DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 161-12
DROPS Design: Mynstur nr la-023
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Mál:
Mælt ofan frá og niður ca 69 cm.
Mælt meðfram kanti að ofan ca 138 cm.

Efni:
DROPS LACE frá Garnstudio
100 gr litur nr 6410, turkos

Eða notið:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
250 gr litur nr 2918, dökk turkos

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – ATH! Lesið um prjónfestu að neðan.

PRJÓNFESTA:
Þessa flík á að bleyta og strekkja í rétta stærð í lokin þannig að prjónfestan er ekki svo mikilvæg, en til þess að hafa einhverja hugmynd um hversu laust/fast er prjónað þá er prjónuð prufa á prjóna nr 3,5 og er hún þá ca 23 l og 30 umf með sléttprjóni/45 umg garðaprjón verða 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.19. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

FORMUN:
Ef skipt er um í annað garn en Lace frá garnflokki A þarf ekki að strekkja sjalið út í rétta stærð, heldur að leggja það flatt og það dregið varlega í rétt form. Láta það þorna. Þetta er svo endurtekið í hvert skipti sem sjalið er þvegið.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka ofan frá og niður á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjur.

SJAL:
Fitjið upp 5 l á hringprjóna nr 3,5 með Lace og prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan áfram í garðaprjóni og aukið út þannig: Prjónið 1 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 l = 9 l. Prjónið sl til baka, uppslátturinn er prjónaður slétt svo það myndist gat.
Haldið áfram í sléttprjóni og aukið síðan út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 3 kantlykkju í hvorri hlið og sláið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við miðjulykkju = 4 l útauknar í hverri umf frá réttu. Haldið svona áfram með útaukningu þar til 49 l eru á prjóni (þ.e.a.s. það eru 24 l í hvorri hlið við miðjulykkju).

Prjónið eftir A.1-A.6 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir 2 l, A.2 fram þar til 3 l eru eftir á undan miðjulykkju, A.3 yfir 3 l, 1 l sl (= miðjulykkja), A.4 yfir 3 l, A.5 þar til 5 l eru eftir, A.6 yfir 2 l og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Miðjulykkjan er prjónuð í sléttprjóni og kantlykkja er prjónuð í garðaprjóni. Þegar A.1-A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er pláss fyrir 2 endurtekningar til viðbótar af A.2/A.5 í hvorri hlið á sjali. Þegar A.1-A.6 hefur verið prjónað alls 8 sinnum á hæðina eru 305 l á prjóni (þ.e.a.s. 152 l hvoru megin við miðjulykkju).

Prjónið eftir mynstri A.7-A.12 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.7 yfir 2 l, A.8 er endurtekið þar til 3 l eru eftir á undan miðju-l, A.9 yfir 3 l, 1 l sl (miðjulykkja), A.10 yfir 3 l, A.11 er endurtekið þar til 5 l eru eftir, A.12 yfir 2 l og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.7-A.12 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 359 l á prjóni (þ.e.a.s. það eru 179 l hvoru megin við miðjulykkju).

Prjónið eftir mynstri A.13-A.19 þannig: 3 kantlykkjur, A.13 yfir 4 l, A.14 er endurtekið þar til 4 l eru eftir á undan miðjulykkju, A.15 yfir 1 l, A.16 yfir 7 l (= miðjulykkjan er miðjan á þessum l), A.17 yfir 1 l, A.18 er endurtekið þar til 7 l eru eftir, A.19 yfir 4 l og 3 kantlykkjur í garðaprjóni.

Þegar mynstur hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er fellt laust af. ATH! Tvöfaldi uppslátturinn í síðustu umf í mynstri er prjónaður á meðan fellt er af þannig: 1. uppslátturinn er prjónaður slétt, 2. uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt.

STREKKING:
Leggið sjali í volgt vatn þar til það er orðið gegnblautt. Pressið varlega vatnið úr sjalinu – ekki vinda, rúllið síðan sjalið inn í handklæði og pressið til þess að ná restina af vatninu úr – sjalið á að vera aðeins rakt. Ef Alpaca er notað – LESIÐ FORMUN!
Leggið sjalið á mottu eða á dýnu – dragið það varlega út í rétta stærð og notið nálar til að festa það niður, dragið sjalið út við miðju á gataumferðum í A.13-A.19 í horn. Látið sjalið þorna. Endurtakið í hvert skipti sem sjalið er þvegið.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 08.12.2015
Leiðrétting: Leiðrétting á 3 röð í A.16
Yfirfarið á vefsvæði: 29.09.2016
Nýtt mynstur A.9 (vantaði uppslátt í umf 6). Nýtt mynstur A.10 (vantaði 2 l slétt saman í umf 11). Nýtt mynstur A.15 og A.17 (breyting í umf 3 og 4).
Yfirfarið á vefsvæði: 05.04.2018
Leiðrétting í mynsturteikningu A.9 og A.10 umferð 11
Yfirfarið á vefsvæði: 25.03.2019
Mynsturteikning A.13, A.18 og A.19 hafa verið uppfærðar þannig að útaukningar og úrtökur eru réttar.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður slétt svo að það myndist göt í næstu umf.
symbols = 2 uppslættir á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl og steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

161-12 Le Marais

Jaana, Finland

161-12 Le Marais

Kate, Latvia

161-12 Le Marais

Kate, Latvia

Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (90)

country flag Petra wrote:

Ich bedanke mich sehr und bin glücklich diese Arbeit geschafft zu haben. Vielen Dank für Ihren Rat. Ich habe die Farbe Camel in Baby Alpaka mit Seide genommen und es ist die traumhaft.Petra

