DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 152-43
DROPS Design: Mynstur nr li-050
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð:
Breidd: 140 cm.
Hæð: 98 cm.

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
500 gr litur nr 7219, ljós grænn
50 gr litur nr 0206, ljós beige

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 st á breidd og 8 st á hæð verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR - hringur:
Allar umf sem enda á 1 ll, enda þar á eftir með 1 kl (þ.e.a.s. umf 3, 6, 10, 14, 18 og 22 ).
Allar umf sem byrja á 4 eða fleiri ll enda á 1 kl í 3. ll.

HEKLLEIÐBEININGAR – hálfur hringur:
Allar umf frá og með umf 2 í hálfum hring byrja á 1 ll, hoppið yfir 1 st frá fyrri hring, 1 kl aftan í lykkjubogann á næsta st frá fyrri hring og endið þannig: Hoppið yfir 1 st frá fyrri hring, 1 kl aftan í lykkjubogann í næsta st.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er heklaður hringur, síðan er heklaður hálfur hringur meðfram hringnum. Síðan eru heklaðir 3 minni hálfir hringir meðfram fyrsta hálfa hringnum með byrjun frá hring.

Allar umferðir / raðir eru útskýrðar að neðan en mynstureiningin er endurtekin mismunandi eftir hringjum. 1 mynstureining af A.1:

UMFERÐ 1: 1 st.
UMFERÐ 2: 1 ll, 1 st í fyrsta st.
UMFERÐ 3: 1 st um ll, 2 ll.
UMFERÐ 4: 1 ll, 3 st um ll-boga.
UMFERÐ 5: 1 ll, 1 st í fyrsta st, 2 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st.
UMFERÐ 6: 2 st um fyrsta ll-boga, 1 ll, 2 st um næsta ll-boga, 1 ll.
UMFERÐ 7: 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, 1 st um ll, 1 st í næsta st, 2 st í næsta st, 1 st um ll.
UMFERÐ 8: 3 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í næsta st, 3 ll, hoppið yfir 3 st, 1 st í næsta st.
UMFERÐ 9: 4 ll, 1 st í fyrsta st, 3 ll, 1 st í næsta st.
UMFERÐ 10: 4 st um ll-boga, 1 ll, 4 st um næsta ll-boga, 1 ll.
UMFERÐ 11: 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 3 st, 1 st um ll, 1 st í hvern af næstu 4 st, 1 st um ll.
UMFERÐ 12: 3 ll, hoppið yfir 2 st, 1 stí næsta st, 3 ll, hoppið yfir 3 st, 1 st í næsta st, 3 ll, hoppið yfir 3 st, 1 st í næsta st.
UMFERÐ 13: 4 ll, 1 st í fyrsta st, 3 ll, 1 st í næsta st, 3 ll, 1 st í næsta st.
UMFERÐ 14: 4 st um ll-boga, 1 ll, 4 st um næsta ll-boga, 1 ll, 3 st um næsta ll-boga, 1 ll.
UMFERÐ 15: 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, 2 st í næsta st, 1 st í næsta st, 1 st um ll, 1 st í hvern af næstu 4 st, 1 st um ll, 1 st í hvern af næstu 3 st, 1 st um ll.
UMFERÐ 16: 3 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í næsta st, 3 ll, hoppið yfir 3 st, 1 st í næsta st, 3 ll, hoppið yfir 3 st, 1 st í næsta st, 3 ll, hoppið yfir 3 st, 1 st í næsta st.
UMFERÐ 17: 4 ll, 1 st í fyrsta st, 3 ll, 1 st í næsta st, 3 ll, 1 st í næsta st, 3 ll, 1 st í næsta st.
UMFERÐ 18: 4 st um ll-boga, 1 ll, 4 st um næsta ll-boga, 1 ll, 3 st um næsta ll-boga, 1 ll, 3 st um næsta ll-boga, 1 ll.
UMFERÐ 19: * 1 st í hvern af fyrstu 4 st, 1 st um ll *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, 2 st í næsta st, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 1 st í ll, 1 st í hvern af næstu 3 st, 1 st um ll.
UMFERÐ 20: 3 ll, hoppið yfir 2 st, * 1 st í næsta st, hoppið yfir 3 st *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, 1 st í næsta st.
UMFERÐ 21: 4 ll, 1 st í fyrsta st, * 3 ll, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum.
UMFERÐ 22: * 4 st um ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, * 3 st um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum.
UMFERÐ 23: * 1 st í hvern af næstu 4 st, 1 st um ll *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, 1 st í hvern af næstu 3 st, 1 st um ll, 1 st í næsta st, 2 st í næsta st, 1 st í næsta st, 1 st í ll, 1 st í hvern af næstu 3 st, 1 st um ll.
UMFERÐ 24: 3 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í næsta st, * 3 ll, hoppið yfir 3 st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum.
UMFERÐ 25: 4 ll, 1 st í fyrsta st, * 3 ll, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum.

