DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 20350.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

First in Line

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með gatamynstri og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 156-25
DROPS Design: Mynstur nr z-680
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
450-500-550-600-650-750 gr litur nr 9020, ljós perlugrár
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
200-200-225-250-275-300 gr litur nr 22, öskugrár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri gerð verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 20350.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mysnturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ATH: Mynsturteikning passar ekki á hæðina þegar hún er endurtekin, en gataumferðin heldur áfram beint upp, eins og áður, JAFNFRAMT er byrjað á nýrri gataumferð í 20. hverri umf í hvorri hlið á stykki. Þ.e.a.s í 1. gataumferð í A.1 byrjar 4 umf á undan hinum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

PEYSA:
Fitjið upp 228-228-252-276-300-300 l á hringprjóna nr 4 með 1 þræði af hvorri gerð (= 2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í 10 cm. Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á hringprjóna nr 5 og prjónað er þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, MYNSTUR A.1B (= 12 l) – sjá útskýringu að ofan, yfir næstu 108-108-120-132-144-144 l (= 9-9-10-11-12-12 mynstureiningar á breiddina), A.1A (= 12 l) yfir næstu 108-108-120-132-144-144 l (= 9-9-10-11-12-12 mynstureiningar á breiddina), endið á 6 l garðaprjón. Mynstur A.1 færist til um 1 l við miðju að aftan í hverri umf frá réttu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 40-41-42-42-43-44 cm.
Stillið af að síðasta umf sé frá röngu. Næsta umf er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 6 l garðaprjón, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 72-72-78-90-96-96 l, garðaprjón yfir næstu 11 l, mynstur eins og áður yfir næstu 50-50-62-62-74-74 l, garðaprjón yfir næstu 11 l, mynstur eins og áður yfir næstu 72-72-78-90-96-96 l, endið á 6 l garðaprjón. Prjónið svona í 3 umf JAFNFRAMT í síðustu umf er felld af miðju l í hverri 11 lykkju í garðaprjóni = 226-226-250-274-298-298 l.
Nú skiptist stykkið og prjónað er op fyrir handveg.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið síðustu143-143-161-173-191-191 l á þráð, nú er bara prjónað yfir fyrstu 83-83-89-101-107-107 l. Haldið svona áfram með mynstur eins og áður, þ.e.a.s. prjónað er frá réttu þannig: 6 l garðaprjón, A.1B eins og áður, endið á 5 l garðaprjón. Prjónið þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm frá þeim stað þar sem stykkinu var skipt upp. ATH: Stillið af að síðasta umf er frá röngu. Setjið l á þráð og prjónið vinstra framstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka síðustu 83-83-89-101-107-107 l á prjóninn, prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd, prjónið A.1A í stað A.1B. ATH: Stillið af að síðasta umf er frá röngu. Setjið l á þráð og prjónið bakstykki.

BAKSTYKKI:
Setjið til baka þær 60-60-72-72-84-84 l sem eftir eru á prjóninn. Haldið áfram með mynstur eins og áður, 5 l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar bakstykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm, stillið af að síðasta umf sé frá röngu og stillið af eftir framstykki, setjið öll stykkin tilbaka á sama hringprjón nr 5. Nú er prjónað áfram þannig: Prjónið garðaprjón og mynstur eins og áður yfir framstykki að 5 l garðaprjóni, prjónið 5 l garðaprjón, fitjið upp 1 nýja l, 5 l garðaprjón, mynstur yfir bakstykki eins og áður að 5 l garðaprjón, prjónið 5 l garðaprjón, fitjið upp 1 nýja l, 5 l garðaprjón, mynstur og garðaprjón yfir framstykki eins og áður = 228-228-252-276-300-300 l á prjóni. Prjónið alls 4 umf garðaprjón yfir 11 l á milli framstykkja og bakstykkis. Prjónið nú mynstur með 6 kantlykkjum með garðaprjóni á hvorri hlið þar til stykkið mælist alls 75-77-79-81-83-85 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið garðaprjón. Fellið af þegar stykkið mælist 85-87-89-91-93-95 cm.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 32-35-37-38-39-41 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 4 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 8 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Stykkið er nú prjónað áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki. Endurtakið útaukningu með 3-3-3-2½-2½-2½ cm millibili 13-13-14-15-16-17 sinnum til viðbótar = 60-63-67-70-73-77 l á prjóni. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 52-53-54-55-56-57 cm. Fellið af kantlykkjur í hvorri hlið á stykki í byrjun á 2 næstu umf = 58-61-65-68-71-75 l eftir á prjóni. Fellið nú af fyrir handveg í hvorri hlið á stykki í byrjun á hverri umf þannig: Fellið af 4 l alls 5 sinnum = 18-21-25-28-31-35 l eftir á prjóni. Fellið af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist ca 57-58-59-60-61-62 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í. Saumið sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn
symbols = prjónastefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (61)

country flag Isabelle wrote:

Dans ce modèle on nous dit de commencer un nouveau rang ajouré tous les 20 rangs or le diagramme est sur 18 rangs, que fait on du rang manquant ?

01.03.2024 - 19:20

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, on continue simplement le motif ajouré pour que les diagonales continuent comme avant, mais il faudra 20 rangs pour pouvoir commencer un nouveau motif en largeur. Bon tricot!

