DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
DROPS Glitter
DROPS Glitter
60% Cupro, 40% Málmþræðir
frá 572.00 kr /10g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1012.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-747
DROPS Design: Modell nr E-176
--------------------------------------------------------

DISKAMOTTA:
Mál:
Lítil diskamotta: ca 20 cm að þvermáli
Stór diskamotta: ca 30 cm að þvermáli (hægt að hekla stærri)

GARN:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
50 gr litur nr 01, ljós bleikur
Og einnig:
DROPS GLITTER frá Garnstudio
2 rúllur nr 04, ljós bleikur

Eða notið:
DROPS ♥ You #7 frá Garnstudio
50 gr litur nr 14, ljós bleikur
Og einnig:
DROPS GLITTER frá Garnstudio
2 rúllur litur nr 04, ljós bleikur

Það er hægt að gera 2 litlar diskamottur eða 1 stóra diskamottu úr 1 dokku DROPS Safran.

SERVÉTTUHRINGUR:
Mál: ca 4½ cm að þvermáli

GARN:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
50 gr litur nr 01, ljós bleikur
Og einnig:
DROPS GLITTER frá Garnstudio
2 rúllur litur nr 04, ljós bleikur

Það er hægt að gera 4 servéttuhringi úr 1 dokku DROPS Safran.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3

HEKLFESTA:
24 fastalykkjur verði 10 cm á breidd = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
DROPS Glitter
DROPS Glitter
60% Cupro, 40% Málmþræðir
frá 572.00 kr /10g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1012.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR-1:
Í byrjun umferðar þar sem einungis eru heklaðar fastalykkjur er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Hver umferð endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar.

HEKLLEIÐBEININGAR-2:
Í byrjun hverrar umferðar er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Hver umferð endar með 1 keðjulykkju í byrjun umferðar.
-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

DISKAMOTTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

LÍTIL DISKAMOTTA:
Heklið 8 loftlykkjur með heklunál 3 með 1 þræði DROPS Safran eða 1 þræði DROPS ♥ You #7 + 2 þræði DROPS Glitter og formið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR-1.
UMFERÐ 1: Heklið 24 fastalykkjur um hringinn.
UMFERÐ 2: 5 loftlykkjur (= 1 stuðull + 2 loftlykkjur), * hoppið yfir 1 fastalykkju , 1 stuðull í næstu fastalykkju, 2 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 12 stuðlar með 2 loftlykkjur á mill hverra stuðla.
UMFERÐ 3: 1 loftlykkja, heklið síðan um hvern loftlykkjuboga umferðina hringinn: 1 fastalykkja + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja + 1 loftlykkja, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju = 24 fastalykkjur með 1 loftlykkju á milli hverra fastalykkja.
UMFERÐ 4: 1 keðjulykkja í fyrstu fastalykkju, 1 keðjulykkja um fyrstu loftlykkju, 5 loftlykkjur, 1 þríbrugðinn stuðull um sömu loftlykkju, * 7 loftlykkjur, nú eru heklaðir 4 þríbrugðnir stuðlar saman þannig: Heklið 2 þríbrugðna stuðla í sömu loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegnum báða þríbrugðnu stuðlana í lokin, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja, heklið 1 þríbrugðinn stuðul um næstu loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið síðan síðasta þríbrugðna stuðulinn um sömu loftlykkju og síðasti uppslátturinn er dreginn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni *, endurtakið frá *-* alls 11 sinnum, 7 loftlykkjur, heklið 2 þríbrugðna stuðla saman um sömu loftlykkju (en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin), heklið 1 keðjulykkju í 5. loftlykkju í byrjun umferðar og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni.
UMFERÐ 5: 1 keðjulykkja um fyrsta loftlykkjuboga, 4 loftlykkjur (= tvíbrugðinn stuðull), 7 tvíbrugðnir stuðlar um sama loftlykkjuboga, síðan eru heklaðir 8 tvíbrugðnir stuðlar um hvern loftlykkjuboga, endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun umferðar = 12 tvíbrugðnir stuðlahópar með 8 tvíbrugðnum stuðlum í hverjum hópi.
UMFERÐ 6: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í keðjulykkju, síðan er hekluð 1 fastalykkja í hvern tvíbrugðinn stuðul og 1 fastalykkja á milli hverra tvíbrugðnu stuðlahópa umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar = 108 fastalykkjur.
UMFERÐ 7: 4 loftlykkjur (= 1 stuðull + 1 loftlykkja), hoppið yfir 1 fastalykkju, * 1 stuðull í næstu fastalykkju, 1 loftlykkja (passið uppá að loftlykkjur séu heklaðar jafn langt og hæð á 1 fastalykkju, annars verður umferðin stíf), hoppið yfir 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 54 stuðlar með 1 loftlykkju á milli hverra stuðla.
UMFERÐ 8: 1 loftlykkja, heklið síðan til skiptis 2 og 3 fastalykkju um hverja loftlykkju umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar = 135 fastalykkjur.
UMFERÐ 9: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 135 fastalykkjur.
UMFERÐ 10 (= blúndukantur): 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í keðjulykkju, * 5 loftlykkjur, 1 stuðull í 2. loftlykkju sem var hekluð, 1 tvíbrugðinn stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir 4 fastalykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fastalykkju frá byrjun umferðar (í stað 1 fastalykkju í næstu lykkju) = 27 bogar. Klippið og festið þráðinn.

