpaca natur + 2 þræðir Kid-Silk ljós gráblár.
RÖND 4: 1 þráður Alpaca natur + 1 þráður Kid-Silk gráblár + 1 þráður Kid-Silk ljós gráblár.
RÖND 5: 1 þráður Alpaca natur + 2 þræðir Kid-Silk gráblár
RÖND 6: 1 þráður Alpaca ljós blár + 1 þráður Kid-Silk gráblár + 1 þráður Kid-Silk ljós gráblár.
RÖND 7: 1 þráður Alpaca ljós blár + 2 þræðir Kid-Silk gráblár. Þegar allar rendurnar hafa verið prjónaðar til loka á hæðina er haldið áfram með rönd 7 til loka!

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Öll peysan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna með 1 þræði Alpaca + 2 þræði Kid-Silk (= 3 þræðir).

PEYSA:
Fitjið laust upp 215-221-229-239-245 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði Alpaca í litnum natur og 2 þráðum Kid-Silk í litnum natur (= 3 þræðir). Prjónið 1. umf þannig (= frá réttu): 3-3-4-6-6 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 (= 19 l í fyrstu umf) 4 sinnum á breiddina, A.2 (finnið mynstur fyrir rétta stærð!) 3 sinnum á breiddina, A.1 4 sinnum á breiddina, 3-3-4-6-6 l garðaprjón. Þegar 1. umf hefur verið prjónuð til loka eru 193-199-207-217-223 l á prjóni. Prjónið afgang af umf í A.1a og A.2 a.
Prjónið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan (byrjið á RÖND 1) og mynstri þannig: 3 l garðaprjón, 0-0-1-3-3 l sléttprjón, A.1 b (= 17 l) 4 sinnum á breiddina, A.2b (finnið mynstur fyrir rétta stærð!) 3 sinnum á breiddina, A.1b 4 sinnum á breiddina, 0-0-1-3-3 l sléttprjón, 3 l með garðaprjóni. ATH: Í 6. Umf í A.1b eru prjónaðar 0-0-1-3-3 l innan við 3 l garðaprjón á hvorri hlið brugðnar! Endurtakið A.1b og A.2b á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 15-17-19-20-21 cm, passið að næsta umf sé frá réttu, prjónið nú þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 71-71-72-74-74 l, fitjið upp 1 l = 72-72-73-75-75 l fyrir vinstra framstykki. Setjið næstu 122-128-135-143-149 l á prjóni á þráð án þess að prjóna þær fyrst.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
ATH: Nýjar l sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka með mynstri og röndum eins og áður yfir 72-72-73-75-75 l þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21 cm frá nýju l sem fitjaðar voru upp (= handvegur) – PASSIÐ AÐ NÆSTA UMF SÉ PRJÓNUÐ FRÁ RÖNGU! Í næstu umf frá röngu er felld af fyrsta l (= l sem fitjuð var upp) = 71-71-72-74-73 l. Prjónið út umf. Klippið frá. Setjið l á þráð.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 1 nýja l á prjóninn, prjónið síðan fyrstu 51-57-63-69-75 l af þræði inn á prjóninn frá réttu, fitjið upp 1 l = 53-59-65-71-77 l fyrir bakstykki. (Nú eru 71-71-72-74-74 l eftir á þræði fyrir hægra framstykki). Haldið nú áfram fram og til baka með mynstri og röndum yfir l fyrir bakstykki. ATH: Síðustu l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21 cm frá nýju l sem fitjaðar voru upp (= handvegur) – STILLIÐ MYNSTUR AF EFTIR VINSTRA FRAMSTYKKI, NEMA ENDIÐ 2 UMF FYRR Í MYNSTRI prjónið þannig: Í 2 næstu umf eru felld af síðasta l í hvorri hlið (= l sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið á bakstykki) = 51-57-63-69-75 l. Klippið frá. Setjið allar l frá bakstykki á þráð.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 1 nýja l á hringprjóna og prjónið inn þær 71-71-72-74-74 l af þræði á hringprjóna, frá réttu = 72-72-73-75-75 l fyrir hægra framstykki. Snúið við og prjónið mynstur til baka frá röngu. ATH: Nýjar l sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur og rendur eins og áður þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21 cm frá þar sem nýjar l voru fitjaðar upp (= handvegur) – STILLIÐ AF EFTIR MYNSTRI Á VINSTRA FRAMSTYKKI, NEMA ENDIÐ 2 UMF FYRR Í MYNSTRI. Í næstu umf frá réttu er felld af fyrsta l (= l sem fitjuð var upp) = 71-71-72-74-74 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu. Klippið frá.

Nú eru framstykkin og bakstykkið prjónað saman þannig: ATH: Mynstur og rendur halda áfram eins og áður með 3 l garðaprjón í hvorri hið!
Byrjið frá réttu og prjónið 71-71-72-74-74 l frá vinstra framstykki, prjónið síðan 51-57-63-69-75 l frá bakstykki inn á prjóninn og að lokum eru prjónaðar 71-71-72-74-74 l af hægra framstykki inn á prjóninn = 193-199-207-217-223 l. Haldið áfram fram og til baka með mynstri og röndum þar til allar 7 rendurnar hafa verið prjónaðar til loka á hæðina. Stykkið mælist nú ca 64 cm í öllum stærðum. Haldið nú áfram með rönd 7 til loka.

