DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10406.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sahara Cardigan

Hekluð peysa með gatamynstri, hekluð ofan frá og niður úr DROPS Cotton Merino. Stærð S - XXXL.

DROPS 176-17
DROPS Design: Mynstur cm-064
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-700-800-850 g litur nr 15, sinnepsgulur

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 stuðlar og 9 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 8-8-9-9-9-9 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10406.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Á við um þegar stykkið er prjónað fram og til baka.
Í hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðlinum skipt út fyrir 3 loftlykkjum.
Í hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum er fyrsta tvíbrugðna stuðlinum skipt út fyrir 4 loftlykkjur.
Í hverri umferð með fastalykkjum er fyrstu fastalykkjunni skipt út fyrir 1 loftlykkju.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul/fastalykkju.
Ekki er aukið út yfir kant að framan.

ÚRTAKA:
Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið síðan næsta stuðul og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 stuðul.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. A.10 útskýrir hvernig mynstur byrjar og endar þegar heklað er í hring á ermi.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður fram og til baka.

BERUSTYKKI:
Heklið 171-171-181-186-191-201 loftlykkjur með heklunál 4 með Cotton Merino. Heklið næstu umferð þannig: 1 stuðull í 4. loftlykkju (= 2 stuðlar), 1 stuðul í hvora af 2 næstu loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðul í hverja af 4 næstu loftlykkjum *, endurtakið frá *-* = 136-136-144-148-152-160 stuðlar.

LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Setjið 12 prjónamerki í stykki þannig: Heklið 21-21-23-24-25-27 stuðlar JAFNFRAMT er aukið út um 1-5-3-3-4-2 stuðlar jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING, setjið fyrsta prjónamerki, * heklið 4 stuðla, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 16 stuðla, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 stuðla, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 30-30-34-36-38-42 st JAFNFRAMT er aukið út um 2-10-6-6-8-4 st jafnt yfir, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 stuðla, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 16 stuðla, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 stuðla, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 21-21-23-24-25-27 stuðlar JAFNFRAMT er aukið út um 1-5-3-3-4-2 st jafnt yfir = 140-156-156-160-168-168 stuðlar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umferð frá réttu er aukið út þannig: Aukið út um 1 stuðul hvoru megin við hvert prjónamerki (= 24 stuðlar fleiri), endurtakið útaukningu í hverri umferð frá réttu alls 3-3-4-6-7-9 sinnum, aukið síðan út á undan hverju prjónamerki (= 12 stuðlar fleiri), endurtakið útaukningu í hverri umferð frá réttu alls 4-4-4-2-2-0 sinnum = 260-276-300-328-360-384 stuðlar. Stykkið mælist nú ca 17-17-19-19-21-21 cm. Í næstu umferð er heklað þannig: 41-44-48-53-59-63 stuðlar (framstykki), 8 loftlykkjur (handvegur), hoppið yfir 54-56-60-64-68-72 stuðla frá fyrri umferð (þá á að nota síðar fyrir ermi), 70-76-84-94-106-114 st JAFNFRAMT er aukið út um 1-1-3-1-1-3 stuðla jafnt yfir (bakstykki), 8 loftlykkjur (handvegur), hoppið yfir 54-56-60-64-68-72 stuðla frá fyrri umferð (þá á að nota síðar fyrir ermi) og 41-44-48-53-59-63 stuðlar (framstykki) = 169-181-199-217-241-259 stuðlar/loftlykkjur.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

Heklið síðan fyrstu 2 umferðirnar í A.x þannig: A.1 (= 6 stuðlar/tvíbrugðnir stuðlar á kanti að framan), A.2 alls 25-27-30-33-37-40 sinnum á breidd, A.3, endið með A.4 (= 6 stuðlar/tvíbrugðnir stuðlar á kanti að framan). Heklið 3. umferð í A.x (= stuðlaumferð) og aukið út 18 stuðla jafnt yfir = 187-199-217-235-259-277 stuðlar. Heklið síðan fyrstu 3 umferðirnar í A.y, en A.2 er nú heklað 28-30-33-36-40-43 sinnum á breidd. Heklið 4. umferð í A.y (= stuðlaumferð) og aukið út 18 stuðla jafnt yfir = 205-217-235-253-277-295 stuðlar.

