DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5742.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Golden Blossom

Prjónuð peysa úr DROPS Belle með gatamynstri á berustykki og ¾ langar ermar. Stærð S - XXXL.

DROPS 170-29
DROPS Design: Mynstur nr vs-012
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio
450-500-550-600-650-700 g nr 04, fífill

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 – fyrir kant.
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 4 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5742.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerkin í hliðum á fram- og bakstykki þannig:
Byrjið 6 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 8 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 8 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Aukið út um 1 l hvoru megin við miðju 4 l undir ermi þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki mitt undir ermi, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 l sléttprjón og sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat (= 3 l fleiri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af þriðju og fjórðu l frá kanti og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 28, 35, 41 og 48 cm.
STÆRÐ M: 28, 35, 43 og 50 cm.
STÆRÐ L: 29, 37, 44 og 52 cm.
STÆRÐ XL: 30, 37, 45 og 52 cm.
STÆRÐ XXL: 31, 39, 46 og 54 cm.
STÆRÐ XXXL: 32, 40, 48 og 56 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Vegna lykkjufjöldans er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 282-309-327-354-408-426 l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með Belle. Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 þar til 7 l eru eftir á prjóni (= 30-33-35-38-44-46 mynstureiningar 9 l), prjónið 2 l sléttprjón og endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina = 252-276-292-316-364-380 l eftir á prjón. Prjónið síðan mynstur eftir A.2 alveg eins – ATH: Í síðustu umf í A.2 er að auki fækkað um 13-8-8-3-5-5 l jafnt yfir (lykkjum er fækkað í brugðnu mynstureiningunum og ekki lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 209-235-249-275-315-329 l á prjóni. Eftir A.2 er skipt yfir á hringprjóna nr 4. Setjið 2 prjónamerki í stykkið 54-62-64-72-82-84 l inn frá hvorri hlið = 101-111-121-131-151-161 l á milli prjónamerkja á bakstykki. Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 4-4-4-4½-5-5 cm millibili alls 5 sinnum í hvorri hlið = 189-215-229-255-295-309 l á prjóni.
Þegar stykkið mælist 28-28-29-30-31-32 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT í hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT er næsta umf prjónuð frá réttu þannig:
STÆRÐ S + L + XXXL:
5 kantlykkjur að framan eins og áður, 2 l br, 3 l sl, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.3A yfir næstu 30-40-60 l (= 3-4-6 mynstureiningar 10 l), prjónið A.3B (= 7 l), 4 l sléttprjón (prjónamerki í hlið er staðsett mitt á milli þessa 4 l), prjónið A.3A yfir næstu 80-100-140 l (= 8-10-14 mynstureiningar 10 l), prjónið A.3B (= 7 l), 4 l sléttprjón (prjónamerki á hlið er staðsett mitt á milli þessa 4 l), prjónið A.3A yfir næstu 30-40-60 l, prjónið A.3B (= 7 l), prjónið 3 l sl, 2 l br og 5 kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar A.3A/A.3B hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 172-208-280 l eftir á prjóni.
STÆRÐ M + XL + XXL:
5 kantlykkjur að framan eins og áður, 3 l sl, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.3A yfir næstu 40-50-60 l (= 4-5-6 mynstureiningar 10 l), prjónið A.3B (= 7 l), 4 l sléttprjón (prjónamerki í hlið er staðsett mitt á milli þessa 4 l), prjónið A.3A yfir næstu 90-110-130 l (= 9-11-13 mynstureiningar 10 l), prjónið A.3B (= 7 l), 4 l sléttprjón (prjónamerki á hlið er staðsett mitt á milli þessa 4 l), prjónið A.3A yfir næstu 40-50-60 l, prjónið A.3B (= 7 l), prjónið 3 l sl og 5 kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar A.3A/A.3B hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 195-231-267 l eftir á prjóni.

