DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6688.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Stormy Weather

Prjónuð peysa í garðaprjóni úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stærð S - XXXL.

DROPS 155-18
DROPS Design: Mynstur nr as-006
Garnflokkur C+C eller E
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
100-100-125-125-150-150 gr litur nr 01, natur
100-100-125-125-150-150 gr litur nr 04, ljós beige

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 9 – eða þá stærð sem þarf til að 10 l og 12 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með 2 þráðum.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6688.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚTAUKNING:
Auki út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju á hvorri hlið. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið laust upp 44-48-52-56-62-68 l á hringprjóna nr 9 með 1 þræði af hvorum lit. Prjónið nú GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-8-8-9-9-9 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið á stykkinu (hér byrjar klaufin). Þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm er fellt af fyrir handveg þannig. Fellið af 2-2-2-3-4-4 l í byrjun á næstu 2 umf = 40-44-48-50-54-60 l. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm eru felldar af miðju 10-10-12-12-14-14 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Fellið nú af 2 l í næstu umf frá hálsmáli = 13-15-16-17-18-21 l á hvorri öxl. Fellið LAUST af allar l þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm.

FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og bakstykki, en fellið af fyrir hálsmáli þegar stykkið mælist 51-53-55-56-58-60 cm þannig: Fellið af miðju 6-6-8-8-10-10 l fyrir hálsmál og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í hverri umf frá hálsmáli alls 4 sinnum = 13-15-16-17-18-21 l eftir á hvorri öxl. Fellið laust af þegar framstykki mælist 58-60-62-64-66-68 cm.

ERMI:
Fitjið laust upp 20-20-22-22-24-24 l á hringprjóna nr 9 með 1 þræði af hvorum lit og prjónið garðaprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 11-8½-8½-7-6½-5½ cm millibili alls 4-5-5-6-6-7 sinnum (alls = 5-6-6-7-7-8 sinnum) = 30-32-34-36-38-40 l. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi þegar hún mælist 50-49-49-47-45-43 cm (fyrir frágang). Þegar ermin mælist 52-51-51-50-49-47 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið laust af allar l.

FRÁGANGUR:
Saumið hægri axlasaum innan við affellingarkantinn.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu ca 50-60 l meðfram hálsmáli á hringprjóna nr 9 með 1 þræði af hvorum lit. Prjónið 4 umf slétt fram og til baka og fellið laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið vinstri axlasaum innan við affellingarkantinn og saumið saman hálsmál. Saumið ermar í, saumið ermasauma yst í lykkjubogann – ATH: Einingin sem prjónuð var eftir prjónamerki efst á ermi á að passa inn i affellingu fyrir handveg. Saumið hliðarsauma frá handveg niður að prjónamerki á bakstykki yst í lykkjubogann: Klauf = 8-8-8-9-9-9 cm.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (59)

country flag Geneviève wrote:

Guten Tag, bei der Halsblende für Größe M: wie kann man 50 bis 60 M auffassen wenn der Halsausschnicht insgesamt 28 M (14 M vorne und 14 M hinten) umfasst? Vielen Dank im Voraus für Ihre Antwort und viele Grüße Geneviève

26.02.2021 - 12:56

DROPS Design answered:

Liebe Geneviève, es müssen genügend Maschen um den Hals aufgefassen werden, damit der Halsausschnitt nicht zu eng wird. Gerne können Sie diese Maschenanzahl nach Wunsch umändern - beachten Sie nur, daß die Halsblende dann nicht zu eng wird.. Viel Spaß beim stricken!

26.02.2021 - 13:17

country flag Lise De Giorgi wrote:

Hejsa Vil gerne strikke denne i str. 1 år, kan i hjælpe med opskrift?

14.02.2021 - 20:26

DROPS Design answered:

Hei Lise. Vi har ikke denne oppskriften i str. 1 år. Men ta en titt på BABY Drops 36-13, småDROPS 26-11 eller DROPS Extra 0-941. Disse ligner, men må strikkes med 1 tråd DROPS Brushed AlpacaSilk. Husk å sjekke strikkefastheten din opp mot oppskriften. mvh DROPS design

15.02.2021 - 14:32

country flag Lise Henriksen wrote:

Hej. Jeg har lige lavet en strikkeprøve. Jeg får kun 9 cm. i bredden. Hvad gør jeg så? V.h. Lise H.

28.08.2020 - 09:38

DROPS Design answered:

Hej Lise, så prøver du med en tykkere pind :)

28.08.2020 - 15:52

country flag Lois wrote:

Hello, please could you advise me on what to do when it comes to casting off the shoulders after the neck? It says cast off 2 stitches on next row from neck, how do I cast off the last stitch when I need to keep knitting the 13 stitches after for the shoulder? Do I pull the yarn through the last stitch as normal with binding off then cut yarn and rejoin it to finish knitting the last 13 stitches please?

