DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Cream Dream

Sett með prjónaðri húfu fyrir börn og buxum með eða án hnappagata á milli skálma úr DROPS Merino Extra Fine.

DROPS Baby 17-3
DROPS design: Mynstur nr ME-018-by
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)
Höfuðmál á húfu:
40/42 - 44/46 - 46/48 (48/50 - 50/52) cm
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
BUXUR:
250-300-350 (400-450) g nr 01, natur
HÚFA:
50-50-50 (100-100) gr litur nr 01, natur

BUXUR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 4,5 (40 cm fyrir 2 minnstu stærðirnar og 60 cm í 3 stærri stærðunum) – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3,5 (40 cm) – fyrir stroff.
DROPS TRÉTALA NR 503: 4 st fyrir axlir og e.t.v. 10-10-10 (12-12) st til að hneppa á milli skálma.

HÚFA:
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR NR 4 (40 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkjur og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 x 10 cm
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5 (40 cm) – fyrir stroff.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

BUXUR:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á kanti framan á skálm. Á hægri skálm er fellt af frá réttu og vinstri skálm frá röngu.
1 HNAPPAGAT = Prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar skálmin mælist:
STÆRÐ 1/3 mán: 2, 5, 9, 12 og 16 cm.
STÆRÐ 6/9 mán: 2, 7, 12, 16 og 20 cm.
STÆRÐ 12/18 mán: 2, 7, 12, 17 og 23 cm.
STÆRÐ 2 ára: 2, 7, 12, 17, 22 og 27 cm.
STÆRÐ 3/4 ára: 2, 8, 14, 20, 26 og 32 cm.

ÚRTAKA-1:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.

ÚRTAKA-2:
Öll úrtaka er gerð frá réttu innan við 3 lykkjur garðaprjón með því að prjóna saman 2 lykkjur brugðnar.
----------------------------------------------------------

HÆGRI SKÁLM (án hnappagata):
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 32-36-40 (44-48) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 cm stroff = 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðið – JAFNFRAMT í síðustu umferð eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið = 40-45-50 (55-60) lykkjur. Prjónið 1 umferð = 2 lykkjur slétt/3 lykkjur brugðið. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er aukið út um 30-29-30 (33-32) lykkjur jafnt yfir = 70-74-80 (88-92) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= innan á skálm). Prjónið 1 umferð brugðið. Haldið áfram þannig: 7-7-8 (9-10) lykkjur sléttprjón, M.1 (= 21 lykkjur), 2 lykkjur sléttprjón, M.3 yfir næstu 10-14-18 (24-26) lykkjur, 2 lykkjur sléttprjón, M.2 (= 21 lykkjur) og 7-7-8 (9-10) lykkjur sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 15-19-22 (26-31) cm skiptist stykkið að innanverðu á skálm og áfram er prjónað fram og til baka (þetta er gert til að auðveldara verði að setja inn skálmarnar á saman hringprjón í lokin). Fitjið upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið til að sauma í = 72-76-82 (90-94) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-22-25 (29-34) cm fellið af kantlykkjum í hvorri hlið og geymið stykkið.

VINSTRI SKÁLM (án hnappagata):
Prjónið eins og hægri skálm.

HÆGRI SKÁLM (með hnappagötum):
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 38-42-46 (50-54) lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið (umferð 1 = rétta) 4 lykkjur garðaprjón (= kantur fyrir hnappagöt) – SJÁ ÚTSKÝRINGU AÐ OFAN, * 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 4 lykkjur garðaprjón (= kantur fyrir tölur). Prjónið áfram stroffprjón og garðaprjón í hvorri hlið – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm, fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umferð stroff frá réttu JAFNFRAMT þar sem allar 2 lykkjur brugðnar eru auknar út til 3 lykkjur brugðnar = 45-50-55 (60-65) lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið og garðaprjón í hvorri hlið. Prjónið síðan 1 umferð slétt JAFNFRAMT er aukið út um 33-32-33 (36-35) lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið) = 78-82-88 (96-100) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5, prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur. Haldið svona áfram: 4 lykkjur garðaprjón, 7-7-8 (9-10) lykkjur sléttprjón, M.1 (= 21 lykkjur), 2 lykkjur sléttprjón, M.3 yfir næstu 10-14-18 (24-26) lykkjur, 2 lykkjur sléttprjón, M.2 (= 21 lykkjur), 7-7-8 (9-10) lykkjur sléttprjón og 4 lykkjur garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 18-22-25 (29-34) cm fellið af 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið = 70-74-80 (88-92) lykkjur. Geymið stykkið.

VINSTRI SKÁLM (með hnappagötum): Prjónið eins og hægri, en með hnappagötum á gagnstæðri hlið.