Heklið nú fyrstu 2 umferðir í A.z. Heklið síðan 2 næstu umferðir í A.z þar til stykkið mælist ca 25-28-30-30-33-33 cm – stillið af eftir síðustu 2 umferðirnar. Heklið síðan 2 síðustu umferðir í A.z – JAFNFRAMT í síðustu umferð (= stuðlaumferð) aukið út um 6 stuðla jafnt yfir = 211-223-241-259-283-301 stuðlar. Heklið síðan fyrstu 3 umferðir í A.y, en A.2 er nú heklað 32-34-37-40-44-47 sinnum á breidd. Heklið 4. umferð í A.y (= stuðlaumferð) og aukið út 6-6-12-6-6-12 stuðla jafnt yfir = 217-229-253-265-289-313 stuðlar.

Heklið síðan næstu 5 umferðir þannig: A.5 (= kantur að framan), A.6, A.7 alls 16-17-19-20-22-24 sinnum á breidd, A.8, endið með A.9 (= kantur að framan). Heklið síðan A.y þannig: A.1 (= 6 stuðlar á kanti að framan), A.2 alls 33-35-39-41-45-49 sinnum á breidd, A.3, endið með A.4 (= 6 stuðla á kanti að framan).
Heklið síðan síðustu umferð í A.5-A.9 þannig: A.5 (= kantur að framan), A.6, A.7 alls 16-17-19-20-22-24 sinnum á breidd, A.8, endið með A.9 (= kantur að framan). Klippið frá og festið enda.

ERMI:
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Ermin er hekluð í hring ofan frá og niður – sjá A.10 hvernig umferðin byrjar og endar. Byrjið að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fastalykkju í 5. loftlykkju við 8 loftlykkjurnar sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki. Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull). Heklið síðan 1 stuðul í hverja og eina af næstu 3 loftlykkjum. Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul yfir ermi JAFNFRAMT er fækkað um 1-3-1-5-3-1 stuðlar jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA, áður en fækkað er um 1 stuðul í hverja og eina af þeim 4 loftlykkjum sem eftir eru undir ermi = 61-61-67-67-73-79 st.

Heklið síðan fyrstu 2 umferðir í A.x þannig: A.2 alls 9-9-10-10-11-12 sinnum á breidd, endið með A.3. Heklið 3. umferð í A.x (= stuðlaumferð) og fækkið um 6 stuðla jafnt yfir = 55-55-61-61-67-73 stuðlar.
Heklið síðan A.y 1 sinni á hæðina, en A.2 er nú heklað 8-8-9-9-10-11 sinnum á breidd.

Heklið nú fyrstu 2 umferðir í A.z (A.2/A.3). Endurtakið síðan 2 næstu umferðir í A.z þar til stykkið mælist ca 25-25-25-25-25-25 cm – stillið af eftir síðustu af þessum 2 umferðum. Heklið síðan 2 síðustu umferðir í A.z – JAFNFRAMT í síðustu umferð (= stuðlaumferð) er fækkað um 6-6-6-6-6-6 stuðla jafnt yfir = 49-49-55-55-61-67 stuðlar. Heklið A.y, en A.2 er nú heklað 7-7-8-8-9-10 sinnum á breidd. Heklið síðan síðustu umferð í A.6 og A.8 þannig:
A.6 alls 7-7-8-8-9-10 sinnum á breidd, endið með A.8. Klippið frá og festið enda. Ermin mælist ca 33-33-33-33-33-33 cm.
Heklið hina ermina á sama hátt.

HÁLSMÁL:
Heklið kant í kringum hálsmál, notið heklunál 4 með Cotton Merino. Byrjið við miðju að framan frá réttu þannig, heklið stuðla í loftlykkjur þar sem stuðlar eru heklaðir (þ.e.a.s. ekki er heklað í loftlykkjur sem hoppað var yfir) = 136-136-144-148-152-160 stuðlar – JAFNFRAMT er fækkað um 27-27-29-33-31-33 stuðla jafnt yfir þessa stuðla = 109-109-115-115-121-127 stuðlar. Heklið síðan síðustu umferð í A.6 og A.8 þannig: Heklið A.6 alls 17-17-18-18-19-20 sinnum á breidd, endið með A.8. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki – efsta talan 2 cm frá kanti í hálsi, aðrar tölur eru settar með ca 8 cm millibili. Tölum er hneppt á milli tveggja stuðla í hægra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.06.2018
HÉÐAN ER NÚ MÆLT! hefur verið bætt við eftir að lykkjur voru teknar til hliðar fyrir ermi

