DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Glitter
DROPS Glitter
60% Cupro, 40% Málmþræðir
frá 572.00 kr /10g
DROPS SS24

Christmas Morning

Heklaður hringlaga dúkur úr 1 þræði DROPS Cotton Viscose og 1 þræði DROPS Glitter. Þema: Jól.

DROPS Extra 0-993
DROPS Design: Mynstur nr n-151
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð:
Lítill dúkur: ca 30 cm að þvermáli
Stór dúkur: ca 60 cm að þvermáli

Efni:
DROPS COTTON VISCOSE frá Garnstudio
50-200 gr litur nr 05, rauður
Og einnig:
DROPS GLITTER frá Garnstudio
1 rúlla í báðar stærðir litur nr 08, rauður

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st á breidd og 10 umf á hæð með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm (MYNSTUR A.1 og A.2 jafngilda 4 umf með st á hæð).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Glitter
DROPS Glitter
60% Cupro, 40% Málmþræðir
frá 572.00 kr /10g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. Umf endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (sjá einnig útskýringu á umf í MYNSTRI A.1 og A.2).

MYNSTUR A.1 (deilanlegt með 4 l):
Mynstrið samanstendur af 4 umf og mynsturteikning A.1 sýnir umf 5 og 6 í mynstri.
Heklið þannig:
UMFERÐ 5: Heklið 4 ll (jafngildir 1 st + 1 ll), hoppið yfir 1 st, í næsta st er heklað 1 st + 7 ll + 1 st, 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st, heklið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.1 þannig: * Heklið 1 ll, hoppið yfir 1 st, í næsta st er heklað 1 st + 7 ll + 1 st, 1 ll, hoppið yfir 1 st **, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en síðasta endurtekningin endar eftir **, heklið nú síðan 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.
UMFERÐ 6: Heklið eftir mynsturteikningu A.1 þannig * heklið 7 st um næsta ll-boga, heklið 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrsta st frá byrjun umf = 12 st-hópar.
UMFERÐ 7: Heklið 1 kl í hvorn af næstu 2 st, 1 ll, 1 fl í 4. st í st-hópinn, * 7 ll, 1 fl í 4 st í næsta st-hóp *, endurtakið frá *-* alls 11 sinnum, endið á 7 ll og 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf = 12 ll-bogar og alls 96 l í umf.
UMFERÐ 8: Heklið 3 ll (jafngildir 1 st), * 1 ll, hoppið yfir 1 l, 1 st í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 48 st og 1 ll á milli hverra st (= alls 96 l í umf).

MYNSTUR A.2 (deilanlegt með 6 l):
Mynstrið samanstendur af 4 umf og mynsturteikning A.1 sýnir umf 14 og 15 í mynstri.
Heklið þannig:
UMFERÐ 14: Heklið 4 ll (jafngildir 1 st + 1 ll), hoppið yfir 2 st, í næsta st er heklað 1 st + 7 ll + 1 st, 1 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í næsta st, heklið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.2 þannig: * Heklið 1 ll, hoppið yfir 2 st, í næsta st er heklað 1 st + 7 ll + 1 st, 1 ll, hoppið yfir 2 st **, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en síðasta endurtekningin endar eftir **, heklið nú síðan 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.
UMFERÐ 15: Heklið eftir mynsturteikningu A.2 þannig * heklið 7 st um næsta ll-boga, heklið 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrsta st frá byrjun umf = 26 st-hópar.
UMFERÐ 16: Heklið 1 kl í hvorn af næstu 2 st, 1 ll, 1 fl í 4. st í st-hóp, * 7 ll, 1 fl í 4. st í næsta st-hóp, 7 ll, 1 fl í 4. st í næsta st- hóp, 6 ll, 1 fl í 4. st í næsta st-hóp, 7 ll, 1 fl í 4. st í næsta st-hóp, 7 ll, 1 fl í 4. st í næsta st-hóp, 7 ll, 1 fl í 4. st í næsta st-hóp *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, 7 ll, 1 fl í 4. st í næsta st-hóp, 7 ll og 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf = 26 ll-bogar og alls 204 l í umf.
UMFERÐ 17: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), * 1 ll, hoppið yfir 1 l, 1 st í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 102 st og 1 ll á milli hverra st (= alls 204 l í umf).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

DÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

LÍTILL OG STÓR DÚKUR:
Heklið 4 ll með heklunál nr 3,5 með 1 þræði af Cotton Viscose og 1 þræði af Glitter (= 2 þræðir) og tengið í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 12 st um hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 st.
UMFERÐ 3: * Heklið 2 st í fyrsta st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 st.
UFMFERÐ 4: * Heklið 2 st í fyrsta st, 1 st í hvorn af næstu 2 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 st.
UMFERÐ 5-8: Heklið MYNSTUR A.1 – sjá útskýringu að ofan.
UMFERÐ 9: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið * 2 st í fyrstu l, 1 st í hverja af næstu 7 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 108 st.
UMFERÐ 10: * Heklið 2 st í fyrstu l, 1 st í hverja af næstu 8 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 120 st.
UMFERÐ 11-13: Haldið áfram með útaukningu eins og í umf 9 og 10 (þ.e.a.s. að í hverri umf er heklaður 1 st fleiri á milli í hvert skipti sem heklaðir eru 2 st í sömu l = 12 l fleiri í hverri umf). Eftir umf 13 eru 156 st í umf.
UMFERÐ 14-17: Heklið MYNSTUR A.2 – sjá útskýringu að ofan, en LÍTILL DÚKUR endar eftir umf 15.
UMFERÐ 18: * Heklið 2 st í fyrstu l, 1 st í hverja af næstu 16 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 216 st.
UMFERÐ 19-28: Haldið áfram með útaukningu eins og umf 18, þ.e.a.s. að í hverri umf er heklaður 1 st fleiri á milli skipta þegar heklaðir eru 2 st í sömu l = 12 l fleiri í hverri umf. Eftir umf 28 eru 336 st í umf.
UMFERÐ 29-30: Heklið mysntur eftir mynsturteikningu A.2 (= 2 umf).
Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = 1 st um ll-bogann að neðan
symbols = 1 st í l að neðan
symbols = 1 ll
symbols = 1 fl
symbols = sýnir hvar umf í mynstri byrjar og hvernig l er staðsett í framhaldi af umf að neðan
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-993

