DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Holiday Feeling

Hekluð tunika með marglitu berustykki og sólfjöðrum, hekluð ofan frá og niður. Stærð S- XXXL. Stykkið er heklað úr DROPS Safran.

DROPS 187-40
DROPS Design: Mynstur e-279
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN från Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
450-450-500-550-600-650 g litur 13, kórall
50-50-50-50-50-50 g litur 20, rústrauður
50-50-50-50-50-50 g litur 12, ferskja
50-50-50-50-50-50 g litur 06, gallabuxnablár
50-50-50-50-50-50 g litur 50, ísblár

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 20 stuðlar og 11,5 umferðir, eða 20 tvíbrugðnir stuðlar og 7,6 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, hringlaga (rauð) NR 605: 1 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðul skipt út fyrir 3 loftlykkjur.
Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum er fyrsta tvíbrugðna stuðli skipt út fyrir 4 loftlykkjur.

LITASKIPTI:
Þegar skipt er um lit í byrjun á umferð er heklað með keðjulykkju í lok fyrri umferða með nýja litnum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8.

RENDUR:
UMFERÐ 1: ferskja
UMFERÐ 2: ísblár
UMFERÐ 3: gallabuxnablár
UMFERÐ 4: rústrauður
UMFERÐ 5: ísblár

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er berustykki heklað fram og til baka frá baki, yfir hvora öxl og niður á brjóst. Síðan er heklaður marglitur kantur hringinn allt berustykkið.
Eftir marglita kantinn er hekluð ein umferð meðfram neðri kanti á berustykki fram og til baka, lausar loftlykkjur eru heklaðar fyrir handveg og fram- og bakstykki er síðan heklað í hring. Að lokum eru heklaðar ermar sem eru saumaðar í handveg.

