DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Children 24-16
DROPS Design: Mynstur nr ne-008-bn
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------
Stærð: 3/5 - 6/9 - 10/12 ára
Höfuðmál: 50/52 - 52/54 - 54/58 cm
Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
100-100-100 gr litur nr 6273, kirsuberjarauður
50 gr í allar stærðir litur nr 3620, rauður (fyrir blóm)

DROPS HEKLUNÁL NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 13 fl verði 10 cm á breidd.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrstu fl í öllum umf er skipt út fyrir 1 ll. Hver umf endar á 1 kl í ll í byrjun umf.

ÚRTAKA:
* Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

KRABBAHEKL:
Heklið eins og fl, nema aftur á bak. Þ.e.a.s. heklað er frá vinstri að hægri.
----------------------------------------------------------

DERHÚFA:
Heklið 4 ll með heklunál nr 6 með Nepal og tengið í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um hringinn. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* = 18 fl.
UMFERÐ 4: * Heklið fl í hverja og eina af 2 fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* = 24 fl.
UMFERÐ 5: * Heklið fl í hverja og eina af 3 fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* = 30 fl.
UMFERÐ 6: * Heklið fl í hverja og eina af 4 fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* = 36 fl.
UMFERÐ 7: * Heklið fl í hverja og eina af 5 fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* = 42 fl.
UMFERÐ 8: * Heklið fl í hverja og eina af 6 fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* = 48 fl.
UMFERÐ 9: * Heklið fl í hverja og eina af 7 fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* = 54 fl.
UMFERÐ 10: * Heklið fl í hverja og eina af 8 fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* = 60 fl.
UMFERÐ 11: * Heklið fl í hverja og eina af 9 fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* = 66 fl.
UMFERÐ 12: * Heklið fl í hverja fl, jafnframt er aukið út um 0-21-6 fl jafnt yfir = 66-68-72 fl.
UMFERÐ 13-17: Heklið 1 fl í hverja fl.
UMFERÐ 18: Heklið 1 fl í hverja fl, jafnframt er fellt af 5-4-5 fl jafnt yfir = 61-64-67 fl – LESIÐ ÚRTAKA!
Haldið áfram með 1 fl í hverja fl þar til húfan mælist 16-17-18 cm.

SKYGGNI:
Heklið nú skyggni yfir miðju 14-16-16 l að framan (þ.e.a.s. gangstæða hlið við byrjun umf) þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í hverja fl. Snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja og eina af næstu 12-14-14 fl, 2 fl í síðustu fl = 16-18-18 fl. Snúið við.
UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, 3 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja fl fram að síðustu fl, 3 fl í síðustu fl, 1 kl í næstu lausu fl frá kantinum á húfunni til þess að festa hliðina á skyggninu við húfuna = 20-22-22 fl. Snúið við.
UMFERÐ 4: Heklið 1 ll, 3 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja fl fram að síðustu fl, 3 fl í síðustu fl, 1 kl í næstu lausu fl frá kanti á húfu eins og í umf 3 = 24-26-26 fl. Snúið við.
UMFERÐ 5: Heklið 1 ll, 1 fl í hverja fl yfir allan skerminn og síðan í kringum húfuna.
UMFERÐ 6: Heklið KRABBAHEKL – sjá útskýringu að ofan, í kringum alla húfuna og skyggnið. Klippið frá og festið enda.

HEKLAÐ BLÓM:
Heklið 6 ll með heklunál nr 6 með kirsuberjarauðu og tengið í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 2 ll (kemur í stað fyrsta hst), 2 hst um hringinn, * 5 ll, 1 fl í síðasta hst sem heklaður var, 3 hst um hringinn *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum og endið á 5 ll og 1 kl í 2. ll frá byrjun umf = 6 ll-bogar með 3 hst á milli hverra. Klippið frá og festið enda.
UMFERÐ 2: Skiptið yfir í rauðan. Heklið 1 fl í miðju af þeim 3 fyrstu hst í umf, * 10 st um ll-bogann, hoppið yfir 1 hst, 1 fl í næsta hst, hoppið yfir 1 hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. Klippið frá og festið endann. Saumið blómið á hliðina á derhúfunni.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 24-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Anaos wrote:

Bonjour, Je ne vois pas les différents modèles selon la taille ? Il n’y a qu’une seul modèle Merci pour votre aide

18.05.2020 - 14:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Anaos, ce modèle est décliné en 3 tailles, mais il va se crocheter de la même façon dans toutes les tailles jusqu'au 18ème tour. Bon crochet!

