DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 134-3
DROPS Design: Mynstur nr Z-569
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: Ein stærð
Sjalið mælist ca 50 cm á hæð og 140 cm á breidd.

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
200 gr litur nr 3770, dökk bleikur
eða notið:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
200 gr litur no 4088, bleikfjólublár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 30 umf með sléttprjóni 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN:
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá M.1, M.2 og M.3 (mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu).

ÚRTAKA:
Fækkað er um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkað er um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l á eftir prjónamerki sl saman.
Fækkað er um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki þannig: Prjónið 2 l á eftir og á undan 1 kantlykkju saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna neðan frá og upp.

SJAL:
Fitjið upp 363 l (deilanlegt með 18 + 3) á hringprjón nr. 3,5 með Alpaca eða BabyAlpaca Silk. Prjónið 4 umf garðaprjón (umf 1 = rétta). Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, M.1 (= 18 l) alls 20 sinnum, endið með 1 l í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið umf 2 í M.1 ( 2 l færri í hverri mynstureiningu = 16 l hver mynstureining ) = 323 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, M.2 (= 16 l) alls 20 sinnum, endið með 1 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með M.2 þar til prjónað hefur verið alls 5 sinnum á hæðina. Prjónið nú þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, M.3 (2 l færri í hverri mynstureiningu = 14 l hver mynstureining) alls 20 sinnum, endið með 1 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjón = 283 l. Prjónið umf 2 í M.3.
Setjið nú tvö prjónamerki í stykkið frá réttu þannig: 113 l, prjónamerki 1, 57 l, prjónamerki 2 = 113 l eftir. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykkinu. Jafnframt er fækkað um 1 l innan við 1 kantlykkju í báðum hliðum á stykki í hverri umf, fækkið um 1 l á undan prjónamerki 1 og 1 l á eftir prjónamerki 2 í hverri umf frá réttu – lesið ÚRTAKA að ofan = 6 l færri eftir aðra hverja umf. Endurtakið úrtöku þar til 7 l eru eftir á undan og á eftir prjónamerki (enn 57 lykkjur á milli prjónamerkja) Í næstu 2 umf er fækkað um 1 l innan við 1 kantlykkju í báðum hliðum á stykki, 1 l á undan prjónamerki 1 og 1 l á eftir prjónamerki 2 = 63 l eftir á prjóni. Fellið laust af allar l í næstu umf. Stykkið mælist nú ca 50 cm á hæð.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.09.2011
Fjöldi l er leiðréttur í sjalinu
Yfirfarið á vefsvæði: 01.08.2018
Endurtakið úrtöku þar til 7 lykkjur eru eftir á undan og á eftir prjónamerki (áður voru 5 lykkjur)

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjurnar
symbols = lykkja er ekki til
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 134-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (112)

country flag María Angeles wrote:

Me gustaría hacer los chales que vienen de con vuestras lanas yo voy a una tienda a comprar las lanas de ustedes pero no me ayudan para nada porque alguna gente no sabe hacerlo entonces me gustaría a ver si ustedes me pone un vídeo o si puedo no sé encontrar alguna manera de poderlo hacer y bueno dale la gracia si me contestan y me gustaría saber hacer el jerseys y chaquetas y de todo pero aquí en Madrid parece que hay poca gente que que deja bien muchas gracias

06.03.2024 - 10:31

DROPS Design answered:

Hola Maria Angeles, tienes todos los videos y lecciones necesarias para realizar la labor en sus respectivas secciones. Esta lección puede servirte para entender el formato de nuestros patrones: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=79&cid=23. Si necesitas ayuda en una sección concreta del patrón puedes escribir aquí tu duda y trataremos de contestarte lo antes posible.

10.03.2024 - 20:37

country flag Annika Karlsson wrote:

Hej Försöker sticka sjalen Diva 134-3. Får det inte att stämma när jag stickar M2. Stickar varv ett i M2 sätter markör efter varje hoptagning maska tio . Allt stämmer, gör varv två allt okej. När jag sen ska stickar varv tre har jag plötsligt en maska för lite i början av varvet om maska 8-10 alltid ska vara över varandra. I slutet av varvet har jag en maska för mycket. Fattar inte vad som blir fel.

19.06.2023 - 14:58

DROPS Design answered:

Hej Annika, vet inte var det går fel... har du 3 maskor mellan omslagen....? har du 5 maskor på varje sida av hoptagningen? Minskar du 2 maskor så du har från 3 till 1 kvar vid hoptagningen?