BERUSTYKKI:
Heklið 63-65-68-70-75-75 loftlykkjur með litnum kórall með heklunál 4.
UMFERÐ 1 (rétta): Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 tvíbrugðnir stuðlar), heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af næstu 4-6-3-5-4-4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 tvíbrugðinn stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 9-9-10-10-11-11 sinnum = 51-53-55-57-61-61 tvíbrugðinir stuðlar (meðtaldar 4 loftlykkjur í umferð).
UMFERÐ 2 (ranga): Byrjið á umferð með stjörnu í mynsturteikningu og heklið A.1c (= 1 lykkja), A.1b (= 2 lykkjur) þar til 2 lykkjur eru eftir, A.1a (= 2 lykkjur).
UMFERÐ 3: Heklið A.1a, A.1b þar til 1 lykkja er eftir, A.1c.
Endurtakið 2 síðustu umferðirnar í A.1a-A.1c þar til heklaðar hafa verið 9-9-11-11-11-13 umferðir (meðtalin 1. umferð þar sem hoppað er yfir ca 5. hverja loftlykkju).
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Nú skiptist stykkið og heklað er fyrst yfir vinstri öxl – fyrsta umferð er frá röngu: Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir fyrstu 11-11-11-11-13-13 lykkjur, heklið 1 stuðul í næstu lykkju (= 12-12-12-12-14-14 lykkjur fyrir öxl).
Endurtakið umferð 2 og 3 í A.1a-A.1c + 1 auka stuðull/tvíbrugðinn stuðull við hálsmál þar sem heklaðar eru 15-17-17-17-19-19 umferðir fyrir öxl (= alls 24-26-28-28-30-32 umferðir frá byrjun á berustykki) – síðasta umferð er frá röngu.
Heklið 18-19-20-21-21-21 loftlykkjur í lokin á þessari síðustu umferð (= lykkjur frá hálsmáli á framstykki). Snúið og heklið síðustu umferð frá réttu þannig:
Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 tvíbrugðnir stuðlar), heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af næstu 1-2-3-4-4-4 loftlykkjum * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 2 sinnum (= 13-14-15-16-16-16 tvíbrugðnir stuðlar), haldið áfram út umferðina eins og áður = 25-26-27-28-30-30 lykkjur fyrir framstykki. Haldið áfram með mynstur fram og til baka þar til heklaðar hafa verið 6-6-8-8-8-10 umferðir fyrir framstykki – síðasta umferð er frá röngu, heklið 1 loftlykkju við miðju að framan (= klauf). Klippið frá, en látið endann vera ca 20 cm (það á að nota hann síðar við frágang).
Heklið hægri öxl:
Byrjið frá röngu, við vinstri öxl og hoppið yfir 27-29-31-33-33-33 tvíbrugðna stuðla fyrir hálsmál aftan í hnakka = 12-12-12-12-14-14 lykkjur fyrir hægri öxl. Haldið áfram með mynstur frá umferð með stjörnu í mynsturteikningu A.1a-A.1c fram og til baka á sama hátt og á vinstri öxl, nema gagnstætt, þ.e.a.s. heklaðir eru 2 stuðlar við hálsmál á sama hátt og á vinstri öxl – lesið HEKLLEIÐBEININGAR!
Endurtakið umferð 2 og 3 í A.1a-A.1c + 1 auka stuðull/tvíbrugðinn stuðull við hálsmál þar til heklaðar hafa verið 14-16-16-16-18-18 umferðir (= alls 23-25-27-27-29-31 umferð frá byrjun á berustykki) – síðasta umferð er frá réttu. Klippið frá. Heklið 15-16-17-18-18-18 loftlykkjur og haldið áfram með mynstur yfir hægri öxl frá röngu. Snúið og heklið næstu umferð frá réttu fram að loftlykkjuröð, heklið síðan þannig: * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af síðustu 3-4-5-6-6-6 loftlykkjum = 25-26-27-28-30-30 lykkjur fyrir hægra framstykki. Haldið áfram með mynstur þar til heklaðar hafa verið 6-6-8-8-8-10 umferðir fyrir hægra framstykki. Saumið þráðar endann við klauf í vinstra framstykki í ysta stuðul (þ.e.a.s. 3. loftlykkju í byrjun á síðustu umferð sem var hekluð á hægra framstykki).
Heklið nú 2 framstykkin saman frá réttu þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja lykkju/um hverja loftlykkju yfir allar lykkjur á hægra framstykki, heklið 1 stuðul um loftlykkju við miðju að framan við klauf og haldið áfram með 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja lykkju/um hverja loftlykkju yfir allar lykkjur á vinstra framstykki = 51-53-55-57-61-61 tvíbrugðnir stuðlar. Nú eru 31-33-37-37-39-43 umferðir á berustykki. Berustykki mælist nú 25-26-27-28-30-30 cm x 34-36-41-41-43-47 cm.
Klippið frá. Nú er heklaður kantur í kringum berustykki.

KANTUR Í KRINGUM BERUSTYKKI Í MARGLITU MYNSTRI:
Kanturinn er heklaður í hring með RENDUR – sjá útskýringu að ofan.
Skiptið yfir í litinn ferskja og festið enda með 1 fastalykkju í 1. hornið – sjá mynd af berustykki!
Heklið 2 fastalykkjur um hverja af fyrstu 11 umferðum, heklið 3 fastalykkjur um hverja af næstu 9-11-15-15-17-21 umferðum, heklið 2 fastalykkjur um hverja af næstu 11 umferðum (= 71-77-89-89-95-107 fastalykkjur meðfram hlið + 1 fastalykkja í 1. horni), heklið 3 loftlykkjur (= horn), heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju á milli 2. og 3. horns, en hoppið yfir sömu loftlykkjur og hoppað var yfir í byrjun á berustykki og aukið JAFNFRAMT úr 2-0-4-2-4-4 fastalykkjur jafnt yfir (= 53-53-59-59-65-65 fastalykkjur á milli 2. og 3. horns), heklið 3 loftlykkjur (= horn), heklið 2 fastalykkjum um hverja af frystu 11 umferðum, heklið 3 fastalykkjur um hverja af næstu 9-11-15-15-17-21 umferðum, heklið 2 fastalykkjur um hverja af næstu 11 umferðum (= 71-77-89-89-95-107 fastalykkjur meðfram hlið), heklið 3 loftlykkjur (= horn), heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju á milli 4. og 1. horns, JAFNFRAMT er aukið út um 2-0-4-2-4-4 fastalykkjur jafnt yfir (= 53-53-59-59-65-65 fastalykkjur á milli 4. og 1. horns), heklið 3 loftlykkjur (= horn), endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð, heklið síðan 1 keðjulykkju í næstu fastalykkju (= 2. fastalykkja eftir 3 loftlykkjum í horni) – lesið LITASKIPTI!

