DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6776.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 52-11
DROPS Design
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð:
Dömu: Small - Medium - Large
Herra: (Small/medium - Medium/large)
Efni:
DROPS Karisma frá Garnstudio

LITAVALMÖGULEIKI-1 PEYSA MEÐ BLÁUM AÐALLIT:
400-450-500 (550-600) gr litur nr 37, dökk blágrænn
300-350-400 (400-450) gr litur nr 55, ljós brúnn
50- 50- 50 ( 50- 50) gr litur nr 48, vínrauður
50- 50- 50 ( 50- 50) gr litur nr 52, sinnep
50- 50- 50 ( 50- 50) gr litur nr 45, ljós ólífa

LITAVALMÖGULEIKI-2 PEYSA MEÐ HVÍTUM AÐALLIT:
400-450-500 (550-600) gr litur nr 01, natur
300-350-400 (400-450) gr litur nr 37, dökk blágrænn
50- 50- 50 ( 50- 50) gr litur nr 48, vínrauður
50- 50- 50 ( 50- 50) gr litur nr 45, ljós ólífa
50- 50- 50 ( 50- 50) gr litur nr 47, skógargrænn

LITAVALMÖGULEIKI-3 PEYSA MEÐ RAUÐUM AÐALLIT:
400-450-500 (550-600) gr litur nr 48, vínrauður
300-350-400 (400-450) gr litur nr 55, ljós brúnn
50- 50- 50 ( 50- 50) gr litur nr 36, grænn
50- 50- 50 ( 50- 50) gr litur nr 52, sinnep
50- 50- 50 ( 50- 50) gr litur nr 45, ljós ólífa

Einnig er hægt að prjóna stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur B)" – sjá tengil að neðan.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 2,5 OG 3,5 - eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

RENNILÁS – 20 cm svartur, fyrir peysu með opnu hálsmáli.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6776.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

STROFF:
* 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
----------------------------------------------------------
PEYSA:
Tölur í () = herrastærð
Litir í () = Litavalmöguleiki – 2 og 3.
Peysan er prjónuð á hringprjóna og er klippt upp fyrir handveg í lokin.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 190-198-210 (200-212) lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum ljós brúnn (dökk blágrænn-ljós brúnn) og prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan – þannig: 1 umferð með litnum ljósbrúnn (dökk blágrænn-ljós brúnn), skiptið í litinn dökk blágrænn (natur-vínrauður) og prjónið þar til stroffið mælist 5 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið M.1 (M.7-M.1) JAFNFRAMT er aukið út um 62-66-66 (64-64) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 252-264-276 (264-276) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið: Framstykki og bakstykki = 126-132-138 (132-138) lykkjur. Eftir M.1 er prjónað M.2 – byrjið við ör í mynsturteikningu og prjónið lykkjur yfir framstykki, byrjið aftur við ör og prjónið lykkjur yfir bakstykki. Prjónið síðan M.3 upp úr þar til stykkið mælist ca 22-24-26 (29-32) cm – stillið af eftir mynstri, það verður að prjóna vissan fjölda mynstureininga á hæðina (nú eru ca 38 cm eftir af stykki). Prjónið síðan þannig: Framstykki, byrjið við ör og prjónið 36-39-42 (39-42) lykkjur af M.3, M.4 (= 54 lykkjur), 36-39-42 (39-42) lykkjur með M.3. Endurtakið yfir bakstykki. Haldið áfram í 24 umferðir, prjónið síðan þannig: Framstykki, byrjið við ör og prjónið 36-39-42 (39-42) lykkjur með M.5, M.4 (= 54 lykkjur), 36-39-42 (39-42) lykkjur með M.5. Endurtakið yfir bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 33-35-36 (39-41) cm aukið út um 5 lykkjur á hvorri hlið (þessar lykkjur eru til að klippa upp í lokin og eru ekki prjónaðar með inn í mynstur). Haldið áfram með mynstur.