04.03.2024 - 07:20

country flag Chey wrote:

Bonjour, quand est-ce qu'on arrête de tricoter avec les 2 fils différents comme dit dans la VESTE et pour les MANCHES ? : "VESTE : Monter 228-228-252-276-300-300 m avec l'aiguille circulaire 4 et 1 fil de chaque qualité (= 2 fils tricotés ensemble). " et "MANCHES : [...] Monter 32-35-37-38-39-41 m (y compris 1 m lis de chaque côté) avec l'aiguille circulaire 4 et 1 fil de chaque qualité (= 2 fils tricotés ensemble). "

23.10.2022 - 19:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Chey, cette veste se tricote entièrement avec 1 fil de chacune des deux qualités, autrement dit avec 1 fil Alpaca + 1 fil Kid-Silk et 17 mailles x 22 rangs jersey = 10 x 10 cm. Bon tricot!

24.10.2022 - 08:45

country flag Bouvard Plunet Catherine wrote:

Oui j ai bien compris qu il fallait recréer un dessin mais je ne sais pas à quel moment Merci pour votre réactivité Très cordialement Cath

22.11.2021 - 09:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bouvard Plunet et désolée pour la réponse tardive, il semble que votre question n'a pas été vue; lorsque vous divisez l'ouvrage en 3 parties, vous continuez les motifs exactement comme avant sur le nombre de mailles restantes pour que les diagonales continue comme elles le faisaient avant et continuez à répéter le motif en hauteur tout comme auparavant également. Bon tricot!

19.01.2022 - 10:44

country flag Bouvard Plunet Catherine wrote:

Bonjour Lorsque le tricot est séparé en 3 morceaux dois je reconstituer le dessin du dos et si oui à quel moment Merci Cordialement Cath

22.11.2021 - 08:14

DROPS Design answered:

Bonjour Cath, tout à fait, vous devez continuer le point fantaisie du dos comme avant. La 2ème photo pourra probablement vous éclairer. Bon tricot!

22.11.2021 - 08:49

country flag Louise Linding wrote:

Hej Jeg forstår ikke forklaringen - der står at der startes på en ny hulrække for hver 20. Pind, men der er kun 18 pinde i diagrammet? Derudover står der, at 1.hulrække i A.1 starter 4 p før den anden - det forstår jeg heller ikke… Håber i kan hjælpe mig…

24.10.2021 - 17:31

DROPS Design answered:

Hej Louise, det vil ske automatisk når du starter det hvor der står JAKKE: Slå op og strik MØNSTER A.1B på første halvdel og A.1A over den anden halvdel. God fornøjelse!

25.10.2021 - 12:27

country flag Rumposch wrote:

GLEICHZEITIG beginnt in jeder 20. R auf jeder Seite der Arb eine neue Lochreihe d.h. die 1.Lochreihe von A.1 beginnt 4 R vor den anderen.----der Abstand der Reihen stimmt doch dann nicht oder sehe ich das falsch? Danke für Ihre Hilfe. Rumposch

20.04.2021 - 21:22

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rumposch, ein neues Rapport von A.1 können Sie beginnen wenn Sie wenigstens 8 Maschen + 2 M (für das 1. Lochmuster) + 1 M davor = 11 Maschen vor dem Umschlag im ersten A.1 und nach dem Umschlag von letzen A.2. Bei dieser Reihe können Sie nur 1 Loch stricken im ersten A.1 und letzten A.2, bei der nächsten Hinreihe haben Sie dann genügend Maschen um die beiden Löcher zu stricken. Viel Spaß beim stricken!

21.04.2021 - 07:50

country flag Luiza wrote:

Lindo adorei ,vou fazer um desse pra mim parabéns pra quem criou esse belo trabalho.👏👏❤

13.03.2021 - 04:22

country flag Jackie wrote:

Loved this item but have never knitted from a chart before and am struggling a bit to follow - am I right in saying that by the time I have knitted 44cm I will have reduced my stitches? If so I am unable to see where! Is it possible to get the pattern row by row rather than a chart?

14.02.2021 - 11:18

DROPS Design answered:

Dear Jackie, after you cast on and knit the first 44 rows, your number of stitches does not change. In the pattern for ever decrease there is a corresponding yarnover. Unfortunately there is no written out explanation for the pattern itself, but HERE is a lesson, that might help you make sense of the charts. Happy Knitting!

14.02.2021 - 13:30

country flag Nelli wrote:

Ich möchte dieses Modell in Drops Air nacharbeiten, wie viel Gramm bräuchte ich für Gr. XXXL? Danke:)

16.08.2019 - 17:05

DROPS Design answered:

Liebe Nelli, Sie können unseren Garnumrechner benutzen, oder hier finden Sie wie man die neue Garnmenge kalkuliert. Viel Spaß beim stricken!

19.08.2019 - 08:37

country flag BOUVARD PLUNET wrote:

Bonjour j ai bien compris qu il fallait recommencer un nouveau dessin tout les 20 rangs mais je n ai pas assez de mailles pour créer le point fantaisie Merci beaucoup Cath bouvard plunet

07.07.2019 - 08:15

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bouvard Plumet, pour répéter les motifs en hauteur, on continue d'abord les diagonales de A.1B et A.1A aux rangs suivants, jusqu'à ce que vous ayez 11 m endroit en début de rang avant le 1er A.1B et après le dernier A.1A, vous pouvez maintenant commencer un nouveau motif en largeur sur ces 11 premières et dernières mailles (= 1 jeté, 1 diminution, 10 m end pour A.1B - 10 m end, 1 jeté, 1 dim pour A.1A) (soit 4 rangs en continuant les diagonales comme avant, avant de pouvoir commencer une nouvelle diagonale ajourée). Bon tricot!

08.07.2019 - 09:58