DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lady of the Lake

Prjónuð peysa með gatamynstri prjónuð frá hlið úr DROPS Snow eða DROPS Andes. Stærð S - XXXL

DROPS 134-48
DROPS Design: Mynstur nr EE-368
Garnflokkur E
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
500-550-600-650-750-800 gr litur nr 052, ljós blárár

DROPS HRINGPRJÓNN NR 8 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 15 umf með sléttprjóni með Snow verði 10 x 10 cm (M.1 mælist ca 4½ cm á breiddina, M.2 mælist ca 12 cm).
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7 (80 cm) – fyrir kant að framan.
DROPS MÁLMTALA NR 542: 3 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING 1:
Aukið er út um 1 l með því að sækja þráðinn á milli 2 l frá fyrri umf, prjónið snúið brugðið, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan til þess að koma í veg fyrir göt.

ÚTAUKNING 2:
Aukið er út um 1 l með því að sækja þráðinn á milli 2 l frá fyrri umf, prjónið snúið slétt, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað fyrir framan til þess að koma í veg fyrir göt.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.3B (mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu).

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir 3 hnappagötum í hægri kanti að framan.
1 HNAPPAGAT = fellið af 1 l og fitjið upp 1 nýja l yfir þá l sem felld var af í næstu umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

VINSTRA BAK- OG FRAMSTYKKI:
Vinstra bak- og framstykki er prjónað sem eitt stykki. Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna og byrjað við miðju að aftan.
Fitjið upp 81-83-85-88-90-92 l fyrir bakstykki á prjóna nr 8 með Snow.
Í umf 1 (= ranga) eru allar l prjónaðar slétt. Í næstu umf (umf 2 = rétta) er prjónað þannig: Prjónið M.1A (= 3 l), prjónið M.1 (= 5 l) 5-5-5-6-6-6 sinnum, prjónið síðan M.2 (= 18 l), 31-33-35-33-35-37 l í sléttprjóni, endið með 1 l br, 1 l sl, 1 l br og 1 l sl (= 4 kantlykkjur fyrir stroff til loka). Prjónið að auki 2-2-4-4-6-6 umf þannig með 4 kantlykkjum með stroffi í hlið. Aukið nú út fyrir hálsmáli þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið þar til 3 l eru eftir á prjóni (= M.1A), prjónið 1 l br, 1 l sl, aukið út um 1 l – Lesið ÚTAUKNING 1 að ofan, endið með 1 l sl.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið M.1B yfir 4 fyrstu l á prjóni, haldið áfram með mynstur.
UMFERÐ 3: Prjónið þar til 4 l eru eftir á prjóni (= M:1B), prjónið 1 l br, 1 l sl, 1 l br, aukið út um 1 l og endið með 1 l sl = 83-85-87-90-92-94 l.
UMFERÐ 4: Prjónið M.1 yfir 5 fyrstu l á prjóni, haldið áfram með mynstur (= 6-6-6-7-7-7 mynstureiningar af M.1 alls).
UMFERÐ 5: Prjónið út umf, fitjið upp 84-86-88-91-93-95 l fyrir framstykki í lok umf = 167-171-175-181-185-189 l á prjóni.
UMFERÐ 6 (= rétta): Prjónið 1 l sl, 1 l br, 1 l sl, 1 l br (= 4 kantlykkjur með stroffi til loka), 31-33-35-33-35-37 l í sléttprjóni, umf 1 í M.2, 1 l sl, síðan M.1 alls 12-12-12-14-14-14 sinnum (= 60-60-60-70-70-70 l), M.2, 31-33-35-33-35-37 l í sléttprjóni, endið með 1 l br, 1 l sl, 1 l br og 1 l sl (= 4 kantlykkjur með stroffi til loka). Haldið áfram með mynstur og 4 kantlykkjur með stroffi í hvorri hlið á stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar M.2 á bakstykki hefur verið prjónað 4-4-5-5-6-6 sinnum alls (bakstykkið mælist ca 23-23-28-28-33-33 cm frá uppfitjunarkanti) setjið tvö prjónamerki í stykkið frá réttu þannig: 58-60-62-60-62-64 l (= framstykki), eitt prjónamerki, 51-51-51-61-61-61 l (= ermi), eitt prjónamerki, 58-60-62-60-62-64 l (= bakstykki). Nú skiptist stykkið við prjónamerkin og hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið umf 1 (= rétta) þannig: Prjónið 58-60-62-60-62-64 l (að 1. prjónamerki) með mynstri og sléttprjóni eins og áður, snúið við. Í byrjun á næstu umf (= ranga) er felldar af af 23 l (= 1 mynstureining af M.1 og M.2) í öllum stærðum út umf. Fellið af 10-12-12-12-12-12 l í byrjun 2 næstu umf frá röngu = 15-13-15-13-15-17 l eftir á prjóni, fellið laust af allar l í næstu umf.