PEYSA MEÐ OPIÐ HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 36-38-40 (43-46) cm (nú eru eftir ca 24 cm til loka á stykki) prjónið næstu umferð þannig: 5 lykkjur til að klippa upp í, 62-65-68 (65-68) lykkjur framstykki, fellið af 3 lykkjur fyrir opið í hálsmáli, 61-64-67 (64-67) lykkjur framstykki, 5 lykkjur til að klippa upp í, 126-132-138 (132-138) lykkjur á bakstykki. Stykkið er prjónað til loka fram og til baka . Þegar M.4 og M.5 hefur verið prjónað til loka er prjónað M.6, síðan M.1 (M.7-M.1) til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 53-55-57 (60-63) cm fellið af fyrir hálsmáli hvoru megin við op fyrir háls við miðju að framan í annarri hverri umferð: 11-12-13 (13-13) lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkja 3 sinnum (mismunandi lykkjufjöldi er á öxl-framstykkjum: hægri öxl = 40-42-44 (41-44) lykkjur, vinstri öxl = 41-43-45 (42-45) lykkjur). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 58-60-62 (65-68) cm fellið af miðju 42-44-46 (46-46) lykkjur aftan við háls. Fellið síðan af 2 lykkjur á hvorri hlið í næstu umferð við háls að aftan. Fellið af eftir M.1 (M.7-M.1) – stykkið mælist ca 60-62-64 (67-70) cm.

PEYSA MEÐ HRINGLAGA HÁLSMÁLI:
Eftir M.4 og M.5 prjónið M.6, síðan M.1 (M.7-M.1) upp úr til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 53-55-57 (60-63) cm – fellið af miðju 26-28-30 (30-30) lykkjur á framstykki fyrir hálsmáli og prjónað er til loka fram og til baka. Fellið síðan af lykkjur við háls í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkja 3 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 58-60-62 (65-68) cm fellið af miðju 42-44-46 (46-46) lykkjurnar aftan við háls. Fellið síðan af 2 lykkjur á hvorri hlið í næstu umferð við háls. Fellið af eftir M.1 (M.7-M.1) – stykkið mælist ca 60-62-64 (67-70) cm.

ERMI:
Fitjið upp 48-50-50 (52-52) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum ljós brúnn (dökk blágrænn-ljós brúnn) og prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan – þannig: 1 umferð með litnum ljós brúnn (dökk blágrænn-ljós brúnn), skiptið yfir í litinn dökk blágrænn (natur-rauður) og prjónið þar til stroffið mælist 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið M.1 (M.7-M.1) JAFNFRAMT er aukið út um 10-10-10 (8-10) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 58-60-60 (60-62) lykkjur. JAFNFRAMT eftir stroff er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi 30-29-32 (32-33) sinnum í dömu S+M+herra S/M+M/L: Í 4. hverri umferð dömu L: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð = 118-118-124 (124-128) lykkjur. JAFNFRAMT eftir M.1 (M.7-M.1) prjónið M.2 (passið uppá að það verði ein mynstureining mitt ofan á ermi), síðan M.3 upp til loka. Þegar stykkið mælist 49-49-48 (54-54) cm prjónið 2 cm sléttprjón með rönguna út fyrir kant fyrir saum yfir kant sem klipptur var upp í fram- og bakstykki, fellið af.

FRÁGANGUR Á PEYSU MEÐ OPNU HÁLSMÁLI:
Saumið merkiþráð niður mitt í útauknu lykkjurnar í hvorri hlið. Tvo sauma sitt hvoru megin við merkiþráðinn ca ½ lykkju frá merkiþræði hvoru megin. Klippið út fyrir handveg. Saumið axlasauma.

Takið upp ca 40 cm meðfram vinstri hlið á opi á framstykki á sokkaprjón 2,5 með litnum dökk blágrænn (dökk blágrænn-rauður) innan við 1. lykkju og prjónið 2 umferðir sléttprjón, fellið af.
Endurtakið meðfram hægri hlið á opi. Saumið opið niður neðst með lykkjuspori frá réttu.

