DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10120.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 169-37
DROPS Design: Mynstur nr e-244
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Mál:
1 ferningur mælist 10½ x 10½ cm.
Teppið mælist ca 90 x 130 cm.

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
300 g nr 18, natur
150 g nr 10, vanillugulur
100 g nr 01, ljós bleikur
100 g nr 04, grænn
100 g nr 11, skærgulur
100 g nr 28, appelsínugulur
100 g nr 50, ljós ísblár
50 g nr 12, ferskja
50 g nr 13, kórall
50 g nr 51, bensínblár
50 g nr 55, kirsuber

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 1 ferningur verði 10½ x 10½ cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10120.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

LITASAMSETNING:
Það eru heklaðir 6 mismunandi ferningar og 16 ferningar í hverri litasamsetningu (alls 96 ferningar):

FERNINGUR 1:
Uppfitjun + umferð 1: skærgulur.
Umferð 2: ferskja.
Umferð 3-4: ljós bleikur.
Umferð 5: natur.
Umferð 6: kirsuber.
Umferð 7: vanillugulur.
Umferð 8: natur.

FERNINGUR 2:
Uppfitjun + umferð 1: ljós ísblár.
Umferð 2: grænn.
Umferð 3-4: vanillugulur.
Umferð 5: ljós bleikur.
Umferð 6: kórall.
Umferð 7: appelsínugulur.
Umferð 8: natur.

FERNINGUR 3:
Uppfitjun + umferð 1: vanillugulur.
Umferð 2: skærgulur.
Umferð 3-4: grænn.
Umferð 5: bensínblár.
Umferð 6: appelsínugulur.
Umferð 7: ferskja.
Umferð 8: natur.

FERNINGUR 4:
Uppfitjun + umferð 1: ljós bleikur.
Umferð 2: kirsuber.
Umferð 3-4: appelsínugulur.
Umferð 5: skærgulur.
Umferð 6: natur.
Umferð 7: ljós ísblár.
Umferð 8: natur.

FERNINGUR 5:
Uppfitjun + umferð 1: kóral.
Umferð 2: appelsínugulur.
Umferð 3-4: ljós ísblár.
Umferð 5: kirsuber.
Umferð 6: bensínblár.
Umferð 7: grænn.
Umferð 8: natur.

FERNINGUR 6:
Uppfitjun + umferð 1: ferskja.
Umferð 2: kórall.
Umferð 3-4: natur.
Umferð 5: ljós ísblár.
Umferð 6: vanillugulur.
Umferð 7: ljós bleikur.
Umferð 8: natur.

LITASKIPTI:
Til þess að fá fallega litaskiptingu þegar skipt er um lit er síðasta kl í umf hekluð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu ll frá byrjun umf, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið þráðinn í gegnum l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið samanstendur af hekluðum ferningum sem saumaðir eru saman. Í lokin er heklaður kantur í kringum allt teppið.

FERNINGUR:
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið 5 ll með heklunál nr 3 með uppfitjunarkanti og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið síðan mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. heklið þannig:
UMFERÐ 1: 1 ll (jafngildir 1 fl), heklið 14 fl um hringinn, skiptið um lit – LESIÐ LITASKIPTI og endið á 1 kl í ll í byrjun umf = 15 l.
UMFERÐ 2: 1 ll (jafngildir 1 fl), * heklið 6 ll, 1 fl í 3. ll frá heklunálinni, 1 hst í næstu ll, 1 st í næstu ll og 1 tbst í næstu ll, hoppið yfir 2 fl í hringinn, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, en skiptið um lit á undan síðust l í umf og endið síðustu endurtekningu með 1 kl í ll í byrjun umf (í stað 1 fl í næstu l) = 5 krossfiskaarmar.
UMFERÐ 3: 8 ll (jafngilda 1 tbst + 4 ll), * 1 fl efst á fyrsta/næsta krossfiskaarmi, 4 ll, 1 tbst í fl á milli 2 krossfiskaarma, 4 ll *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, 1 fl efst á síðast krossfiskaarmi, 4 ll og endið á 1 kl í 4. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 4: 1 ll (jafngildir 1 fl), síðan eru heklaðar 4 fl um hvern ll-boga og 1 fl í hverja l á milli ll-boga, en um síðasta ll-boga í umf eru heklaðar 5 fl (í stað 4) = 51 fl í umf. Skiptið um lit og endið umf á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf.
UMFERÐ 5: 1 ll (jafngildir 1 fl), 1 fl í næstu l, * 2 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í hverja og eina af 2 næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 16 sinnum, 2 ll, skiptið um lit og endið á 1 kl í ll í byrjun umf = 68 l (34 fl + 34 ll).
UMFERÐ 6: 1 ll (jafngildir 1 fl), 1 fl í næstu l, * 2 fl um ll-boga, 1 fl í hverja og eina af 2 næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 16 sinnum, heklið 2 fl um síðast ll-boga, skiptið um lit og endið á 1 kl í ll í byrjun umf = 68 l í umf.
UMFERÐ 7: 4 ll (jafngilda 1 tbst), 1 tbst í næstu l, * 1 st í hverja af næstu 3 fl, 1 hst í hverja
af næstu 3 fl,1 fl í hvora af næstu 2 fl, 1 hst í hverja af næstu 3 fl, 1 st í hverja af næstu 3 fl, 1 tbst í næstu fl ** , 2 tbst + 2 ll + 2 tbst í næstu fl (= horn), 1 tbst í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekningin endar eftir **, heklið 2 tbst + 2 ll + 1 tbst í síðustu l, skiptið um lit og endið á 1 kl í 4. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 8: 2 ll (jafngilda 1 hst), síðan er heklaður 1 hst í hverja l umf hringinn, en um ll-boga í hvert horn eru heklaðir 2 hst + 1 ll + 2 hst, endið umf á 1 kl í ll í byrjun umf. Klippið frá og festið alla enda.

