DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Golden Slumber

Prjónað teppi fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað með blaðamynstri frá miðju og út í ferning. Þema: Barnateppi.

DROPS Baby 33-2
DROPS Design: Mynstur bm-109-by
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

Mál: ca 100 x 100 cm

Efni:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
450 g litur 44, púður

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjón frá miðju og út í ferning. Skiptið yfir í lengri prjóna eftir þörf.

TEPPI:
Fitjið upp 8 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með BabyMerino. Skiptið lykkjunum þannig að það séu 2 lykkjur á hverjum prjóni. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * A.1 (= 1 lykkja), 1 lykkja slétt (= horn-lykkja – til að léttara sé að sjá horn-lykkjuna er hægt að setja 1 prjónamerki í þessa lykkju) *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum. Haldið svona áfram með A.1 með 1 sléttri horn-lykkju á milli hverra eininga A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 39 lykkjur á milli hverra horn-lykkja og alls 160 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið A.2 (= 9 lykkjur), prjónið A.3 (= 18 lykkjur), prjónið A.4 (= 12 lykkjur) og prjónið horn-lykkju slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum. Haldið áfram með A.2 til A.4 svona. Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 232 lykkjur í umferð (57 lykkjur á milli hverra horn-lykkja).
Haldið áfram að endurtakið A.2, A.3 og A.4 á hæðina. Fyrir hverja endurtekningu á hæðina er prjónað A.3 einu sinni oftar á milli A.2 og A.4.
Prjónið mynsturteikningu A.2 til A.4 alls 9 sinnum á hæðina (eða að óskaðri lengd) = 808 lykkjur í umferð (201 lykkjur á milli hvera horn-lykkja).
Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið A.5 (= 9 lykkjur), prjónið A.6 þar til 12 lykkjur eru eftir á undan horn-lykkju (þ.e.a.s. prjónið 10 einingar með 18 lykkjur um A.2 til A.4 prjónað 9 sinnum á hæðina), prjónið A.7 (= 12 lykkjur) og prjónið horn-lykkju slétt * prjónið frá *-* alls 4 sinnum. Þegar A.5 til A.7 hefur verið prjónað til loka eru 920 lykkjur í umferð (229 lykkjur á milli horn-lykkja og stykkið mælist ca 100 cm á milli hverra horn-lykkja.

AFFELLING:
Fellið af, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir hvern uppslátt frá fyrri umferð jafnframt því sem fellt er af.
Uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja.
Þræðið þráð upp og niður hringinn í kringum gat í teppi (við uppfitjunarkant). Herðið á bandi þannig að gatið hverfi og festið vel.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.11.2021
Leiðrétting: Mynsturteikning A.5, A.6 og A.7 hefur verið leiðrétt frá 19. umferð og upp.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðinn svo að það myndist gat
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Golden Slumber

Amy Haddock, United Kingdom

Golden Slumber

Sofia, Finland

Vauvanpeitto

Milja, Finland

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (50)

country flag Pauline wrote:

Dag DROPS-team, Ik heb A1 gebreid, en wil nu verder gaan met A2 / A3 / A4 maar moet ik deze dan van rechts naar links lezen? En waarom wordt dat zo aangegeven als er op rondbreinaalden wordt gewerkt? Hartelijke groet, Pauline

31.03.2022 - 07:50

DROPS Design answered:

Dag Pauline,

Je leest inderdaad de patronen van rechts naar links. Omdat je vanuit het midden breit met de rondbreinaald brei je steeds aan de goede kant en je breit richting links. Je leest de patronen dus ook van rechts naar links. Als je 1 naald in de rondte hebt gebreid, begin je met de volgende naald in het telpatroon, weer van rechts naar links lezend.

04.04.2022 - 13:15

country flag Frida Milice wrote:

Vad för längd på rundstickorna behövs för att göra klart arbetet, det står bara 80cm i mönstret men halvvägs in börjar det kännas tajt....?

25.03.2022 - 12:02

DROPS Design answered:

Hei Frida. Om du syns det blir for mange masker på rundpinne 80 cm, kan du evnt bruker flere rundpinner, i de lengder du har (men fremdeles str. 3,5). I vårt sortiment er 80 cm det lengste vi har. mvh DROPS Design

28.03.2022 - 12:04

country flag Hatice Duzcu wrote:

Hei, har dere mulighet til å legge bilde av hele pleddet?