18.05.2020 - 15:49

country flag Liliane wrote:

En suivant vos explications pour la visière je n'obtiens pas le résultat de votre modèle. Afin de pouvoir achever cette casquette, vous est-il possible de m'adresser un complément d'information. Merci de votre réponse. Cordialement

02.02.2020 - 22:33

DROPS Design answered:

Bonjour Liliane, l'idéel serait de montrer votre ouvrage à votre magasin (même en photo par mail), on pourra ainsi vous aider plus facilement. Vous pouvez également demander de l'aide sur le groupe DROPS Workshop en y publiant votre photo. Bon crochet!

03.02.2020 - 10:27

country flag Sembélie wrote:

Merci pour vos explications de ce super modèle. Bien expliqué pour une débutante qui regarde plutôt les tutos vidéo mais je sais tricoter avec des explications livres

06.12.2019 - 19:32

country flag Julia wrote:

Hej! Jag undrar vilken diameter mössan ska ha i storlek 54/58 efter varv 12? Med vänlig hälsning, Julia

10.07.2018 - 01:30

DROPS Design answered:

Hej Julia, du skall ha 13 fm på 10 cm. På varv 12 har du 72fm. 72/1,3=ca 55 cm i omkreds. God fornøjelse!

10.07.2018 - 09:57

country flag Julia wrote:

Hej! Jag undrar vilken garntjocklek jag ska använda? Att det står virknål nr 6 hjälper inte så mkt. Hur pass glest får maskorna bli? Jag virkar ganska hårt. Mvh Julia

09.06.2018 - 20:13

DROPS Design answered:

Hej, mössan virkas i DROPS Nepal, du kan även välja något annat garn från garngrupp C.

11.06.2018 - 17:56

country flag Michoud wrote:

Bonjour, pour la visière ça me semble étrange aussi en voyant la photo ça semble pas assez long et pas la bonne forme... L'arrondit se fait mais rien à voir avec la photo merci

23.03.2018 - 18:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Michoud, vérifiez bien votre tension pour bien avoir la bonne forme - n'hésitez pas à rajouter un ou 2 rangs si vous la trouvez trop courte. Bon crochet!

26.03.2018 - 10:40

country flag Melanie wrote:

Danke für die Antwort, das hilft mir bei dem Schild allerdings nicht weiter. Beende ich die Arbeit nach 16cm und fange auf der Gegenüberliegenden Seit mit dem Schild an oder beginne ich das Schild am Rundenanfang?

10.08.2017 - 09:52

DROPS Design answered:

Liebe Melanie, Schirm wird auf der anderen Seite des Rd-Beginns angefangen. Wenn Sie diese "Naht" vermeiden wollen, schauen Sie mal ob Sie die Blume über diese Naht nähen können. Häkeln Sie zuerst die Blume und so entscheiden Sie, wie es am besten für Sie wird, Schirm zu häkeln. Viel Spaß beim häkeln!

10.08.2017 - 11:06

country flag Melanie wrote:

Hallo, habe diese Mütze nahezu problemlos gehäkelt, bis zu dem Teil mit dem Schirm... Ersteinmal verschiebt sich meine hintere Mittelnaht immer weiter nach rechts, was aber nicht weiter auffällt, mir aber komisch vorkommt. Habe nun 16cm gehäkelt und wie setzte ich den Schirm an? Sind die 14 mittleren Maschen auf der gegenüberliegenden Seite der "Naht", so das die Naht hinten ist? Muss ich bis dorthin Kettmaschen machen oder neu ansetzten?

09.08.2017 - 12:49

DROPS Design answered:

Liebe Melanie, diese Mittelnaht kann man nur vermeiden, wenn man spiralförmig in Runden häkelt, dh nach der letzten fM der Rd mit der zweiten Runde fortfahren und 1 fM in jede fM häkeln. Markieren Sie den Anfang der Runde und lassen Sie die Markierung der Arbeit folgen. Viel Spaß beim häkeln!

09.08.2017 - 12:53

country flag Chrissy wrote:

Hallo, ich habe eine Frage zur Länge der Mütze. am Ende der Beschreibung steht:weiter mit 1fm in jede Familie bis die Mütze 17cm misst.Von wo aus gesehen 17 cm?von der Mitte der Mütze aus?

02.08.2016 - 05:38

DROPS Design answered:

Liebe Chrissy, die 17 cm werden ab Lm-Anschlag, also von der Mitte aus gemessen.

03.08.2016 - 16:03

country flag Chrissy wrote:

Hallo, ich habe eine Frage zur Länge der Mütze. Am Ende der Beschreibung steht :weiter mit 1fm in jede fm bis die Mütze 17cm misst.Von wo aus gesehen 17cm.von der Mitte aus?

31.07.2016 - 19:03