ERMI: = 51-51-51-61-61-61 l (= 1 l sl + 10-10-10-12-12-12 mynstureiningar af M.1). Prjónið 2 umf M.1 (umf 1 = rétta). Í byrjun 2 næstu umf er fækkað um 1 l. Endurtakið úrtöku í byrjun hverrar umf í hvorri hlið alls 5 sinnum = 41-41-41-51-51-51 l (1 l sl + 8-8-8-10-10-10 mynstureininga af M.1). Þegar stykkið mælist ca 35-35-36-39-42-42 cm (passið uppá að síðasta umf er umf 2 í M.1) fellið laust af allar l með sl yfir sl og br yfir br.

VINSTRA BAKSTYKKI:
= 58-60-62-60-62-64 l. Í umf 1 frá réttu eru felldar af 23 l í byrjun umf í öllum stærðum, prjónið út umf. Fellið af 10-12-12-12-12-12 l í byrjun næstu 2 umf frá réttu = 15-13-15-13-15-17 l eftir á prjóni, fellið laust af allar l í næstu umf.

HÆGRA BAK- OG FRAMSTYKKI:
Hægra bak- og framstykki er prjónað sem eitt stykki.
Fitjið upp 81-83-85-88-90-92 l fyrir bakstykki á hringprjóna nr 8 með Snow.
Í umf 1 (= ranga) eru allar l prjónaðar slétt. Í næstu umf (umf 2 = rétta) eru prjónað þannig: 1 l sl, 1 l br, 1 l sl og 1 l br (= 4 kantlykkjur með stroffi til loka), 31-33-35-33-35-37 l í sléttprjóni, prjónið síðan M.2 (= 18 l), M.3 (= 5 l) 5-5-5-6-6-6 sinnum og endið með M.3A (= 3 l). Prjónið að auki 3-3-5-5-7-7 umf þannig með 4 kantlykkjum með stroffi í hlið. Aukið nú út þannig fyrir hálsmáli:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 l eru eftir á prjóni (= M.3A), prjónið 1 l sl, 1 l br, aukið út um 1 l – Lesið ÚTAUKNING 2 að ofan, endið með 1 l br.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið M.3B yfir 4 fyrstu l á prjóni, haldið áfram með mynstur.
UMFERÐ 3: Prjónið þar til 4 l eru eftir á prjóni (= M:3B), prjónið 1 l sl, 1 l br, 1 l sl, aukið út um 1 l og endið með 1 l br = 83-85-87-90-92-94 l.
UMFERÐ 4: Prjónið M.3 yfir 5 fyrstu l á prjóni, haldið áfram með mynstur (= 6-6-6-7-7-7 mynstureiningar af M.3 alls).
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið út umf. Í lok umf eru fitjaðar upp 84-86-88-91-93-95 l fyrir framstykki = 167-171-175-181-185-189 l á prjóni.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 1 l br, 1 l sl, 1 l br, 1 l sl (= 4 kantlykkjur með stroffi til loka), 31-33-35-33-35-37 l í sléttprjóni, 8 umf í M.2, 1 l br, síðan M.3 alls 12-12-12-14-14-14 sinnum (= 60-60-60-70-70-70 l), M.2, 31-33-35-33-35-37 l í sléttprjóni, endið með 1 l sl, 1 l br, 1 l sl og 1 l br (= 4 kantlykkjur með stroffi til loka). Í næstu umf frá réttu er prjónuð umf 1 í M.2 á framstykki. Prjónið eins og vinstra bak- og framstykki, nema spegilmynd.

FRÁGANGUR:
Saumið saman bæði stykkin við miðju að aftan með lykkjuspori. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna nr 7. Byrjið neðst í kanti á hægra framstykki, prjónið upp ca 180-210 l frá réttu upp meðfram hægra framstykki, kringum hálsinn og niður meðfram vinstra framstykki. Prjónið slétt í næstu umf (= ranga) – Jafnframt er lykkjufjöldinn jafnaður til 191-195-201-209-215-219 l. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 1 l sl, * 1 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* út umf. Haldið áfram með stroff í ca 4-4-4-5-5-5 cm. Setjið nú prjónamerki 78-80-80-84-86-88 l inn frá hvorri hlið = 35-35-41-41-43-43 l á milli prjónamerkja aftan við hnakka. Í næstu umf frá réttu er aukið út til 17-17-20-20-21-21 l á milli prjónamerkja þannig: Prjónið fram að 1. Prjónamerki, síðan 1 l sl, * aukið út um 1 l, 1 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* fram að 2. Prjónamerki, prjónið út umf = 208-212-221-229-236-240 l. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br. Þegar kanturinn mælist 5-5-5-6-6-6 cm er fellt af fyrir 3 hnappagötum í vinstri kanti að framan jafnt yfir við hlið M.2 – Lesið HNAPPAGAT að ofan. Þegar kantur að framan mælist 8-8-8-9-9-9 cm er fellt laust af allar l.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 134-48

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (58)

country flag Civario Marie wrote:

Diagramme M2 peut il être fait pour le devant droit et gauche d'un gilet . Sans modification .

17.04.2023 - 18:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Civario,fort probablement oui. Bon tricot!