STÓR HRINGUR:
= 13 einingar af A.1. Heklið 6 ll með heklunál nr 4,5 með litnum ljós grænn, endið á 1 kl í fyrstu ll. Heklið síðan í hring – lesið HEKLLEIÐBEININGAR – hringur.
UMFERÐ 1-25: - sjá mynsturteikningu A.1 og útskýringu að ofan.
UMFERÐ 26: 3 ll, ** 4 st um fyrsta ll-bogann, 1 st í næsta st, 4 st um næsta ll-boga, 1 st í næsta st, * 3 st um næsta ll-boga, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 1 mynstureining (= 26 st) **, endurtakið frá **-** alls 13 sinnum = 338 st.
UMFERÐ 27: Klippið ekki frá (það er heklað með þræðinum héðan í HÁLFHRINGUR 1), en skiptið yfir í beige fyrir þessa umf. Heklið * 3 ll, hoppið yfir 1 st, 1 fl í fremri lykkjubogann í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 fl í síðasta st.

HÁLFHRINGUR 1:
Svona er hálfhringur 1 heklaður (= 8 einingar af A.1) fram og til baka meðfram kanti í 26. umf (þ.e.a.s. síðasta umf með litnum ljós grænn) á stóra hringnum og í allar l sem heklast niður í þessa umf er heklað aftan í lykkjubogann á st, það er heklað þannig:
UMFERÐ 1: Heklað er áfram með litnum ljós grænnm frá byrjun umf 26 á hring (þ.e.a.s. allar l sem heklaðar voru niður í umf 26 er heklað aftan í lykkjubogann á st) þannig: Heklið 8 st í 2. st í síðustu umf á hring, hoppið yfir 1 st, endið á 1 kl aftan í lykkjubogann á næsta st í hring.
UMFERÐ 2: - LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR – hálfhringur = 8 st og 8 ll.
UMFERÐ 3: 8 st og 16 ll.
UMFERÐ 4: 24 st og 8 ll.
UMFERÐ 5: 16 st og 24 ll.
UMFERÐ 6: 32 st og 16 ll.
UMFERÐ 7: 56 st.
UMFERÐ 8: 16 st og 48 ll.
UMFERÐ 9: 16 st og 56 ll.
UMFERÐ 10: 64 st og 16 ll.
UMFERÐ 11: 88 st.
UMFERÐ 12: 24 st og 72 ll.
UMFERÐ 13: 24 st og 80 ll.
UMFERÐ 14: 88 st og 24 ll.
UMFERÐ 15: 120 st.
UMFERÐ 16: 32 st og 96 ll.
UMFERÐ 17: 32 st og 104 ll.
UMFERÐ 18: 112 st og 32 ll.
UMFERÐ 19: 152 st.
UMFERÐ 20: 40 st og 120 ll.
UMFERÐ 21: 40 st og 128 ll.
UMFERÐ 22: 136 st og 40 ll.
UMFERÐ 23: 184 st.
UMFERÐ 24: 48 st og 144 ll.
UMFERÐ 25: 48 st og 152 ll.
UMFERÐ 26: ** 4 st um næsta ll-boga, 1 st í næsta st, 4 st um næsta ll-boga, 1 st í næsta st, * 3 st um næsta ll-boga, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 1 mynstureining (= 26 st) **, endurtakið frá **-** alls 8 sinnum = 208 st.
UMFERÐ 27: Klippið ekki þráðinn frá, heldur skiptið yfir í litinn beige fyrir þessa umf. Heklið 1 kl, * 3 ll, hoppið yfir 1 st, 1 fl framan í lykkjubogann á næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 fl í síðasta st.