STÓR DISKAMOTTA:
Heklið á sama hátt og lítil diskamotta til og með umferð 9.
UMFERÐ 10-12: Heklið á sama hátt og umferð 9 = 135 fastalykkjur.
UMFERÐ 13: * Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 8 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 150 fastalykkjur.
UMFERÐ 14-15: Heklið 1 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 150 fastalykkjur.
UMFERÐ 16: * Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 4 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 5 fastalykkjum *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 165 fastalykkjur.
UMFERÐ 17: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 165 fastalykkjur.
UMFERÐ 18: * Heklið fastalykkju í hverja af fyrstu 14 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 176 fastalykkjur.
UMFERÐ 19: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 176 fastalykkjur.
ATH: Ef óskað er eftir að hafa diskamottuna aðeins stærri þá er hægt að endurtakið umferð 18 og 19, en í hvert skipti sem umferð 18 er hekluð er hekluð 1 fastalykkja fleiri á milli útaukninga. Passið einnig uppá að fjöldi lykkja sé deilanlegur með 2 áður en umferð 20 er hekluð (ef diskamottan er hekluð stærri þá kemur fjöldi stuðla og fastalykkja samkvæmt neðan ekki til með að passa):
UMFERÐ 20: Heklið á sama hátt og umferð 7 = 88 stuðlar með 1 loftlykkju á milli hverra.
UMFERÐ 21: Heklið á sama hátt og umferð 8 = 220 fastalykkjur.
UMFERÐ 22: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 220 fastalykkjur.
UMFERÐ 23: Heklið blúndukant á sama hátt og í umferð 10 á litlu diskamottunni = 44 bogar.
Klippið þráðinn og festið.

-------------------------------------------------------

SERVÉTTUHRINGUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

SERVÉTTUHRINGUR:
Heklið 38 loftlykkjur með heklunál 3 og með 1 þræði DROPS Safran eða 1 þræði DROPS ♥ You #7 + 2 þræði DROPS Glitter og tengið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 1: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í keðjulykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, hoppið yfir 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar = 30 fastalykkjur.
UMFERÐ 2: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 3: 4 loftlykkjur (= 1 stuðull + 1 loftlykkja), * hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 stuðull í næstu fastalykkju, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 15 stuðlar með 1 loftlykkju á milli hverra stuðla.
UMFERÐ 4: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í keðjulykkju, heklið síðan 1 fastalykkju um hverja loftlykkju og 1 fastalykkju í hvern stuðul, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar = 30 fastalykkjur.
Heklið síðan fastalykkjur hringinn með 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til stykkið mælist 5 cm.
NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG:
2 loftlykkjur, * hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun umferðar (= uppábrot).
NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG:
1 loftlykkja, 1 fastalykkja í keðjulykkju, heklið síðan 1 fastalykkju um hverja loftlykkju og 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar = 30 fastalykkjur.

