DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Spice Friends

Heklaðar dúkkur úr DROPS Paris. Stína, Tína, Mína og Lína í kjólum með fléttað hár. Þema: Leikföng.

DROPS Baby & Children 38-17
DROPS Design: Mynstur w-063-bn
Garnflokkur C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Hæð: ca 35 cm.

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100 g fyrir húðlit með lit: 63, eyðimerkurrós / 65, ryð / 44, brúnn / 26 beige.
50 g litur 30, gallabuxnablár fyrir kjól og sokka
50 g litur 100, létt þvegin fyrir buxur og sokka
50 g fyrir hárlit með lit : 65, ryð / 44, brúnn / 15, svartur / 35, vanillugulur
Notið afgangsgarn fyrir augu og munn.

Hver dúkka í kjól og með vatti er ca 140 g.
Það kemur til með að þurfa ca 75 g í húðlit, ca 30 g í kjól + sokka, ca 15 g fyrir buxur + sokka og ca 10 g fyrir hárlit.

HEKLFESTA:
18 stuðlar = 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

DROPS TRÉTALA, NR 503: 2 stykki fyrir hverja dúkku.

FYLGIHLUTIR:
Vatt til fyllingar.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN:
Heklið 2 stuðla í 1 stuðul:
Heklið 1 stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í lokin er hann dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni.

LITIR:
Hægt er að hekla dúkkurnar með mismunandi húðlit og hárlit þannig:

HÚÐLITUR OG HÁRALITUR:
Hér er húðliturinn á dúkkunni ryð og hárlitur brúnn.
Hér er húðliturinn á dúkkunni brúnn og hárlitur svartur.
Hér er húðliturinn á dúkkunni beige og hárlitur ryð.
Hér er húðliturinn eyðimerkurrós og hárlitur vanillugulur.

LITIR Á FÓTUM: Uppfitjun + 6 umferðir eru heklaðar með gallabuxnablár, síðan er hekluð 1 umferð ljós þveginn, 14 umferðir með húðlit að eigin vali og 2 umferðir ljós þveginn.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HEKLUÐ DÚKKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Dúkkan er hekluð í stykkjum sem eru hekluð saman. Byrjið á að hekla 2 fætur og 2 hendur.
Síðan eru buxurnar heklaðar, búkurinn og höfuðið. Kjólinn er heklaður fyrir dúkkuna. Að lokum er hárið fest á toppinn á höfðinu og augu og munnur saumaður.

FÓTUR:
Sjá LITIR í útskýringu að ofan. Nú eru litirnir notðair sem eru í útskýringu undir LITIR Á FÓTUM.
Notið heklunál 3,5 og heklið 4 loftlykkjur, tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju, heklið 6 fastalykkjur um hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju.
UMFERÐ: Heklið 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju = 9 fastalykkjur.
UMFERÐ 3-21: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af 9 fastalykkjum og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju – munið eftir að skipta um lit.
UMFERÐ 22: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju = 11 fastalykkjur.
UMFERÐ 23: Heklið 1 loftlykkju, heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju = 22 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda.

Heklið annan fót á sama hátt, en ekki klippa þráðinn frá. Það á að nota hann síðar til að hekla áfram. Fyllið báða fæturna með vatti.

HENDI:
Lesið LITIR í útskýringu að ofan. Hendurnar eru heklaðar í sama lit og í fótum.
Notið heklunál 3,5 og heklið eins og FÓTUR frá umferð 1 til 21.
UMFERÐ 22: Heklið 1 umferð með fastalykkjum JAFNFRAMT því sem fækkað er um 1 fastalykkju með því að hoppa yfir 1 lykkju og enda með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð = 8 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda.
Heklið aðra hendi á sama hátt. Fyllið báðar hendurnar með vatti og leggið þær til hliðar.

BUXUR:
Heklið nú áfram frá öðrum fætinum með litnum ljós þveginn þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 3 loftlykkjur. Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju í kringum annan fótinn, heklið síðan áfram í kringum hinn fótinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. stuðul í umferð = 44 stuðlar.
UMFERÐ 2: Heklið 3 loftlykkjur. Heklið 1 umferð með stuðlum JAFNFRAMT sem í 4. hverjum stuðli er lykkjum fækkað með því að hekla saman 3. og 4. hvern stuðul – sjá STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN í útskýringu að ofan og endið með 1 keðjulykkju í 1. stuðul í umferð = 33 stuðlar.
UMFERÐ 3: Heklið 3 loftlykkjur. Heklið 1 umferð með stuðlum JAFNFRAMT sem í 3. hverjum stuðli er lykkjum fækkað með því að hekla saman annan hvern og 3. hvern stuðul og endið með 1 keðjulykkju í 1. stuðul í umferð = 22 stuðlar.
UMFERÐ 4: Heklið 1 loftlykkju. Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð. Klippið frá og festið enda.

