DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Loxley

Prjónuð balaclava / hettuklútur með hálsskjóli úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 192-3
DROPS Design: Mynstur ne-296
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL
Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350 g litur 4434, fjólublár

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 60 cm og 80 cm fyrir stykkið.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING-1:
Sláið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við miðju 30 lykkjurnar framan á hettuklútnum (= 28 lykkjur í garðaprjóni + 1 lykkja slétt hvoru megin við þessar lykkjur). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Síðan eru nýju lykkjurnar prjónaðar í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 16 lykkjur fleiri í umferð) þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrsta prjónamerkinu, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hvert og eitt af prjónamerkjum sem eftir eru. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HETTUKLÚTUR MEÐ HÁLSSKJÓLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður á hringprjón. Fyrst er prjónað fram og til baka, síðan eru fitjaðar upp lykkjur fyrir kraga við miðju að framan og prjónað er síðan í hring.

HETTUKLÚTUR MEÐ HÁLSSKJÓLI:
Fitjið upp 92 lykkjur á hringprjón 5 með Nepal í öllum stærðum. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú sléttprjón með 6 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 28 cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Klippið frá. Setjið eitt prjónamerki mitt að aftan. Til þess að koma í veg fyrir að byrjun á umferð verði mitt í garðaprjóni að framan byrjar umferðin nú hér. Prjónið þannig: Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrstu 6 lykkjunum í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, fitjið upp 16 nýjar lykkjur á prjóninn (= miðja að framan), prjónið 6 lykkjurnar í garðaprjóni í hinni hliðinni á stykkinu, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Nú hefur verið aukið út um 2 lykkjur í umferð – sjá ÚTAUKNING-1. Haldið síðan svona áfram hringinn og prjónið garðaprjón yfir nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp við miðju að framan (= 28 lykkjur í garðaprjóni við miðu að framan), JAFNFRAMT heldur útaukningin svona áfram hvoru megin við garðaprjón í annarri hverri umferð 5 sinnum til viðbótar (= alls 6 lykkjur fleiri hvoru megin við lykkjur í garðaprjóni) = 120 lykkjur. Þegar prjónaðar hafa verið 12 umferðir í garðaprjóni yfir lykkjur við miðju að framan og allar útaukningar hafa verið gerðar er haldið áfram í sléttprjóni hringinn. Þegar stykkið mælist 3-4-2 cm frá síðasta garðaprjóninu sem var prjónað við miðju að framan eru sett 8 prjónamerki í stykkið þannig:
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= miðja að aftan), síðan eru næstu 7 prjónamerkin sett með 15 lykkju millibili. Í fyrstu umferð byrjar útaukning – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með ca 5-4-4 cm millibili alls 4-5-6 sinnum = 184-200-216 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 51-53-55 cm. Prjónið garðaprjón í 5 cm. Fellið af. Ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að slá uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja. Stykkið mælist ca 56-58-60 cm ofan frá og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið hettuklútinn saman innan við uppfitjunarkantinn en passið uppá að saumurinn verði ekki stífur.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 192-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Ayra wrote:

Hello Plz explain ( cut the yarn insert the marker thread in the mid back) Do I have to cut the yarn before I start the next row from right side and do I have to knit the stitches before the marker also. because in the pattern it says start the round from mid back. Thanks

01.02.2022 - 19:57

DROPS Design answered:

Dear Ayra, the hood part is now done and you will cast on new stitches for the front piece, so you have to cut the yarn, then add a marker on mid back, slip the stitches to the marker without working them and join the yarn to start now from here = mid back. Work now in the round as explained, casting on new sts for front piece on first round. Happy knitting!

02.02.2022 - 08:39

country flag Kathleen Smith wrote:

Thank you for this pattern. It would be so helpful if a diagram with measurements was included.

14.01.2022 - 23:55

country flag Anita Louisa Andre wrote:

Hello, Please explain better how to do the 6 ridges in front, I added 16 stitches, did 6 ridges, My side augm. are slanted.Do not look straight like on foto, Did 6 ridges & only got 108 sts. Want to do XL. Made numerous of your patterns, This front is not clearly explained. Also how to do the Twist. did not knit in round to do the 6 ridges, PLease explain middle augment sides front better way. Thank You

05.02.2021 - 00:35

DROPS Design answered:

Dear Mrs Andre, you start with 92 sts - after 28 cm, cut the yarn and start now from mid back (= in the middle of previous rows and work now in the round casting on the new sts for mid front and increasing on each side of the new stitches), cast on 16 sts for mid front and increase 1 stitch on each side of the middle 30 sts (= YO, K1, 6+16+6 sts in garter st, K1, YO) a total of 6 times on every other round = 92 + 16 + 6x2= 120 sts. Hope this helps. Happy knitting!