21.01.2020 - 18:41

DROPS Design answered:

Hi Lois, Cast off by passing the first stitch over the second (after they have been worked) and then the second stitch over the third. Then you can continue working the row without cutting the strand. Happy knitting!

22.01.2020 - 07:47

country flag Jean Hausgaard-Olesen wrote:

Hvis jeg strikker på pind 9 får jeg 12 masker på 9 pinde. Jeg kunne sikkert komme ned på 10 masker på en pind 10, men hvordan det skal blive 18 pinde på 10 masker forstår jeg ikke. Kan I hjælpe med at forklare det? Hvad er garnforbruget ca på denne opskrift?

19.01.2020 - 16:43

DROPS Design answered:

Hei Jean. Husk at denne genseren skal strikkes med 2 tråder og du skal ha på pinne 9, 10 masker i bredden og 18 pinner i høyden med rillestrikk på 10 x 10 cm. Garnforbruket finner du til høyre for / eller under bildet. Fod Fornøyelse!

27.01.2020 - 13:19

country flag Helene wrote:

Taille S - Devant Si je rabats 6 mailles au milieu cela devrait me donner 19 mailles de chaque côté pour les épaules. Donc si je rabats ensuite 1 maille x 4 (donc 4 mailles), cela devrait me donner 15 mailles (19-4=156) de chaque côté et non 13 mailles. Les mailles à rabattre (1 maille 4 fois) Est ce qu'on les rabats pour le col (donc au milieu) ou pour les épaules (sur le côté) ? Ou dois-je rabattre 2 mailles pour le col et 2 mailles pour les épaules ?

28.08.2018 - 04:05

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, vous formez les emmanchures sur le devant comme pour le dos = il reste 40 m - 6 m pour l'encolure = 34 m soit 17 m pour chaque épaule = 4 fois 1 diminution pour l'encolure = 17-4= il reste 13 m pour l'épaule. Bon tricot!

04.09.2018 - 13:23

country flag Alexandra wrote:

Hej! Detta mönstret ser jättefint ut! Jag skulle dock vilja ha min tröja väldigt tun och luftig och undrar därför om det går att sticka den med bara en tråd? Hur gör jag isf? Tack på förhand!

23.04.2018 - 21:03

DROPS Design answered:

Hej Alexandra, som denna kanske: DROPS 95-30 se kommentarer om hur du konverterar till 1 tråd DROPS Brushed Alpaca Silk :)

24.04.2018 - 11:32

country flag Alexandra wrote:

Hej! Detta mönstret ser jättefint ut! Jag skulle dock vilja ha min tröja väldigt tun och luftig och undrar därför om det går att sticka den med bara en tråd? Hur gör jag isf? Tack på förhand!

23.04.2018 - 20:12

country flag Louise wrote:

Bonjour, je pense avoir la même question que la personne dans le dernier commentaire...mais je ne lis malheureusement pas le danois :) Je ne comprends pas les instructions suivantes : "À 43-44-45-46-47-48 cm de hauteur totale, rabattre pour les emmanchures 2-2-2-3-4-4 m au début des 2 rangs suivants = 40-44-48-50-54-60 m" Je tricote le modèle en L, je suis à 45cm, quelles sont les étapes ensuite ? Merci d'avance pour votre réponse, je débute...

15.02.2017 - 01:18

DROPS Design answered:

Bonjour Louise, en taille L, quand l'ouvrage mesure 45 cm, rabattez les 2 premières m au début du rang sur l'endroit, tricotez le rang jusqu'à la fin, tournez et rabattez les 2 premières m au début du rang suivant sur l'envers et continuez comme avant sur les 48 m restantes jusqu'à 59 cm où vous commencerez l'encolure. Bon tricot!

15.02.2017 - 09:41

country flag Olivia Barkmann wrote:

Hej. der står i opskriften: Når arb måler 43-44-45-46-47-48 cm lukkes der af til ærmegab således: Luk 2-2-2-3-4-4 m af i beg af næste 2 p = 40-44-48-50-54-60 m. Når arb måler 55-57-59-61-63-65 cm lukkes de midterste 10-10-12-12-14-14 m af til hals og hver skulder strikkes færdig for sig. det forstår jeg ikke hvordan man gør, eller hvordan det skal se ud.

07.02.2017 - 19:54

DROPS Design answered:

Hej Olivia. Hvis du strikker f.eks. str S har du 44 m paa pinden. Saa lukker du 2 m af i begyndelsen af de naeste 2 p = 40 m tilbage. Saa strikker du til 55 cm og saa lukker du de midterste 10 m af = 15 m paa hver skulder. Og til sidst lukker du 2 m af paa halssiden af hver skulder = 13 m tilbage. Du strikker skuldrene hver for sig. Haaber det hjaelper dig :)

08.02.2017 - 14:02