DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Shining Star

Hekluð peysa úr DROPS Merino Extra Fine með gatamynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL.

DROPS 157-18
DROPS Design: Mynstur nr me-069
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
550-650-700-750-800-900 gr litur nr 08, ljós beige

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 14 st verði 10 cm á breiddina eða A.2 verði 7,5 cm á breiddina.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.3

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Heklið 83-87-93-101-111-121 ll með heklunál nr 5 með Merino Extra Fine.
Heklið nú frá réttu þannig: Heklið A.1 – sjá MYNSTUR að ofan, yfir fyrstu 8 ll, ATH: 1. st er skipt út fyrir 3 ll – sjá HEKLLEIÐBEININGAR að ofan, A.2 yfir næstu 12-12-12-12-24-24 ll, A.3 yfir næstu 5 ll, 1 st í hverja af næstu 4-6-9-13-6-11 ll, A.1, A.2, A.3, 1 st í hverja og eina af næstu 4-6-9-13-6-11 ll, A.1, A.2 yfir næstu 12-12-12-12-24-24 ll og A.3.
Endurtakið síðan A.z á hæðina til loka.

ATH: Í 1. umf í A.z (= frá röngu) heklið nú þannig: Heklið A.3, A.2 1-1-1-1-2-2 sinnum á breiddina, A.1, 3 ll (koma í stað 1 st), 1 st í hvern af næstu 2-4-7-11-4-9 st, 3 ll (koma í stað 1 st), 1 fl í næstu l, A.3, A.2, A.1, 3 ll (koma í stað 1 st), 1 st í hvern af næstu 2-4-7-11-4-9 st, 3 ll (koma í stað 1 st), 1 fl í næstu l, A.3, A.2 1-1-1-1-2-2 sinnum á breiddina og A.1.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

Þegar stykkið mælist ca 45-46-47-48-49-50 cm – stillið af að endað er með umf 2 í A.z – klippið frá. Heklið síðan ermar þannig: Heklið 29 lausar ll, byrjið frá röngu og haldið áfram með A.3, A.2 og A.1 og st yfir bakstykki eins og áður og endið á 31 lausum ll, snúið við. Heklið nú umf 1 af A.1-A.3 yfir ll frá réttu, JAFNFRAMT er haldið áfram með mynstur yfir bakstykki eins og áður (þ.e.a.s. heklið umf 7 af A.z yfir þessar l) þannig:

Heklið 1 st í hverja af fyrstu 6 ll, A.1 yfir næstu 8 ll, A.2 2 sinnum á breiddina (þ.e.a.s. síðustu A.2 eru heklaðar yfir síðustu 5 ll, heklið síðan afganginn af A.2 yfir A.1), heklið A.2 1-1-1-1-2-2 sinnum á breiddina eins og áður, A.3, 1 st í hverja af næstu 4-6-9-13-6-11 st, A.1, A.2, A.3, 1 st í hverja af næstu 4-6-9-13-6-11 st, A.1, A.2 1-1-1-1-2-2 sinnum á breiddina, heklið síðan A.2 2 sinnum á breiddina (þ.e.a.s. í fyrstu A.2 er heklað yfir A.3 og næstu 6 ll), A.3 yfir næstu 5 ll og 1 st í hverja af síðustu 6 ll. Haldið áfram eð þetta mynstur þar til stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm – passið að enda með umf frá röngu. Heklið nú hvora öxl/ermi til loka fyrir sig.

HÆGRI ÖXL / ERMI:
Heklið 6 st, A.1 1 sinni og A.2 3-3-3-3-4-4 sinnum, A.3, 1 st í hvern af næstu 4-6-9-13-6-11 st. Snúið við og heklið mynstur eins og áður. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist alls 64-66-68-70-72-74 cm, passið að enda á heilli mynstureiningu í A.z. Klippið frá og festið enda.

VINSTRI ÖXL / ERMI:
Heklið á sama hátt og hægri öxl / ermi, nema spegilmynd, heklið A.1 í stað A.3 í byrjun umf.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 63-65-70-74-81-86 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 5 með Merino Extra Fine. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 st í hverja af næstu 5-5-7-7-9-9 ll (= kantur að framan), A.1 yfir næstu 8 ll, A.2 yfir næstu 12 ll, A.3 yfir næstu 5 ll, 1 st í hverja af næstu 4-6-9-13-6-11 ll, A.1 yfir næstu 8 ll, A.2 yfir næstu 12-12-12-12-24-24 ll, A.3 yfir síðustu 5 ll. Síðan er A.z endurtekið á hæðina til loka.

