DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS 156-43
DROPS Design: Mynstur nr bs-074
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
450-500-500-550-650-700 gr litur nr 7402, ljós sægrænn

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 48 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – fyrir kant.
DROPS PERLUTALA, NR 521: 4-4-4-5-5-5 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af fjórðu l frá miðju að framan og fitjið upp 1 nýja l yfir þá lykkju sem felld var af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá kanti þar sem lykkjur voru teknar upp):
Stærð S: 1, 6, 10 og 15 cm.
Stærð M: 1, 6, 11 og 17 cm.
Stærð L: 1, 6, 11 og 17 cm.
Stærð XL: 1, 5, 10, 14 og 20 cm.
Stærð XXL: 1, 5, 10, 14 og 19 cm.
Stærð XXXL: 1, 6, 11, 16 og 21 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð í hlutum í mismunandi áttir. Örvar í mynsturteikningu sýna prjónastefnu. Öll peysan er prjónuð í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar lykkjurnar.

BAKSTYKKI:
Bakstykkið er prjónað í 2 hlutum og er saumað saman við miðju að aftan. Prjónið síðan berustykki héðan.

VINSTRA BAKSTYKKI:
Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
AUKIÐ ÚT Í HVERRI UMF Í HVORRI HLIÐ Á STYKKI JAFNFRAMT ÞVÍ SEM LYKKJUM ER FÆKKAÐ.

ÚTAUKNING:
Aukið ú um 1 l í byrjun á hverri umf frá réttu (= y- sjá mynsturteikningu) og í byrjun á hverri umf frá röngu (= x) með því að prjóna 2 l í fyrstu l.
Endurtakið útaukningu við miðju að aftan (= y) þar til stykkið mælist 32 cm í öllum stærðum (mælt meðfram y). Endurtakið útaukningu á neðri kanti (= x) þar til stykkið mælist 24-26-28-30½-33½-36½ cm mælt meðfram x. ATH! Í Stærð XXL og XXXL eru útaukningar á miðju að aftan (= y) lokið á undan útaukningum á neðri kanti (= x). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

ÚRTAKA Í HLIÐ:
Þegar útaukning á neðri kanti (= x) er lokið er lykkjum fækkað í hlið (= z) þannig: Fækkið um 1 l – LESIÐ ÚRTAKA – í byrjun á hverri umf frá röngu. Endurtakið úrtöku í hverri umf frá röngu til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm meðfram z – er fækkað um 1 l í byrjun á næstu umf frá röngu innan við 4 l (á eftir úrtöku). Endurtakið úrtöku með 2½ cm millibili alls 10 sinnum.

ÚRTAKA VIÐ MIÐJU AÐ AFTAN:
Þegar útaukningu við miðju að aftan (= y) er lokið er fækkið um 1 l í byrjun á næstu umf frá réttu. Endurtakið úrtöku í byrjun á hverri umf frá réttu þar til 3 l eru eftir. Fellið af.

HÆGRA BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra bakstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. öll úrtaka/útaukning sem útkskýrð er frá í byrjun umf frá réttu er nú gerð í byrjun umf frá röngu og svo öfugt.

FRÁGANGUR Á BAKSTYKKI:
Saumið saman vinstra og hægra bakstykki við miðju að aftan yst í lykkjubogann.