Takið upp ca 100-110 lykkjur í kringum háls yfir op frá miðju að framan á sokkaprjón 2,5 með litnum dökk blágrænn (dökk blágrænn-rauður) og prjónið 2,5 cm sléttprjón, skiptið yfir í litinn ljós brúnn (natur-ljós brúnn) og prjónið 1 umferð sléttprjón, 1 umferð brugðið (= uppábrot), skiptið til baka yfir í litinn dökk blágrænn (dökk blágrænn-rauður) og prjónið 2,5 cm sléttprjón, fellið af.
Brjótið kantinn saman tvöfaldan að röngu og saumið. Saumið ermar í við fram- og bakstykki frá réttu þannig: Saumið til skiptis eitt spor í síðustu umferð á ermi á undan kant fyrir saum og eitt spor í fram- og bakstykki á eftir saum úr saumavél. Snúið peysunni við og saumið í höndunum kant fyrir saum frá ermi yfir kant sem klipptur var upp á fram- og bakstykki. Saumið rennilás í peysuna.

FRÁGANGUR Á PEYSU MEÐ HRINGLAGA HÁLSMÁLI:
Saumið merkiþráð niður mitt í útauknu lykkjurnar í hvorri hlið. Tvo sauma sitt hvoru megin við merkiþráðinn ca ½ lykkju frá merkiþræði hvoru megin. Klippið út fyrir handveg. Saumið axlasauma.

Takið upp ca 100-110 lykkjur í kringum háls á sokkaprjóna 2,5 með litnum dökk blágrænn (dökk blágrænn-rauður) og prjónið 2,5 cm sléttprjón, skiptið yfir í litinn ljós brúnn (natur-ljós brúnn) og prjónið 1 umferð sléttprjón, 1 umferð brugðið (= uppábrot), skiptið til baka yfir í litinn dökk blágrænn (dökk blágrænn-rauður) og prjónið 2,5 cm sléttprjón, fellið af.

Brjótið kantinn saman tvöfaldan að röngu og saumið. Saumið ermar í við fram- og bakstykki frá réttu þannig: Saumið til skiptis eitt spor í síðustu umferð á ermi á undan kant fyrir saum og eitt spor í fram- og bakstykki á eftir saum úr saumavél. Snúið peysunni við og saumið í höndunum kant fyrir saum frá ermi yfir kant sem klipptur var upp á fram- og bakstykki.

Mynstur

symbols = Valmöguleiki 1: litur blágrænn. Valmöguleiki 2: litur natur. Valmöguleiki 3: litur vínrauður
symbols = Valmöguleiki 1: litur ljós brúnn. Valmöguleiki 2: litur blágrænn. Valmöguleiki 3: litur ljós brúnn
symbols = Valmöguleiki: litur sinnep. Valmöguleiki 2: litur vínrauður. Valmöguleiki 3: litur ljós ólífa
symbols = Valmöguleiki 1: litur vínrauður. Valmöguleiki 2: litur dökk ólífa. Valmöguleiki 3: litur flöskugrænn
symbols = Valmöguleiki 1: litur ljós ólífa. Valmöguleiki 2: litur ljós ólífa. Valmöguleiki 3: litur sinnep
symbols = M.4a+M.4b
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 52-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Lesley Simpson wrote:

I have started knitting the pattern and have worked up to the part where the front is knitted patterns M3 (39stchs), M4, M3(39stchs). The instructions then state 'Repeat over the back'. There are no photographs of the back of the sweater. Is the neck pattern repeated around the back or is the back just made up of the diamond shapes? Thank you.

09.08.2022 - 23:47

DROPS Design answered:

Dear Mrs Simpson, back and front pieces will be worked the same way, starting on the side of the jumper work (39 sts M.3, the 54 sts M.4 and 39 sts M.3 = 132 sts), front piece is now worked, repeat the same pattern over back piece (=39 sts M.3, 54 sts M.4 and 39 sts M.3 = 132 sts). So that you will continue M.3 as before over the first 39 sts on the round, and over the 39 sts before 2nd marker + 39 sts after 2nd marker and over the last 39 sts on the round. And work M.4 on mid front + on mid back. Happy knitting!

10.08.2022 - 09:08

country flag Lesley Simpson wrote:

I have found DROPs Puna is an alpaca wool in the same yarn group as Karisma. There are not, however, as many colour choices. Is it possible to mix the yarns, using a base of Puna and colour pattern of Karisma wool?

11.03.2022 - 18:49

DROPS Design answered:

Dear Lesley, although they belong to the same group, Karisma is a bit thicker and less soft, since it's pure wool. So there will be a noticeable difference in the texture of the garment, if you work with both yarns. Happy knitting!

