DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Flowering Heart

Hekluð peysa með hekluðum átthyrningi og gatamynstri. Stærð S - XXXL. Stykkið er heklað úr DROPS Puna eða DROPS Sky.

DROPS 183-21
DROPS Design: Mynstur pu-024
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-600-700 g litur 10, bleikfjólublár

Eða notið:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-450 g litur 10, bleikfjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 tvíbrugðnir stuðlar og 6 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.14.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 tvíbrugðinn stuðul með því að hekla 2 tvíbrugðna stuðla í sömu lykkju.

ÚTAUKNING-1:
Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvora af næstu 2 lykkjum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegnum báða þessa tvíbrugðnu stuðla, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 tvíbrugðinn stuðull færri).

ÚRTAKA-2:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda tvíbrugðna stuðla í umferð (t.d. 66 tvíbrugðnir stuðlar), deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 11. Í þessu dæmi þá eru heklaðir 10. og 11. hver tvíbrugðinn stuðull saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er heklaður átthyrningur alveg eins í öllum stærðum. Síðan eru hekluð 2 horn á hyrninginn þannig að átthyrningurinn fái sex hliðar. Síðan er heklaður kantur utan um hyrninginn. Síðan eru axlirnar heklaðar og ermar.

FRAMSTYKKI:
HEKLAÐUR ÁTTHYRNINGUR:
Byrjið með heklunál 4,5 og Puna eða Sky og heklið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 – ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 er lokið mælist hyrningurinn ca 10 cm að þvermáli, mælt frá hlið að hlið. Nú er haldið áfram hringinn þannig: Heklið A.2b alls 8 sinnum í umferð – mynsturteikning A.2a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.2b. Þegar öll mynsturteikning A.2a og A.2b hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist hyrningurinn ca 44 cm að þvermáli, mælt frá hlið að hlið. Nú eru 8 hliðar með 27 tvíbrugðnum stuðlum og 8 horn með 2 tvíbrugðnum stuðlum, 1 loftlykkja og 2 tvíbrugðnir stuðlar. Klippið frá og festið enda.

HORN:
Nú er heklað eitt horn meðfram hlið-2 og eitt horn meðfram hlið-8 – sjá mynsturteikningu. Byrjið með horn á hlið-2 og heklið fram og til baka eftir mynsturteikningu A.3. Fyrsta umferðin byrjar við ör – hver umferð er fest með 1 keðjulykkju í lykkjur meðfram hlið-2 eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar öll mynsturteikning A.3 er lokið er klippt frá og endi festur. Heklið í hitt hornið meðfram hlið-8 alveg eins, klippið frá og festið enda.

KANTUR Í KRINGUM HEKLAÐA HYRNINGINN:
Nú eru 6 hliðar á hyrningnum – sjá mynsturteikningu. Nú eru 67 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hlið-1, 47 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hverri hlið -2/3 og hlið- 7/8, það eru 27 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hverri hlið-4, hlið-5 og hlið-6 og það eru 6 horn með 2 tvíbrugðnum stuðlum, 1 loftlykkja og 2 tvíbrugðnir stuðlar.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM!
Byrjið í horni á hlið-2 og heklið mynstur eftir mynsturteikningu þannig: Heklið A.4a – sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót, heklið A.4b um hornið, A.5 alls 16 sinnum á breiddina, * A.6 um næsta horn, A.5 alls 9 sinnum á breiddina *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið A.6 um næsta horn, A.5 alls 16 sinnum á breiddina, A.7 um næsta horn, A.4b um sama horn, heklið A.5 alls 23 sinnum á breiddina, endið með A.7.
Aukið er út í fyrstu umferð – LESIÐ ÚTAUKNING – þannig (ekki er aukið út yfir hornin):
Hlið -1: Aukið út um 2 tvíbrugðna stuðla.
Hlið-2/3: Aukið út um 1 tvíbrugðinn stuðul.
Hlið-7/8: Aukið út um 1 tvíbrugðinn stuðul.
Þegar öll mynsturteikning A.4 til A.7 hefur verið hekluð til loka eru 77 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hlið-1, 56 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hverri og einni af hlið-2/3 og hlið-7/8, það eru 35 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hverri og einni af hlið-4, hlið-5 og hlið-6 og það eru 6 horn með 2 tvíbrugðnum stuðlum, 1 loftlykkja og 2 tvíbrugðnir stuðlar. Klippið EKKI frá! Nú er stærð S/M lokið. Í stærð L/XL og XXL/XXXL er haldið áfram þannig:

