DROPS Puddel
DROPS Puddel
94% Mohair, 6% Polyester
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
DROPS SS24
DROPS 134-30
DROPS Design: Mynstur X-370
Garnflokkur C og E
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALASKA frá Garnstudio
300-350-350-400-450-500 gr litur nr 05, dökk grár.
og einnig:
DROPS PUDDEL frá Garnstudio
100-100-100-150-150-150 gr litur nr 07, milligrár.

DROPS PRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með Alaska.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 9 l og 18 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm með Puddel.
DROPS HEKLUNÁL NR 7 – fyrir heklaðan kant.
DROPS TALA NR 538 (25 mm): 3 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puddel
DROPS Puddel
94% Mohair, 6% Polyester
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn, þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan, til þess að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA (á við um handveg og hálsmál):
Fækkið um 1 l innan við 4 l í garðaprjóni meðfram haldveg og 5 l í garðaprjóni meðfram hálsmáli.
FRÁ RÉTTU:
Á eftir 4 eða 5 l í garðaprjóni: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Á undan 4 eða 5 l í garðaprjóni: Prjónið 2 l sl saman.
FRÁ RÖNGU:
Á eftir 5 l í garðaprjóni: Prjónið 2 l br saman.
Á undan 5 l í garðaprjóni: Prjónið 2 l snúnar br saman, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan.
1 hnappagat = fellið af 4. og 5. l í kanti að framan. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 22, 29, 36 cm.
STÆRÐ M: 23, 30, 37 cm.
STÆRÐ L: 24, 31, 38 cm.
STÆRÐ XL: 25, 32, 39 cm.
STÆRÐ XXL: 26, 33, 40 cm.
STÆRÐ XXXL: 27, 34, 41 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 86-92-100-108-118-128 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 5 með Alaska. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið innan áður en byrjað er á handveg. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið = 2 l færri. Endurtakið úrtöku með 6-6-6-6-7-7 umf millibili alls 10 sinnum = 66-72-80-88-98-108 l. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm (öll úrtaka á nú að vera lokið) prjónið 8 umf í garðaprjóni yfir allar l (umf 1 er frá réttu), haldið nú áfram í sléttprjón með 1 kantlykkju eins og áður – Jafnframt er aukið út um 1 l – Lesið ÚTAUKNING að ofan – innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið frá næstu umf frá réttu. Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf alls 4 sinnum = 74-80-88-96-106-116 l.
Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm er prjónað frá réttu 2 umf garðaprjón yfir síðustu 7-7-8-9-11-13 l í hvorri hlið (garðaprjón til loka, aðrar l eru prjónaðar í sléttprjóni eins og áður). Prjónið nú næstu 2 umf þannig: Fellið af 3-3-4-5-7-9 l í byrjun á prjóni fyrir handveg, 4 l garðaprjón (= kantlykkja í hlið til loka). Fellið nú af 1 l innan við 4 l í garðaprjóni í hvorri hlið frá réttu – Lesið ÚRTAKA að ofan – alls 5-6-8-9-10-12 sinnum = 58-62-64-68-72-74 l. Haldið áfram í sléttprjóni og 4 l í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm fellið nú af miðju 16-16-18-18-20-22 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsi = 20-22-22-24-25-25 l eftir á hvorri öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 43-46-50-54-59-64 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hlið og 5 kantlykkjur við miðju að framan) á prjóna nr 5 með Alaska. Prjónið 4 umf garðaprjón, prjónið nú sléttprjón en síðustu 5 l við miðju að framan eru prjónaðar í garðaprjóni (= lykkjur í kanti að framan) til loka. Haldið áfram með 5 kantlykkjur í kanti að framan og 1 kantlykkju í hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm byrjar úrtaka í hlið eins og á bakstykki = 33-36-40-44-49-54 l. Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm er fellt af fyrir fyrsta HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan!
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm eru prjónaðar 8 umf í garðaprjóni yfir allar l (umf 1 er frá réttu). Næsta umf frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 5 l garðaprjón, fækkið um 1 l – Lesið ÚRTAKA að ofan, prjónið sléttprjón og aukið út um 1 l á undan 1 kantlykkju. Endurtakið úrtöku fyrir hálsmál við miðju að framan í 5. hverri umf alls 9-9-10-10-11-12 sinnum – Jafnframt er haldið áfram með útaukningu í hliðum eins og á bakstykki.
Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm er prjónað frá réttu 2 umf garðaprjón yfir síðustu 7-7-8-9-11-13 l á prjóni (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Í næstu umf eru felldar af fyrstu 3-3-4-5-7-9 l fyrir handveg, prjónið 4 umf garðaprjón og prjónið út umf. Fellið af innan við 4 l í garðaprjóni í hlið eins og á bakstykki. Þegar allri úrtöku er lokið (við handveg og hálsmáli) eru 20-22-22-24-25-25 l eftir á öxl. Prjónið nú sléttprjón með 4 l í garðaprjóni við handveg og 5 l í garðaprjóni við hálsmál þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Fellið laust af allar l.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd og án hnappagata.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið tölurnar í vinstri kanti að framan.