BÚKUR:
Skiptið yfir í húðlit að eigin vali, umferðin á að byrja mitt að aftan.
UMFERÐ 1: Festið þráðinn með 1 keðjulykkju, * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju * heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju = 33 fastalykkjur.
UMFERÐ 2-10: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju.
UMFERÐ 11: Heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, heklið 1 fastalykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 11 fastalykkjum.
Hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af 11 næstu fastalykkjum. Hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð = 26 fastalykkjur.
UMFERÐ 12: Heklið 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 fastalykkjum. Hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af 8 næstu fastalykkjum.
Hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð = 20 fastalykkjur.
UMFERÐ 13-14: Heklið 1 loftlykkju. Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð.
UMFERÐ 15: Heklið nú hendurnar saman við búkinn þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, staðsetjið aðra höndina þannig að hún liggi tvöföld að búk. Heklið fastalykkjur í gegnum tvöföldu höndina og búkinn. Heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum (= framhlið á dúkku), síðan er hin höndin fest alveg eins og sú fyrri. Heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 4 fastalykkjum og endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 16: Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju, en hoppið yfir 5. hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð = 16 fastalykkjur. Fyllið nú búkinn með vatti.
UMFERÐ 17-18: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju. Ekki klippa þráðinn frá, höfuðið er síðan heklað héðan í sama húðlit og búkurinn.

HÖFUÐ:
UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju = 16 fastalykkjur.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð = 24 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í hverja af næstu 2 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð = 32 fastalykkjur.
UMFERÐ 4: Heklið 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð = 40 fastalykkjur.
UMFERÐ 5-7: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð.

UMFERÐ 8: Í þessari umferð er næsta umferð hekluð þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 19 lykkjum, í næstu lykkju eru nefið heklað þannig (= lykkjan mitt í andliti): 1 fastalykkja, 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. af 3 loftlykkjum, 1 fastalykkja. Heklið síðan umferðina hringinn þannig: 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð.
UMFERÐ 9: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju (ATH! Yfir nefið er einungis hekluð 1 fastalykkja á milli 2 fastalykkja) og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð.
UMFERÐ 10: Heklið 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð.
UMFERÐ 11: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju JAFNFRAMT sem hoppað er yfir 5. hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð = 32 fastalykkjur.
UMFERÐ 12: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju JAFNFRAMT sem hoppað er yfir 4. Hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð = 24 fastalykkjur.
UMFERÐ 13-14: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð. Fyllið höfuðið með vatti og skiptið yfir í hárlit að eigin vali – sjá LITIR í útskýringu að ofan.
UMFERÐ 15: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju JAFNFRAMT sem hoppað er yfir 4. hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju i umferð = 18 fastalykkjur.
UMFERÐ 16: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju JAFNFRAMT sem hoppað er yfir 6. hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð = 15 fastalykkjur.
UMFERÐ 17: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju JAFNFRAMT er hoppað yfir 3. hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð = 10 fastalykkjur. Fyllið meira vatti í höfuðið.
UMFERÐ 18: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju JAFNFRAMT er hoppað yfir aðra hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð = 5 fastalykkjur. Klippið þráðinn frá, notið nál til að þræða í gegnum ysta lykkjubogann í hverja og eina af 5 lykkjum. Klárið að fylla höfuðið með vatti, dragið toppinn á höfðinu saman og festið þráðinn vel.

KJÓLL:
Notið heklunál 3,5 og litinn gallabuxnablár. Heklið 48 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1-3: Heklið 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð = 48 fastalykkjur.
UMFERÐ 4: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, en heklið 7. og 8. hverja fastalykkju saman umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju = 42 fastalykkjur.
UMFERÐ 5-7: Heklið 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð.
UMFERÐ 8: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju, en heklið 6. og 7. hverja fastalykkjur saman umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju = 36 fastalykkjur.
UMFERÐ 9: Heklið 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð.
UMFERÐ 10: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju, en heklið 5. og 6. hverja fastalykkjur saman umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð = 30 fastalykkjur.
Heklið nú brjóststykkið á kjólnum þannig:
UMFERÐ 11:
Heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af fyrstu 11 fastalykkjum, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 fastalykkjum. Snúið stykkinu, heklið síðan fram og til baka.
UMFERÐ 12-16: Heklið 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í hverja af 8 fastalykkjum.
Klippið frá og festið enda.

AXLABÖND:
Notið heklunál 3,5 og gallabuxnablár. Heklið 18 loftlykkjur. Snúið stykkinu. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni. Heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina.
Klippið frá og festið enda.
Heklið annað axlaband alveg eins og saumið þau niður á kjólinn, þau eiga að sitja þétt að hvoru öðru mitt aftan á kjólnum.

FRÁGANGUR:
Saumið út augu og munn. Saumið 1 tölu í hvora hlið á brjóststykkinu, það á að sauma í gegnum bæði brjóststykkið og axlaböndin. Festið þráðinn vel.

HÁR:
Klippið 18 þræði ca 40 cm með hárlit að eigin vali. Hver þráður er festur þannig: Brjótið þráðinn saman tvöfaldan, dragið lykkjuna utan um lykkju í fyrstu umferð með hárlit á höfði. Stingið endum af þræði í gegnum lykkjuna, herðið að með því að draga í endana á þræðinum (það eru 18 lykkjur í fyrstu umferð með hárlit og það á að festa 1 þráð um hverja lykkju). Þegar búið er að festa alla þræðina er hægt að flétta þá saman í 2 eða fleiri fléttur – sjá mynd. Festið endana á fléttunum með þræði.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby & Children 38-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (1)

country flag Gon Strijker wrote:

Bij de broek moet ik bij de 1ste toer al 44 stokjes hebben, hoe kom ik aan die stokjes als ik maar met 3 lossen begin. Ik heb nl ook nog geen pijp.

29.10.2022 - 20:15

DROPS Design answered:

Dag Gon,

Je hebt 22 vasten aan het eind van elke pijp. Bij het haken van de broek haak je over beide pijpen stokjes boven de vasten, dus in totaal 44 stokjes.

30.10.2022 - 17:01