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Afra Grent wrote:

Als het haakwerk gaat omkrullen moet je dan een dikkere haaknaald gebruiken ?

28.01.2021 - 17:02

DROPS Design answered:

Dag Afra Grent,

Als het haakwerk om gaat krullen, dus als er a.h.w. een kommetje ontstaat in plaats van een platte cirkel, betekent dat dat de stekenverhouding (breedte/hoogte) niet overeenkomt met die van het patroon. Je moet in dat geval zorgen dat je meer herhalingen van het patroon in de rondte maakt. Als het werk gaat golven als het plat ligt, moet je juist minder herhalingen van het patroon in de rondte maken.

29.01.2021 - 12:55

country flag Laurie wrote:

Hello, why does pattern A1 end with round 8 and then pattern A2 begins with round 14? From the picture it looks like A1 (the smaller one) has at least 12 or 13 rounds. Thank you.

15.09.2020 - 20:11

DROPS Design answered:

Dear Laurie, the diagrams A.1 and A.2 are showing only one part of the pattern = the lace part with the fans. Work A.1 and A.2 either as shown in diagram or as explained at the beginning of the pattern. Happy crocheting!

16.09.2020 - 08:37

country flag Helle wrote:

In round 5 In pattern A1 this is between the first aterixs: ch 1, skip 1dc.. and it ends with ...ch1, skip 1dc. This is not an error? Can’t really get it to fit properly. Maybe doing it wrong. So actually it is: ch2, skip 2dc? Thank you to anyone who can help! :)

29.11.2019 - 13:43

DROPS Design answered:

Dear Helle, on round 5, you repeat: ch 1, skip 1 dc, in next dc work 1 dc + 7 ch + 1 dc, ch 1, skip 1 dc, 1 dc in next dc * (= as shown in A.1), but work last repetition on the round with: ch 1, skip 1 dc, in next dc work 1 dc + 7 ch + 1 dc, ch 1, skip 1 dc, then 1 sl st in 3rd ch from beg of round - see also video below. Happy crocheting!

29.11.2019 - 15:45

country flag Theresia. wrote:

Wel ervoor zorgen dat het aantal lossen na toer (17) deelbaar blijft door 6. die verandering doe je bij toer (16.)de boogjes met 6 lossen pas je aan. Dan weet je bij toer 18 hoeveel stokjes er moeten komen in de meerder toeren. (216-12):12=17.dus 1 meerdering+16stokjes ik hoop dat het duidelijk is

13.07.2016 - 12:45

country flag Theresia wrote:

Ik maak dit met garen10 en haaknaald 1.50 Het patroon is duidelijk,maar ik wil het met eenøvan 1 meter maken,moet ik het patroon dan steeds herhalen vanaf toer 9

10.07.2016 - 16:00

DROPS Design answered:

Hoi Theresia. Ja, dat zou ik doen denk ik - en dan steeds meerderen op dezelfde manier als in toer 9-10.

11.07.2016 - 13:48

country flag Elsa Rein wrote:

I would like to make a round. Tablecloth for my 90 years old mother. I Can knit but have never crochet. The table is 30 " in diameter. Can you please tell me what would be an easy way to do it?

08.09.2015 - 21:19

DROPS Design answered:

Dear Mrs Rein, you will find crochet lessons to start crochet, and videos related to the pattern under tab "videos" at the right side of the picture. For any personnal help & assistance, we recommand you to contact your DROPS store they will help you even per mail or telephone. Happy crocheting!

09.09.2015 - 10:05

country flag Pilar Marin Gonzalez wrote:

Envie pregunta que no entendia el patron,ahora lo he visto claro,lo siento Pero para mantel pequeño donde esta la vuelta 8? Gracias

18.02.2015 - 23:57

DROPS Design answered:

Hola Pilar, gracias por escribir. Parece que al publicar el patrón la vta 8 quedó sin añadirse. La añado ahora mismo y lamento las molestias.

23.02.2015 - 15:19

country flag Pilar Marin Gonzalez wrote:

Saludos!!! Me encanta este patron y me encantaria tejerlo,pero no entiendo las explicaciones,si quiero tejer el modelo pequeño,cuantas vueltas son? No entiendo sus explicaciones,me podrian ayudar por favor? Gracias

18.02.2015 - 23:48

country flag Pilar Buldain Perez wrote:

Serían tan amables de indicarme la vuelta n 8 por favor. Gracias

12.02.2015 - 12:22

country flag Kat wrote:

I didn't get it done this year but will make it in 2014 for sure. I made the Christmas tree rug/skirt pattern which looks similar to this, and that turned out beautifully, so I am sure this one will, too. Thank you, Drops, for another great crochet pattern. Happy New Year !

28.12.2013 - 16:59