DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cacao

Prjónuð peysa úr DROPS Nepal með köðlum, laskalínu og stórum kraga. Stærð XS - XXXL.

DROPS 143-2
DROPS Design: Mynstur nr ne-091
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: XS/S - M - L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
700-800-900-1050-1200 gr litur nr litur 0612, millibrúnn

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l og 19 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A-1 til A-4. Mynsturteikningin sýnir 1 mynstureiningu í mynstri á breiddina.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum hvoru megin við l með prjónamerki á hliðum þannig:
Fækkið lykkjum Á UNDAN l með prjónamerki: Prjónið 2 l sl saman.
Fækkið lykkjum Á EFTIR l með prjónamerki: Prjónið 2 l snúnar slétt saman.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum hvoru megin við 8 laskalykkjur (= 2 l garðaprjón + mynstur A-4 + 2 l garðaprjón).
Fækkið lykkjum þegar 2 l eru eftir Á UNDAN 8 laskalykkjum þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum Á EFTIR 8 laskalykkjum þannig: Prjónið 2 l sl saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 126-146-166-186-206 l á hringprjóna nr 5 með Nepal.
Prjónið stroff þannig: [2 l sl, setjið 1 prjónamerki í fyrstu l (= í hlið), * 2 l br, 3 l sl *, endurtakið frá *-* alls 3-4-5-6-7 sinnum, 2 l br, 2 l sl, endurtakið frá *-* 4 sinnum, 2 l br, 2 l sl, endurtakið frá *-* 3-4-5-6-7 sinnum, 2 l br, 1 l sl], endurtakið frá [-] 1 sinni til viðbótar.
Haldið svona áfram með stroff alls 6 umf.
Næsta umf er prjónuð þannig:[12-17-22-27-32 l sl, 2 l br, 1 l sl, prjónið 2 l sl í næstu l, 1 l sl (þ.e.a.s. að 3 l sl verða 4 l sl), 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 1 l sl, prjónið 2 l sl í næstu l, 1 l sl,* 2 l br, prjónið 2 l sl í hverja og eina af næstu 3 l (þ.e.a.s. að 3 l sl verða 6 l sl) *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 2 l br, 1 l sl, prjónið 2 l sl í næstu l, 1 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 1 l sl, prjónið 2 l sl í næstu l, 1 l sl, 2 l br, 11-16-21-26-31 l sl], endurtakið frá [-] 1 sinni til viðbótar.
Nú eru 146-166-186-206-226 l á prjóni.
Skiptið yfir á hringprjóna nr 6 og haldið áfram þannig: [12-17-22-27-32 l sl, mynstur A-1 (= 6 l), mynstur A-2 (= 38 l), mynstur A-3 (= 6 l), 11-16-21-26-31 l sl], endurtakið frá [-] 1 sinni til viðbótar.
Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm, er fækkað um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki í hvorri hlið – SJÁ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 5 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 130-150-170-190-210 l. Þegar stykkið mælist 30 cm, er aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og uppslátturinn er prjónaður er snúinn slétt í næstu umf. Endurtakið útaukningu með 5 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 146-166-186-206-226 l. Þegar stykkið mælist 49-50-51-51-52 cm, fellið af þær l með prjónamerki + 3 l hvoru megin við þær í hvorri hlið (þ.e.a.s. 7 l í hvorri hlið). Nú eru 132-152-172-192-212 l eftir á prjóni.
Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 54-54-54-60-60 l á sokkaprjóna nr 5 og prjónið mynstur A-3 (= 9-9-9-10-10 mynstureiningar hringinn). Þegar stykkið mælist 12 cm ( passið uppá prjónaðar hafa verið 2 eða 3 umf á eftir 1 kaðal), skiptið yfir á sokkaprjóna nr 6. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar l jafnframt er fækkað um 15-13-11-13-11 l jafnt yfir í fyrstu umf = 39-41-43-47-49 l. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu l í umf (= miðja undir ermi). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20 cm, er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki – aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og uppslátturinn er prjónaður er snúinn slétt í næstu umf til þess að koma í veg fyrir göt. Endurtakið útaukningu með 4½-4½-4-3½-3½ cm millibili 5-5-5-6-6 sinnum til viðbótar = 51-53-55-61-63 l. Þegar stykkið mælist 45-45-44-43-43 cm (styttri mæling í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af l við prjónamerki + 3 l hvoru megin við þær (= 7 l miðja undir ermi) = 44-46-48-54-56 l eftir á prjóni.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermarnar á sama hringprjón nr 6 eins og fram- og bakstykki = 220-244-268-300-324 l. Setjið 1 prjónamerki í öll samskeyti á milli fram- og bakstykkis og erma. Haldið áfram með mynstur að framan og aftan eins og áður og sléttprjón yfir ermar, en 4 l hvoru megin við öll laskaúrtökumerki eru prjónaðar þannig: Prjónið 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, mynstur A-4 og 2 l garðaprjón. JAFNFRAMT í umf 4 byrjar LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan! Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf 3-2-1-0-0 sinnum til viðbótar og síðan í annarri hverri umf 10-13-16-20-22 sinnum. Eftir að úrtöku er lokið eru 108-116-124-132-140 l eftir á prjóni.
Í næstu umf eru l prjónaðar yfir alla kaðla slétt saman 2 og 2 – í stærð L/XL er helmingurinn af l í kaðli í mynstri A-1 og A-3 er fækkað í úrtöku fyrir laskalínu, þær 2 l sem eru eftir eru prjónaðar slétt saman (þ.e.a.s. það fækkar um 28-28-32-36-36 l) = 80-88-92-96-104 l eftir á prjóni. Skiptið yfir á hringprjón nr 5, prjónið 1 umf brugðið, 1 umf slétt, 1 umf brugðið og 1 umf slétt – JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 32-28-28-28-24 l jafnt yfir = 112-116-120-124-128 l.