ATH: Í umf 1 í A.z (= frá röngu) er heklað þannig: Heklið A.3, A.2 1-1-1-1-2-2 sinnum á breiddina, A.1, 3 ll (koma í stað 1 st), 1 fl í næstu l, 1 st í hverja af næstu 2-4-7-11-4-9 st, 3 ll (koma í stað 1 st), A.3, A.2, A.1, 3 ll (koma í stað 1 st), 1 fl í næstu l, 1 st í hverja af næstu 5-5-7-7-9-9 st.

Þegar stykkið mælist ca 45-46-47-48-49-50 cm – passið að enda á umf 2 í A.z. Klippið frá. Heklið nú 29 lausar ll fyrir ermi og haldið síðan áfram á sama hátt og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm, stillið af að endað er á heilli mynstureiningu í A.z (þ.e.a.s. síðasta umf er frá réttu) – klippið frá. Heklið síðan sjalkraga.

SJALKRAGI:
Heklið sjalkraga fram og til baka með byrjun frá réttu þannig: Heklið 1 st í hvern af 6-6-8-8-10-10 fyrstu st, 1 st í fyrsta st í A.1, * 3 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, 1 st í næsta st, * 3 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, 1 st í síðasta st í A.3, 0-0-0-1-1-1 st í næsta st = 27-27-29-30-32-32 st.
Heklið síðan stuttar umf yfir kantlykkjur að framan þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): 5 fl, 5 hst, 17-17-19-20-22-22 st
UMFERÐ 2 (rétta): Heklið 1 st í hverja af 27-27-29-30-32-32 l.
Endurtakið þessar 2 umf þar til stykkið mælist ca 10 cm innst þar sem stykkið er minnst – stillið af að endað sé á umf 2 (rétta).
Klippið frá og festið enda.

VINSTRA FRAMSTYKI:
Heklið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Heklið eftir A.3 í stað A.1 í byrjun umf. Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm, passið á að enda á umf 2 í A.z, heklið nú eins og áður yfir framstykki frá röngu, fitjið síðan upp 31 lausar ll fyrir ermi. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm, passið á að enda á heilli mynstureiningu á A.z (þ.e.a.s. að síðasta umf sé frá réttu), heklið sjalkragann. ATH: Ekki þarf að klippa frá.

FRÁGANGUR:
Leggið framstykki ofan á bakstykki og heklið saman axlir þannig: 1 fl í gegnum bæði stykkin, * 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* meðfram allri öxlinni/ermi og endið á 1 fl. Heklið saman hliðar þannig: 1 fl, * 3 ll, 1 fl um ll-boga í næstu umf *, endurtakið frá *-* meðfram allri hliðinni og endið á 1 fl. Heklið saman undir ermum þannig: * 1 fl um ll í næsta ll-boga, 3 ll *, endurtakið frá *-* og endið á 1 fl.
Heklið kragann saman við miðju að aftan þannig: 1 fl, * 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*. Saumið kraga við hálsmál.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.08.2014
undir HÆGRA FRAMSTYKKI (á að vera st, ekki ll): ATH... í hvern af næstu 2-4-7-11-4-9 st... og ... í hvern og einn af næstu 5-5-7-7-9-9 st.
Yfirfarið á vefsvæði: 24.09.2014
FRÁGANGUR: Neðst... Heklið kragann saman fyrir miðju að aftan þannig: 1 fl, * 1 ll, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*. Saumið kragann við hálsmálið.
Yfirfarið á vefsvæði: 22.01.2016
Búið er að bæta inn: 1 fl í næstu l á tveimur stöðum undir ATH (á BAKSTYKKI og HÆGRA FRAMSTYKKI).

Mynstur

symbols = 1 ll
symbols = 1 kl í l
symbols = 1 kl um ll-boga
symbols = 1 st um ll-boga
symbols = 1 st í l
symbols = Heklið 1 st en bíðið með að draga bandi í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu l, en nú er dregið í gegnum allar 3 l á heklunálinni.
symbols = Heklið 1 st en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu l en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu l en nú er bandið dregið í gegnum allar 4 l á heklunálinni.
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (199)

country flag Lana Dommer Bloedow wrote:

Como se faz a gola xaile Explicação simples e fácil de entender.

28.09.2022 - 20:22

country flag Lana Sommer Obrigafs wrote:

Explicar melhor como se faz a gola. Talvez tirar uma foto bem aberta, para poder ver os pontos feitos. Gosto de fazer vendo o modelo pronto, copiando os pontos. Se possível, me orientem? Obrigada!