Stærð L/XL - XXL/XXXL:
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM!
Heklið keðjulykkjur að horni og heklið síðan þannig: Heklið A.4a – sýnir hvar umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót, heklið A.4b um hornið, A.5 alls 19 sinnum á breiddina, * A.6 um næsta horn, A.5 alls 12 sinnum á breidd *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið A.6 um næsta horn A.5 alls 19 sinnum á breiddina, A.7 um næsta horn, A.4b um sama horn, heklið A.5 alls 26 sinnum á breiddina, endið með A.7.
Aukið/fækkið lykkjum í fyrstu umferð þannig (ekki er lykkjum fækkað yfir hornum):
Hlið-1: Aukið út um 1-1 tvíbrugðinn stuðul.
Hlið-2/3: Aukið út um 1-1 tvíbrugðinn stuðul.
Hlið-4: Fækkið um 2-2 tvíbrugðna stuðla – lesið ÚRTAKA-1.
Hlið-5: Fækkið um 2-2 tvíbrugðna stuðla.
Hlið-6: Fækkið um 2-2 tvíbrugðna stuðla.
Hlið 7/-8: Aukið úr um 1-1 tvíbrugðinn stuðul.
Þegar öll mynsturteikning A.4 til A.7 hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 86 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hlið-1, 65 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hverri og einni af hlið-2/3 og hlið-7/8, það eru 41 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hverri og einni af hlið-4, hlið-5 og hlið-6 og það eru 6 horn með 2 tvíbrugðnum stuðlum, 1 loftlykkja með 2 tvíbrugðnum stuðlum. Klippið EKKI frá! Nú er stærð L/XL lokið (L/XL hefur 4 umferðir fleiri en S/M). Í stærð XXL/XXXL er haldið áfram þannig:

Stærð XXL/XXXL:
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM!
Heklið keðjulykkjur að horni og heklið síðan þannig: Heklið A.4a – sýnir hvar umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót, heklið A.4b um hornið, A.5 alls 22 sinnum á breiddina, * A.6 um næsta horn, A.5 alls 14 sinnum á breidd *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið A.6 um næsta horn A.5 alls 22 sinnum á breiddina, A.7 um næsta horn, A.4b um sama horn, heklið A.5 alls 29 sinnum á breiddina, endið með A.7.
Aukið út í fyrstu umferð þannig (ekki er aukið út yfir hornum):
Aukið út með 1 tvíbrugðnum stuðli meðfram hverri af 6 hliðum.
Þegar öll mynsturteikning A.4 til A.7 hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 95 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hlið-1, 74 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hverri hlið-2/3 og hlið-7/8, það eru 50 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hverri hlið-4, hlið-5 og hlið-6 og það eru 6 horn með 2 tvíbrugðnum stuðlum, 1 loftlykkja og 2 tvíbrugðnir stuðlar. Klippið EKKI frá! Nú er stærð XXL/XXXL lokið (XXL/XXXL hefur 8 umferðir fleiri en S/M).

ALLAR STÆRÐIR – ÖXL:
Nú er heklað fram og til baka einungis meðfram hlið-1. Heklið fyrri öxl með byrjun frá röngu þannig: Heklið keðjulykkjur að horni, snúið og heklið mynsturteikningu frá röngu þannig: Heklið keðjulykkjur að horni, snúið og heklið mynsturteikningu A.8 um hornbogann, A.9 alls 6-7-8 sinnum, endið með A.10 = að hálsmáli. Þegar öll mynsturteikning A.8 til A.10 er lokið á hæðina er klippt frá og endi festur. Miðju 19-22-25 tvíbrugðnu stuðlarnir í kanti á hekluðum hyrningi = hálsmál. Heklið hina öxlina með byrjun frá röngu þannig: Heklið A.11 = að hálsi, A.12 alls 6-7-8 sinnum, endið með A.13 um hornið. Þegar öll mynsturteikning A.11 til A.13 er lokið á hæðina er klippt frá og endi festur.