Haldið síðan áfram með rendur og heklið mynstur frá umferð með stjörnu í mynsturteikningu þannig: Heklið A.2a (sýnir hvernig umferð byrjar og endar), A.2b yfir næstu 66-72-84-84-90-102 lykkjurnar (= 11-12-14-14-15-17 mynstureiningar), A.2c (= horn), A.2b yfir næstu 48-48-54-54-60-60 lykkjur (= 8-8-9-9-10-10 mynstureiningar), A.2c (= horn), A.2b yfir næstu 66-72-84-84-90-102 lykkjurnar (= 11-12-14-14-15-17 mynstureiningar), A.2c (= horn), A.2b yfir næstu 48-48-54-54-60-60 lykkjur, A.2c (= horn).

Þegar allar umferðir í A.2a-A.2c hafa verið heklaðar til loka á hæðina er klippt frá og 5 síðustu umferðir eru brotnar niður þannig að réttan liggi að réttu. Nú eru heklaðir loftlykkjubogar með ferskja í fyrstu umferð með fastalykkjum (= umferð með litnum ferskja): Byrjið um loftlykkjuboga í 1. horni og heklið * 1 fastalykkja hægra megin við fastalykkjur með litnum ísblár um loftlykkjuboga í horni, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju á eftir 3 loftlykkjum í horni á fyrri umferð, (3 loftlykkjur, hoppið yfir næstu fastalykkju og fastalykkju sem var hekluð í fastalykkju (ísblár), heklið 1 fastalykkju í næstu fastalykkju) fram að 2. Fastalykkju í A.2c (= horn), heklið 3 loftlykkjur *, heklið frá *-* 3 sinum til viðbótar, þ.e.a.s. heklið alveg eins á milli 2. og 3. horns, á milli 3. og 4. horns og á milli 4. og 1. horns. Endið með 1 keðjulykkju í fastalykkju í horni.
Nú eru 19-19-21-21-23-23 loftlykkjubogar meðfram hliðum bæði á fram- og bakstykki og 25-27-31-31-33-37 loftlykkjubogar meðfram hvorri hlið á berustykki.

Skiptið yfir í litinn kórall og heklið áfram í fyrri umferð sem hekluð var með litnum ferskja:
3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið 42-48-54-60-66-78 loftlykkjur (í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu hlið (á milli 1. og 2. horns = handvegur), 1 stuðull í fastalykkju í 2. horni, (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta/næsta loftlykkjuboga) fram að 3. horni, 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fastalykkju í horni, 40-48-54-60-66-78 loftlykkjur (í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu hlið (á milli 3. og 4. horns = handvegur), 1 stuðull í fastalykkju í 4. horni, (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta/næsta loftlykkjuboga) fram að 1. horni, 3 loftlykkjur, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
Nú eru 20-20-22-22-24-24 loftlykkjubogar á fram- og bakstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið eitt prjónamerki við miðju framan í síðustu umferð sem var hekluð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Allt fram- og bakstykki er heklað með litnum kórall.
Heklið nú umferð með loftlykkjubogum (1 loftlykkjubogi = 3 loftlykkjur + 1 fastalykkja) um síðustu umferð með litnum kórall sem er hekluð þannig:
Heklið 1 loftlykkju í byrjun á umferð, * heklið alls 10-12-14-16-18-20 loftlykkjubogar um 40-48-54-60-66-78 loftlykkjur í hlið undir ermi, heklið 2 loftlykkjuboga um hvern af næstu 3-3-3-3-4-4 loftlykkjubogum, heklið 1 loftlykkjuboga um hvern af næstu 4 loftlykkjubogum, heklið 2 loftlykkjuboga um hvern af næstu 6-6-8-8-8-8 loftlykkjubogum, heklið 1 loftlykkjuboga um hvern af næstu 4 loftlykkjubogum, heklið 2 loftlykkjuboga um hvern af næstu 3-3-3-3-4-4 loftlykkjubogum *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar og endið með 1 fastalykkju í horni (= 84-88-100-104-112-120 loftlykkjubogar í umferð.