BUXUR:
Setjið inn skálmarnar á sama hringprjón 4,5 = 140-148-160 (176-184) lykkjur og setjið eitt prjónamerki í miðju að framan og eitt prjónamerki í miðju að aftan. Núna byrjar umferðin við miðju að aftan. Haldið áfram með mynstur eins og áður – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki við miðju að framan – SJÁ ÚRTAKA-1, endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 6 sinnum = 128-136-148 (164-172) lykkjur.
Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið = 32-34-37 (41-43) lykkjur á milli allra 4 prjónamerkja. Þegar stykkið mælist 39-47-55 (60-65) cm prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið yfir 12 lykkjur í hvorri hlið (= 6 lykkjur í hvorri hlið við prjónamerkin í hliðum) – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Fellið síðan af miðju 6 lykkjur í hvorri hlið og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 58-62-68 (76-80) lykkjur. Prjónið eins og áður en 3 ystu lykkjurnar í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju fyrir handveg í hvorri hlið – SJÁ ÚRTAKA-2 – í annarri hverri umferð alls 1-3-5 (6-6) sinnum = 56-56-58 (64-68) lykkjur. Haldið áfram með mynstur með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 45-54-63 (68-74) cm fellið af miðju 8-8-10 (12-14) lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á hveri umferð frá hálsi: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 20-20-20 (22-23) lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 49-58-67 (73-79) cm fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir = 14-14-14 (16-17) lykkjur. Setjið lykkjur á þráð.

BAKSTYKKI:
= 58-62-68 (76-80) lykkjur. Prjónið mynstur og fækkið lykkjum fyrir handveg eins og á framstykki = 56-56-58 (64-68) lykkjur. (ATH: Þar sem það eru fleiri lykkjur í sléttprjóni við miðju að aftan miðað við miðju að framan, fellið af lengra inn fyrir handveg á mynstri að aftan, þ.e.a.s. að mynstur á öxl að framan og að aftan verði ekki eins).
Þegar stykkið mælist 48-57-66 (72-78) cm fellið af miðju 16-16-18 (20-22) lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 20-20-20 (22-23) lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-58-67 (73-79) cm fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir = 14-14-14 (16-17) lykkjur. Setjið lykkjur á þráð.

FRÁGANGUR:
KANTUR Í HÁLSI AÐ FRAMAN: Prjónið upp ca 32 til 44 lykkjur (deilanlegt með 4) meðfram hálsmáli að framan á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): 1 lykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*, endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju garðaprjón. Haldið áfram með stroff fram og til baka í 2 cm, fellið af.
KANTUR Í HÁLSI AÐ AFTAN: Prjónið upp ca 28 til 36 lykkjur (deilanlegt með 4) meðfram hálsmáli að aftan á hringprjón 3,5. Prjónið eins og kantur í hálsi að framan.

ÖXL AÐ FRAMAN:
Setjið inn lykkjur af þræði frá annarri öxlinni á 1 sokkaprjón 3,5, prjónið að auki upp 4 lykkjur meðfram kanti í hálsi = 18-18-18 (20-21) lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt fram og til baka.
Í næstu umferð er fellt af fyrir hnappagötum frá réttu þannig: 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 9-9-9 (11-12) lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt. Prjónið 3 umferðir slétt til viðbótar, fellið síðan af. Endurtakið meðfram hinni öxlinni að framan.

ÖXL AÐ AFTAN:
Setjið lykkjur af bandi frá annarri öxlinni á 1 sokkaprjón 3,5, prjónið að auki upp 4 lykkjur í kanti í hálsi = 18-18-18 (20-21) lykkjur. Prjónið 7 umferðir slétt fram og til baka, fellið af.
Endurtakið meðfram hinni öxlinni að aftan.

FRÁGANGUR (án hnappagata á milli skálma):
Saumið saman efst að innanverðu á hvorri skálm innan við 1 kantlykkju. Saumið síðan opið á milli skálma – framstykki að bakstykki. Saumið tölur í axlir.

FRÁGANGUR (með tölur á milli skálma):
Saumið saman kanta með hnappagötum efst á framhlið á skálm og kant fyrir tölur efst á bakhlið á skálm. Saumið tölur í, í kant fyrir tölur á milli skálma og saumið tölur í axlir.
----------------------------------------------------------

HÚFA:

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
----------------------------------------------------------

HÚFA:

Húfan er prjónuð í hring.
Fitjið upp 84-90-96 (102-108) lykkjur á hringprjón nr 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú stroff = 3 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið í 3 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt – JAFNFRAMT er fækkað um 9-10-11 (12-13) lykkjur jafnt yfir = 75-80-85 (90-95) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón nr 4. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Setjið 5 prjónamerki í stykkið með 15-16-17 (18-19) lykkju millibili. Haldið áfram í sléttprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-11-12 (13-14) cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki, endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 6-6-6 (7-7) sinnum – SJÁ ÚRTAKA = 15-20-25 (20-25) lykkjur. Prjónið saman allar lykkjur 2 og 2, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum allar lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 14-15-16 (18-19) cm.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 lykkja brugðin, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á hjálparprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðin af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 17-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Erika Tschepp wrote:

Kein leider nichts runterladen da ich von fast überall die Passwörter vergessen habe hat mir mein Schwiegersohn aufgesetzt und Passwörter gegeben er sagte sie mir und ich habe sie vergessen jetzt kann ich nirgends rein auch bei Pinterest die haben so schöne Sacheb für Babys zum häckeln. lg. Erika

27.05.2022 - 20:29

country flag Liv Erichsen wrote:

Tusen takk for hjelpen, kjekt at dere er så kjapp å svare 😊

20.09.2018 - 19:11

country flag Liv Erichsen wrote:

Hei, jeg skal begynne å strikke bakstykket - ferdig med forstykket og skuldrene. Det står at jeg skal felle som for forstykket, men det står ikke noe om riller i siden slik som det er på forstykket. Ble litt usikker, veldig fin bukse 😃

19.09.2018 - 15:48

DROPS Design answered:

Hej Liv, jo det stemmer, du strikker også rillerne på bagstykket. Ja er de ikke søde :) God fornøjelse!

20.09.2018 - 10:27

country flag Liv Erichsen wrote:

Hei er det riktig at det ikke skal være riller på bakstykket ?

18.09.2018 - 22:02

DROPS Design answered:

Hej Liv, hvor er du i opskriften, så skal vi se på det :)

19.09.2018 - 15:17

country flag Joan Mangiulli wrote:

When making the legs on round needle do I read the chart as if all stitches were on the right side? Thanks. Joan

28.02.2018 - 21:51

DROPS Design answered:

Dear Mrs Mangiulli, correct, when working in the round read diagrams starting from the bottom corner on the right side towards the left on every round. Happy knitting!

01.03.2018 - 08:50

country flag Theresa wrote:

Danke!!

24.02.2017 - 10:37

country flag Theresa wrote:

Leider ist es noch nicht ganz klar. Wenn die Rückr. mit 4,5 komplett re gestrickt wird, "sehe" ich auf der ersten Hinr. mit Muster nur li Maschen. Das heißt bei angekreuzten Kästchen muss ich in der Hinr. re und Rückr. li stricken, bei leeren Kästchen in der Hinr. li und in der Rückr. re? Was stricke ich bei "glatt"? Bitte entschuldigen Sie dass ich so auf dem Schlauch stehe. Vielen Dank!

23.02.2017 - 09:27

DROPS Design answered:

Liebe Theresa, bei der 1. Reihe in M.1 stricken Sie so (= Hinreihe): 3 li, 3 re, 4 li, 6 re (Zopf), 5 li - bei der Rückreihe (= 2. Reihe) stricken Sie so 5 re, 6 li, 4 re, 3 li, 3 re, usw. Viel Spaß beim stricken!

23.02.2017 - 10:13

country flag Theresa wrote:

Hallo zusammen, Wie sind beim Muster die Kästchen zu verstehen? Ein Kästchen mit Kreuz wird glatt in der Hinrunde rechts und Rückrunde links (bzw andersrum) und ein leeres Kästchen in Hin- und Rückrunde gleich gestrickt? Wie gehe ich dann beim geknöpften Bein bei der ersten Hinrunde mit Nadel 4,5 vor wenn ich M1 stricken möchte? Vorher ist ja eine Rückrunde mit nur rechten Maschen...

22.02.2017 - 13:37

DROPS Design answered:

Liebe Theresa, ein leeres Kästchen = glatt re (= re auf rechts und li auf links), ein Kästchen mit Kreuz = glatt li (= li auf rechts und re auf links). Die 1. Reihe stricken Sie von der Vorderseite, und wird von unten von rechts nach links von der Vorderseite gelesen, und von links nach rechts von der Rückseite gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

22.02.2017 - 17:30

country flag Anne Berit Kvalvågnes wrote:

Finner en feil i oppskriften Diagram M.2. Vridningen i omgang 1 og 7 må være byttet om. Mener fletten skal vris fra yttersiden og innover. Her blir det omvendt. Flott bukse som jeg nå strikker for 2.gang.

12.01.2016 - 14:05

country flag Stine wrote:

Jeg regner med at det er riktig, men vil forsikre meg om at fellingen i sidene ikke skjer midt inne i perlemønstret, men nærmere baken fordi den har 2x6 flere masker etter fellingen i skrittet? Det er bare min forkjærlighet for symetri (som det forsåvidt likevel blir) som gjør at jeg spør. Takk på forhånd :)

01.11.2014 - 20:39

DROPS Design answered:

Hej Stine, når du sætter de sidste 2 mærketråde (i hver side) så skal du have lige mange masker mellem alle 4 mærketråde. Det betyder at du skal have lige mange masker på forstykket som bagstykket når du har lukket af til ærmegab. God fornøjelse!

03.11.2014 - 10:38