BAKSTYKKI:
Heklið alveg eins og framstykki fram þar sem byrjað er á öxlum. Í stað þess að hekla öxl er heklað fram og til baka meðfram allri hlið-1= 81-90-99 tvíbrugðnir stuðlar (meðtaldir tvíbrugðnir stuðlar í horni) + 2 hornbogar í umferð. Heklið með byrjun frá röngu þannig: Heklið A.8 um hornbogann, A.9 alls 27-30-33 sinnum á breiddina, endið með A.13 um hornbogann. Þegar öll mynsturteikning A.8/A.9/A.13 er lokið á hæðina er klippt frá og endi festur.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma – saumið í ystu lykkjubogana. Saumið hliðarsauma þannig: Byrjið í horni á milli hlið-3 og hlið-4 og saumið upp þar til eftir eru ca 19-21-23 cm að öxl = handvegur. Byrjið í horni á milli hlið-6 og hlið-7 og saumið upp þar til eftir eru ca 19-21-23 cm fyrir öxl = handvegur.

HÁLSMÁL:
Heklaður er kantur í kringum hálsmál. Byrjið á annarri öxlinni og heklið 1 fastalykkju, heklið * 3 loftlykkjur, hoppið ca 1½ cm frá, heklið 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* í kringum hálsmál, endið með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.

ERMI:
Stykkið er heklað í hring frá handveg, með byrjun frá miðju undir ermi á hlið. Byrjið með heklunál 4,5 og Puna eða Sky og heklið 66-75-81 tvíbrugðna stuðla jafnt yfir í kringum handveg (heklið í/um tvíbrugðinn stuðul/loftlykkjuboga). Heklið síðan þannig: Heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.14b alls 22-25-27 sinnum í umferð – mynsturteikning A.14a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.14b. Endurtakið síðan A.14 á hæðina og lykkjum er fækkað jafnt yfir í fyrstu umferð í mynsturteikningu – lesið ÚRTAAKA-2, þannig: Fækkið um 6 tvíbrugðna stuðla 3-5-2 sinnum og fækkið um 3-0-9 tvíbrugðna stuðla 2-0-2 sinnum = 42-45-51 tvíbrugðna stuðla eftir síðustu úrtöku. Þegar stykkið mælist ca 45-42-40 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) endið eftir 1. eða 4. umferð í A.14. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = keðjulykkja
symbols = loftlykkja
symbols = 6 loftlykkjur
symbols = fastalykkja um loftlykkju
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkjuboga/loftlykkjuhring
symbols = tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun umferðar, heklið síðan keðjulykkju að miðju á fyrsta 6-loftlykkjuboga
symbols = umferðin byrjar með 4 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun umferðar, síðan eru heklaðar keðjulykkjur að miðju á fyrsta loftlykkjuboga
symbols = umferðin byrjar með 4 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun umferðar, síðan eru heklaðar keðjulykkjur að miðju á fyrsta loftlykkjuboga
symbols = heklið um sömu loftlykkju þannig: 2 tvíbrugðnir stuðlar, 1 loftlykkja og 2 tvíbrugðnir stuðlar
symbols = heklið um sömu lofltykkju þannig: 2 þríbrugðnir stuðlar, 1 loftlykkja og 2 þríbrugðnir stuðlar
symbols = 1 þríbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 þríbrugðinn stuðull í lykkjuna
symbols = 4 tvíbrugðnir stuðlar heklaðir saman þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af 4 lykkjunum – en bíðið með að bregða bandi um heklunálina og að draga bandið í gegn í lokin í hvern og einn af þessum tvíbrugðnu stuðlum, bregðið bandi um heklunálina og dragið það í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = 3 tvíbrugðnir stuðlar heklaðir saman þannig: Heklið 3 tvíbrugðna stuðla um loftlykkjuna – en bíðið með að bregða bandi um heklunálina og að draga bandið í gegn í lokin í hvern og einn af þessum tvíbrugðnu stuðlum, bregðið bandi um heklunálina og dragið í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni

symbols = sýnir síðustu umferð í A.2, umferðin hefur nú þegar verið hekluð! Byrjið við ör!
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð. Byrjið á næstu umferð!
symbols = sýnir hvar fyrsta umferð í A.3 byrjar
symbols = 4 loftlykkjur, tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – sjá punkt í hring, umferðin byrjar og endar hér
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Dyckmans wrote:

Rebonjour, lorsque l on fait les epaules, doit on faire a9 et a11 tout autoyr du coin ou seulement d un coté et mailles serrees de l autre? Merci

31.01.2018 - 13:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dyckmans, les 2 épaules se font séparément le long du côté 1, espacées de 19-22-25 double-brides entre elles. En commençant sur l'envers, on fait la 1ère avec A.8 autour du coin (côté 1), on répète A.9 et on termine par A.10 (encolure), et la 2ème avec A.11 (encolure), on répète A.12 et on termine par A.13 autour du coin (côté 1). Bon crochet!