22.06.2023 - 13:55

country flag Jette wrote:

Jeg forstår ikke afsnit 3 under SJAL. Derefter sættes der 2 mærketråde….. Efter min forståelse, giver det kun 4 indtagninger på alle ret pinde, og ingen på vrangen. Ikke 6 som der står i mønsteret. HVAD GØR JEG ? Mvh Jette

02.03.2023 - 15:39

DROPS Design answered:

Hei Jette. I oppskriften står det at du skal felle 1 maske innenfor 1 kantmaske i hver side på hver pinne (= både fra retten og vrangen) og 1 maske før 1.merketråd og 1 maske etter 2.merketråd på hver pinne fra retten = 6 felte masker etter å ha strikket frem og tilbake / 2 pinner. Altså på 1. pinne feller du innenfor 1 kantmaske i hver side + 1 maske ved hver merketråd = 4 felte masker og ved 2. pinne feller du bare 1 maske ved hver kantmaske i hver side = 2 felt masker. Så på 2 pinner (frem og tilbake) felles det 6 masker. mvh DROPS Design

06.03.2023 - 14:00

country flag Julie wrote:

Bonjour je fais le châle 134-3,je suis rendu à faire le tableau m.3. Est-ce que je le fais identique 7m endroit,la diminution et 6m endroit pareil pour le rang \r\n1,3,5…ou si je fais selon la diminution arrive soit le rang 3 sa arrive à 6m, la diminution,5m ainsi de suite , merci

15.07.2022 - 19:45

DROPS Design answered:

Bonjour Julie, le diagramme M.3 ne va se tricoter qu'une seule fois en hauteur, au 1er rang, tricotez: 1 m lis, (7 m end, diminution, 6 m end), tricotez 20 fois de (à) et terminez par 1 m lis. Au 2ème rang, tricotez sur l'envers: 1 m lis, tricotez à l'envers et terminez par 1 m lis. Bon tricot!

01.08.2022 - 10:13

country flag Thibault wrote:

Bonjour je fais le châle 134-3,je suis rendu à faire le tableau m.3. Est-ce que je le fais identique 7m endroit,la diminution et 6m endroit pareil pour le rang \r\n1,3,5…ou si je fais selon la diminution arrive soit le rang 3 sa arrive à 6m, la diminution,5m ainsi de suite \r\nMerci \r\nJulie

14.07.2022 - 15:16

country flag Julie wrote:

Je voudrais faire ce châle et je suis indécise pour le choix de la laine : le faire avec alpaca ou bien avec baby alpaca Silk. Laquelle est la mieux? Le modèle 134-3 Merci

15.05.2022 - 03:18

DROPS Design answered:

Bonjour Julie, les 2 laines conviennent parfaitement, DROPS Alpaca est un pur alpaga avec une palette de couleurs relativement large et DROPS Baby Alpaca Silk est un mélange alpaga et soie. N'hésitez pas à demander conseil à votre magasin si besoin. Bon tricot!

16.05.2022 - 08:22

country flag Valery Therrien wrote:

Bonjour, Je viens de commencer M2, rang 2. Je sais qu'il faut tricoter les mailles comme elles sont, si la vague est face à soi, il faut tricoter à l'envers. Par contre, j'hésite sur la façon à faire les jetés du rang 1. Dois-j3 les faire à l'endroit ou à l'envers, les prendre dans un brin ou deux? Merci de votre aide

11.01.2022 - 14:42

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Therrien, tous les rangs des diagrammes sont représentés, ceux sur l'endroit aussi bien que ceux sur l'envers; ainsi, lorsque vous tricotez M.2, les rangs impairs se tricotent sur l'endroit et les rangs pairs sur l'envers (= tricotez M.2 en jersey envers, les jetés comme les mailles pour qu'ils forment des trous). Bon tricot!

12.01.2022 - 06:36

country flag Dohány Edit wrote:

Szeretném kérdezni, hogy az alábbi szöveg alapján hogy jön ki a 6 szem fogyasztás?\r\na szélszem mellett a darab mindkét oldalán fogy 1 szemet minden sorban, és fogy 1 szemet az 1. jelölő előtt és a 2. jelölő után \r\nEz nekem csak 4 szemet jelent... \r\nElőre is köszönöm! Edit

06.08.2021 - 15:23

country flag Suzanne Bois wrote:

Quand on voit le carré noir et que l'on dit pas de maille je ne comprend pas

03.05.2021 - 04:36

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bois, au 1er rang de A.1, on diminue 1 maille, il va donc y avoir 2 mailles en moins au rang suivant (= 16 mailles uniquement), les carrés noirs ne sont pas des mailles, car on les a diminué au rang précédent. Bon tricot!

03.05.2021 - 09:34

country flag Gabriella wrote:

Jag förstår inte mönstret M1. Om jag inte räknat kantmaskan förstår jag det som att M1 stickas genom att sticka ihop två maskor, sticka 6 maskor, lyfta av 1 maska och sticka ihop 2 maskor samt lyfta över, och sedan sticka ytterligare 5 maskor och sedan sticka ihop de två sista. Då har jag stickat 18 maskor men minskat med totalt 4 maskor, dvs 14 maskor per rapport. Enligt er beskrivning ska man ha kvar 16 maskor. Vad är det som inte stämmer?

31.10.2020 - 12:16