DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 156-37
DROPS Design: Mynstur nr mb-016
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L – XL/XXL - XXXL

Efni:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio
750-800-950-1050 gr litur nr 10, dökk fjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf sléttprjón verði 10 x 10 cm eða 17 l og 33 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL nr 4 – fyrir hneslu.
DROPS PERLUTALA, NR 522: 1 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf slétt og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. að prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan), svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð í hring frá miðju að aftan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 7 l með Big Merino og skiptið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 5. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT eru prjónaðar 2 l sl í hverja l = 14 l. Setjið 7 prjónamerki í stykkið með 2 l millibili. 1. prjónamerki = byrjun á umf = aftan í hnakka. Prjónið 1 umf br. Í næstu umf er prjónað slétt, JAFNFRAMT eru prjónaðar 2 l í aðra hverja l = 21 l. Prjónið 1 umf br. Í næstu umf er prjónað sl með 2 l í 3. hverja l = 28 l. Prjónið 1 umf br. Prjónið síðan eftir A.1, prjónið 1 mynstureiningu yfir 4 l á milli hverra prjónamerkja. Þegar A.1 hefur verið prjónað er haldið áfram eftir A.2. Eftir A.2 er haldið áfram með mynstur A.2 alveg eins með 7 útaukningar í annarri hverri umf, útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 eftir þörf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17-18-19-20 cm frá miðju eru prjónaðar 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir allar l. ATH! Haldið áfram með útaukningu í annarri hverri umf, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir hvert prjónamerki (= 7 útaukningar).
Næsta umf er prjónuð slétt þannig: Prjónið 25-27-29-31 l, fellið af 32-34-37-40 l (= handvegur), prjónið þar til 57-61-66-71 l eru eftir á prjóni, fellið af 32-34-37-40 l (= handvegur) og prjónið 25-27-29-31 l. Prjónið 1 umf br – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 32-34-37-40 nýjar l yfir hvorn handveg jafnmargar l og felldar voru af fyrir handveg. Prjónið 8 umf garðaprjón. Haldið áfram með A.2 og útaukningar í 4-5-7-9 cm, prjónið 10 umf garðaprjón með útaukningu, prjónið A.2 með útaukningu í 13-16-18-20 cm, endið á 10 umf garðaprjón með útaukningu – stykkið mælist nú ca 45-50-55-60 cm frá miðju og út. Fellið LAUST af.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 44-46-48-50 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 5 með Big Merino, prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umf = ranga). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.3A (= 2 l), A.3B þar til 3 l eru eftir, endið á A.3C (= 2 l) og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 17 cm eru prjónaðar 6 umf garðaprjón. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING, endurtakið útaukningu með 3½-3-2½-2 cm millibili alls 9-10-12-15 sinnum = 62-66-72-80 l. Þegar stykkið mælist 52 cm í öllum stærðum er fellt af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: 5 l 1 sinni, síðan 2-2-3-3 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 60 cm – ATH! Fyrir stærð XL-XXL fellið af 3 l einungis 6 sinnum í hvorri hlið, síðan 2 l. Fellið af þær l sem eftir eru.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju. Saumið ermar í þannig að miðjan á ermakúpu er staðsett þar sem handvegur er stystur frá hvor öðrum (þ.e.a.s. þar sem 1. l var felld af í fyrri handvegi og þar sem síðasta l var felld af í seinni handvegi) og ermasaumar koma þar sem handvegurinn hefur lengsta bil frá hvor öðrum (þ.e.a.s. í gagnstæðri hlið – sjá mynsturteikningu).

TALA OG HNESLA:
Leggið peysuna niður eins og útskýrt er í mynsturteikningu með réttu upp og ermarnar beint út, saumið tölu í vinstri hlið beint undir ermi frá réttu. Heklið 1 hneslu með heklunál nr 4 í affellingarkantinn beint undir ermi í hægri hlið þannig: Heklið 1 fl í affellingarkantinn á peysunni, 5 ll, hoppið yfir ca 1 cm og festið með 1 fl í affellingarkantinn.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = miðja
symbols = staðsetning á tölu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Pavlína wrote:

Dobrý den, sháním návod na takovýto svetr z šestiúhelníku, ale háčkovaný. Jednoduše dl. sloupky. Měli byste?? Děkuji

20.02.2019 - 20:17

DROPS Design answered:

Hi Pavlina, please look for crocheted circle jacket on the website. Happy crocheting!

25.02.2020 - 07:52

country flag Pavlína wrote:

Dobrý den, sháním návod na takovýto svetr z šestiúhelníku, ale háčkovaný. Jednoduše dl. sloupky. Měli byste?? Děkuji

20.02.2019 - 20:15

country flag Bernadette wrote:

Also, can I knit the sleeves on normal pointed needles? Why does the pattern ask for circular needles but knit back and forth? Could this be worsening the distortion? Thanks for your help again!

