DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 147-1
DROPS Design: Mynstur nr w-468
Garnflokkur C
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M/L - XL/XXL/XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
150-200 gr litur nr 12, rauður
150-150 gr litur nr 17, natur
150-150 gr litur nr 01, apríkósa
100-100 gr litur nr 27, ferskja
150-150 gr litur nr 38, kóral

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 2 sólfjaðrir (með 9 st) mælast ca 8 cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta st í umf er skipt út fyrir 3 ll.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 - A.3. Randarmynstrið er misjafnt á milli stærða (1 rönd fleiri með litnum rauður í stærð XL/XXL/XXXL), fyrirsætan á ljósmynd er í stærð S/M/L.

ST-HÓPUR:
1 st-hópur = um sama ll-boga eru heklaðir 2 st, 3 ll og 2 st.

SÓLFJÖÐUR:
1 sólfjöður = um í sama ll-boga eru heklaðir 9 st. 1. st í 1. sólfjöður er skipt út fyrir 3 ll.

LITASKIPTI:
Til að ná fram fallegum litaskiptum er síðasti st í umf heklaður með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í síðustu ll frá byrjun umf, sækið þráðinn með nýja litnum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum lykkju á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður.

PONCHO:
Heklið 64-72 ll með heklunál nr 5 með litnum natur Paris og tengið í hring með einni kl í 1. ll. Heklið nú eftir A.1 þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 5 ll (koma í stað 1. st og fyrstu 2 ll), * 1 st um hringinn, 2 ll *, endurtakið frá *-* 31 sinnum til viðbótar – sjá mynsturteikningu A.1, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 32 st og 32 ll-bogar.
UMFERÐ 2: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 3 ll, um 1. ll-boga er heklaður 1 st, 3 ll og 2 st (= 1. st-hópur), * 1 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, í næsta ll-boga er heklaður 1 ST-HÓPUR * - sjá útskýringu að ofan, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 16 st-hópar.
UMFERÐ 3: Heklið kl að ll-boga á 1. st-hóp, heklið 1 SÓLFJÖÐUR – sjá útskýringu að ofan – um boga, * 1 fl um næsta ll-boga (á milli st-hópa), 1 sólfjöður um ll-boga í næsta st-hóp *, endurtakið frá *-* , endið á 1 fl um síðasta ll-boga og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 16 sólfjaðrir.
UMFERÐ 4: Heklið kl að miðju st á 1. sólfjöður, 1 ll, 1 fl í sama st, * 8 ll, 1 fl í miðju st á næstu sólfjöður *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 8 ll og 1 kl í 1. fl í byrjun umf = 16 ll-bogar.
UMFERÐ 5: Heklið 5 ll (koma í stað 1. st og frystu 2 ll), * um næsta ll-boga er heklaður 1 st, 2 ll, 1 st og 2 ll, 1 st í næstu fl, 2 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn – en þegar endurtekið er í síðasta sinn er ekki heklaður síðasti st heldur 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 48 st og 48 ll-bogar.
UMFERÐ 6: Heklið 3 ll, um 1. ll-boga er heklaður 1 st, 3 ll og 2 st (= 1. st-hópurinn), * 1 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, um næsta ll-boga er heklaður 1 st-hópur *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 24 st-hópar.
UMFERÐ 7: Heklið kl að ll-boga í 1. st-hóp, heklið 1 sólfjöður um bogann, * 1 fl um næsta ll-boga (á milli st-hópa), 1 sólfjöður um næsta st-hóp *, endurtakið frá *-*, endið á 1 fl um síðustu ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 24 sólfjaðrir.
UMFERÐ 8: Heklið kl að miðju st á 1. sólfjöður, 1 ll, 1 fl í sama st, * 8 ll, 1 fl í miðju st á næstu sólfjöður *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 8 ll og 1 kl í 1. fl í byrjun umf = 24 ll-bogar.
Endurtakið nú UMFERÐ 5-8 1 sinni til viðbótar (= alls 3 umf með sólfjaðrir í natur) = 36 ll-bogar í síðustu umf (þ.e.a.s. 12. umf). Skiptið yfir í litinn ferskjubleikur í lok síðustu umf – LESIÐ LITASKIPTI.
Endurtakið UMFERÐ 5-8 1 sinni til viðbótar með litnum ferskjubleikur = 54 ll-bogar í síðustu umf (þ.e.a.s. 16. umf), skiptið yfir í apríkósa í lokin á þessari umf. Endurtakið nú UMFERÐ 5-8 1 sinni til viðbótar með litnum apríkósa = 81 ll-bogar í síðustu umf (þ.e.a.s. 20. umf), skiptið yfir í litinn dökk bleikur í lok þessarar umf.

