Rosalinde |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat með gatamynstri og köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 148-2 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): *1 umf slétt og 1 umf brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Fækkað er lykkjum hvoru megin við sléttprjónuðu mynstureiningarnar í báðum hliðum á fram- og bakstykki þannig: Takið 1. l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sléttprjón þar til 2 l eru eftir, prjónið 2 l slétt saman (= 2 l færri). ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l við miðju að framan sléttar saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 8, 14, 20, 26, 32, 38, 44, 50 og 56 cm STÆRÐ M: 8, 15, 22, 28, 34, 40, 46, 52 og 58 cm STÆRÐ L: 8, 14, 21, 27, 34, 40, 47, 53 og 60 cm STÆRÐ XL: 6, 13, 20, 27, 34, 41, 48, 55 og 62 cm STÆRÐ XXL: 8, 15, 22, 29, 36, 43, 50, 57 og 64 cm STÆRÐ XXXL: 10, 17, 24, 31, 38, 45, 52, 59 og 66 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 244-264-312-332-404-420 l (meðtaldar 6 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með Muskat. Prjónið 3 ufm slétt (1. umf = ranga). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: STÆRÐ S + M: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 l br * A.2 (= 19 l), A.1 (= 4 l) * endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, 2 l br og 8-13 l sl, setjið 1 prjónamerki (= hlið), prjónið 8-13 l sl, 2 l br, ** A.1 (= 4 l), A.2 (= 19 l) **, endurtakið frá **-** alls 4 sinnum, prjónið A.1 (= 4 l), 2 l br og 8-13 l sl, setjið 1 prjónamerki (= hlið), prjónið 8-13 l sl, 2 l br, ** A.1 (= 4 l), A.2 (= 19 l) **, endurtakið frá **-** alls 2 sinnum og endið með 2 l br og 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN. STÆRÐ L + XL Prjónið 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 l br , A.2 (= 19 l), * A.2 (= 19 l), A.1 (= 4 l) * endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, 2 l br og 6-11 l sl, setjið 1 prjónamerki (= hlið), prjónið 6-11 l sl, 2 l br, ** A.1 (= 4 l), A.2 (= 19 l) **, endurtakið frá **-** alls 2 sinnum, prjónið A.2 (= 19 l), A.1 (= 4 l), A.2 (= 19 l), * A.2 (= 19 l), A.1 (= 4 l) *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, 2 l br og 6-11 sl, setjið 1 prjónamerki (= hlið), prjónið 6-11 l sl, 2 l br, ** A.1 (= 4 l), A.2 (= 19 l) **, endurtakið frá **-** alls 2 sinnum, prjónið A.2 (= 19 l) og endið með 2 l br og 6 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN. STÆRÐ XXL + XXXL: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 l br, A.2 (= 19 l), * A.2 (= 19 l), A.1 (= 4 l) *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 2 l br og 6-10 l sl, setjið 1 prjónamerki (= hlið), prjónið 6-10 l sl, 2 l br, ** A.1 (= 4 l), A.2 (= 19 l) **, endurtakið frá **-** alls 3 sinnum, prjónið A.2 (= 19 l), A.1 (= 4 l), A.2 (= 19 l), * A.2 (= 19 l), A.1 (= 4 l) *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 2 l br og 6-10 l sl, setjið 1 prjónamerki (= hlið), prjónið 6-10 l sl, 2 l br, ** A.1 (= 4 l), A.2 (= 19 l) **, endurtakið frá **-** alls 3 sinnum, prjónið A.2 (= 19 l) og endið með 2 l br og 6 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN. ALLAR STÆRÐIR – LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Haldið svona áfram með mynstur (frá röngu er prjónað sl yfir sl og br yfir br). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm (passið að næsta umf er prjónuð frá réttu), fækkið um 1 l á hvorri hlið á fram- og bakstykki (þ.e.a.s. yst hvoru megin við báðar sléttprjónuðu mynstureiningarnar með prjónamerki) – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 8 cm millibili, 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 úrtökur – eftir síðustu úrtöku eru 8-18-4-14-4-12 l í sléttprjóni eftir í hvorri hlið, þ.e.a.s. 4-9-2-7-2-6 l hvoru megin við bæði prjónamerkin). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8-8-8-6-8-10 cm, byrjar úrtaka fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan! Eftir mynstur A.2 er mynstrið prjónað eftir A.3 (í stað A.2 – aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Eftir alla úrtöku í hliðum og A.3 eru 164-184-200-220-260-276 l eftir á prjóni og stykkið mælist ca 32 cm. Haldið áfram eins og áður, en prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.4 í stað A.3. Þegar stykkið mælist ca 40 cm í öllum stærðum (passið uppá að næsta umf er prjónuð frá réttu) er aukið út þannig: ALLAR STÆRÐIR: Aukið út um 1 l hægra megin við hvern kaðal (þ.e.a.s. í aðra hverja br mynstureiningu með 2 l br séð frá réttu) – LESIÐ ÚTAUKNING (= 9-9-9-9-13-13 l fleiri). Þegar stykkið mælist 42-42-42-42-43-43 cm er aukið út um 1 l vinstra megin við hvern kaðal (þ.e.a.s. í br mynstureiningarnar sem eftir eru með 2 l br = 9-9-9-9-13-13 l fleiri. Endurtakið útaukningu hægra megin við hvern kaðal (þ.e.a.s. í aðra hverja br mynstureiningu með 3 l br) þegar stykkið mælist 44-44-44-44-46-46 cm og vinstra megin við hvern kaðal (þ.e.a.s. í br mynstureiningarnar sem eftir eru með 3 l br) þegar stykkið mælist 46-46-46-46-49-49 cm. STÆRÐ L + XL (á einungis við um þessar 2 stærðir): JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 42 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtaki útaukningu þegar stykkið mælist 46 cm. ALLAR STÆRÐIR: Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar eru alls 200-220-244-264-312-328 l á prjóni. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 48-52-59-63-74-77 l eins og áður (= hægra framstykki), fellið af 8-10-8-10-12-14 l fyrir handveg, prjónið 88-96-110-118-140-146 l eins og áður (= bakstykki), fellið af 8-10-8-10-12-14 l fyrir handveg og prjónið síðustu 48-52-59-63-74-77 l eins og áður (= vinstra framstykki). Hvor hluti er nú prjónaður til loka fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 48-52-59-63-74-77 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður (1. umf = ranga). Fellið nú af fyrir handveg í byrjun hverrar umf frá réttu þannig: Fellið af 2 l 1-2-1-2-6-7 sinnum og 1 l 1-3-1-3-6-7 sinnum = 45-45-56-56-56-56 l. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm eru síðustu 12-12-15-15-15-15 l við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn). Fellið nú af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá röngu: Fellið af 2 l 2 sinnum og 1 l 4 sinnum - ATH: Þær l sem ekki ganga upp í mynstur þegar fellt er af fyrir hálsmáli eru prjónaðar í sléttprjóni. Eftir úrtöku fyrir handveg og hálsmáli eru 25-25-33-33-33-33 l eftir á öxl. Haldið áfram með mynstur eins og áður og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist c 66-68-70-72-74-76 cm – stillið af eftir 1 heila mynstureiningu með A.4 á hæðina, fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið eins og vinstra framstykki, nema spegilmynd, þ.e.a.s. þegar fellt er af fyrir handveg er fellt af í byrjun hverrar umf frá röngu (í stað frá réttu og fellt er af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá réttu í stað frá röngu) –ATH: Þegar l eru settar á þráð fyrir hálsmáli, stillið af þannig að prjónuð hefur verið 1 umf frá röngu eftir síðasta hnappagati áður en l eru settar á þráð. BAKSTYKKI: = 88-96-110-118-140-146 l. Felli nú af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið eins og á framstykki = 82-82-104-104-104-104 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm eru miðju 30-30-36-36-36-36 l felldar af fyrir hálsmáli. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 25-25-33-33-33-33 l eftir á öxl. Haldið áfram með mynstur 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til bakstykkið er jafn langt og framstykki, fellið af. Endurtakið eins á hinni öxlinni. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna og eftir þörf yfir á hringprjóna. Fitjið upp 51-51-68-68-85-85 l á sokkaprjóna nr 4 með Muskat. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN í hring á sokkaprjóna – sjá útskýringu að ofan. Næsta umf er prjónuð þannig: * Prjónið A.1 (= 4 l), prjónið A.5 (= 13 l) *, endurtakið frá *-* alls 3-3-4-4-5-5 sinnum. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.5 hefur verið prjónað eru 45-45-60-60-75-75 l í umf og stykkið mælist ca 9 cm. Haldið áfram með mynstur en prjónið A.6 í stað A.5 til loka (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-11-10-12-12-12 cm, aukið út um 1 l hvoru megin við A.1 í byrjun umf (aukið er út með því að slá uppá prjóninn en uppslátturinn er prjónaður snúinn br í næstu umf). Endurtakið útaukningu með 2½-2-3-2-2½-2 cm millibili, 14-17-12-16-12-14 sinnum til viðbótar (= alls 15-18-13-17-13-15 útaukningar) = 75-81-86-94-101-105 l – ATH: Þær 4 fyrstu l sem auknar eru út í hvorri hlið eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1, þær 11-11-9-11-9-11 næstu l eru prjónaðar jafnóðum inn í A.6 og þær 0-3-0-2-0-0 l sem eftir eru, eru prjónaðar brugðið. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Þegar stykkið mælist 49-49-48-48-45-44 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs), fellið af miðju 8-10-8-10-12-14 l undir ermi (þ.e.a.s. fellið af A.1 og 2-3-2-3-4-5 l hvoru megin við A.1), ermin er prjónuð til loka fram og til baka á prjóna. Fellið nú af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 3-4-3-4-4-4 sinnum og 1 l 3-3-2-2-7-10 sinnum, fellið nú af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 56-57-54-55-56-57 cm – stillið af eftir 1 heila mynstureiningu með A.6 á hæðina. Fellið nú af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 57-58-55-56-57-58 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í. Bleyta þarf stykkið eða að það fái góðan raka til þess að það jafni sig og falli betur. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 90 til 110 l í kringum hálsmál (meðtaldar l á þræði að framan) á hringprjóna nr 4. Prjónið 3 umf slétt og fellið af með sl frá réttu. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (96)
Uta wrote:
Gefällt mir sehr gut, und ein wunderschönes Strickmuster.
11.12.2012 - 20:14Ingrid wrote:
Das gefällt mir ausgesprochen gut.
11.12.2012 - 11:06Joke wrote:
Heel mooi!
10.12.2012 - 22:44Lida Van Wersch wrote:
Dit is het!!
10.12.2012 - 19:07Domi wrote:
Une merveille !!!
10.12.2012 - 18:38Randi wrote:
Fiona
10.12.2012 - 16:21