KRAGI:
Kraginn er prjónaður fram og til baka á hringprjóna nr 8 með Puddel. Setjið tvö prjónamerki við kantinn á hálsmáli ca 7 cm ofan við garðaprjón á brjósti. Prjónið upp frá réttu ca 60 til 70 l á milli prjónamerkja kringum hálsmál. Prjónið garðaprjón yfir allar l í ca 6-6-7-7-8-8 cm. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið síðustu 4 l slétt saman 2 og 2 í næstu 2 umf (= 4 l færri í hverri umf). Í byrjun á næstu 2 umf eru felldar af 8-8-9-9-10-10 l. Haldið áfram í garðaprjóni yfir þær l sem eftir eru þar til kraginn mælist 13-13-14-14-15-15 cm. Fellið laust af allar l.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið með heklunál nr 7 með Puddel og byrjið neðst í hægri kanti að framan þannig: * Heklið 1 fl, 2 ll, hoppið yfir 1,5 cm *, endurtakið frá *-* upp meðfram hægri kanti að framan, kringum kraga og niður meðfram vinstri kanti að framan. ATH: Passið uppá að heklaði kanturinn sé ekki of stífur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 134-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (49)

country flag Edith wrote:

Ik heb de eerste 4 naalden in ribbelsteek gebreid, maar nu krult dat heel erg om. Wat kan ik daaraan doen?

03.02.2022 - 02:50

DROPS Design answered:

Dag Edith

Als je het werkstuk klaar hebt kun je de rand in ribbelsteek heel voorzichtig oppersen. Je legt dan een natte theedoek op het werk en drukt daar voorzichtig om met een strijkijzer. Doe dit heel voorzichtig, zodat je de textuur van het breiwerk niet vernielt. Op deze manier gaat het omkrullen weg.

11.02.2022 - 15:18

country flag Isabell wrote:

Vad kn man ersätta Puddel med, för att få motsvarande utseende?

13.12.2020 - 21:08

DROPS Design answered:

hej Isabell. Du kan ersätta med dubbel tråd DROPS Alpaca Bouclé för att få ett motsvarande utseende. Mvh DROPS Design

14.12.2020 - 09:34

Ebrul wrote:

Die Weste ist auch in der grössten Grösse schnell gestrickt und sitzt perfekt... Traumhaft schön...

20.10.2014 - 19:07

country flag ChristianeS wrote:

Die ist super geworden! Habe allerdings die Weste nach meinen Massen angepasst. Gr. 38 oder Gr. 40 wäre an manchen Stellen zu eng, an anderen dafür zu weit gewesen. Aber durch die Anpassung an meine Maße sitzt die jetzt wie angegossen u. wird immer wieder bewundert!

01.03.2013 - 10:02

country flag Anna wrote:

Buongiorno a tutte, in riferimento al modello 134-30, chiedo un'alternativa al filato Puddle, non reperibile on line, che dia lo stesso effetto 'pelliccia'. Avevo pensato all,Aloaca Bouclè, ma non so se l'effetto sarà simile e inoltre necessita dei ferri piû piccoli e non saprei come apportare questa modifica sul modello..... Grazie mille

24.09.2012 - 14:56

DROPS Design answered:

Buongiorno, ha provato a visitare tutti i rivenditori italiani? Il nuovo rivenditore Fiordilana che aprirà ad ottobre dovrebbe avere Puddel. Può scrivere una mail. Alpaca Bouclé è un po' più sottile e non da lo stesso effetto pellicca. Potrebbe eventualmente utilizzare DROPS Symphonie oppure doppio Vivaldi o Vienna.

25.09.2012 - 11:39

country flag Drops Design wrote:

For size XXL you have 106 sts. Bind off 7 sts each side = 92 sts. Then bind of 1 st 10 times each side = - 20 = 72 sts. XL has 96 sts to start out with, then bind off 5 each side, and then 1 9 times each side = 68 sts.

06.01.2012 - 21:09

country flag Amy Licata wrote:

Please help. I'm working on the top of the back in XL. I started armholes with 106 stitches. I bind off 5 each side = 96 stitches. I decrease 1 each side 9 times = 78 stitches. Where do the last 10 stitches go to get to the 68 sts? I'm just sick, as I've made this all in one piece,, and I'm done the front, and the back looks 2.25 inches too big.

06.01.2012 - 05:51

country flag Sandra wrote:

"fårskinnsväst"

30.07.2011 - 21:20

country flag Patricia wrote:

Zeer mooi model heb de wol besteld

27.07.2011 - 18:07

country flag Jona wrote:

Zeer mooie vest! Tijdloos en mooi gecentreerd. De moeite waard!

16.07.2011 - 13:44