DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3828.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Eden

Prjónað vesti í garðaprjóni úr DROPS Fabel, prjónað frá hlið með snúningum. Stærð S - XXXL

DROPS 134-4
DROPS Design: Mynstur nr FA-154.
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL från Garnstudio
200-250-250-300-300-350 gr litur nr 604, yfir hafið
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 300, brúnn:

DROPS PRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 45 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 4.
DROPS TALA nr 538: 5 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3828.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR:
Í hvert skipti þegar snúið er við í miðju stykki, takið fyrstu l óprjónaða, herðið á þræði og prjónið til baka. Þetta er gert til að koma í veg fyrir göt í snúningunum.

STUTTAR UMFERÐIR:
Prjónaðar eru stuttar umferðir með snúningum í miðju stykki til þess að gefa flíkinni A-laga snið. Byrjið að prjóna frá neðri kanti og upp að hálsmáli. * Prjónið yfir allar l, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 103-108-112-115-119-122 l, snúið við og prjónið til baka. LESIÐ LEIÐBEININGAR! Prjónið 89-94-97-99-103-105 l, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 71-75-77-79-81-83 l, snúið við og prjónið til baka *. Endurtakið frá *-* , þ.e.a.s. að 1 mynstureining = 2 umf efst og 8 umf neðst.

MÆLING:
Allar mælingar eru gerðar þegar stykkið liggur flatt, mikilvægt er að ekki strekkist á stykkinu þegar mælt er.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Vestið er prjónað fram og til baka, þversum. Byrjað er við miðju að framan á vinstra framstykki og endað er við miðju að framan á hægra framstykki.
ATH: Myndin á vestinu hefur verið snúið við.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Allt stykkið er prjónað í garðaprjóni, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.
Fitjið laust upp 115-120-125-129-134-138 l á prjóna nr 3,5 með litnum yfir hafið.
Umferð 1 er prjónuð frá réttu (= frá neðri brún og upp að hálsmáli). Prjónið 3 cm yfir allar l (= kantur að framan), endið eftir 1 umf frá röngu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan! Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 23-25-27-30-33-35 cm frá uppfitjunarkanti (mælt neðst þar sem það er breiðast) – LESIÐ MÆLING! Prjónið hliðarstykki þannig: Prjónið 1 cm fram og til baka yfir einungis 64-67-70-72-74-76 l frá neðri kanti. Setjið 1 prjónamerki (= miðja í hlið). Prjónið 1 cm fram og til baka yfir sömu l, setjið síðan þær á þráð (endið eftir 1 umf frá réttu, l eru prjónaðar síðar á bakstykki). Prjónið nú ermi.

VINSTRI ERMI:
= 51-53-55-57-60-62 l á prjóni. Prjónið fram og til baka með stuttum umferðum á sama stað og áður, þar til ermin mælist ca 30-31-32-33-34-35 cm (neðst þar sem hún er breiðust), endið eftir 1 umf frá röngu.

BAKSTYKKI:
Prjónið til baka þær 64-67-70-72-74-76 l af þræði inn á prjóninn (frá röngu) = 115-120-125-129-134-138 l. Prjónið síðan stuttar umferðir eins og áður. Þegar stykkið mælist ca 21-23-25-28-31-33 cm frá prjónamerki í hlið (mælt neðst þar sem það er breiðast) setjið 1 nýtt prjónamerki (= miðja að aftan). Haldið áfram með stuttar umferðir þar til stykkið mælist ca 20-22-24-27-30-32 cm frá prjónamerki við miðju að aftan (mælt neðst þar sem það er breiðast). Prjónið nú hliðarstykki þannig: Prjónið 1 cm fram og til baka yfir einungis 64-67-70-72-74-76 l frá neðri kanti. Setjið 1 nýtt prjónamerki (= miðja í hlið). Prjónið 1 cm fram og til baka yfir sömu l (endið eftir 1 umf frá réttu), setjið þær síðan á þráð. Prjónið hægri ermi.