Byrjið á umferð með stjörnu í mynsturteikningu og heklið í hring þannig:
Heklið A.3a (sýnir hvernig umferð byrjar og endar og kemur í stað fyrstu lykkju í umferð), heklið A.3b alls 42-44-50-52-56-60 sinnum í umferð.
Heklið 2. umferð (= umferð með ör) þar til stykkið mælist ca 12 cm frá prjónamerki.
Heklið 3. umferð þar til stykkið mælist ca 23 cm frá prjónamerki.
Heklið 4. umferð þar til stykkið mælist ca 47-48-47-49-50-50 cm.
Klippið frá og festið enda. Tunikan mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Ermar eru heklaðar fram og til baka. Heklað er ofan frá og niður með litnum kórall og saumað saman við handveg í lokin. Hekluð er stór ermakúpa fram og til baka þar sem sólfjöðrum er aukið út á hvorri hlið.
Heklið 29 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum kórall, snúið við og heklið A.6 (= yfir fyrstu 8 loftlykkjur, A.5 yfir næstu 16 loftlykkjur, A.4 yfir síðustu 5 loftlykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka.
Þegar heklaðar hafa verið 4 umferðir með sólfjöðrum á hæðina er heklað áfram mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð S og M:
Heklið síðustu umferð í mynsturteikningu, en hoppið yfir síðustu 10 loftlykkjurr + 1 fastalykkju (= A.7) í byrjun á síðustu umferð sem var hekluð = 5-5 umferðir með sólfjöðrum á hæðina og það eru 12-12 sólfjaðrir á breidd.

Stærð L og XL:
Haldið áfram fram og til baka og aukið út á hvorri hlið alveg eins og áður (það eru 2 sólfjaðrir fleiri á breiddina fyrir hverja umferð sem er hekluð) þar til heklaðar hafa verið 6-6 umferðir með sólfjöðrum á hæðina, en hoppið yfir síðustu 10 loftlykkjur + 1 fastalykkju (= A.7) í byrjun á síðustu umferð sem er hekluð = 6-6 umferðir með sólfjöðrum og 14-14 sólfjaðrir á breidd.

Stærð XXL og XXXL:
Haldið áfram fram og til baka og aukið út í hvorri hlið alveg eins og áður (það verða 2 sólfjaðrir fleiri á breiddina fyrir hverja umferð sem er hekluð) þar til heklaðar hafa verið 7-7 umferðir með sólfjöðrum á hæðina, en hoppið yfir síðustu 10 loftlykkjur + 1 fastalykkju (= A.7) í byrjun á síðustu umferð sem er hekluð = 7-7 umferðir með sólfjaðrir og 16-16 sólfjaðrir á breidd.

ALLAR STÆRÐIR:
Heklið síðan sólfjaðra-hópa án þess að auka út í hvorri hlið þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 3 loftlykkjur í byrjun á umferð, heklið A.8 yfir allar 12-12-14-14-16-16 sólfjaðrirnar, snúið.
Endurtakið umferð 1 þar til heklað hefur verið yfir alls 3-3-4-4-5-5 umferðir án útaukninga í hliðum.
Ermin er nú tilbúin.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR Á ERMI:
Setjið eitt prjónamerki í miðju á handveg í hvorri hlið á fram- og bakstykki.
Skiptið erminni niður í handveg þannig að miðjan á ermakúpu er efst á öxl og deilið afgang frá hlið á milli 1. og 5.-5.-6.-6.-7.-7. umferð niður að horni neðst í handveg, þær 3-3-4-4-5-5 síðustu umferðirnar á ermi eru lagðar niður meðfram handveg og að prjónamerki í hlið.
Byrjið við prjónamerki í hlið. Heklið frá innanverðri/röngu á ermi, í gegnum bæði lögin (þ.e.a.s. ermi og handveg): 1 fastalykkja, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja *, heklið frá *-* hringinn allan handveginn. Klippið frá.
Heklið eina umferð frá réttu í kringum ermi þannig:
Byrjið í loftlykkjuboga í einni af sólfjaðra-hópnum undir ermi, heklið 3. umferð í A.3b (A.3a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar) í kringum alla ermina. Klippið frá og festið enda.
Frágangur á hinni erminni er á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í ystu lykkju efst á vinstra framstykki.
Heklið lykkju fyrir tölu með litnum kórall þannig: Festið enda með 1 fastalykkju í ystu lykkju efst á hægra framstykki, heklið 8 loftlykkjur, festið enda með 1 keðjulykkju í fastalykkju, klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 14.06.2021
Leiðrétting: BERUSTYKKI: UMFERÐ 2 (ranga): Byrjið á umferð með stjörnu í mynsturteikningu og heklið A.1c (= 1 lykkja), A.1b (= 2 lykkjur) þar til 2 lykkjur eru eftir, A.1a (= 2 lykkjur).