Prjónið síðan mynstur þannig (1. umf = rétta):
STÆRÐ S + L + XXXL:
5 kantlykkjur eins og áður, 2 l br, 3 l sl, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.4 yfir næstu 27-36-54 l (= 3-4-6 mynstureiningar 9 l), prjónið A.5 (= 6 l), 4 l sléttprjón (prjónamerki á hlið er staðsett mitt á milli þessa 4 l), prjónið A.4 yfir næstu 72-90-126 l (= 8-10-14 mynstureiningar 9 l), prjónið A.5 (= 6 l), 4 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), prjónið A.4 yfir næstu 27-36-54 l, prjónið A.5 (= 6 l), prjónið 3 l sl, 2 l br og 5 kantlykkjur að framan eins og áður.
Haldið svona áfram með mynstur.
STÆRÐ M + XL + XXL:
5 kantlykkjur eins og áður, 3 l sl, prjónið mynstur eftir mynstri A.4 yfir næstu 36-45-54 l (= 4-5-6 mynstureiningar 9 l), prjónið A.5 (= 6 l), 4 l sléttprjón (prjónamerki í hlið er staðsett mitt á milli þessa 4 l), prjónið A.4 yfir næstu 81-99-117 l (= 9-11-13 mynstureiningar 9 l), prjónið A.5 (= 6 l), 4 l sléttprjón (prjónamerki í hlið er staðsett mitt á milli þessa 4 l), prjónið A.4 yfir næstu 36-45-54 l, prjónið A.5 (= 6 l), prjónið 3 l sl og 5 kantlykkjur að framan eins og áður.
Haldið svona áfram með mynstur.

Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm fellið af miðju 4-6-6-8-10-12 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 2-3-3-4-5-6 l hvoru megin við bæði prjónamerkin). Fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 78-85-94-101-117-124 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 0-1-2-3-4-5 sinnum og síðan 1 l 1-2-4-5-7-8 sinnum = 76-77-78-79-87-88 l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm fellið af miðju 32-33-34-35-35-36 l af fyrir hálsmál og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af 1 l í byrjun næstu umf frá hálsi = 21-21-21-21-25-25 l eftir á öxl. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni við háls þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm og fellið laust af. Endurtakið á hinni öxlinni.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 43-49-51-57-65-66 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 42-45-43-46-50-48 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 48-50-52-52-54-56 cm (það á að prjóna 1-2 umf á eftir síðasta hnappagati á kant að framan). Nú eru settar síðustu 12-15-13-16-16-14 l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (til þess að sleppa við að klippa þráðinn frá í stykkinu eru l prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn). Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf frá hálsi þannig: Fellið af 2 l 3 sinnum og 1 l 3 sinnum = 21-21-21-21-25-25 l eftir á öxl. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni við háls þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm og fellið laust af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 43-49-51-57-65-66 l. Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd – ATH: Ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 72-72-81-81-90-90 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Belle. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir A.1 (= 8-8-9-9-10-10 mynstureiningar 9 l). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 64-64-72-72-80-80 l eftir á prjóni. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir mynstri A.2 alveg eins – ATH: Í síðustu umf í A.2 er fækkað að auki um 0-0-3-1-6-4 l jafnt yfir (fækkið í brugðnu mynstureiningunum = 56-56-60-62-64-66 l á prjóni. Eftir A.2 er skipt yfir á sokkaprjóna nr 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi) og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 l fleiri). Endurtakið útaukningu alls 6-9-9-11-13-15 sinnum. Í stærð S: Í 14. hverri umf, í stærð M: Í 8. hverri umf, í stærð L: Til skiptis í 7. og 8. hverri umf, í stærð XL: Í 6. hverri umf, í stærð XXL: Til skiptis í 4. og 5. hverri umf og í stærð XXXL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umf = 68-74-78-84-90-96 l. Þegar stykkið mælist 35-34-33-32-30-29 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu), fellið af miðju 4-6-6-8-10-12 l undir ermi og ermin er prjónuð til loka fram og til baka. Haldið áfram í sléttprjón og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 3-3-4-4-4-4 sinnum og 1 l 2-2-4-5-8-10 sinnum, síðan eru felldar af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 41-41-42-42-42-42 cm. Fellið af 3 l í byrjun á 2 næstu umf og fellið laust af þær l sem eftir eru. Ermin mælist ca 42-42-43-43-43-43 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp í kringum hálsmál frá réttu innan við 1 kantlykkju, ca 98 til 112 l (meðtaldar l af þræði að framan) á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 3 umf slétt og fellið síðan laust af með sl frá réttu.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = prjónið 3 l slétt, steypið fyrstu l sem var prjónuð yfir hinar 2 þannig að þær liggi utan um 2 síðustu l á prjóni (= 1 l færri)
symbols = engin l, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = 2 l br saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (47)