18.04.2023 - 10:02

country flag Céline Adelon wrote:

Bonjour, je veux tricoter ce modèle mais je ne comprends pas toutes les explications car vous dites que le demi-dos gauche se tricotent en une seule pièce, mais ensuite vous donnez des instructions séparées pour le dos gauche et le devant. Pouvez-vous m'apporter plus de précisions s'il vous plaît, car j'avoue que je suis perdue. Merci beauoup !

21.03.2023 - 07:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Adelon, effectivement, on tricote le demi-dos gauche et le devant gauche en une seule partie jusqu'aux emmanchures/épaules, puis on termine le devant gauche, on tricote la manche sur les mailles en attente et on termine le demi-dos gauche, ce ne sont que quelques rangs pour former les côtés sous la manche (emmanchures et côtés). Suivez attentivement les explications, votre ouvrage prendra forme progressivement. Bon tricot!

21.03.2023 - 11:08

country flag Eva wrote:

Jag stickar ärmen och undrar om man mäter arbetet från mitt bak, när man ska maska av.

25.02.2022 - 10:29

DROPS Design answered:

Hej Eva. Ja det stämmer, du ser också alla mått längst ner på måttskissen. Mvh DROPS Design

25.02.2022 - 13:10

country flag Eva wrote:

Jag är på varv 4 på vänster bak & framstycke. Hur stickar jag? M1 6 ggr? Och sen? Det ser inte ut att stämma! Jag stickar i stl L. Jag har börjat öka för halsen och är på ca varv 12 totalt. Det ser inte ut som mönstret fortsätter som jag stickat det tidigare.

25.01.2022 - 16:55

DROPS Design answered:

Hej Eva, sæt et mærke mellem hver diagram, så er du sikker på at du strikker de rigtige diagrammer på de rigtige steder. Mønsteret skal passe over hinanden hele vejen rundt. God fornøjelse!

27.01.2022 - 10:59

country flag Eva wrote:

Jag är på varv 4 på vänster bak & framstycke. Hur stickar jag? M1 6 ggr? Och sen? Det ser inte ut att stämma!

24.01.2022 - 19:25

DROPS Design answered:

Hei Eva. For at vi skal kunne hjelpe deg, er det fint om du skriver hvilken størrelse du strikker og er du på 4. pinne fra starten av eller 4. pinne fra der det økes til hals? mvh DROPS Design

25.01.2022 - 14:15

country flag Kristin Toft wrote:

Er nettopp startet på venstre bak og forstykk, og står allerede fast. Jeg har strikket 1 pinne rett, 2 pinne etter oppskrifta; Hva er så neste pinne???????? Følger jeg de samme diagrammene bare speilvendt?????? Det står; Strikk ytterligere 2 p (strikker str M) slik med 4 kantm i vrbord i siden. Så går man over til økning til hals.

17.12.2021 - 00:22

DROPS Design answered:

Hei Kristin. Når du har strikket 1. rad av diagrammene (2.pinne), snu og strikk 2. rad av diagrammene (da leser du diagrammene fra venstre mot høyre, husk å lese diagramforklaringen på hvordan maskene skal strikkes fra vrangen). Så skal det strikkes ytterligere 2 pinner (etter forklaringen og diagrammene). Deretter økes det til hals slik det står forklart i oppskriften. Usikker på hvordan strikke etter diagram, kan du ta en titt her: Hvordan lese strikkediagrammer mvh DROPS Design

21.12.2021 - 09:19

country flag Maureen wrote:

Hello, I'm a knitting beginner, and so want to be sure before I start. I want to make the small size for a short person, and want to change the overall length, by 11 stitches/4”. Please correct if I’m wrong, but I should cast on 70 stitches and in stockinette section work 20 instead of 31, yes? Thank you Drops for beautiful patterns and for lovely Eskimo in petrol.

21.11.2020 - 17:20

DROPS Design answered:

Dear Maureen, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request - please contact the store where you bought the yarn or any knitting forum for any individual assistance. Thanks for your comprehension. Happy knitting!

23.11.2020 - 08:40

country flag Sonja L Greco wrote:

Just to clarify - the first row after cast on is worked as a KNIT which is opposite of the remainder of the stockinette area? Because it is the wrong side? And, the additional stitches cast on - are the the front or the back?

31.10.2020 - 18:23

DROPS Design answered:

Dear Mrs Greco, in this pattern, we want that the first worked row is the wrong side of piece, and this row will be knitted from the wrong side. Then the next row = 2nd row of piece will be the right side of piece. This way, we have a small ridge before the first row in pattern. Happy knitting!

02.11.2020 - 07:52

country flag Mika Frost wrote:

Hej! Det är alldeles för lite tilltaget med garnet... har ingen annan sagt det. Jag är nu uppe i 600 g och det räcker ändå inte, så nu får den ligga eftersom det blir andra gången jag får ombeställa och det blir dyrt med portot och jag inte ska göra fler stickprojekt för nu. Ni får gärna bjuda på portot så beställer jag två nystan till... Mvh Mika

28.01.2020 - 07:35

country flag Małgorzata Zaraś wrote:

Tłumaczenie: tragedia!

07.05.2019 - 18:46