BERUSTYKKI AÐ AFTAN:
Stykkið er prjónað fram og til baka í garðaprjóni til loka. Prjónið upp (frá réttu) 1 l í hverja rönd í garðaprjóni á bakstykki – sjá strika línu í mynsturteikningu (alveg eins og á framstykki). Í næstu umf er lykkjufjöldinn jafnaður út til 96-106-119-128-142-156 l. Fitjið upp 1 l í lok 2 næstu umf (= kantlykkja) = 98-108-118-130-144-158 l. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 8-9-10-11-12-13 cm frá þeim stað sem lykkjur voru teknar upp. Fitjið upp 10-10-10-7-7-7 nýjar l í hvorri hlið fyrir ermi. Fitjið síðan upp í hvorri hlið í annarri hverri umf: 4-3-3-3-2-2 l 12-15-15-17-17-19 sinnum og 15-15-11-3-14-5 l 1 sinni = 244-248-250-252-254-258 l. Þegar stykkið mælist 26-28-30-32-34-36 cm frá þeim stað sem lykkjur voru teknar upp fellið af miðju 36-38-40-40-42-46 l af fyrir hálsmáli. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf er felld af 1 l við hálsmál = 103-104-104-105-105-105 l í hvorri öxl/ermi. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28-30-32-34-36-38 cm frá þeim stað sem lykkjur voru teknar upp – op fyrir ermar mælist ca 14-14-15-15-16-16 cm – fellið laust af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Framstykkið er prjónað skásett (eins og hægra bakstykki + kantur að framan), síðan er berustykki prjónað, þ.e.a.s það er prjónað þannig: Fitjið upp 10-10-10-10-11-11 l (= 3 l + 7-7-7-7-8-8 kantlykkjur að framan) á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið eins og HÆGRA BAKSTYKKI, en síðustu 7-7-7-7-8-8 l frá röngu eru prjónaðar án útaukninga (= kantur að framan). ATH! Þegar úrtaka frá réttu byrjar er lykkjum einnig fækkað í 7-7-7-7-8-8 kantlykkjum að framan.

BERUSTYKKI (VINSTRA FRAMSTYKKI):
Stykkið er prjónað fram og til baka í garðaprjóni. Prjónið upp (frá réttu) 1 l í hverja rönd í garðaprjóni og 1 l í hverja kantlykkju að framan fyrir miðju – sjá línu í mynsturteikningu. Í næstu umf er lykkjufjöldinn jafnaður út til 55-61-65-71-79-86 l. Í næstu umf er fitjuð upp 1 ný l í hlið (= kantlykkja) 56-62-66-72-80-87 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 8-9-10-11-12-13 cm frá þeim stað sem lykkjur voru teknar upp. Fitjið upp 10-10-10-7-7-7 nýjar l í lok næstu umf frá röngu fyrir ermi. Fitjið síðan upp frá hlið í annarri hverri umf: 4-3-3-3-2-2 l 12-15-15-17-17-19 sinnum og 15-15-11-3-14-5 l 1 sinni = 129-132-132-133-135-137 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 16-18-18-20-20-22 cm. Fellið nú af 18-18-18-18-20-22 l við miðju að framan fyrir hálsmáli. Fellið síðan af í annarri hverri umf við hálsmál 2 l 4-5-5-5-5-5 sinnum = 103-104-104-105-105-105 l eftir fyrir öxl/ermi. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28-30-32-34-36-38 cm frá þeim stað sem lykkjur voru teknar upp, stillið af eftir bakstykki. Fellið laust af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Framstykkið er prjónað skásett (eins og vinstra bakstykki + kantur að framan), prjónið síðan berustykki, þ.e.a.s. prjónið þannig:
Fitjið upp 10-10-10-10-11-11 l (= 3 l + 7-7-7-7-8-8 kantlykkjur að framan) á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk.
Prjónið eins og VINSTRA BAKSTYKKI – JAFNFRAMT eru fyrstu 7-7-7-7-8-8 l frá réttu prjónaðar án útaukninga (= kantur að framan).

BERUSTYKKI (HÆGRA FRAMSTYKKI):
Prjónið á sama hátt og VINSTRA BERUSTYKKI, nema spegilmynd – þ.e.a.s. fitjaðar eru upp l fyrir ermi í lok umf frá réttu. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan, á kanti að framan.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma/sauma yfir ermum, saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp (frá réttu) 100 til 140 l á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 6 umf garðaprjón fram og til baka. Fellið laust af.

STROFF:
Prjónið upp 1 l í hverja rönd í garðaprjóni neðst niðri á ermum. Í næstu umf er lykkjufjöldinn jafnaður út til 68-68-72-72-78-78 l. Prjónið síðan fram og til baka yfir allar l. Þegar stroffið mælist 17-18-18-19-19-19 cm (eða að óskaðri lengd) fellið laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma, sauma undir ermum og stroffsauminn í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í ca 1 cm frá kanti á vinstra framstykki.