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = 1 hálfur stuðull í lykkju/um loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = 1 þríbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = heklið kúlu um loftlykkjuboga þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 3 tvíbrugðna stuðla um sama loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegnum hvern og einn af tvíbrugðnu stuðlunum í lokin, heklið 1 stuðul um sama loftlykkjuboga, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju (kemur ekki í stað 1. fastalykkju í umferð) og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð, síðan eru heklaðar keðjulykkjur upp að fyrsta loftlykkjuboga – ATH: Skipt er um lit þegar síðasta keðjulykkja er hekluð
symbols = umferðin byrjar með 2 loftlykkjum (koma í stað fyrsta hálfa stuðl í umferð) og endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun á umferð, síðan eru heklaðar keðjulykkjur upp að fyrsta loftlykkjuboga í umferð – ATH: Skipt er um lit þegar síðasta keðjulykkja er hekluð
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum (koma ekki í stað 1. stuðul í umferð) og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, síðan eru keðjulykkjur heklaðar upp að fyrsta loftlykkjuboga – ATH: Skipt er um lit þegar síðasta keðjulykkja er hekluð
symbols = umferðin byrjar með 4 loftlykkjum (koma í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul í umferð) og endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð, síðan eru heklaðar keðjulykkjur upp að fyrsta loftlykkjuboga
symbols = umferðin byrjar með 4 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðul í umferð)
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðul í umferð)
symbols = byrjið í þessari umferð, fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð!
symbols = heklstefna
symbols = teikning sýnir berustykki
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Maria wrote:

Jag blir inte klok på hur jag ska läsa mönstret. V2: A1c + A2b, börja vid stjärnan. Men under raden med stjärnan på A2b är det fasta maskor. När gör jag dom?

09.06.2021 - 09:39

DROPS Design answered:

Hei Maria. Her har det nok blitt en feil. Det skal ikke være A.2b, men A1b. A.1b går over 2 masker slik det står i oppskriften og hekles sammen med A.1c og A.1a, men A.2b går over 6 masker og hekles sammen med A.2a og A.2c. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette, vi vil lage en rettelse asap. mvh DROPS design

14.06.2021 - 10:55

country flag Elena wrote:

Bonjour, je suis en train de réaliser ce joli modèle, mais en large, crochet 4 et safran les tailles n’ont pas l’air justes. En crochetant serré un rapport Ab avec un rang de brides et un rang de doubles brides ma hauteur et ma largeur sont beaucoup plus grandes qu’attendues pour l’empiecement. Et pour l’échantillon de 10 cm j’ai 17 db au lieu de 20 en largeur et 6 rangs de db en hauteur au lieu de 7.5. N’y aurait il pas une erreur ? Par avance merci

22.04.2021 - 00:00

DROPS Design answered:

Bonjour Elena, n'hésitez pas à ajuster la taille du crochet si besoin, l'échantillon est plus important - retrouvez ici encore plus d'infos sur l'échantillon. Pour régler des problèmes de hauteur une fois que vous aurez la largeur, essayez de tirer un peu plus ou un peu moins (en fonction de votre échantillon) pour que la hauteur soit aussi juste. Bon crochet!

22.04.2021 - 07:50

country flag Nikki wrote:

I followed the pattern as far as the right shoulder, but the part after does not make sense to me. Could you help me understand what the following means for a medium - "Work 16 chain stitches and continue the pattern over the right shoulder..." until the end of that paragraph?