24.09.2017 - 23:06

DROPS Design answered:

Dear Bernadette, the sleeves are knitted with circulars to have the number of stitches comfortably fit onto the needle, but, if you prefer, you can knit them on straights. However, I do not think that the type of the needle you are knitting with affects the distortion. Happy Knitting!

25.09.2017 - 00:20

country flag Bernadette wrote:

I've ripped out the whole sleeve and started again with particular attention to tension. The stitches are neither increased not decreased but the distortion is still there. Please can I check that I've interpreted the pattern correctly? A3 is worked as follows: 1 edge stitch,knit 2 together (k2t) yarn over (YO), k2t, YO etc ending in k2t, YO, edge stitch. Knit row. 1 edge stitch, knit 1, k2t, YO, k2t, YO etc, ending in YO knit 1, edge stitch. Is that right?

24.09.2017 - 23:01

DROPS Design answered:

Dear Bernadette, sorry to hear you are still having troubles with the sleeve. You read the pattern correctly, however the second row is a purl row (from the wrong side, the diagram shows every row from the right side). And please do try to block the piece out (wet and pin into shape, then let it dry). I hope this helps. Happy Knitting!

25.09.2017 - 00:17

country flag Jana wrote:

Prosím o radu - nedaří se mi při nahození 7 ok na ponožkové jehlice vytvořit úplet bez díry uprostřed. Přitom u všech návodů modelů pletených touto technikou vidím fotky zad bez sebemenší dírky a beze stopy sešívání... Jak na to? Neexistuje nějaký videonávod?

24.09.2017 - 19:42

DROPS Design answered:

Milá Jano, zkuste nahození pomocí "kouzelného kroužku", stahovací smyčky, jejíž pomocí si otvor můžete stáhnout podle potřeby. Tato technika je snadná a hojně využívaná při háčkování, stejně dobře ji ale můžeme použít i u pletených modelů - jako zrovna u tohoto svetru. Podívejte: Tuto video-ukázku - spolu s dalšími pomocnými ukázkami - najdete v záložce "Video" vedle hlavní fotky modelu. Hodně zdaru! Hana

24.09.2017 - 20:54

country flag Bernadette wrote:

Please help! I have completed the main body of the garment, which is fine. However the sleeves are completely out of shape - it looks as though there is a consistent increase on one side and a decrease on the other! I don't think it is the tension. Rather than a rectangle, it looks like a parallelogram! The pattern looks right and I have definitely not added or dropped any stitches. When I fold in two to stitch together, the seams don't match.

16.09.2017 - 19:54

DROPS Design answered:

Dear Bernadette, the sleeves should be more or less symmetric, when folded. Granted that the ajour pattern has a tendency to slightly distort the shape, but if you look at the dieagram, there is equal number of decreases and increases, the number of stitches do not chnage. Try to wet-block the piece and pull it into shape, while it is wet. I hope this helps. Happy Knitting!

17.09.2017 - 23:46

country flag Bernadette Buckley wrote:

After casting off and then on again to make the armholes, do I YO after every 7 markers as previously? The pattern doesn't say to do this. Also when casting off, the pattern says that 57 stitches should remain "on the needle". Is this a mistake? (Circular needles are being used here. Does it mean ' 57 stitches should remain AT THE END OF THE ROW? The wording is very unclear!

01.07.2017 - 20:00

DROPS Design answered:

Dear Mrs Buckley, correct, 57 sts should remain before end of round, then continue pattern as before with YOs to inc circle. Happy knitting!

03.07.2017 - 09:28

country flag Anne wrote:

Chart A2 has YO at the beginning and end of each repeat. This is 2YO next to each other. Working the following row, you lose one of the YO and end up not increasing and one big hole. Could you please explain how to work this to stay in pattern and keep the increase?

27.10.2015 - 17:10

DROPS Design answered:

Dear Anne, diagram A.2 starts with K1 on every round (first st in A.2 = white square in the column at the right side). Read more about diagram here. Happy knitting!

28.10.2015 - 11:19

country flag Kerstin wrote:

Hallo liebes Drops-Team, jedesmal bewundere ich Eure schönen Kreisjacken, sowie auch dieses Model. Gestrickt habe ich noch keine, weil ich schon beim ermitteln der Grösse scheitere. Die angegebenen Masse sagen mir gar nichts!!?? Wie ermittele ich meine Grösse? Vielen Dank

19.08.2015 - 14:21

DROPS Design answered:

Liebe Kerstin, dann wählen Sie am besten die Grösse, die Sie üblicherweise tragen. Die Zahlen sind die cm-Angaben an der Stelle, an der sie eingezeichnet sind. Vielleicht kann Ihnen jemand beim messen helfen.

19.11.2015 - 17:42

country flag Elena wrote:

Grazie mille, ci riprovo!

29.12.2014 - 16:51