HEKLAÐUR KANTUR:
Byrjið að hekla við miðju aftan í hnakka með heklunál nr 3,5 með BabyAlpaca Silk. Heklið 1 fl, * 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* í kringum hálsmál, niður meðfram framstykki, í kringum allan kant að neðan og upp og aftur aftan í hnakka. Endið á 1 kl í byrjun umf.
Heklið á sama hátt neðst í kringum stroff á báðum ermum.

Mynstur

symbols = prjónastefna
symbols = takið upp lykkjur hér
symbols = kantur að neðan
symbols = miðja að framan/miðja að aftan
symbols = hlið
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-43

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (58)

Gyde wrote:

Hallo. Ich habe ein Problem. Ich bin beim linken Rückenlehne. Achse y soll 32 cm sein. Danach die Achse x 36 1/2 cm. Wenn Achse x fertig ist, kommt die Seite z dran. Hier sollen wir abnehmen. Es soll doch bestimmt ein Rechteck entstehen. Was ist mit der Achse y? Muss man hier nicht nach den 32 cm weiter zunehmen? Sonst gibt es doch kein Rechteck. Danke und liebe Grüße. Gyde

17.05.2017 - 22:32

DROPS Design answered:

Liebe Gyde,Wenn die Zunahmen an der hinteren Mitte (= y) fertig sind, am Anfang der nächsten Hin-R 1 M abnehmen. Diese Abnahme am Anfang jeder Hin-R arbeiten, bis noch 3 M auf der Nadel sind. Abketten - siehe ABNAHMEN HINTERE MITTE. Viel Spaß beim stricken!

18.05.2017 - 09:08

country flag Silvia wrote:

Hallo, Gerne würde ich diese Jacke stricken und ich versuche gerade die Anleitung zu verstehen. Was ist bitte eine Passe? Wozu wird sie benötigt? Danke für eine kurze Information. Herzliche Grüße,Silvia

24.02.2017 - 16:18

DROPS Design answered:

Liebe Silvia, nach dem Sie das untere Teil (quer) gestrickt haben, dann nehmen Sie Maschen auf, so dass Sie das obere Teil (vom gepunkten Linie bis Schulter). Viel Spaß beim stricken!

24.02.2017 - 17:10

country flag Mechtild Gabriel wrote:

Guten Abend, danke für die Auflösung meines Rätsels. Das Wort "zusätzlich" statt "gleichzeitig" hat mir sofort die Augen geöffnet. Ich habe diese tolle Jacke vor 1/2 Jahr schon einmal in altrosa gestrickt ohne die 10 Abnahmen. Sie ist mit 12 gleichfarbigen Knöpfen wunderschön geworden. Ein Rückenteil ist jetzt fertig. Dank "drops" und "lanade" ist Stricken zu meinem bezahlbaren Vergnügen geworden. Die Modelle erregen überall Aufmerksamkeit. Danke und gute Nacht Mechtildt

30.06.2016 - 22:44

country flag Mechtild Gabriel wrote:

Ich verstehe den Satz "Diese Abnahme am Anfang jeder Rückreihe bis zum fertigen Maß arbeiten.GLEICHZEITIG bei einer Gesamtlänge von 3 cm (gemessen entlang x) 1 M abnehmen. Diese Abnahme alle 2 1/2 cm insgesamt 10 x arbeiten . Wie und wann soll wieviel abgenommen werden. Danke Mechtild Gabriel

29.06.2016 - 21:31

DROPS Design answered:

Liebe Mechtild, der linke Rand Ihres Strickstücks (von vorne betrachtet) war ja zunächst die Unterkante x und wird dann zum Seitenrand z. Dort werden die beschriebenen Abnahmen gemacht und zwar je 1 M in jeder Rück-R und zusätzlich nach 3 cm noch folgende Abnahmen, wiederum in der Rück-R: 4 M nach der Abnahme am Reihenanfang nochmals 1 M abn (und alle 2½ cm noch 9 x wdh, also ingesamt 10 x)

30.06.2016 - 13:20

country flag Moureau wrote:

Bonjour, Ce modèle est vraiment peu clair au point de vue des explications. Impossible à réaliser, suis très déçue.Marie

24.05.2016 - 17:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Moureau, pour toute assistance individuelle à la réalisation de ce modèle, vous pouvez vous adresser à votre magasin DROPS et/ou au forum DROPS. Bon tricot!