29.09.2020 - 15:06

DROPS Design answered:

Dear Nikki, when working 1st row on left shoulder, you worked over the 12 sts on one side of back piece then you worked front piece. Now you will crochet from WS on same row as you worked first row on left shoulder (leaving 29 sts unworked between shoulders for neckline on back piece) over 12 sts. After you have worked 16 rows in pattern cut the yarn. Crochet now 16 chains (neck on front piece) and work in pattern as before (as you crocheted on left front piece, but you have here to cut first the yarn, then crochet the chains and continue over sts on right shoulder as before). Happy crocheting!

30.09.2020 - 07:53

country flag Eneli wrote:

Jag har svårt att förstå diagrammen A.4 och A.6- vart ska tredubbelstolpen virkas- blir det före eller efter massa luftmaskor..? Ökningen av solfjädersgrupper när man ska göra ärmar är svårt att förstå just i dessa A.4 och A.6 diagrammen- vad betyder långa kedjor av luftmaskor och hur kommer tredubbelstolpen in i det hela? Tack för svaret!

01.08.2020 - 02:48

DROPS Design answered:

Hei Eneli. Du starter ved stjernen i A.6 og hekler 1.rad (A.6-A.5-A.4). Når du har avsluttet 1 rad, skal du hekle 6 luftmasker (for å komme opp i «høyden» til 2.rad), så hekler du 10 nye luftmasker som du avslutter med å hekle 1 fastmaske i den 1. luftmasken av disse 10 luftmaskene (= en ring med luftmasker). Nå hekler du 2. rad og når du kommer til slutten av 2.rad/A.6 hekler du 5 luftmasker (= en luftmaskebue som det skal hekles i når du hekler 3. rad), så hekler du en 3-dbl stav i siste maske på 2. rad, deretter hekler du 6 luftmasker, 10 nye luftmasker og 1 fastmaske i 1. luftmaske (= en luftmaskering), så fortsetter du med 3. rad på diagrammene. God Fornøyelse!

10.08.2020 - 09:20

country flag Marie Binkowski wrote:

I am not familar with your patterns how do I find out how much yarn I need of each color am I missing something ? Thank You

06.06.2019 - 22:30

DROPS Design answered:

Hi Marie, on top of the pattern in section 'materials' you see how much yarn you need in each colour depending on your size. Each skein of Safran is 50 g. For example: in size S you will need: 9 skeins color 13, raspberry, 1 skein color 20, rust, 1 skein color 12, peach, 1 skein color 06, denim blue and 1 skein color 50, light ice blue. Happy crocheting!

07.06.2019 - 07:16

country flag Waltraud Brureiner wrote:

Hallo, wenn ich die Anleitung drucken will, kommt bei mir nur die 1. Seite. Scheint irgendwo ein Fehler zu sein. Bitte prüfen. Danke mfg W. Brureiner

09.12.2018 - 16:27

DROPS Design answered:

Liebe Frau Brureiner, beachten Sie, daß alle Seiten richtig gedruckt werden und nicht nur einige/die erste - die Druckeinstellungen prüfen. Vielleicht können Sie auch den Cache leeren und den Browser aktualisieren, das kann auch helfen. Viel Spaß beim häkeln!

10.12.2018 - 09:47

country flag Neirynck Brigitteb wrote:

Je ne comprends pas le rang 2 ( début du travail ) merci

17.07.2018 - 16:31

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Neirynck, au rang 2, on crochète sur l'envers les diagrammes A.1c, A.2b et A.1a en commençant au rang avec la flèche (pas l'étoile - la correction sera faite): A.1c (= 3 ml), puis on répète A.1b: *1 ml, sautez 1 m, 1 B dans la m suivante*, répétez de *-* jusqu'à ce qu'il reste 2 m et terminez par 1 ml, sautez 1 m, 1 B dans la 4ème ml du début du rang précédent. Au rang 3, lisez de droite à gauche: A.1a, répétez A.1b et terminez par A.1c. Bon crochet!

17.07.2018 - 16:57

country flag Sabine wrote:

Cette tunique me plait bien, mais malheureusement les explications sont trop dispersées pour moi. Passer du haut du texte aux schémas en bas est assez éprouvant. J'aime quand même tous vos modèles.

20.06.2018 - 13:15