13.10.2021 - 14:21

DROPS Design answered:

Hej Hatice, det har vi desværre ikke, men hvis du logger ind på Ravelry og klikker her: Golden Slumber så finder du masser af fine billeder :)

14.10.2021 - 13:32

country flag Max wrote:

Hello, i am having an issue with A5, A6 and A7. On row 20 of A5 I count 21 stitches (2purls and 19 knit) but I am getting 22 stitches. Even when I count row 19 with the increase/decrease I get 22. Can you please explain to me why I get the difference? How can row 19 be 22 stitches but row 20 only 21 stitches? Thank you!

08.08.2021 - 22:58

DROPS Design answered:

Dear Max, you are right, A.5 will be fixed, I guess the last yarn over in A.5 should be removed. Happy knitting!

09.08.2021 - 08:32

country flag Susanne Preisler wrote:

Hej. Jeg vil gerne strikke babytæppet. Det ser så fint ud. Er der et billed af hele tæppet et sted? Det ville hjælpe mig meget. På forhånd tak Vh Susanne

14.07.2021 - 09:09

DROPS Design answered:

Hej Susanne, det har vi desværre ikke, vi må nøjes med de 3 billeder der ligger her på opskriften :)

14.07.2021 - 10:48

country flag Sherry Goldbecker wrote:

450 grams of Drops Baby Merino was not enough for me to finish this blanket. I didn't have enough yarn to bind off the fourth edge of the blanket - yet I followed all the directions for needle size and gauge. It's a beautiful blanket but it was disappointing not to be able to give it to my granddaughter when I planned to because I had to wait for another ball of yarn.

05.07.2021 - 23:53

country flag Linn wrote:

Det står «for hver repetisjon i høyden strikkes A3 en gang mer mellom A2 og A4». Skal jeg da strikke den første masken i diagrammet også (1 løst av, 2 rett sammen, løs over) i repetisjonene? For jeg får ikke det til å gå opp

25.02.2021 - 15:39

DROPS Design answered:

Hei Linn. Litt usikker på hvorfor det ikke går opp hos deg, men ja, hele diagrammet strikkes. Har du husket å strikke hjørnemaskene? Etter A.1 er ferdig strikket skal man ha 39 x 4 + 4 (hjørnemasker)= 160 masker på pinnen. mvh DROPS design

10.03.2021 - 09:44

country flag Sophie wrote:

Bonjour, Je suis debutante et je ne suis pas sure de comprendre cette partie:\r\n * A.1 (= 1 maille), 1 maille endroit (= maille du coin – pour mieux repérer la maille du coin plus facilement, on peut mettre un fil marqueur dans cette maille) *, répéter de *-* 4 fois au total. Je dois tricoter A1 quatre fois plus une maille de coin a chaque fois? Ensuite, est ce-qu’il faut faire A1 en entier + 1 maille ou bien le premier rang de A1 x4 ensuite rang 2 x4, rang 3 x4etc?Merci

27.01.2021 - 11:07

DROPS Design answered:

Bonjour Sophie, effectivement, vous tricotez *A.1 (le nombre de mailles va augmenter tous les 2 rangs) puis 1 maille endroit (celle-ci ne va pas augmenter, elle sépare chaque diagramme)* et vous répétez de *-* tout le tour, autrement dit au 1er tour, tricotez: *A.1 (= 1 jeté, 1 m end, 1 jeté,) 1 m end*, et 4 fois au total de *-* = vous avez 16 m à la fin de ce 1er tour. Retrouvez plus d'infos sur les diagrammes ici. Bon tricot!

27.01.2021 - 13:28

country flag Marie wrote:

Bonjour, est-il possible de tricoter cela avec aiguilles circulaires? Si oui, le patron est-il adapté ou bien dois-je changer certaines choses? Merci beaucoup

21.01.2021 - 22:19

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, pour commencer ce modèle sur aiguille circulaire, vous pouvez utiliser la technique dite du magic loop. Bon tricot!

22.01.2021 - 08:06

country flag Conja Van Den Heerik wrote:

Ik krijg dit patroon niet opgestart. Hoe kan ik nou met 4 pennen starten, het wordt toch geen sok? Ik begrijp er niets van.

21.01.2021 - 20:26

DROPS Design answered:

Dag Conja,

Nee, het wordt geen sok, want door het meerderen in de telpatroon, wordt het steeds wijder naar buiten toe. In een van de video's bij het patroon wordt uitgelegd hoe je opzet in een cirkel met vier naalden.

23.01.2021 - 11:41