Mynstur

symbols = keðjulykkja
symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = heklið 1 tvöfaldan stuðul um fyrsta loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvöfaldan stuðul um næsta loftlykkjuboga og dragið síðan þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni

symbols = um loftlykkjuboga er heklað þannig: Heklið 1 þríbrugðinn stuðul, 4 tvöfalda stuðla, 5 loftlykkjur, 4 tvöfalda stuðla og 1 þríbrugðinn stuðul
symbols = heklið 1 tvöfaldan stuðul í hvern og einn af fyrstu 3 tvöföldu stuðlum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á öllum 3 tvöföldu stuðlunum, hoppið yfir næstu 5 lykkjur, heklið 1 tvöfaldan stuðul í hvern og einn af næstu 2 tvöföldu stuðlum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum þessum tvöföldu stuðlum, heklið 1 tvöfaldan stuðul í næsta tvöfalda stuðul og dragið þráðinn í gegnum allar 7 lykkjur á heklunálinni
symbols = heklið í 3 tvöföldu stuðlana lengst inn við loftlykkjubogann þannig: Heklið 1 tvöfaldan stuðul í hvern og einn af fyrstu 2 tvöföldu stuðlum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum þessum tvöföldu stuðlum, heklið 1 tvöfaldan stuðul í næsta tvöfalda stuðul og dragið síðan þráðinn í gegnum allar 4 lykkjur á heklunálinni

symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð, byrjið á næstu umferð
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Krissy Moore wrote:

Hello - could you please tell me what size to make for a 42 inch (106cm) bust? Is the correct thing to divide 106cm by half to represent the ideal width of the garment across the bust (so: 53cm) and then decide to make the 57-cm-wide garment (for a total 114cm bust measurement)? As 57 is the fourth measurement across the bust in the diagram, does that = the XL measurement? Or is there a little stretch in the pattern, and the 53cm-wide/106cm total/size L measurement OK? Thank you! :)

09.11.2022 - 17:34

DROPS Design answered:

Hi Krissy, You will find a measurement chart for all the different sizes at the bottom of the pattern. Happy crafting!

10.11.2022 - 07:21

country flag Jennifer wrote:

Hi. I would love to make this design. How do I decide which size to make? What is the bust circumference for the sizes? Thank you.

16.05.2022 - 17:05

DROPS Design answered:

Dear Jennifer, you can see in the schematic under the charts the measurements of the garment, including the bust measurements, for each of the sizes, each number corresponding to a specific size. These measurements are all in cm. Happy crocheting!

16.05.2022 - 23:11

country flag Gerda wrote:

Ik kreeg nog geen antwoord op mijn 2de vraag op 17/01/2021 : Ik weet wel dat je eerst A5, dan A6, dan A7 enz. haakt. Maar haak ik eerst 'VIJF' toeren van het A5,A6,A7,A8,A9-patroon en dan het 'HELE Ay-patroon', gevolgd door 'LAATSTE' toer van het A5,A6,A7,A8, A9-patroon?

26.01.2021 - 19:06

DROPS Design answered:

Dag Gerda,

In de beschrijving bij de mouw staat dit precies aan gegeven: Ga verder met de eerste 2 toeren in A.x. Daarna haak je A.y 1 keer in de hoogte, dan de eerste 2 toeren in A.z. Daarna herhaal je de volgende 2 toeren in A.z tot de aangegeven hoogte en tot slot haak je de laatste toeren in A.z

01.02.2021 - 09:07

country flag Gerda wrote:

Ik kreeg nog geen antwoord op mijn 2de vraag op 17/01/2021 : Ik weet wel dat je eerst A5, dan A6, dan A7 enz. haakt. Maar haak ik eerst 'VIJF' toeren van het A5,A6,A7,A8,A9-patroon en dan het 'HELE Ay-patroon', gevolgd door 'LAATSTE' toer van het A5,A6,A7,A8, A9-patroon?

