DROPS Symphony
DROPS Symphony
65% Ull, 35% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS SS24

Hometown

Prjónað poncho með 1 þræði DROPS Symphony, 1 þræði DROPS Melody eða 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk + 1 þræði DROPS Alpaca og með stroffi úr DROPS Alpaca. Stærð S til XXXL.

DROPS 123-28
DROPS Design: Mynstur nr WW-034
--------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS SYMPHONY frá Garnstudio
600-650-750 gr litur nr 02, beige
Og einnig:
Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
200-200-300 gr litur nr 0618, ljós beige.

Eða notið:
Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
150-175-200 gr litur nr 05, beige
Og einnig:
Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
450-500-650 gr litur nr 0618m, ljós beige (einnig hálsmál og stroff).

Eða notið
Efni:
DROPS MELODY frá Garnstudio
300-350-400 gr litur nr 15, beige
Og einnig:
Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
200-200-300 gr litur nr 2020, ljós brúnn.

DROPS HRINGPRJÓNN NR 6 (80) cm – eða þá stærð sem þarf til að 15 l og 20 umf með sléttprjóni með 1 þræði Symphony eða 1 þræði Melody eða þræði Brushed Alpaca Silk + 1 þræði Alpaca verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 4 (40 cm) – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Symphony
DROPS Symphony
65% Ull, 35% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚRTAKA 1 (á við um miðju að framan og miðju að aftan):
Fækkið lykkjum frá réttu hvoru megin við 2 lykkjur.
Fækkið lykkjum 3 lykkjum Á UNDAN prjónamerki: Prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl.
Fækkið lykkjum Á EFTIR prjónamerki: 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚRTAKA 2 (á við um hliðar):
Fækkið lykkjum með því að prjóna 2 l slétt saman á undan prjónamerki og 2 l snúnar slétt saman á eftir prjónamerki (þ.e.a.s. prjónið saman aftan í lykkjubogann í stað framan).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er fyrst prjónað í tveimur stykkjum sem síðan eru sett saman og prjónað er í hring yfir allar lykkjur. Örvar í mynstri sýna prjónastefnu.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 162-180-198 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði Symphony, 1 þræði Melody eða 1 þræði Brushed Alpaca Silk + 1 þræði Alpaca. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Setjið prjónamerki í miðju á stykki eftir 81-90-99 l.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Endurtakið útaukningu í lok hverrar umf alls 9-10-11 sinnum á hvorri hlið (= 18-20-22 l útauknar l fyrir kant á ermum í hvorri hlið). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA 1! Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu alls 46-52-58 sinnum en þegar öll útaukning fyrir kant á ermum er lokið (stykkið mælist ca 10-11-12 cm á hæðina) endið þá á 1 umf frá röngu. Geymið stykkið.

FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og bakstykki.

PONCHO:
Setjið inn allar l á sama hringprjón. Héðan er nú prjónað í hring á hringprjóna. Setjið prjónamerki í byrjun á umf og eitt á eftir helminginn af öllum l (þetta merkir hliðar). Haldið áfram að fella af l við miðju að framan og við miðju að aftan eins og áður. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12-12-13 cm er felld af 1 l hvoru megin við prjónamerki á hliðum – LESIÐ ÚRTAKA 2! Endurtakið úrtöku á hliðum í 6. hverri umf (í 3. hverjum cm) alls 13-15-17 sinnum (= til loka). Þegar úrtöku er lokið eru 160-172-184 l eftir á prjóni. Haldið áfram að prjóna þar til stykkið mælist 51-57-63 cm.

KRAGI:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og tvo þræði af Alpaca. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT eru allar l prjónaðar tvær og tvær slétt saman = 80-86-92. Prjónið 1 umf br. Prjónið síðan 1 umf sl JAFNFRAMT er aukið út um 20-22-24 l jafnt yfir = 100-108-116 l. Prjónið stroff (= 2 l sl/2 lbr) yfir allar l. Þegar stroffið mælist 28 cm fellið LAUST af með sl yfir sl og br yfir br.

KANTUR ERMI:
Saumið saman 4 umf með garðaprjóni neðst á bakstykki og framstykki með nokkrum sporum í hvorri hlið (kantur á ermum hefur nú ummál ca 24-26-30 cm). Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Takið upp 44-48-52 l í kringum kant á ermum á sokkaprjóna nr 4 með tveimur þráðum af Alpaca. Prjónið 1 umf br. Prjónið nú stroff (= 2 l sl/2 l br) yfir allar l. Þegar stroffið mælist 12 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.10.2015
Nýtt efnismagn: DROPS BRUSHED ALPACA SILK: 150-175-200 gr litur nr 05, beige

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 123-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (157)

country flag Maria Angeles wrote:

Me gustaría mucho saber hasta pronto pero no me lo saben explicar en ninguna tienda que voy a comprar

03.03.2024 - 14:40

DROPS Design answered:

Hola Maria Angeles, si vas a una tienda DROPS (https://www.garnstudio.com/findastore.php?id=23&cid=23) y enseñas la lista de materiales indicadas en la parte superior podrán ayudarte o posiblemente encargarte lanas. El texto del patrón está disponible aquí online.