HÁLFHRINGUR 2:
Í 26. umf af hálfhring 1 (þ.e.a.s. í síðustu umf af litnum ljós grænn) er þar sem næstu hálfhringir (bæði 2., 3. og 4. hálfhringar) byrja. Svona er hálfhringur 2 heklaður (= 6 mynstureiningar af A.1) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR – hálfhringur, allar l sem eru heklaðar niður i 26. umf er heklað aftan í lykkjubogann á st, það er heklað þannig:

UMFERÐ 1: Skiptið yfir í litinn ljós grænn. Heklið 1 ll, hoppið yfir 1 st í umf 26 á hálfhring 1, 1 kl aftan í lykkjubogann á næsta st, 6 st um sama st á hring eins og síðasta kl í hálfhring 1 er heklað í = 6 st, hoppið yfir 1 st, endið á 1 kl aftan í lykkjubogann á næsta st í hring.
UMFERÐ 2: = 6 st og 6 ll.
UMFERÐ 3: = 6 st og 12 ll.
UMFERÐ 4: = 18 st og 6 ll.
UMFERÐ 5: = 12 st og 18 ll.
UMFERÐ 6: = 24 st og 12 ll.
UMFERÐ 7: = 42 st.
UMFERÐ 8: = 12 st og 36 ll.
UMFERÐ 9: = 12 st og 42 ll.
UMFERÐ 10: = 48 st og 12 ll.
UMFERÐ 11: = 66 st.
UMFERÐ 12: = 18 st og 54 ll.
UMFERÐ 13: = 18 st og 60 ll.
UMFERÐ 14: = 66 st og 18 ll.
UMFERÐ 15: = 90 st.
UMFERÐ 16: = 24 st og 72 ll.
UMFERÐ 17: = 24 st og 78 ll.
UMFERÐ 18: = 84 st og 24 ll.
UMFERÐ 19: = 114 st.
UMFERÐ 20: = 30 st og 90 ll.
UMFERÐ 21: = 30 st og 96 ll.
UMFERÐ 22: = 102 st og 30 ll.
UMFERÐ 23: = 138 st.
UMFERÐ 24: = 36 st og 108 ll.
UMFERÐ 25: = 36 st og 114 ll.
UMFERÐ 26: ** 4 st um næsta ll-boga, 1 st í næsta st, 4 st um næsta ll-boga, 1 st í næsta st, * 3 st í næsta ll-boga, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 1 mynstureining (= 26 st) **, endurtakið frá **-** alls 6 sinnum = 156 st.
UMFERÐ 27: Klippið frá og skiptið yfir í litinn beige. Heklið 1 kl, * 3 ll, hoppið yfir 1 st, 1 fl framan í lykkjubogann á næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 fl í síðasta st.

HÁLFHRINGUR 3:
Hálfhringur 3 er heklaður eins og hálfhringur 2, en byrjið með að heklað frá hálfhring 1 þar sem hálfhringur 2 var heklaður í umf 26. (Það er heklað meðfram hálfhring 1 og 2, ekki í hringinn).

HÁLFHRINGUR 4:
Hálfhringur 4 er heklaður eins og hálfhringur 2, en byrjið með að hekla frá hálfhring 1 þar sem hálfhringur 3 var heklaður í umf 26. (Heklað er meðfram hlið meðfram hálfhring 1 og 3, ekki í hring).

Mynstur

symbols = 1 st
symbols = 1 ll
symbols = 1 kl
symbols = umf byrjar á 3 ll og endar á 1 kl í fyrsta st
symbols = síðasta umf er útskírð í mynstri
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 152-43

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (47)

country flag Beatriz Sánchez Cruz wrote:

Buenos días, no me aclaro a la hora de empezar los semicírculos, tengo el primero, por favor ahí algún vídeo q pueda ver o algo que me ayude, no se cómo engancharlos, no me aclaro muy bien con el patrón, gracias

22.04.2024 - 11:52

country flag Abby Wenderoff wrote:

How is this started and with how many stitches? Also is the pattern repeat done 13 times?

