DROPS Big Fabel
DROPS Big Fabel
75% Ull, 25% Polyamid
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Puddel
DROPS Puddel
94% Mohair, 6% Polyester
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 149-24
DROPS Design: Mynstur nr bf-015
Garnflokkur C + C
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 – 38/40 – 41/43
Lend fótar: 22 - 24 - 27 cm

Efni:
DROPS BIG FABEL frá Garnstudio
200-200-300 gr litur nr 905, svartur/natur
Eða notið:
DROPS Fabel frá Garnstudio
150-150-200 gr litur nr 905, salt og pipar

Og einnig:
DROPS PUDDEL frá Garnstudio
100-100-150 gr litur nr 07, milligrár

DROPS HEKLUNÁL NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 fl á breidd og 11 umf á hæð með 2 þráðum Big Fabel eða 4 þráðum Fabel verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Fabel
DROPS Big Fabel
75% Ull, 25% Polyamid
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Puddel
DROPS Puddel
94% Mohair, 6% Polyester
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

FL HEKLAÐAR SAMAN:
Heklið 2 fl saman að 1fl þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR- STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka ofan frá og niður.

TÁTILJA:
Heklið 22-26-26 lausar ll með heklunál nr 8 með 2 þráðum Puddel. Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 fl í hverja ll út umf = 21-25-25 fl. Haldið áfram fram og til baka með 1 fl í hverja fl – ATH: Heklið nú 1 ll í byrjun hverrar umf áður en hekluð er 1 fl í hverja fl, þessi ll kemur EKKI í stað fyrstu fl heldur er hún notuð til þess að snúa við með og telst því ekki inn í lykkjufjöldann. Þegar stykkið mælist ca 13 cm er skipt yfir í 2 þræði af Big Fabel eða 4 þræði af Fabel. Haldið áfram eins og áður með fl.
Þegar stykkið mælist ca 17-17-18 cm er heklað þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 8-10-10 fl, 2 fl í næstu fl, 1 ll, hoppið yfir næstu fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 8-10-10 fl og 2 fl í síðustu fl, snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 12-14-14 fl, 7 st um ll og 1 fl í hverja af síðustu 12-14-14 fl = 31-35-35 l, snúið við.
UMFERÐ 3: Heklið 2 fl í fyrstu l, 1 fl í hverja af næstu 13-15-15 l, 2 fl í næstu l, 1 ll, hoppið yfir næstu l, 2 fl í næstu l, 1 fl í hverja af næstu 13-15-15 l og 2 fl í síðustu l, snúið við.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 17-19-19 fl, 7 st um ll og 1 fl í hverja af síðustu 17-19-19 fl = 41-45-45 l, snúið við.
UMFERÐ 5: Heklið 2 fl í fyrstu l, 1 fl í hverja af næstu 18-20-20 l, 2 fl í næstu l, 1 ll, hoppið yfir næstu l, 2 fl í næstu l, 1 fl í hverja af næstu 18-20-20 l og 2 fl í síðustu l, snúið við.
UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 22-24-24 fl, 7 st um ll og 1 fl í hverja af síðustu 22-24-24 fl = 51-55-55 l, snúið við.
Hér endar útaukning í stærð 35/37 og 38/40.
STÆRÐ 41/43:
UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja af næstu 27 l, 1 ll, hoppið yfir næstu l og heklið 1 fl í hverja og eina af næstu 27 l, snúið við.
UMFERÐ 8: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 27 fl, 7 st um ll og 1 fl í hverja af síðustu 27 fl = 61 l, snúið við.

ALLAR STÆRÐIR:
Eftir síðustu útaukningu eru 51-55-61 l í umf. Haldið áfram fram og til baka með 1 fl í hverja l þar til eftir er 1 umf þar til stykkið mælist 27-28-29 cm (mælt að neðan meðfram annarri hliðinni á tátiljunni frá slétta kantinum efst á leggnum). Í næstu umf eru heklaðar 2 fyrstu fl og 2 síðustu fl í umf saman að 1 fl – lesið 2 FL HEKLAÐAR SAMAN – aðrar fl eru heklaðar eins og áður = 49-53-59 fl. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Byrjið neðst undir il að framan við tá. Saumið saman kant í kant yst í lykkjusporið svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið saman undir fæti, upp meðfram hæl að aftan og efst á leggnum. Klippið frá og festið enda.