HÆGRI ERMI:
Prjónið á sama hátt og vinstri ermi.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið til baka þær 64-67-70-72-74-76 l af þræði inn á prjóninn (frá röngu) = 115-120-125-129-134-138 l. Haldið áfram með stuttar umferðir eins og á bakstykki. Þegar prjónaðar hafa verið jafn margar umf og á vinstra framstykki (mínus kantur að framan = 3 cm), prjónið nú kant að framan þannig: Prjónið 1½ cm fram og til baka yfir allar l. Í næstu umf frá réttu er fellt af fyrir hnappagötum þannig (= frá neðri kanti): Prjónið 12 l í öllum stærðum, fellið af næstu 2 l, * prjónið 12-13-14-14-15-15 l, fellið af næstu 2 l *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, prjónið út umf. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær l sem fellt var af. Prjónið nú yfir allar l þar til kantur að framan mælist alls 3 cm. Fellið laust af.

FRÁGANGUR:
Heklið með 2 þráðum í litnum brúnn með heklunál nr 4 þannig: Byrjið neðst á hægra framstykki með 1 fl, * 2 ll, hoppið yfir ca 1 cm og festið með 1 fl *, endurtakið frá *-* upp meðfram hægra framstykki, meðfram kraga, aftan við hnakka og niður meðfram vinstra framstykki, klippið frá og festið enda. Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 134-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (54)

country flag Bea Van Beusichem wrote:

Hoeveel steken moet je breien bij de verkorte toeren in de mouw?

23.03.2024 - 15:34

DROPS Design answered:

Dag Bea,

Dit kan per maat verschillend zijn, maar je keert het werk op hetzelfde punt als bij de panden. Dus even goed kijken en eventueel tellen waar je moet keren voor de verkorte toeren.

27.03.2024 - 14:06

country flag Birgit Ziller wrote:

Wieviele Maschen haben die verkürzten Reihen an den Ärmeln???

13.03.2024 - 23:06

DROPS Design answered:

Liebe Frau Zoller, die verkürzten Reihen werden wie zuvor aber über die 51-53-55-57-60-62 Maschen auf der Nadel gestrickt, wenden Sie genauso wie zuvor, dh an die gleichen Stellen wie zuvor. Viel Spaß beim Stricken!

02.04.2024 - 07:49

country flag Marianne Svensson wrote:

Hej! Jag har börjat sticka på denna väst som ska stickas på tvären framifrån. Enligt mönstret nerifrån och upp mot halsen. Börjat att sticka vändningar. Jag får då en vändning 5 cm från midjan uppåt. Ska det vara så ? I mitt tänkande bör väl västens vändningar bli en bit ner från halskanten. och löpa över framstycke, ärm, bakstycke och ärm. Kan det vara så att jag stickar fel mellan* och * på vändningar. Tacksam för svar. Mvh Marianne Svensson

07.12.2023 - 14:45

DROPS Design answered:

Hei Marianne. I f.eks str. S legger man opp 115 masker og når man starter å strikke vendinger, starter man nederst og strikker opp mot halsen. Man strikker først 103 masker, så vender man. Så 1.vendig kommer ganske nær halsen. Snu og strikk ned til kanten igjen, snu og strikk 89 masker opp mot halsen, snu og strikk ned til kanten, snu og strikk 71 masker, snu og strikk ned til kanten igjen. Du har nå strikket 1 rapport. Strikk denne rappoten til arbeidet måler 23 cm, mål nederst. mvh DROPS Design

11.12.2023 - 08:17

country flag Anne Emery wrote:

J'ai fini de tricoter la manche gauche et je ne comprends pas très bien comment reprendre les mailles mises en attentes. Cela fait un espèce de trou au niveau du dessous du bras ?

04.09.2022 - 19:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Emery, au dernier rang rang de la manche gauche, vous avez tricoté toutes les mailles sur l'envers, tricotez maintenant les mailles du dos mises en attente (sur l'envers également, vous avez maintenant joint les 2 pièces et pouvez maintenant tricoter le dos. L'ouverture de la manche en haut correspond au passage du bras et sur le côté, vous avez tricoté 1 cm pour le côté (dessous du bras/de la manche). Bon tricot!