KRAGI:
Snúið stykkinu við, prjónið frá röngu (svo að mynstrið á kraganum snúi í rétta átt þegar það hann er brotinn niður). Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 6 cm. Í næstu umf eru allar 2 l sl aukið út til 4 l sl með því að prjóna 2 l í hverja sl l = 168-174-180-186-192 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 6, haldið áfram þannig: * Mynstur A-4, 2 l br *, endurtakið frá *-*, prjónið svona í 6 cm. Prjónið nú allar 2 l br áfram í garðaprjóni í ca 12-12-13-13-14 cm (passið upp á að það hafa verið prjónaðar 3 umf eftir kaðal), fellið af með sl yfir allar l. Kraginn mælist nú ca 24-24-25-25-26 cm.

FRÁGANGUR:
Snúið peysunni við með réttunna út og saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (98)

country flag Els Mignon wrote:

In het patroon staat: keer het werk binnenstebuiten en brei aan de verkeerde kant. Maar dan zit mijn draad links i.p.v rechts. Wat doe ik fout?

15.03.2024 - 14:22

DROPS Design answered:

Dag Els,

Je bedoelt dat de draad bij de eerste steek op de linker naald zit? Dat is niet erg en je doet niets fout. Je kunt gewoon binnen met breien beginnend bij de eerste steek op de linker naald.

15.03.2024 - 17:37

country flag Judah Marlar wrote:

I've read, knitted, & taken out too many times to count now & no matter what I do, I can't figure this ribbing out. The use of *-* is throwing me. I've reknitted every stitch on the ribbing & I can't make it come out right. I'm either short or over. I really want to make this sweater, but I've got to have help. I appreciate any help you can give me. Thanks!

18.11.2023 - 04:12

DROPS Design answered:

Dear Mrs Marlar, see if previous answer can help you; when we add * in this kind of pattern, this means the section between the * will have to be repeated. Happy knitting!

20.11.2023 - 09:46

country flag Judah Marlar wrote:

Is there a correction for this pattern? I 've knitted the first row of ribbing 3 times & always come out with 145st which throws me 1st over. I'd appreciate any help you can give me. I've been knitting for 40 years & can usually figure these things out, but this time I'm at a loss. Thanks!

18.11.2023 - 00:13

DROPS Design answered:

Dear Mrs Marlar,you are working size M with 146 stitches, correct? Then work as follows: [knit 2 (insert 1 marker in the first of these 2 stitches for the sides) then work rib * purl 2, knit 3 * a total of 4 times (over the next 20 sts), then purl 2, knit 2, and repeat now 4 times from *-* over the next 20 stitches, purl 2, knit 2 then repeat from *to* one more time over the next 20 sts and finish the first size with purl 2, knit 1] ; then repeat from [-] 1 more time. = (2+20+2+2+20+2+2+20+2+1) x 2 = 146 stitches. Happy knitting!