STÆRÐ XL/XXL/XXXL:
= 81 ll-bogar í síðustu umf. Heklið nú síðustu útaukningu með litnum dökk bleikur þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 5 ll (þær koma í stað fyrsta st og fyrstu 2 ll), *** um næsta ll-boga er heklaður 1 st, 2 ll, 1 st í næstu fl, 2 ll *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, um næsta ll-boga eru heklaður 1 st, 2 ll, 1 st og 2 ll (= 2 st og 2 ll-bogar um 3. ll-boga), 1 st í næstu fl, 2 ll ** - þ.e.a.s. það verða 7 st og 7 ll-bogar yfir 3 ll-boga frá fyrri umf, sjá mynstur A.2. Endurtakið frá **-** þar til 3 ll-bogar eru eftir í umf, heklið nú þannig: * Um næsta ll-boga er heklaður 1 st, 2 ll, 1 st og 2 ll (= 2 st og 2 ll-bogar um boga), 1 st í næstu fl, 2 ll *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (þ.e.a.s. það verða 6 st og 6 ll-bogar yfir þessa 2 boga), um síðasta ll-boga er heklaður 1 st, 2 ll, 1 st og 2 ll (= 2 st og 2 ll-bogar um boga), endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 190 st og 190 ll-bogar.
UMFERÐ 2: Heklið 3 ll, um 1. ll-boga er heklaður 1 st, 3 ll og 2 st (= 1. st-hópur), 1 ll, hoppið yfir næsta ll-boga, * um næsta ll-boga er heklaður 1 st-hópur, 1 ll, hoppið yfir 1 ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll boga í umf = 95 st-hópar.
UMFERÐ 3: Heklið kl að ll-boga í 1. st-hópinn, heklið 1 sólfjöður um boga, * 1 fl um næsta ll-boga (á milli st-hópa), 1 sólfjöður um næsta st-hóp *, endurtakið frá *-*, endið á 1 fl um síðasta ll-boga og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 95 sólfjaðrir.
UMFERÐ 4: Hekli kl að miðju st á 1. sólfjöður, 1 ll, 1 fl í sama st, * 8 ll, 1 fl í miðju st á næstu sólfjöður *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 8 ll og 1 kl í 1. fl í byrjun umf = 95 ll-bogar. Skiptið yfir í rauður í lok umf, heklið nú með litnum rauður til loka.

ALLAR STÆRÐIR:
= 81-95 ll-bogar í síðustu umf. Heklið nú án útaukninga (með litnum dökk bleikur í stærð S/M/L, með litnum rauður í stærð XL/XXL/XXXL) þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 5 ll (þær koma í stað fyrsta st og fyrstu 2 ll), * um næsta ll-boga er heklaður 1 st, 2 ll, 1 st í næstu fl, 2 ll * - sjá mynstur A.3, endurtakið frá *-* umf hringinn – en þegar endurtekið er í síðasta sinn er ekki heklaður síðasti st heldur 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 162-190 st og 162-190 ll-bogar.
UMFERÐ 2: Heklið 3 ll, um 1. ll-boga er heklaður 1 st, 3 ll og 2 st (= 1. st-hópur), 1 ll, hoppið yfir næsta ll-boga, * um næsta ll-boga er heklaður 1 st-hópur, 1 ll, hoppið yfir 1 ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll boga í umf = 81-95 st-hópar.
UMFERÐ 3: Heklið kl í ll-boga í 1. st-hópinn, heklið 1 sólfjöður í bogann, * 1 fl í næsta ll-boga (á milli st-hópa), 1 sólfjöður í næsta st-hóp *, endurtakið frá *-*, endið á 1 fl í síðasta ll-boga og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 81-95 sólfjaðrir.
UMFERÐ 4: Hekli kl að miðju st á 1. sólfjöður, 1 ll, 1 fl í sama st, * 8 ll, 1 fl í miðju st á næstu sólfjöður *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 8 ll og 1 kl í 1. fl í byrjun umf = 81-95 ll-bogar.

STÆRÐ S/M/L: Skiptið yfir í litinn rauður í lok umf.

ALLAR STÆRÐIR: Endurtakið frá umf 1-3 1 sinni til viðbótar með litnum rauður (ATH: Endið á umf 3, nú eru alls 7-8 umf með sólfjöðrum) = 81-95 sólfjaðrir í síðustu umf, klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.02.2013
Nýtt efnismagn í lit nr 01, ferskjubleikur og nr 38 dökk bleikur: Efni: DROPS PARIS frá Garnstudio
150-200 gr litur nr 12, rauður,150-150 gr litur nr 17, natur,150-150 gr litur nr 01, apríkósu,100-100 gr litur nr 27, ferskjubleikur,150-150 gr litur nr 38, dökk bleikur.