05.09.2022 - 09:28

country flag Gilardi Claudette wrote:

Je ne comprends pas l'explication des manches.que veut dire "avec les rangs raccourcis comme avant,aux mêmes endroits" Merci

31.01.2022 - 09:02

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gilardi, vous avez auparavant tricoté des rangs raccourcis sur toute la longueur, lorsque vous tricotez les manches, vous allez tourner aux mêmes endroit qu'avant (moins de fois car moins de marqueurs), et continuer ainsi les rangs raccourcis comme avant. Bon tricot!

31.01.2022 - 10:23

country flag Martens wrote:

Ik ben deze Eden vest aan het breien. Ik ben nu de libkermouw aan het breien. Deze moeten in verkorte toeren gebreid worden. De eerste en de tweede toer van de verkorte toeren moeten gewoon volledig heen en terug gebreid worden. Blijft dit ook gelden in de mouw? Want er zijn maar 2 verkorte toeren in de mouw ipv 3. Ik begrijp tevens niet hoe je 35 cm meet (aan de onderkant op het breedste deel) in de uitleg van de linkermouw. Kan u mij daarmee helpen, please?

09.01.2021 - 20:24

DROPS Design answered:

Dag Martens,

De lengte van de mouw meet je aan de onderkant van de mouw op het breedste deel. Als je verkorte toeren maakt op de mouw, keer je het werk op het zelfde punt als bij de panden, dus het aantal steken vanaf de hals tot het keerpunt voor de verkorte toeren moet hetzelfde zijn. Hoe de verkorte toeren herhaald worden is verder precies hetzelfde als op de panden.

10.01.2021 - 12:15

country flag Bobby Garland wrote:

OK, I think I get it. I need to do 1 more row on the LF (row 1 for me) in order to end at the top. Then, I need to attach a new yarn to stitch #64 on the WS and knit the side piece. Then I will end up with the last row on the RS. Then I will cut that yarn. Then I will go back to the top edge on the LF and pick up yarn and turn to the WS to start the sleeve on those 51 sts. It would have been nice if the instructions had been more specific, instead of saying "work approximately..."

08.01.2021 - 19:57

country flag Bobby Garland wrote:

I get what you are saying, but I am not asking about the sleeve, as I am not there yet. I need to know if I am to cut the yarn at the lower edge of the left front piece and reattach it to the WS at stitch #64 to start the first row of the side piece so as to end on the RS of the side piece as instructed. There is no other way to end up on the RS unless you start the side piece on the WS in the middle of the work.

08.01.2021 - 17:21

DROPS Design answered:

Dear Mrs Garland, after left front piece measures 23 cm, adjust so that next row will be worked from RS and now work this 1 cm starting from RS = from the bottom edge over the first 64 cm - adjust this 1 cm so that last row is worked from RS, then cut the yarn and join it to work sleeve (starting from RS) over the 51 sts left unworked on needle (starting from RS). Happy knitting!

11.01.2021 - 06:57

country flag Bobby Garland wrote:

OK, so you also cut the yarn at the end of the left front, which for me is at the lower edge, and reattach to stitch # 64 (for small size) in order to start the side piece on the WS, so as to finish last row of side piece on the RS?

08.01.2021 - 15:15

DROPS Design answered:

Dear Mrs Garland, the last row on left front piece is worked from RS, but when you turn and work sleeve, first row on sleve is worked from WS = this means you don't need to cut the yarn between left front piece and sleeve, then after sleeve, just work the 64 sts on side at the end of a WS row. - no need to cut the yarn neither between sleeve and back piece. Happy knitting!

08.01.2021 - 16:19

country flag Bobby Garland wrote:

Thank you for your response. Another question....I finished the left front and ended on row 8 of short row sequence, which means the next row would be a right side row. In order to finish the side piece on the RS as instructed and have the side pieces be the same number of rows and have a marker in the middle, I would have to start the side piece on the WS. Do I cut the yarn and start at stitch number 64 at the other end from the WS?

08.01.2021 - 14:08

DROPS Design answered:

Dear Mrs Garland, last row worked for side on front piece is worked from the right side, then cut the yarn and work sleeve. Last row worked on sleeve is from WS, after you have worked this last row on sleeve, work the stitches of the side at the end of this row = from WS, all stitches are now back on needle, turn and start short rows at the beg of next row from RS. Happy knitting!

08.01.2021 - 15:02