15.03.2020 - 12:16

country flag Petra wrote:

Hallo, ich habe le Marais von Drops gestrickt und kann jetzt auf der allerletzten Reihe etwas nicht genau erkennen. Es werden dort teilweise doppelte Umschläge () schwarz ausgefüllt = zwei Umschläge zwischen zwei Maschen oder nur die normalen Umschläge(/) = ein Umschlag zwischen zwei Maschen- gestrickt? In der letzten Reihe wird im Diagramm von zwei Umschlägen die teilweise rechts verstrickt werden gesprochen, die Zeichnungen sind aber leider unscharf . Kann jemand helfen? Danke

12.03.2020 - 21:26

DROPS Design answered:

Liebe Petra, bei der letzten Reihe in den Diagrammen haben Sie entweder 1 Umschlag = 2. Symbol oder 2 Umschläge = 3. Symbol - wen Sie die Maschen abketten sollen Sie die doppelte Umschläge als 2 Maschen stricken und abketten damit der Rand nicht so eng wird. Viel Spaß beim stricken!

13.03.2020 - 08:49

country flag Marianne wrote:

Guten Tag, stehe wie ein Esel vor dem Berg, bin eigentlich eine gewohnte Strickerin, dieses Muster überfordert mich. Wie ist das gemeint mit den A1-A6 wo fange ich an, verstehe das absolut nicht, gibt es irgend ein einfacher Trick um das zu verstehen?FG Marianne

22.01.2020 - 22:33

DROPS Design answered:

Liebe Marianne, es sind Diagramme (A.1 bis A.19= zu diesem Modell, dh Sie Sollen die Diagramme stricken, genauso wie es in der Anleitung beschrieben ist. Lesen Sie vielleicht hier mehr über Diagramme und gerne können Sie weitere Frage hier stellen. Viel Spaß beim stricken!

23.01.2020 - 09:55

country flag Françoise wrote:

Sur le dernier rang à l'endroit de A14 et A18 au début et à la fin il y a un jeté faut il les faire tout les deux c'est à dire un deux jetés entre les deux mailles. Merci d’avance de votre réponse .

13.03.2019 - 10:34

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise, il y a effectivement un jeté de trop à la transition des diagrammes, vous devez bien avoir 1 jeté pour chaque diminution, même à la transition entre les diagrammes. Les diagrammes vont être corrigés, merci. Bon tricot!

25.03.2019 - 09:24

country flag Marianne Ruth wrote:

Jeg kan faktisk ikke komme igang da jeg ikke i diagrammet kan se hvad de forskellige masker betyder . Fx A1 allerede de første masker kan jeg ikke se hvad betyder

18.01.2019 - 18:05

DROPS Design answered:

Hei Marianne. Gjelder dette uansett hvaslags enhet du bruker? (mobil, PC, nettbrett). Vi har nå sjekket den danske oppskriften og alle symbolene ligger synlige i symbolforklaringen. Kan du se dem på et av de andre språkene? God fornøyelse

21.01.2019 - 10:03

country flag Tessa wrote:

Bonjour,\r\nQue veut dire : « 3m de bordure au point mousse, A1 au dessus des 2m suivantes, répétez A2 jusqu\'à ce qu\'il reste 3m avant la maille centrale, A3 au dessus des 3m suivantes, 1m end (=m centrale), A4 au dessus des 3m suivantes, A5 jusqu\'à ce qu\'il reste 5m, A6 au dessus des 2m suivantes et 3m de bordure au point mousse?\r\nMerci

08.06.2018 - 17:09

DROPS Design answered:

Bonjour Tessa, c'est la façon dont vous allez maintenant tricoter les mailles du rang: 3 m point mousse, A.1 (= 2 m), répétez les 8 m de A.2 jusqu'à ce qu'il reste 3 m avant la m centrale (= 2 fois en largeur), puis tricotez A.3 sur ces 3 dernières mailles, tricotez la m centrale en jersey, et tricotez ensuite A.4 (= 3 m), 2 x A.5 sur les 16 m suivantes) et terminez par A.6 (= 2 m) et 3 m point mousse. Bon tricot!

11.06.2018 - 08:07

Leena wrote:

Would you fix this please and the diagrams A9 & A10 on line 11 in the "Le Marais" shawl, thank you!

15.03.2018 - 15:14

DROPS Design answered:

Dear Leena, diagrams are correct online., they have been edited in 2016. If you got the printed catalogue or if you print the pattern before that day you may have to print pattern one more time to get it fully right. Happy knitting!

15.03.2018 - 15:45

country flag Manou wrote:

Comment termine t'on le châle sur l'envers je fai un rang de mousse et j'arrête en mousse sur le rang suivant est-ce ainsi SVP. Remerciements

21.06.2017 - 17:33

DROPS Design answered:

Bonjour Manou, après les derniers diagrammes, on rabat à l'endroit sur l'envers, rabattre les jetés comme expliqué. Bon tricot!

22.06.2017 - 08:20

country flag Madelene Jimstad wrote:

If you want to make a larger shawl, repeat chart A1-A6 11 times before knitting chart A7-A12. I used Drops Fabel 6,5 skeins (gauge 23,5-22 sts)

05.12.2016 - 16:49

country flag Madelene Jimstad wrote:

Ska man avmaska med räta maskor från avigsidan eller är det bara de dubbla omslagen som ska stickas rät och vridet rät?

05.12.2016 - 16:41

DROPS Design answered:

Hej Madelene. Du feller af med räta masker og de dubbla omslagen stickar du som beskrevet.

06.12.2016 - 15:32