Heklið 2 umferðir til og með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Brjótið efsta hlutann á servéttuhringnum út að réttu í uppábroti og heklið næstu umferð frá réttu (= blúndukantur): * 5 loftlykkjur, 1 stuðull í 2. loftlykkju sem var hekluð, 1 tvíbrugðinn stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir 1½ cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar (í stað 1 fastalykkju í næstu lykkju). Klippið þráðinn og festið.
Heklið á sama hátt blúndukant í hinum endanum á servéttuhringnum. Klippið þráðinn og festið.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-747

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Irene Van Vuure wrote:

Goedemiddag, Heeft u voor mij een tip hoe ik de kleine placemet van 20cm groter kan haken?

08.05.2023 - 16:42

DROPS Design answered:

Dag Irene,

Een hele eenvoudig manier is door een dikker garen te kiezen, bijvoorbeeld DROPS Muskat (categorie B) of DROPS Paris (categorie C) en ook een bijbehorende dikkere haaknaald.

08.05.2023 - 21:16

country flag Rika wrote:

Hi Kann ich den Glitterfaden einfach weglassen? Danke! VG Rika

12.09.2022 - 21:33

DROPS Design answered:

Liebe Rika, ja, Glitter bringt nur etwas Glänzen zu der Arbeit, der Faden ist aber zu dünn um die Maschenprobe zu ändern. Viel Spaß beim häkeln!

13.09.2022 - 09:34

country flag Astrid Wappes wrote:

Gäbe es die Möglichkeit eines Diagrammes?? Bei einem Diagramm kann ich besser "abhäkeln"!

10.10.2021 - 10:37

DROPS Design answered:

Liebe Frau Wappes, bei diesem Modell haben wir aber leider nur schriftliche Anleitung. Viel Spaß beim häkeln!

11.10.2021 - 07:37

country flag Meeuwes Linda wrote:

Zijn er van de onderleggers ook patronen ,ik kan er dan beter aanuit en voor mij is het makkelijker, hoe kan ik ze bekomen,grtjs Linda

16.05.2020 - 18:35

DROPS Design answered:

Dag Linda,

Je kan het patroon gratis afdrukken met de knop afdrukken, die te vinden is onderaan de lijst met materialen. Zowel de kleine als de grote placemat is opgenomen in het patroon. Er zijn helaas geen telpatronen van.

19.05.2020 - 13:33

country flag Mónica Fernandez wrote:

Buenas tardes, seria posible tener el diagrama del patrón? Me resultaría más sencillo que seguir las explicaciones.

24.04.2020 - 23:44

DROPS Design answered:

Hola Monica. Lamentamos, pero este patrón solo tiene explicaciones en formato texto.

28.04.2020 - 18:03

country flag Hilda Sobh wrote:

Het is duidelijk voor iemand die bijna geen patroon kan lezen

04.08.2019 - 10:37

country flag Anna wrote:

Sto eseguendo la tovaglietta ma non riesco a capire come si fa il 4 giro. È possibile avere delle spiegazioni più precise?

16.05.2019 - 23:30

country flag Uli wrote:

Hallo, Eine Frage zu Reihe 4, kl Tischset,da heisst es "jetzt die 4 Dreifach-Stb zusammenhäkeln", ich hab aber erst ein Stäbchen gemacht? Wie soll ich das verstehen? Vielen Dank für ihre Hilfe Grüße

09.05.2019 - 11:44

DROPS Design answered:

Liebe Uli, Sie sollen jetzt die 4 Dreifach-Stb zusammenhäkeln, wie es dann erklärt ist, dh: 2 Dreifach-Stb in die selbe Lm jedoch mit dem letzten Durchziehen warten, 1 fM + 1 Lm + 1 fM überspringen, 1 Dreifach-Stb in die nächste Lm, jedoch mit dem letzten Durchziehen warten, danach das letzte Dreifach-Stb in die gleiche Lm und die letzte Schlaufe durch alle M. ziehen. Viel Spaß beim häkeln!

09.05.2019 - 14:05

country flag De Boer wrote:

Ik wil het wel na haken

26.04.2019 - 19:26

country flag Lili wrote:

Hallo! Darf ich anhand Ihres Musters Topflappen (doppelt gehäkelt, d.h. Rückseite besteht aus Stäbchen) häkeln und verkaufen? Muss ich dafür lt. Ihren Bestimmungen die von Ihnen angebotene Wolle nutzen?

14.11.2018 - 15:06