26.01.2021 - 19:06

country flag Gerda Van Den Brande wrote:

Bij mijn 2de vraag op 17/01/2021 bedoelde ik: Haak ik eerst 'VIJF' toeren van het A5,A6,A7,A8,A9-patroon en dan het 'HELE Ay-patroon', gevolgd door 'LAATSTE' toer van het A5,A6,A7,A8, A9-patroon?

18.01.2021 - 08:54

country flag Gerda Van Den Brande wrote:

1) Telpatroon: van A1 naar A2, als er dubbele stokjes zijn in A1, moet je 4 lossen haken. Tellen die als laatste dubbel stokje van A1 of moet je die extra haken na de 6 dubbele stokjes van A1? En moet je die lossenrij vasthaken in de volgende steek, die de eerste vaste is in telpatroon A2? 2) Laatste paragraaf, juist vóór mouw: haak je eerst de eerste 5 toeren van het A5,A6,A7...telpatroon? Dan het volledige Ay-patroon? En daarna de laatste toer van het A5,A6,A7...telpatroon ?

17.01.2021 - 08:41

DROPS Design answered:

Dag Gerda,

De 4 lossen zijn inderdaad extra en die maak je vast met een vaste in het volgende stokje van de vorige toer en dat is inderdaad de eerste vast in A.2.

Tweede deel van je vraag: je haakt eerst telpatroon A.5 en telpatroon A.6. Dan haak je 16-17-19-20-22-24 keer telpatroon A.7, enzovoort.

17.01.2021 - 19:44

country flag Gabriella wrote:

Buongiorno! chiedo ancora aiuto. ho finito di lavorare lo sprone (taglia L) e mi ritrovo con 199maglie alte /catenelle. iniziando a lavorare il motivo traforato mi trovo in difficoltà quando arrivo alle 8 catenelle per lo scalfo: su di esse va eseguito A1? in tal modo sarebbero 180 maglie date dalle 30 ripetizioni di A1+7 per A2 e 12 per i bordi. poi per la lavorazione della manica cosa si intende per fare la maglia bassa nella quinta catenella? grazie mille

20.05.2020 - 18:53

DROPS Design answered:

Buongiorno Gabriella. Lavora il motivo traforato come segue: a1 (bordo=6m), A2 30 volte (comprese le 8 catenelle dello scalfo), A3 (7m), A4 (bordo=6m). In tutto 199 m. Per la manica, inizia fermando il filo con 1 maglia bassa nella 5a delle 8 catenelle avviate per lo scalfo e poi prosegue come indicato. In questo modo la manica viene lavorata a partire dal centro, sotto la manica. Buon lavoro!

21.05.2020 - 08:49

country flag Gabriella wrote:

Grazie! quindi per la taglia M aumento 5 maglie ,per la Large 3 poi per la M aumento 10 ,per la L 6 e per la XXXl 4????

14.05.2020 - 11:37

DROPS Design answered:

Buongiorno Gabriella, si è corretto. Tenga conto che per la taglia M inizia con lo stesso numero di maglie della S, e alla fine della prima parte di aumenti arriverà allo stesso numero di maglie della taglia L. Poi procederà in modo più equilibrato. Buon lavoro!

14.05.2020 - 12:46

country flag Gabriella wrote:

Buongiorno, sono una principiante ed ho avuto modo di apprezzare i video e le indicazioni che accompagnano i vostri modelli, tutti molto utili. grazie mi sto cimentando usando uncinetto 4,5 e Cotton Merino Drops con il modello 176/17 taglia M, ma c'è un errore di stampa negli aumenti dello sprone ? non mi sembra coerenza con le misure delle altre taglie

14.05.2020 - 10:15

DROPS Design answered:

Buongiorno Gabriella, non ci sono errori nelle istruzioni, proceda pure come indicato. Buon lavoro!

14.05.2020 - 10:36

country flag Evelyn Krebs wrote:

Bei 217 Maschen habe ich 34 mal Muster A2 ist das richtig?

09.05.2019 - 06:58

DROPS Design answered:

Liebe Frau Krebs, in die 4. Größe häkeln Sie: A.1 ( = 6 M), A.2 (= 6 M) x 33, A.3 (= 7 M) x 1 und A.4 (= 6 M), dh Sie haben nur 33 x A.2 + 1 x A.3 aber es sind insgesamt 34 Muster-Rapporte / Fächer in der Breite. Viel Spaß beim häklen!

09.05.2019 - 10:56