Heklið aðra tátilju á sama hátt.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (44)

country flag Kue Doche wrote:

I followed the pattern with exact measurements and used an 8mm hook. Ive tried the pattern 4 times but every time the heel protrudes out way further then the rest of the slipper causing a bulge. I'm not sure if I'm doing something wrong or if the pattern is meant to have a bulge in the heel. I got my niece to try the pattern out too and she can't figure out the issue either. I look forward to your response. thank you so much.

12.12.2023 - 02:45

DROPS Design answered:

Dear Mrs Doche, in this video we show how to assembly this kind of slippers, it might help you. Happy assembly!

12.12.2023 - 09:15

country flag Beata wrote:

Witam .Jaka wloczka moge zastapic Drops Puddel ?

11.06.2019 - 16:30

DROPS Design answered:

Witaj Beato! Odpowiedź znajdziesz w kursie DROPS TUTAJ. Miłej pracy!

11.06.2019 - 22:58

country flag Tineke wrote:

Goedemiddag Ik ben bij toer 2 . Ik heb nu 29 steken moet ik 1 vasten en dan 7 stk l en v dan kom ik niet aan die 14 st. Snap het niet. Tineke

06.02.2019 - 14:10

DROPS Design answered:

Dag Tineke,

Je haakt eerst 14 vasten (1 v in elk an de eerste 14 v) dan haak je 7 stokjes om de losse en vervolgens weer 14 vasten.

08.02.2019 - 16:33

country flag Elvira Gut wrote:

Ich wollte das Modell 116-27 stricken, dazu brauche ich Eskimo und Puddel. Nun habe ich festgestellt dass es Puddel nicht mehr gibt, was kann ich anstelle nehmen was noch zu bekommen ist. Besten Dank

24.01.2018 - 13:38

DROPS Design answered:

Liebe Frau Gut, Puddel können Sie durch 1 Faden Alpaca Bouclé + 1 Faden Brushed Alpaca Silk oder 2 Fäden Alpaca Bouclé ersetzen. Viel Spaß beim stricken!

24.01.2018 - 15:32

country flag Jasemin wrote:

Wie soll man mit 150g DROPS Fabel 4-fädig häkeln? Stimmt hier die Mengenangabe nicht oder stehe ich gerade auf dem Schlauch? :)

07.10.2017 - 02:50

DROPS Design answered:

Liebe Jasemin, Sie können gleichzeitig mit 2 Knäuel stricken. Den Faden aus dem Knäuelinneren und von außen zusammen verwenden x 2 Knäuel = 4 Fäden. Viel Spaß beim stricken!

09.10.2017 - 08:34

Koti Bouwer wrote:

Sorry!! I meant "sewing" in my question!!!

11.05.2016 - 12:16

Koti Bouwer wrote:

I do not completely understand the assembly- when I work the whole seam, it forms a sharp point at the toes, or what do you mean by "sowing from edge to edge"? Thank you

11.05.2016 - 12:11

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bouwer, the video below shows how to sew slipper tog, ie from under foot and along mid back. Happy assembly!

11.05.2016 - 13:51

country flag Barbara Lee wrote:

I have now made several of these, they are great 'thank you so much' i was wondering if you can create a pattern for Ugg boots? It must be similar do you think?

16.08.2015 - 21:33

country flag Jennifer Paige wrote:

Is there a video to demonstrate how to crochet 7 tr around chain. I am not sure how to do this.

04.06.2015 - 14:22

DROPS Design answered:

Dear Mrs Paige, to crochet 7 tr around ch insert crochet hook in 1-ch-space from previous row and repeat a total of 7 times for each tr. Happy crocheting!

05.06.2015 - 09:46

Temira Aragon wrote:

Boa tarde. Sua empresa envia um vídeo mostrando como se faz estes modelos de pantufas e algum gráfico completo detalhado? Qual valor dos vídeos em DVD? Qual valor dos catálogos? Obrigado; att; Temira Aragon Blumenau SC Brasil

29.04.2015 - 19:34

DROPS Design answered:

Todos os modelos têm seus vídeos que você pode visionar gratuitamente. Para este modelo, é aqui: https://www.garnstudio.com/lang/pt/pattern.php?id=6193&lang=pt Junto da foto, em cinza tem 4 menus FIOS CORRECÇÕES FIOS ALTERNATIVOS e VÍDEOS. Basta clicar em VÍDEOS para acessar os vídeos. Tem também o index dos mais de 500 videos gratuitos aqui: https://www.garnstudio.com/lang/pt/video.php A Drops não vende videos. São totalmente gratuitos e estão disponíveis em nosso site. Obrigado!

30.04.2015 - 10:11