country flag Flaso wrote:

Bonjour, je veux éviter la couture des manches. Je veux relever des mailles (sur l'emmanchure) pour les manches puis continuer à tricoter du haute vers le bas, mais seulement pour quelques centimètres de hauteurs. Ensuite, je veux tricoter les manches du bas vers le haut comme écrit dans l'explication (tricoter jusqu'au 74 mailles (taille M) après avoir augmenté 9 fois). Ensuite, je veux faire grafting pour rassembler les 2 parties des manches (le bas et le haut). (voir la suite)

06.01.2024 - 00:40

country flag Flaso wrote:

(la suite de ma question) Je ne sais pas comment je peux rabattre des mailles si j'utilise cette méthode pour rassembler des 2 parties des manches. Est il possible de tricoter les manches comme ce que je viens de vous dire ? Merci pour votre retour.

05.01.2024 - 18:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Flaso, les manches se tricotent ici en rond sur aiguilles doubles pointes, lorsque vous avez atteint la hauteur requise, vous continuez en allers et retours à partir du milieu sous la manche et rabattez de chaque côté pour l'arrondi de la manche, autrement dit vous allez rabattre les mailles en début de rang sur l'endroit et sur l'envers comme indiqué, la manche va mesurer 42 ou 43 cm selon la taille. Bon tricot!

08.01.2024 - 09:37

country flag Lydia wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas trop cette partie (je tricote la taille M) "Glisser maintenant les 15 m côté milieu devant sur un arrêt de mailles pour l'encolure (les tricoter avant de les mettre en attente pour ne pas avoir à couper le fil). " Que fait on après avoir mettre ces 15m en attente ? Pourquoi ne rabat-on pas ces mailles qui sont en attente ?

20.12.2023 - 16:05

DROPS Design answered:

Bonjour Lydia, on ne rabat pas ces mailles pour conserver suffisamment de souplesse pour le col, et, lorsque vous tricoterez le col, vous tricoterez d'abord ces mailles, puis vous relèverez les mailles autour de l'encolure et tricoterez ces mailles en attente du devant gauche. Bon tricot!

21.12.2023 - 08:45

country flag Lydia wrote:

Bonjour, Je vous remercie pour votre réponse. J’ai encore une question sur “Continuer avec 1 m lis au point mousse côté encolure jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 58cm” Faut il toujours tricoter la 1ere maille à l‘endroit chaque fois quand je tricote de l’encolure vers l’emmanchure ? Merci

03.12.2023 - 06:54

DROPS Design answered:

Bonjour Lydia, la maille lisière côté encolure va être tricotée au point mousse, autrement dit tous les rangs à l'endroit, c'est la première maille en début de rang sur l'endroit pour l'épaule gauche du dos (la dernière maille sur l'envers pour cette épaule) et la dernière maille sur l'endroit pour l'épaule droite (la première maille sur l'envers pour cette épaule). Bon tricot!

04.12.2023 - 08:08

country flag Lydia wrote:

Bonjour, je tricote la taille M. J'ai des questions sur le Dos. A 56cm de hauteur totale, je rabats 33 mailles centrales pour l'encolure et termine chaque épaule séparément. Je ne comprend pas la suite : "rabattre 1 m au début du rang suivant à partir de l'encolure". Pourriez vous m'expliquer quand je dois rabattre 1 maille ? Que veut dire "au début du rang suivant à partir de l'encolure" ? Rabat-on 1 maille juste après avoir rabattu les 33 mailles ?