20.11.2023 - 09:43

country flag Shivani wrote:

Hi I am trying to figure out how to choose the correct. If a female has a bust size of 86cms and height is 159cms then which size will be the correct fit?

03.03.2021 - 01:26

DROPS Design answered:

Dear Shivani, please find the measurements of the finished sweater at the bottom of the page. If you are still unsure we suggest that take a sweater that is similar styled, and comfortable, and compare the measurements. Happy Knitting!

03.03.2021 - 03:01

country flag Inmaculada Santos wrote:

Hola, puedo sustituir Drops Nepal por Drops Alpaca más Drops Kid _Silk,para trabajar con dos hilos y cuántos ovillos necesito de cada color para la talla L y si utilizo el mismo patrón de puntos. Gracias

06.12.2020 - 13:13

DROPS Design answered:

Hola Inmaculada, sí puedes sustituir Drops Nepal (grupo C) por Drops Alpaca (grupo A ) y Drops Kid Silk (Grupo A). Tienes que hacer una muestra, para ver sí coincide la tensión con la del patrón. Te recomendamos leer la siguiente lección para obtener más información: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=14&cid=23

06.12.2020 - 17:06

country flag JANETH ELENA MARTINEZ MARTINEZ wrote:

Buenas tardes: Por fin he terminado mi saco, la inquietud que tengo con el cuello es que hice las tres ultimas vueltas tejidas, rematé; lo que noto es que se enrosca. Qué debo hacer? Gracias

19.10.2020 - 22:08

DROPS Design answered:

Hola JANETH ELENA MARTINEZ MARTINEZ, Para evitar una orilla de remate apretada, se puede usar una aguja más grande. Si la orilla aún estuviese apretada, hacer 1 lazada después de aprox. cada 4º punto y rematar las lazadas como puntos normales. Buen trabajo!

17.11.2020 - 20:29

country flag Briyitt wrote:

No entiendo la parte del cuello que es lo que más me interesa. Deseo saber si se deben hacer aumentos o tejer recto. Gracias.

25.09.2020 - 12:56

DROPS Design answered:

Hola Briyitt. El cuello se trabaja con aumentos. El primer aumento se trabaja después de 6 cm en vertical (ver las explicaciones en el patrón). El siguiente aumento se trabaja después de trabajar otros 6 cm en vertical.

27.09.2020 - 21:09

country flag Janeth Elena Martínez Martínez wrote:

Buenas tardes: No me queda claro cuando se unen las mangas con la pechera, mangas y cuerpo. En qué momento ya que las mangas no llevan la disminución de La raglán

11.06.2020 - 21:28

DROPS Design answered:

Hola Janeth. Primero se trabajan el cuerpo y las mangas hasta la sisa. Después todas los partes se pasan a una aguja circular y se trabaja el canesú con disminuciones para el raglan en el cuerpo y las mangas

13.06.2020 - 20:09

country flag Maud T wrote:

Bonsoir. Je viens de terminer ce beau modèle que j’ai tricoté dans le coloris naturel. Seule petite modification apportée au patron, j’ai prolongé la torsade du milieu du poignet tout le long de la manche. J’ai moi aussi rencontré des problèmes de compréhension des explications au niveau du raglan.

09.01.2020 - 22:31

country flag Rey wrote:

Bonjour . Je voudrait faire se pull en aiguille plate n 4 en xxl car les aiguille circulaire je n'y arrive pas serrait t il possible de me faire l explication avec des aiguilles plat merci a vous

16.12.2019 - 09:32

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rey, ce modèle se tricote sur la base d'un échantillon de 15 m x 19 rangs = 10 x 10 cm en jersey. Nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir recalculer chaque modèle à chaque demande; merci de bien vouloir contacter le magasin où vous avez acheté votre laine pour toute assistance, ou bien regardez dans les modèles adaptés à votre échantillon. Vous trouverez quelques informations complémentaires sur les aiguilles circulaires.. Bon tricot!

16.12.2019 - 10:01