13.03.2022 - 22:45

country flag Lesley Simpson wrote:

I would like to have a go at knitting this pattern with Drops Alpaca. Is this possible and how do I calculate how much wool I need? Would it be less chunky? Thank you

28.01.2022 - 18:02

DROPS Design answered:

Dear Lesley, you can't apply this pattern for Alpaca, because it's made for Karisma, of a different yarn group. In any case, you would need 1 ball of each of the different colors and from 250 gr of the main color (depending on the size), but the jumper would be too thin. Happy knitting!

31.01.2022 - 00:11

country flag BillyIsoft wrote:

Ciągnik Ursus C330 Zamiar budowie elektrycznej Zetor 72- spisany w Armatura elektryczna: Macham chce zarys instalacji elektrycznej w kabinie BK Zamiar armatur elektrycznej Zetor 8111. Czasami aktualny, p t ę ż n i ekspansja, którą przezornie moglibyśmy kupić bez wyciągania twórczego związku w o

05.08.2019 - 14:53

country flag Helene Anker Knudsen wrote:

Jeg er i gang med at strikke damestørrelse Medium. Jeg har strikket M2 og M3 i størrelse Medium og er startet ved pilen M+S/M. Nu er mit spørgsmål: Hvor skal jeg starte, når jeg skal strikke M5 og M4? Jeg er startet ved M+S/M, men kan ikke få det til at passe. Desuden når jeg skal strikke ærmer, hvor skal jeg så starte ved M2 og M3?

24.05.2018 - 11:02

DROPS Design answered:

Hej Helene, du starter i siden og strikker M.3 så det passer over M.2 til arb måler ca 24 cm (hel rapport i højden). Nu fortsætter du med M.3 men strikker M.4 over de midterste masker på forstykket, så mønsteret fortsat passer. God fornøjelse!

29.05.2018 - 14:08

country flag Mario 105 wrote:

What color yarns was used on the man sweater. Can't tell if is the Alt #1 or Alt # 2. If along with the yarn you list the color numbers it would be much easy to see the color combinations.

22.07.2017 - 21:13

DROPS Design answered:

Dear Mario, the pattern you are asking about is an older one, and the colors slightly changed since, and so did the way the patterns are written. The newer patterns do list the colors with the actual numbers. Also, this pattern was designed to suit several color combination. If I would do the man's sweater in a color combo similar to the one on the picture, from the currently available colors, I would use a dark blue for the base (Karisma 17 or 37), a light grey for the contrast color (Karisma 72), and a dark mustard or orange (52 or 11). I hope this helps. Happy knitting!

23.07.2017 - 10:47

country flag Barbara wrote:

Ich habe die 5 Hilfsmaschen für die Ärmelausschnitte in einem anderen, gleichmäßige Muster gestrickt, das erleichtert das Mitführen des 2. Fadens und das spätere Nähen, ich brauchte keinen Markierungsfaden mehr durchzuziehen. Vielen Dank für die vielen tollen Anleitungen!

30.05.2016 - 15:16

country flag Barbara wrote:

Dann hatte ich Schwierigkeiten, die Musterangabe zu interpretieren. M1 oder (M7-M1)? Wann wird was gestrickt? Ich habe nur M1 genommen, leider, M7 wurde m.E. im Musterpulli gestrickt. Dort ist mehr rot drin, in M1 mehr weiß. Vom Muster her sind sie identisch. Also: wann wird nur M1 gestrickt, wann (M7-M1)? Die Angabe fehlt m.E. in der Anleitung.

30.05.2016 - 15:16

country flag Barbara wrote:

Beim Bestellen der Wolle habe ich leider feststellen müssen, dass Nr. 47 von Karisma nicht dunkeloliv, sondern tannengrün ist. Geht zusammen gar nicht! Bitte die Nr. ändern.

30.05.2016 - 15:15

country flag Anita Nordberg wrote:

Har kommit på vart jag gjorde fel,,,, mönstret stämde inte när jag la ihop mönstret på papper sida vid sida ,,,men det va "rutorna" som inte var lika stora....så där hade jag ju felet.:)...så nu ska det flyta bra.

29.07.2015 - 00:28