FRÁGANGUR:
Saumið teppið saman með 8 ferninga á breidd og 12 ferninga á lengd – sjá mynsturteikningu A.3.
Saumið ferningana saman fyrst á lengdina og síðan á breiddina með litnum natur – saumið í ysta lykkjubogann.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant í lokin í kringum allt teppið með heklunál nr 3 þannig – byrjið í einu horni og heklið frá réttu með litnum natur:
UMFERÐ 1: 1 ll (jafngildir 1 fl), síðan er hekluð 1 fl í hverja l umf hringinn (þ.e.a.s. 1 fl í hvern hst, 1 fl í hvert horn á sjálfum ferningnum, 1 fl í hverja skiptingu á milli ferninga og 2 fl + 2 ll + 2 fl í hvert horn á sjálfu teppinu), skiptið yfir í litinn vanillugulur og endið á 1 kl í ll í byrjun umf.
UMFERÐ 2: 3 ll, (jafngildir 1 st), heklið síðan 1 st í hverja fl umf hringinn, en um ll-boga í hvert horn á teppi er heklað 2 st + 2 ll + 2 st, í lok umf er skipt yfir í litinn skær gulur og umf endar á 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 3: 3 ll (jafngilda 1 st), heklið síðan 1 st í hvern st, en um ll-boga í hverju horni á teppi er heklað 2 st + 2 ll + 2 st, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 4: 1 ll, 1 fl í næstu l, * 2 ll, 1 kl í fyrstu ll sem hekluð var, hoppið yfir 1 l, 1 fl í hverja og eina af 3 næstu l á teppi *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í ll í byrjun umf.
Klippið frá og festið alla enda.

Mynstur

symbols = 5 ll, tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll
symbols = ll
symbols = kl
symbols = fl um hringinn/ll-boga
symbols = fl í l
symbols = hst í l/um ll-boga
symbols = st í l/um ll-boga
symbols = tbst í l
symbols = 6 ll, 1 fl í þriðju ll frá heklunálinni, 1 hst í næstu ll, 1 st í næstu ll, 1 tbst í síðustu ll
symbols = þessi umferð er síðasta umferðin í ferningnum og er útskýrð í mynstri A.1
symbols = 1 picot. 2 ll, heklið 1 kl í fyrstu ll sem var hekluð, hoppið yfir 1 l á teppinu
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Marie Belette wrote:

Bonjour, il me semble que les instructions du texte pour le tour 7 ne correspondent ni au diagramme ni à la video. Est-ce que je me trompe?

18.12.2018 - 08:47

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Belette, le texte correspond tout à fait au diagramme, on crochète de *à* 4 fois au total, mais la dernière fois, on termine au niveau de ** (= après 1 DB dans la m suivante avant le coin, et on termine par 2 DB, 2 ml, 1DB dans la dernière m, puis 1 mc dans la 4ème ml du début du tour. Bon crochet!

18.12.2018 - 09:05

country flag Radha Korsoski wrote:

Pivot 2 som visas i videoklippet görs inte på anna sätt som i beskrivningen i mönstret.\r\n\r\nSka det vara 2 eller 3 luftmassor och ska det vara en luftmassa eller fast maska i första luftmassan. \r\n\r\nMed vänlig hälsning, Radha

09.08.2018 - 20:04

DROPS Design answered:

Hej, du ska virka som det står i mönstret, dvs. 2 luftmaskor och 1 smygmaska i den första luftmaskan.

13.08.2018 - 14:19

country flag Maria Stenfeldt wrote:

Tidigare kunde man beställa garn till ett specifikt mönster direkt från sidan. Går det inte längre eller är det bara jag som inte hittar var?

11.07.2017 - 15:15

DROPS Design answered:

Hej Maria, jo det kan du, det är bara att kicka på "beställ" till höger på sidan under bilden. Lycka till!

12.07.2017 - 14:09

country flag Lion wrote:

Bonjour,j'ai terminé cette magnifique couverture ,j'en arrive l’assemblage ,cependant je ne comprends pas à quoi correspondent les chiffres de 1 à 6 sur le diagramme A3 . En vous remerciant par avance , V Lion .

06.11.2016 - 11:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lion, les chiffres 1 à 6 dans A.3 représentent chaque type de carré en fonction de l'ordre des couleurs (carrés 1 à 6). Bon assemblage!

07.11.2016 - 09:35

Maria Alice Cardoso wrote:

Muito bonito a combinações de cores. Gostaria de ver uma receita com motivos infantil

30.01.2016 - 02:09

country flag Claudia wrote:

Liebes DROPS-Team, wieviel Garn wùrde man brauchen wenn man die Decke mit nur 4 Farben häkeln möchte? Hauptfarbe bleibt weiss, und noch 3 Farben für die Sterne... Danke für Ihr Feedback! LG, Claudia

22.01.2016 - 19:02

DROPS Design answered:

Leider können wir Ihnen keine Angaben zum ganz genauen Garnverbrauch der Einzelfarben machen und somit auch nicht zum Garnverbrauch mit weniger Farben.

30.01.2016 - 11:06

country flag Daggi wrote:

Tolle Granny Squres in hübschen Farben.

20.01.2016 - 12:14

country flag Daggi wrote:

Tolle Granny Squares und delikate Farben

20.01.2016 - 11:34

country flag Päivi wrote:

A funny feeling of fruits

27.12.2015 - 23:23