31.01.2018 - 15:41

country flag Dyckmans wrote:

Dc ds les coins 2 et 8 on fait a7 et a4? Merci

30.01.2018 - 15:28

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dyckmans, tout à fait, dans le coin 2, on commence le tour par A.4a, puis A.4b, dans le coin 8 on crochète A.7 et A.4b et on termine le tour dans le coin 2 par A.7 et 1 mc dans A.4a (= dans la 4ème ml du début du tour).Bon crochet!

30.01.2018 - 16:48

country flag Dyckmans wrote:

Je viens de comprendre!!!!! Par contre pouvez-vous me confirmer que je fais bien a5 autour des coins 2 et 8?

30.01.2018 - 12:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dyckmans, on crochète A.5 le long de tous les côtés, mais dans le coin 2, on va crocheter A.4a, A.4b au début du tour (on termine le tour par A.7 et 1 mc dans A.4a) et dans le coin 8, on va crocheter A.7 et A.4b. Bon crochet!

30.01.2018 - 13:58

country flag Dyckmans wrote:

Je viens de comprendre! Par contre, pouvez-vs me confirmer que je fais bien a5 autour de a4 sur les coins 2 et 8? Merci pr votre patience!!!

30.01.2018 - 12:38

country flag Dyckmans wrote:

Je ne comprends pas, j obtiens des "languettes" lorsque je crochete les coins est ce normal?

30.01.2018 - 12:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dyckmans, vous devez bien crocheter tout autour de l'hexagone + le long de A.3 (les côtés 2 et 8). Vous trouverez ici quelques photos du pull terminé et pendant sa réalisation. Bon crochet!

30.01.2018 - 13:50

country flag Dyckmans wrote:

Par ailleurs, dois-je crocheter a5 le long du coté 2?

30.01.2018 - 11:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dyckmans, tout à fait, on répète A.5 le long de chacun des côtés (16 fois en largeur le long du côté 3, 9 fois en largeur le long des côtés 4,5 et 6, 16 fois en largeur le long du côté 7 et 23 fois en largeur le long du côté 1), et en même temps, crochetez dans le coin 2: A.4a, A4b au début du tour (vous terminerez le tour par A.7), A.6 dans les 4 coins du bas de l'hexagone et A.7 + A.4b dans le coin 8. Bon crochet!

30.01.2018 - 13:42

country flag Dyckmans wrote:

Merci, je comprends un peu mueux. Mais a4 est il en hauteur partant du coin du coté 2?

30.01.2018 - 11:01

country flag Dyckmans wrote:

A4 se fait donc en hauteur? Dois je couper le fil a la fin ou raccorder au coté et faire a5?

30.01.2018 - 09:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dyckmans, vous allez crocheter les diagrammes tout autour de l'hexagone + les 2 côtés 2 et 8 (A.3), commencez dans le coin du côté 2 par A.4a et A.4b, descendez le long du côté 3 (A.5), crochetez A.6 dans le coin, continuez ainsi le long des côtés 4, 5, 6 et 7 (avec A.6 dans chaque coin) et crochetez A.7, A.4b dans le coin du côté 8 et terminez par A.5 le long du côté 1. Crochetez d'abord le 1er rang de chaque diagramme dans l'ordre des diagrammes, puis le 2ème rang et ainsi de suite jusqu'à ce que les 4 rangs soient terminés. Bon crochet!

30.01.2018 - 10:11

country flag Dyckmans wrote:

Je ne comprends pas ou commencer le diagramme a4 a5 et a6 pourriez vs les mettre par ecrit comme pr a3? Un grand merci

29.01.2018 - 19:14

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dyckmans, le tour commence dans le coin du côté 2, commencez par A.4a dans l'arceau du coin, puis A.4b dans le même arceau, répétez A.5 le long de chaque côté, dans les 4 coins du bas de l'hexagone, crochetez A.6 et dans le coin du côté 8 crochetez A.7 et A.4b (sans A.4a au milieu) et terminez le tour par A.7. Vous trouverez la légende pour chaque symbole, ex au 1er rang: A.4a = 4 ml, A.4b = 2 triple-brides, 1 ml, 2 triple brides autour du même arceau, A.45 = 1 double bride dans chaque maille. A.6 = 2 double-brides, 1 ml, 2 doubles-brides Bon crochet!

30.01.2018 - 08:23

country flag Dyckmans wrote:

Je ne comprends pas ou commencer le diagramme a4 a5 et a6 pourriez vs les mettre par ecrit comme pr a3? Un grand merci

29.01.2018 - 18:59