03.03.2024 - 23:34

country flag Maria Angeles wrote:

Me gustaría hacer este patrón he ido para comprar la lana pero no me lo saben decir no sé si es que no están preparadas pues no quieren

03.03.2024 - 14:39

DROPS Design answered:

Hola Maria Angeles, puedes ver la respuesta debajo.

03.03.2024 - 23:33

country flag Maria Angeles wrote:

Quisiera hacer este poncho pero nadie cuando voy a comprar la lana me dice como se empieza no creo que es que no están preparadas

03.03.2024 - 14:31

country flag Maria Angeles wrote:

Quisiera hacer este poncho pero nadie cuando voy a comprar la lana me dice como se empieza no creo que es que no están preparadas

03.03.2024 - 14:29

country flag Maria Angeles wrote:

Me gustaría muchísimo hacer este poncho pero es que voy a comprar si ustedes me pueden como se mandar un vídeo la verdad la lana cuando tiene que ser me lo explican más tuvo que ver el hecho de que pues una plataforma sí sí me gustaría pero yo lo que quiero hacer es el poncho la lana y no me lo explican como como es y no sé qué hacer

03.03.2024 - 14:28

DROPS Design answered:

Hola Maria Angeles, todos los videos relevantes para poder hacer la labor están indicados en la sección videos, en la parte superior del patrón. La cantidad de hilo está especificada en los materiales; la primera alternativa está ya descatalogada, tienes que usar la de Brushed Alpaca Silk o Melody. La cantidad de hilo depende de la talla; puedes ver las tallas en la sección superior de los materiales y las medidas del poncho para las diferentes tallas en el esquema de medidas/Diagrama. Si vas a una tienda DROPS (https://www.garnstudio.com/findastore.php?id=23&cid=23) y enseñas la lista de materiales indicadas en la parte superior podrán ayudarte o posiblemente encargarte lanas.

03.03.2024 - 23:32

country flag Verena wrote:

Hallo. Ich habe ein kleines Problem mit der Formulierung der Beschreibung : Beginne ich direkt NACH den Krausrippen mit den Zunahmen ? Und beginne ich in der Hinreihe schon direkt mit der Zunahme am Anfang der Reihe oder erst am Ende. Irgendwie fehlt mir da ein bisschen der Durchblick... Danke für eure Mühe

24.01.2023 - 21:21

DROPS Design answered:

Liebe Verena, die 2 ersten neuen Maschen werden am Anfang der 2 nächsten Reihe nach den Krausrippen angeschlagen, und gleichzeitig, nach 3 cm (von der Anschlagskante) beginnen die Zunahmen beidseitig der Markierung - wenn alle neuen Maschen für die Ärmel angeschlagen sind dann legen Sie die Arbeit still und stricken das Vorderteil genauso wie das Rückenteil, dann stricken Sie weiter in Runden und stricken Die Zunahmen wie zuvor weiter. Viel Spaß beim stricken!

25.01.2023 - 11:48

country flag Mia wrote:

Sorry, nochmal nachfragen: also ich nehme 11 x 2 Maschen auf jeder Seite auf und nach 3cm innerhalb der beiden einzelnen Strickstücke fange ich dann mit den 58 Abnahmen an? Wenn ich bei 12cm gesamt (nach x Abnahmen) bin füge ich die zusammen und mache alle 2 Runden die abnahmen einfach weiter? Grüße

01.07.2022 - 21:38

DROPS Design answered:

Liebe Mia, beim Rückenteil nehmen Sie 1 Masche beidseitig der Markierungn bis die Arbeit 12 (3. Größe) cm misst, dann stricken Sie das Vorderteil genauso auch bis 12 cm, dann stricken Sie beide Teile in der Runde weiter und nehmen Sie wie zuvor zu, bis insgesamt 58 Mal zugenommen wurde. Viel Spaß beim stricken!

04.07.2022 - 07:50

country flag Mia wrote:

Hallo, jetzt muss ich doch fragen, weil irgendwie bekomme ich das nicht zusammen. Wann muss ich die Abnahmen 58 Mal wiederholen? 1.Wenn die beiden Teile fertig sind? oder 2. Wenn die Teile zusammengeschlossen auf der Nadel in Runden gearbeitet wird? Danke für die Hilfe

28.06.2022 - 22:03

DROPS Design answered:

Liebe Mia, die Abnahmen beginnen Sie wenn Sie jedes Teil separat stricken (bis die Arbeit 12 cm misst), und dann werden Sie weiter gestrickt, wann die beiden Teilen zusammen gestrickt werden. Viel Spaß beim stricken!

29.06.2022 - 09:17

country flag CarrieB wrote:

This question is in reference to Decreasing Tip 2: The pattern states to start these decreases when piece measures 4 3/4 “ ( for my size) Is this measurement taken at the widest part of piece or the narrowest part ( where the front and back were joined) ? Thank you.

15.03.2022 - 16:53

DROPS Design answered:

Dear CarrieB, measure now from where you joined both parts (front and back pieces) and now start to decrease on the sides. Happy knitting!

16.03.2022 - 08:34

country flag CarrieB wrote:

After joining the front and back panels and proceeding to knit in the round do you then do the decreases EVERY OTHER round?

14.03.2022 - 16:45

DROPS Design answered:

Dear CarrieB, correct when working in the round, decrease now on mid front and on mid back on every other round. Happy knitting!

14.03.2022 - 16:57