24.05.2016 - 17:53

country flag Marie wrote:

Bonsoir, vraiment je ne comprends rien à vos explications! Je commence avec 3 points et après??? je commence avec quoi?? Bonne soirée,Marie

23.05.2016 - 20:55

DROPS Design answered:

Bonjour Marie et désolée, pour reprendre dès le début: vous montez 3 m, et augmentez 1 m côté y (= début de rang sur l'end) + 1 m côté x (= début de rang sur l'env). Répétez les augm. côté Y jusqu'à 32 cm, mais en même temps à 3 cm le long de ce côté, diminuez côté z (début de rang sur l'env). Répétez les augm. côté X (cf taille) puis diminuez 1 m côté x (= début de rang sur l'env) tous les 2 rangs (= tous les rangs sur l'env). Quand les augm. côté y sont faites, diminuez 1 m au début de chaque rang sur l'end jusqu'à ce qu'il reste 3 m. Bon tricot!

24.05.2016 - 08:33

country flag Marie wrote:

Bonjour,je viens de commencer le modèle Clear Water,je ne comprends pas les explications demi-dos gauche???Dois je faire les diminutions à droite et à gauche en même temps,donc coté endroit un jeté et coté envers le rang d'après 2mailles dans le première maille ?Donc une augmentation tous les rangs. merci de m'éclairer.

23.05.2016 - 13:35

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, quand les augmentations à gauche (= côté x) sont terminées, diminuez 1 m en début de rang sur l'envers (côté gauche vu sur l'endroit), et, quand l'ouvrage mesure 3 cm côté Z (= à droite vu sur l'endroit), diminuez 1 m à 4 m du bord sur l'envers (= à gauche, vu sur l'endroit) (en plus de la diminution = 2 dim sur ce rang). Les augmentations côté Y se font tous les 2 rangs (tous les rangs sur l'endroit) jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 32 cm le long de ce côté. Bon tricot!

23.05.2016 - 14:13

country flag France Lamothe wrote:

Bonjour, Auriez-vous les mesures pour les différentes tailles pour le modèle Clear Water?

13.04.2016 - 22:03

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lamothe, vous trouverez à la fin des explications le schéma avec toutes les mesures pour chaque taille, comparez-les à un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la taille pour trouver la taille adéquate. Voir aussi ici. Bon tricot!

14.04.2016 - 08:54

country flag Florence wrote:

Bonjour J'aurais besoin de précisions concernant le devant gauche. Je ne comprends pas comment tricoter l'empiecement. Si vous pouviez m'apporter des précisions vousnm'aideriez beaucoup! Merci!

16.11.2015 - 18:21

DROPS Design answered:

Bonjour Florence, pour l'empiècement du devant gauche: on relève les m le long de la partie du bas, puis on tricote 1 rang sur l'env en ajustant le nbe de m. On monte ensuite 1 m sur le côté (= côté couture dos = à droite sur l'end) pour la lis. On tricote "droit" pendant quelques cm puis on monte les mailles de la manche en fin de rang sur l'envers. On rabat les mailles de l'encolure en début de rang sur l'envers et on rabat les mailles de l'épaule. Bon tricot!

17.11.2015 - 08:44

country flag Silvia wrote:

The manual has a crucial mistake: The lower parts of the jacket are knitted diagonally, the front parts include a border . That does not fit! >> When I knit up 10 cm = 48 R, measured diagonally, vertical edge is longer by a factor of √2 (= 1.414 …), that’s 14.1 cm. To keep from contracting use a steam iron, to force the border to the desired length . Better knit the border separately!

18.08.2015 - 22:57

DROPS Design answered:

Dear Silvia, when working front piece, you inc towards band until piece measures 32 cm, but inc towards x until piece measures 24-36.5 cm then when all inc towards x are done, start to dec towards z to get correct shape. Happy knitting!

19.08.2015 - 09:51