30.11.2023 - 17:43

DROPS Design answered:

Bonjour Lydia, si vous rabattez les mailles de l'encolure sur l'endroit, vous mettez en attente les mailles de l'épaule droite, rabattez celles de l'encolure et terminez le rang pour l'épaule gauche; vous tournez, tricotez 1 rang sur l'envers (à partir de l'emmanchure vers l'encolure), tournez et rabattez 1 maille au début du rang suivant (sur l'endroit) qui commence côté encolure pour se terminer côté emmanchure. Tricotez jusqu'à 58 cm de hauteur totale et rabattez.

01.12.2023 - 08:19

country flag Lucie wrote:

Lorsque l'on sépare le dos et les manches, on rabat des mailles pour les emmanchures. Et EN MEME TEMPS, pour le dos par ex, on doit rabattre aussi des mailles au début de chaque rang de chaque côté. Je veux savoir, pour le dos, le premier rang pour rabattre est il aussi à la suite du moment où on rabat des mailles pour séparer le dos et les manches ?

06.10.2023 - 23:24

DROPS Design answered:

Bonjour Lucie, tout à fait, vous pouvez commencer au début du 1er rang tricoté juste sur les mailles du dos. Bon tricot!

09.10.2023 - 08:18

country flag Ana Ward wrote:

I'm confused after splitting into three sections. I've decreased under the armholes but the numbers don't add up - they were correct on strating the cable lace pattern, right amount of repeats but now at the centre section I have too many stitches. Cannot understand what I've done wrong. Help!

24.07.2022 - 12:29

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ward, make sure that you don't count the yarn overs from the lace patterns as stitches, these come extra. Hope it can help, happy knitting!

01.08.2022 - 17:03

country flag Mary wrote:

I am new to knitting and trying to figure out the sizes provided! Can you explain the different numbers provided for S and M as it gets a little confusing how many to cast on initially,. SIZE S: 28, 35, 41 and 48 cm / 11", 13 3/4", 16", 19" SIZE M: 28, 35, 43 and 50 cm / 11", 13 3/4", 17", 19 3/4" Cast on 282-309-327-354-408-426 sts (includes 5 band sts in each side towards mid front)... Which do I go with if doing this pattern for a size 34 bust?

31.05.2021 - 02:47

DROPS Design answered:

Hi Mary, You will find a measurements diagram at the bottom of the pattern. When you have found your size (say size S), you use all the first numbers each time a stitch count or measurement is given (and choose either cm or inches depending on which you are most comfortable with). Happy knitting!

31.05.2021 - 07:32

country flag Linda wrote:

Goede middag, ik brei het vest Golden Blossom met Drops Belle garen. Het vest is voor een vriendin met maat XL. Haar maten komen redelijk overeen met de tekening bij dit patroon , behalve de omtrek van de onderkant van het vest. Deze is van een goed passend bestaand vest van haar ca. 104 cm. Ik heb van Golden Blossom patroon A1 gebreid en heb 316 st. op de naald (klopt vlgs patroon). De breedte is echter 160 cm. De stekenproef heb ik 3 x gedaan, die klopt met 21 st op 10 cm. Graag hulp!

26.03.2021 - 14:45

DROPS Design answered:

Dag Linda

Als het goed is wordt de breedte nadat je klaar bent met A.2 kleiner, omdat er in de laatste naald van A.2 minderingen zijn verwerkt (2 averecht samen)

26.03.2021 - 15:37

country flag Mamoba wrote:

Bonjour, Comment trouver le patron de ce modèle en français s'il vous plaît ? Merci pour votre aide.

13.06.2020 - 21:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mamoba, cliquez sur le menu déroulant sous la photo et sélectionnez "français". Bon tricot :)

15.06.2020 - 10:14