13.03.2024 - 18:52

DROPS Design answered:

Dear Mrs Wenderoff, for the large circle crochet as explained under LARGE CIRCLE, starting with a ring of chains and work as explained in A.1, repeating the diagram a total of 13 times from row 2, then work each half circle as explained in the written pattern. Happy crocheting!

14.03.2024 - 08:07

country flag Alessandra wrote:

Il grafico di questo scialle non è chiaro. Si potrebbe avere il grafico 'con le spiegazioni' per intero e non uno spicchio

28.09.2023 - 08:52

DROPS Design answered:

Buonasera Alessandra, purtroppo al momento è disponibile solo il grafico dello spicchio. Buon lavoro!

19.10.2023 - 23:35

country flag Alma wrote:

Rows 9 10 11 12 an so on are same amount of stitches. My circle looks like bowl.

12.10.2022 - 05:12

DROPS Design answered:

Dear Alma, on row 9 you should have *4 ch, 1 dc, 3 ch, 1 dc* (= 9 sts), repeat from *-*, on row 10: *4 dc, 1 ch, 4 dc, 1 ch* (= 10 sts), on row 11: *2 dc in 1 st, 1 dc in each of the next 9 sts* (= 11 sts); on row 12: *3 ch, skip 2 sts, 1 dc, 3 ch, skip 3 sts, 1 dc in next st, 3 ch, skip 3 sts, 1 dc in next st* (= 12 sts), on row 13: *4 ch, 1 dc in next dc, 3 ch, 1 dc in next dc, 3 ch, 1 dc in next dc* (= 13 sts), etc.. Hope it can help. Happy crocheting!

12.10.2022 - 09:32

country flag Alma wrote:

Question: why is it rows 9 10 11 12 and so are same amounts of stitches. My circle start to look like a hat ,.On circles always crochet next row with increasing stitches so it can be flat circle .

12.10.2022 - 05:10

country flag Mariangela wrote:

Salve, sto lavorando questo bellissimo modello, ma non mi è chiaro quale sia il motivo A1 e di conseguenza la lavorazione. Grazie

22.09.2022 - 16:29

DROPS Design answered:

Buonasera Mariangela, può trovare il motivo A.1 in fondo, scorrendo la pagina verso il basso. Buon lavoro!

22.09.2022 - 23:22

country flag Tessa wrote:

Waar is halve cirkel 5

29.06.2020 - 14:47

DROPS Design answered:

Dag Tessa,

Er is één hele cirkel en er zijn 4 halve cirkels (en geen 5). Je begint met de grote cirkels en daarna haak je de 4 halve cirkels eraan.

30.06.2020 - 15:15

country flag Birgit wrote:

Please consider adding a stitch count for completed rows of the first circle. Working from a chart is great, however the ability to double-check for accurate number of stitches would significantly enhance this (and other) pattern. Crocheting on a wing-and-a-prayer. Regards BR

21.06.2020 - 18:36

country flag Andrea Blazanovic wrote:

Hi, ich habe den Schal angefangen und es wäre sehr Hilfreich wenn man Maschenangsben pro Runde angegeben hätte, zum Nachzählen und Überprüfen. Ich musste mehrmals aufziehen da ich entweder zu viel oder zu wenige Machen hatte. LG

08.06.2019 - 09:25

Amerentia Van Der Kooij wrote:

I am considering to repeat row 22-25, as I am wondering if my whole circle is to small (52 cm, using a different yarn). What should the diameter be of the whole circle? Beautiful pattern! Thanks

07.08.2018 - 11:47

DROPS Design answered:

Dear Mrs Van Der Kooij, the tension in this pattern is 8 rows tr = 10 cm; the circle is 25 rounds, so that the diameter of the circle should be approximatively 63 cm. Note that if your circle is larger than in the pattern, you may have to make more adjustments later. Happy crocheting!

07.08.2018 - 15:18