05.02.2021 - 08:49

country flag Barbara wrote:

Buongiorno, sono arriva a questo punto ma non riesco a capire come devo procede una volta tagliato il filo: “Tagliare il filo. Inserire un segno al centro, sul dietro. Per evitare di iniziare il giro al centro delle coste a legaccio sul davanti, iniziare ora il giro da qui.” Vi ringrazio saluti

01.07.2020 - 17:10

DROPS Design answered:

Buongiorno Barbara. Il lavoro inizia dal cappuccio; si lavora prima avanti e indietro, poi in tondo. Prima di unire in tondo, mette un segno al centro sul dietro, taglia il filo, passa la prima metà delle maglie senza lavorarle e inizia a lavorare in tondo, a partire dal segno. Lavora finché non rimangono 7 maglie (6 m a legaccio + 1 maglia), 1 maglia gettata, lavorare le 7 m successive, avviare 16 m (parte centrale del davanti, lavorata a legaccio), lavora le 7 m successive (sono le prime maglie passate senza averle lavorate), 1 maglia gettata e prosegue fino al segno. Buon lavoro!

01.07.2020 - 17:48

country flag Jantine wrote:

Wordt bij de afwerking van de capuchon de capuchon aan de binnenkant gemaasd zodat aan de buitenkant de naad komt? Groeten, Jantine

24.05.2020 - 11:51

DROPS Design answered:

Dag Jantine,

Nee, het is de bedoeling dat de naad aan de binnenkant komt.

05.06.2020 - 11:57

country flag Carol Lee wrote:

I’ve just completed the increase directions to have 120 stitches on my needles. I’m making the XL version. The next instructions are confusing to When piece measures 3-4-2 cm / 1 1/8"-1 ½"-¾" from last ridge worked mid “ it seems that there are more cm/inches for the smaller version. I would think for the XL you would use the next to largest measurement I.e. 3 or 1 1/8? Thank you in advance for your reply.

08.02.2020 - 02:43

DROPS Design answered:

Dear Mrs Lee, in 2nd size you work until the garter stitch section measures 4 cm = 1.57 inches (in first size this section measures 3 cm = 1.18 inches) - you can convert into cm here. Happy knitting!

10.02.2020 - 07:48

country flag Terka wrote:

Good evening. I have one question. Will you translate this hooded cowl 192-3 to Czech language? Thank you for your answer.

06.01.2020 - 20:40

DROPS Design answered:

Milá Terko, ano - návod bude k dipozici co nevidět :-) Sledujte, prosím naše stránky a seznam nejnověji přidaných překladů, zde Hezký večer! Hana

06.01.2020 - 21:12

country flag Delphine Lees wrote:

Bonjour, comment savoir quelle taille tricoter sans schema ni aucune mesure de la largeur de l'ouvrage fini ?

03.11.2019 - 14:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lees, vous pouvez consulter un vêtement de ce même catalogue pour regarder les mesures et/ou calculer la circonférence du bas de l'ouvrage (tour des épaules) en fonction du nombre de mailles et de l'échantillon. Bon tricot!

04.11.2019 - 17:04

country flag Cathy wrote:

I love the look! It's been a while since I've knitted, looking forward to It!

23.08.2019 - 12:38

country flag DE OLIVEIRA COSTA wrote:

Bonjour, Puis-je avoir un croquis de ce modèle? Merci. Sinon, je ne comprends pas vraiment cette phrase : "Placer un fil marqueur au milieu dos. Pour éviter de commencer le tour au milieu des côtes mousse du devant, on commence maintenant les tours ici.".

17.04.2019 - 16:28

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Costa, nous n'avons pas de croquis pour ce modèle, suivez simplement les explications à la lettre. L'ouvrage se tricote en commençant par la capuche, on tricote d'abord en allers et retours, puis on va mettre un marqueur au milieu dos, couper le fil, glissez la première moitié des mailles sans les tricoter pour commencer au fil marqueur, tricotez à l'endroit jusqu'à ce qu'il reste 7 mailles, faites 1 jeté, tricotez les 7 m suivantes, montez 16 m (milieu devant = sous le menton), tricotez les 7 m suivantes (celles glissées sans les tricoter), 1 jeté et tricotez les mailles restantes = on tricote maintenant en rond. Bon tricot!

23.04.2019 - 11:21