Þegar stykkið mælist 72-76-78-80-82 cm – stillið af eftir eina heila mynstureiningu af A.1b og A.2b á hæðina – prjónið A.1c yfir A.1b og A.2 c (finnið mynstur fyrir rétta stærð) yfir A.2b.
Þegar allt A.1c og A.2c hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 215-221-229-239-245 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 7 og fellið LAUST AF. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Ermarnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður, í röndum. ATH: Byrjað er á rönd 2!
Fitjið upp 49-53-55-59-61 l með 1 þræði Alpaca í litnum natur + 1 þræði Kid-Silk í litnum ljós gráblár + 1 þræði Kid-Silk natur (= 3 þræðir) á hringprjóna nr 6. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Í næstu umf (= rétta) er prjónað mynstur þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 15-17-18-20-21 l sléttprjón, A.1b (= 17 l), 15-17-18-20-21 l sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með ca 4½-4-3½-3-3 cm millibili 10-11-12-13-13 sinnum til viðbótar = 27-29-29-31-33 l. Þegar stykkið mælist alls 53-53-51-51-50 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina, prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið LAUST af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Frágangurinn er gerður með 1 þræði Alpaca í litnum natur og 1 þræði Kid-Silk í litnum gráblár (= 2 þræðir). Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki og í l eina og eina í uppfitjunarkant á ermi. Saumið sauma undir ermum innan við kantlykkju í garðaprjóni. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = 2 l slétt saman
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður br (= gat)
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl (= ekki gat)
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 168-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Carlotta wrote:

Non riesco a capire cosa si intende per ripetere lo schema in verticale nella striscia 1. Come vanno alternati i due schemi a1 e a2? Grazie

28.03.2024 - 18:19

DROPS Design answered:

Buonasera Carlotta, i diagrammi A.1 e A.2 vanno ripetuti sul ferro per il numero di ripetizioni indicato. Buon lavoro!

28.03.2024 - 19:08

country flag Katerina wrote:

Good evening\r\nI am planning on working the pattern using one colour (9021), size S= 250g Alpaca (= 1 strand) and 200-g Kid-Silk (= 2 strands) = 3 strands in total. What COLOURS of Kid silk should Iget? or just one colour? how do I work the stripes ? Thank you very much.

24.10.2020 - 19:41

DROPS Design answered:

Dear Katerina, you are welcome to contact your DROPS store for any assistance choosing a colour - work the stripes as explained in the pattern or adjust yours as you like them to be - we are unfortunately not able to adjust each of our pattern to each single request - thanks for your comprehension. Happy knitting!

26.10.2020 - 13:14

country flag Lillie wrote:

I\'m lost on A1 the first 6 stitches are garter how do we end with 3 stitches for garter in A2b?

04.05.2018 - 03:47

DROPS Design answered:

Dear Lillie, when working b-sections in diagram, work: 6 sts in garter st, 0-1-3 sts in stocking st (see size), repeat A.1b a total of 4 times in width, then repeat A.2b a total of 3 times in width, repeat then A.1b a total of 4 times in width and finish with 0-1-3 sts in stocking st (see size) and 6 sts in garter st. When working row 6 in A.1b purl the 1-3 sts inside the 6 sts in garter st on each side. Happy knitting!

04.05.2018 - 09:10

country flag Rita wrote:

Avevo considerato di usare due capi alpaca di un solo colore. Ho notato che molti capi in alpaca sono lavorati con il kid silk e mi chiedevo se fosse per dare la giusta tensione e vestibilità che non con la sola alpaca.

06.09.2016 - 10:40

DROPS Design answered:

Buongiorno Rita, questo modello richiede 3 capi di filato del gruppo A come Alpaca o 1 capo di un filato del gruppo D: con due capi di Alpaca potrebbe non ottenere il campione indicato. Kid-Silk viene utilizzata per alleggerire il lavoro e conferire maggiore sofficità e morbidezza, e viene utilizzata spesso in combinazione con Alpaca. Buon lavoro!

06.09.2016 - 11:00

country flag Rita wrote:

Vorrei sapere se questo capo può essere realizzato solo con il filato alpaca. Grazie

06.09.2016 - 09:08

DROPS Design answered:

Buongiorno Rita. Dovrebbe verificare di ottenere il campione indicato lavorando con 3 capi di alpaca. Inoltre dovrebbe scegliere un ulteriore colore che consenta di ottenere le sfumature indicate. Il capo potrebbe risultare più pesante che non lavorato con 1 filo di Alpaca e 2 di Kid Silk. Buon lavoro!

06.09.2016 - 09:59

country flag Jennifer Francis wrote:

Hello i still don't get it what would the first row look like if i am knitting the m/l . sorry kindest regards jennifer

27.01.2016 - 14:12

country flag Jennifer Francis wrote:

Hello,i am planning on knitting design pattern number z-735 and a little UN share how the charts reads. I would be knitting a size m, do i just work from the selected chart size that would be M or are there two charts .sorry not sure . dose this mean for the first row size m/l 221 st , back garter st 3,chart A1. 19 REP 4TIMES then A2 size m/l 21st 3times then back to A1. chart for 19st rep 4time then garter st 3 end of row. kindest regards in advance Jennifer

27.01.2016 - 09:45

DROPS Design answered:

Dear Mrs Francis, diag. A1 is the same for all sizes, but diag. A.2 has to be worked differently depending on your size, in size M, you will work diagram A.2 M/L (this diagram works for these both sizes). Happy knitting!

27.01.2016 - 10:39

Laura wrote:

This is gorgeous! Can you pls advise some alternative yarns?

26.01.2016 - 11:32

DROPS Design answered:

Dear Laura, please click here for alternative yarns, and remember your DROPS store will help you with any personnal assistance even per mail or telephone. Happy knitting!

26.01.2016 - 15:52

country flag Radka Rinkova wrote:

Mořska pěna - nádherný přehoz

12.01.2016 - 09:51

country flag José wrote:

Mooi patroon en prachtig kleurverloop.

03.01.2016 - 20:06