28.09.2022 - 20:13

country flag Ambra Gregorio-Bäthge wrote:

Mi la persona che scrive le spiegazioni di questo bel cardigan è VERAMENTE competente? Vorrei tanto iniziare questo bellissimo lavoro, ma 19 pagine di risposte a richieste di ulteriori spiegazioni oltre a quelle iniziali, mi fanno pensare che sia un'impresa forse troppo difficile per me, benché io lavori all'uncinetto da più di 40 anni! In tutti questi anni di esperienza, ho notato che se un lavoro è BEN SPIEGATO, non è necessario chiedere aiuto "perché non si capisce"... 👎 😬

01.04.2022 - 04:44

country flag Frédérique wrote:

C’est bon, j’ai trouvé mon erreur! Le A2 de la deuxième série se fait une fois sur 12 mailles et non 2 fois sur 24 mailles. Ce sont les 12 mailles qui me manquaient. :)

18.11.2021 - 00:04

country flag Frédérique wrote:

Bonjour, j’ai déjà un problème dès le 1er rang du dos. J’ai monté 111 mailles pour la taille XXL, mais cela ne suffit pas. Il en faudrait 123 selon mes calculs: A1+A2+A3+6B+A1+A2+A3+6B+A1+A2+A3= 8 + 24+ 5 + 6B+ 8+24+5+6B+8+24+5=123. Ou alors, j’ai mal compris. .. Merci de votre aide

17.11.2021 - 23:42

DROPS Design answered:

Bonjour Frédérique, crochetez ainsi vos 111 mailles en l'air: A.1 = 8 m, A.2 = 24 m, A.3 = 5 m, 6 brides, A.1 = 8 m, A.2 =12 m, A.3 = 5 m, 6 brides, A.1 = 8 m, A.2 = 24 m, A.3 = 5 m soit 8+24+5+6+8+12+5+6+8+24+5=111 mailles. En espérant que ceci puisse vous aider. Bon crochet!

18.11.2021 - 08:46

country flag Frances Miller wrote:

I know the back piece has instructions to make left shoulder and right shoulder but do you make the shoulder for the front pieces too?

13.11.2021 - 19:35

DROPS Design answered:

Dear Frances, since you have separate right and left pieces for the fronts, and the collar is knitted on, you will have instructions for increasin on the sleeves, and how to do the colar, but since there are no stitches cast off for the neckline, no need to mark the shoulders separately. Happy Stitching.

14.11.2021 - 00:27

country flag Saba Hatem wrote:

Hi,in written patren, in back piece, raw 9(,A.1, A.2 over the next 12-12-12-12-24-24 ch).I think a1 is incorrect and only a2 is correct،Is this true?

01.06.2021 - 05:55

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hatem, do you mean at the very beginning of back piece? Written pattern is correct, you start with A.1, then repeat A.2 a total of 2 or 4 times (see size), and finish with A.3 = that's the whole lace pattern to work - then you work these one more time at the end of the row. Happy crocheting!

01.06.2021 - 08:33

country flag Catherine wrote:

I love the look of the pattern but having to go back and forth between instructions and diagram over and over again is very annoying and confusing. If someone is going to write down a pattern they should do a complete job of one of the two. I can eventually figure it out but I’ve also been crocheting since I was 11 and I’m 64. If someone is fairly new to crochet having a pattern go back and forth like this would be super frustrating. I’d give up and use a better written pattern.

17.05.2021 - 03:36

country flag Anonym wrote:

Hur virkar man ett styckte, tex vänster framstycke spegelvänt? Om mönstret har var1, varv 2, varv 3. Där 2 och tre upprepas, fast spegelvänt?

10.05.2021 - 23:48

DROPS Design answered:

Hej, det er samme diagram og mønster, men for at det skal blive ens i hver side mod midt foran, hækles diagrammerne i omvendt rækkefølge på den venstre forstykke :)

11.05.2021 - 13:46

country flag Janet Hynes wrote:

I’d like to make Shining Star with long sleeves instead of 3/4 sleeves. I am making size XL, with under arm measurement of 45cm. Can you tell me how much to increase each side? thank you!

03.05.2021 - 08:00

DROPS Design answered:

Dear Janet, please understand that we cnnot modify and / or recalculate or patterns for every individual request, especially since used amount of yarn depends on a lot of things, including your own gauge. Happy Crafting!

03.05.2021 - 09:22