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja
symbols = stuðull
symbols = umferð 1
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (338)

country flag Amanda wrote:

Hello, Can you please tell me how much yarn I would need to crochet this poncho in one colour? Many thanks

19.04.2024 - 12:03

DROPS Design answered:

Dear Amanda, you can add the amount for each colour, you might need somewhat less, but it might be wise to count them together. Feel free to get helped from your DROPS Store, even per mail or telephone. Happy crocheting!

19.04.2024 - 12:34

country flag Macayla Dwyer wrote:

Hi, I love this pattern but I'm just a little confused what it means in Round 1 replace 1st dc and the first 2 ch? Thankyou so much :D

22.04.2023 - 02:47

DROPS Design answered:

Dear Macayla, the length of ch5 is usually equivalent to 1tr and ch2. So, instead of working this in the pattern you will work the ch5. You don't need to replace anything yourself; just work the ch5. Happy crochetting!

23.04.2023 - 19:28

country flag Kaitlin wrote:

Hello! I'm really looking forward to making this pattern but I'm not sure what you mean by 'work slip stitches until chain space' in row 3- after that first sl st to join, would I just make a single sl st in that 2nd double crochet, then do a fan? (btw thanks for the pattern, it's the cutest capelet I could find!!!)

17.04.2023 - 07:44

DROPS Design answered:

Dear Kaitlin, so that 3rd round starts from middle of double crochets group (US-English), you finish 2nd round with 1 slip stitch int he 3rd chain from beg of 2nd round, then crochet 1 slip stitch in each stitch to the first chain space (= 1 slip stitch in the dc, 1 slip st in the next 2 chains = middle of ch-space in the first dc-group). Happy crocheting!

17.04.2023 - 10:06

country flag Deepti Oza wrote:

Hello. W 468 this pattern is beautiful. I would like to see video tutorial of the same. Please help me. If there is any one else who has done this please tell them to send the video on this email ID. Please

08.11.2021 - 08:20

DROPS Design answered:

Dear Mrs Oza, we do not have video for this pattern, but this lesson explains how to crochet a diagram and might help you to make this poncho. Happy crocheting!

09.11.2021 - 11:55

country flag Deepti wrote:

This pattern is very very beautiful. Please can you give me a tutorial for pattern number 468. I am not able to understand the written pattern as I am new to knitting. Please help me.

20.10.2021 - 09:11

DROPS Design answered:

Dear Deepti, all the relevant tvideotutorials and lessons are linked just below the pattern. I hope you will find one there that can help you. Happy Stitching!

20.10.2021 - 11:42

country flag Stacia Teegardin wrote:

Is it possible to adapt this for my 8 year old granddaughter?

24.12.2019 - 21:57

DROPS Design answered:

Dear Stacia, you can go about it a few different way. The easiest maybe to use a thinner yarn and hook, resulting in a smaller gauge (for example use DROPS Cotton light instead of the Paris. You can also start with less pattern repeat and leave out a couple of rows. Happy Crafting!

24.12.2019 - 22:34

country flag Noha wrote:

How come if i chained 72 i must get 32 chain spaces in first round? That is not possible because since we chained more stitches at first, we have bigger round and therefore more chain spaces!

24.10.2019 - 00:44

DROPS Design answered:

Dear Noha, you will get the same number of ch-spaces in all sizes since you are working first round around the chains from ring of chains (not in the chains themselves), the fundation chain in larger size is larger to get make the neck larger. Happy crocheting!

24.10.2019 - 10:35

country flag Lil wrote:

Is it possible for a video tutorial to be made

15.06.2019 - 10:41

DROPS Design answered:

Dear Lil, you will find here how to read crochet diagrams here, please feel free to ask your questions here. Happy crocheting!

17.06.2019 - 07:10

country flag Vidya wrote:

If I chain 64 I will get 32 dc but if I chain 72 I have to get 36 dc ?

10.02.2019 - 16:11

DROPS Design answered:

Dear Vidya, you will get the same number of dc in all sizes since you are working first round around the chains from ring of chains, the fundation chain in larger size is larger to get make the neck larger. Happy crocheting!

11.02.2019 - 10:35

country flag Vidya wrote:

In the pattern I chained 72 so have to chain 5 more to start R 1?

11.01.2019 - 10:55

DROPS Design answered:

Dear Vidya, when you have chained 72 sts, join in the round with 1 sl st in the first chain, then work now in the round starting 1st round with 5 chains (= replace 1st tr + first 2 chains). Happy crocheting!

11.01.2019 - 15:13