Lilly Pond |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað í garðaprjóni og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 211-9 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í byrjun á umferð þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. ÚRTAKA-2 (á við um handveg): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í byrjun á umferð frá röngu þannig (= vinstri handvegur): Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum í lok umferðar frá réttu þannig (= hægri handvegur): Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið síðustu 2 lykkjur í umferð. ÚRTAKA-3 (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í hálsmáli þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið síðustu 2 lykkjur fyrir hálsmál. Fækkið lykkjum frá hálsmáli þannig: Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig og saumað saman í lokin. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 79-85-93-101-111-121 lykkjur á hringprjón 4,5 með Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir allar lykkjur í umferð. Prjónið síðan mynstur þannig: Prjónið 12-15-11-15-12-17 lykkjur garðaprjón, A.1 (= 16 lykkjur) yfir næstu 48-48-64-64-80-80 lykkjur (= 3-3-4-4-5-5 mynstureiningar á breidd), prjónið fyrstu 7 lykkjur í A.1, 12-15-11-15-12-17 lykkjur garðaprjón. Þegar stykkið mælist 4-5-6-4-5-6 cm, byrjar úrtaka í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með ca 8-8-8-9-9-9 cm millibili alls 4 sinnum = 71-77-85-93-103-113 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, endurtakið mynsturteikningu á hæðina. Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af 4-5-6-8-10-12 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg. Fækkið síðan um 1 lykkju innan við 2 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-2 (á við um handveg). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 3-4-6-7-8-9 sinnum = 57-59-61-63-67-71 lykkjur. Jafnframt eru prjónaðar eins margar heilar mynstureiningar með gatamynstri (A.1) og pláss er fyrir á breiddina. Þegar öll úrtaka fyrir handveg hefur verið gerð til loka, haldið áfram með gatamynstur eins og áður yfir miðju 55 lykkjur í öllum stærðum. Þær lykkjur sem eftir eru í hvorri hlið (þ.e.a.s. 1-2-3-4-6-8 lykkjur í hvorri hlið) eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 40-42-43-45-46-48 cm – stillið af að prjónað er með minnst 4 umferðum í garðaprjóni á hæðina á eftir síðasta gatamynstri sem var prjónað og að næsta umferð sé prjónuð frá réttu: Prjónið fyrstu 13-14-14-15-16-18 lykkjur, fellið af næstu 31-31-33-33-35-35 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið þær 13-14-14-15-16-18 lykkjur sem eftir eru. Hvor öxl er nú prjónuð til loka hvor fyrir sig. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni og í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman innan við 2 lykkjur garðaprjón við/frá hálsmáli – sjá ÚRTAKA-3 = 12-13-13-14-15-17 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir hálsmáli. Stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið mynstur á sama hátt og framstykki, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af fyrir handveg á sama hátt og á framstykki (= 57-39-61-63-67-71 lykkjur í umferð þegar úrtöku fyrir handveg er lokið). Þegar stykkið mælist 36-38-39-41-42-44 cm – stillið af þannig að prjónaðar séu minnst 4 umferðir garðaprjón á hæðina eftir síðasta gatamynstri sem var prjónað og að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Í fyrstu umferð frá réttu er prjónað op aftan í hnakka þannig: Prjónið yfir fyrstu 27-28-29-30-32-34 lykkjur (= hægra bakstykki), fellið af næstu 3 lykkjur fyrir opi, prjónið næstu 27-28-29-30-32-34 lykkjur (= vinstra bakstykki). Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni þannig: Snúið og prjónið fram og til baka yfir lykkjur fyrir vinstra bakstykki. Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir opi, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 14-14-15-15-16-16 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið þær 13-14-14-15-16-18 lykkjur sem eftir eru fyrir öxl. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni, en í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman innan við 2 lykkjur garðaprjón frá hálsmáli – munið eftir ÚRTAKA-3 = 12-13-13-14-15-17 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-8-8 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir hálsmáli, fellið af. Stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. Prjónið nú yfir 27-28-29-30-32-34 lykkjur fyrir hægri öxl. Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 5 cm frá þar sem 3 lykkjur voru felldar af fyrir opi – stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið yfir 27-28-29-30-32-34 lykkjur, fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn, snúið, fellið af 5 lykkjur (= lykkja – sem er gerð síðar), prjónið til baka yfir 27-28-29-30-32-34 lykkjur. Snúið og prjónið fyrstu 13-14-14-15-16-18 lykkjur, fellið af næstu 14-14-15-15-16-16 lykkjur. Klippið frá en skiljið eftir smá enda ca 20 cm til að festa lykkjuna með. Prjónið síðan fram og til baka yfir 13-14-14-15-16-18 lykkjur fyrir öxl og í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju við hálsmál – munið eftir ÚRTAKA = 12-13-13-14-15-17 lykkjur. Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-8-8 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir hálsmáli, fellið af. Stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. Saumið niður enda á 5 lykkjum sem fitjaðar voru upp og fellið af (= lykkja) við ystu lykkju við op þannig að hægt sé að hneppa. Saumið tölu í gagnstæða hlið á opi. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (14)
Corinne wrote:
Il n'y a pas les explications pour ce modèle svp ??
09.03.2020 - 12:44Ciel De Printemps wrote:
A quand les explications!
26.02.2020 - 17:26Sharon MacPherson wrote:
Enjoy the hot days of summer with this light airy top.
25.12.2019 - 10:49Beata wrote:
I like it very much!
11.12.2019 - 22:03