Winter Rose |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 150-1 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Prjónið mynstur A.1 til A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku á berustykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu. Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 l með því að taka upp l frá fyrri umf, prjónið l slétt. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 2, 9, 16, 23, 30, 37, 44, 51 og 58 cm. STÆRÐ M: 2, 9, 16, 23, 30, 37, 44, 52 og 60 cm. STÆRÐ L: 2, 10, 17, 25, 32, 40, 47, 55 og 62 cm. STÆRÐ XL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50, 57 og 64 cm. STÆRÐ XXL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50, 58 og 66 cm. STÆRÐ XXXL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50, 59 og 68 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 214-235-256-277-305-333 l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með litnum vínrauður. Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 l sl, 2 l br, 1 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* þar til 6 l eru eftir á prjóni og endið á 1 l sl og 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf frá réttu er öllum 3 l br fækkað í 2 l br = 185-203-221-239-263-287 l á prjóni. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 49-53-58-62-68-74 l inn frá hvorri hlið (= 87-97-105-115-127-139 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf br frá röngu með litnum vínrauður (kantur að framan í garðaprjóni). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir A.1 þar til 6 l eru eftir á prjóni, prjónið 1. l í A.1 (þannig að mynstrið verði alveg eins á báðum megin við miðju að framan) og endið á 5 kantlykkjum að framan. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram í sléttprjóni með litnum ljós grár (kantur að framan er áfram í garðaprjóni). Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 15 og 22 cm = 173-191-209-227-251-275 l. Þegar stykkið mælist 28 cm aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 2½-2½-3-3-3½-3½ cm millibili 2 sinnum til viðbótar (= alls 3 sinnum) = 185-203-221-239-263-287 l. Þegar stykkið mælist ca 35-36-37-38-39-40 cm – stillið af að næsta umf sé frá röngu, fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 77-87-95-103-115-127 l eftir á bakstykki og 44-48-53-56-62-68 l á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-56-56-63-63-63 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum vínrauður. Prjónið 1 umf slétt. Prjóni nú stroff þannig: * Prjónið 1 l sl, 2 l br, 1 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Þegar stroffið mælist ca 3 cm er fækkað öllum 3 l br til 2 l br = 48-48-48-54-54-54 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt með litnum vínrauður. Prjónið nú mynstur hringinn eftir A.1. Eftir A.1 er haldið áfram í sléttprjóni og ljós grár. Þegar stykkið mælist 8-9-6-9-12-10 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 2½-2-2-2-1½-1½ cm millibili, 12-14-16-14-16-18 sinnum til viðbótar (= alls 13-15-17-15-17-19 sinnum) = 74-78-82-84-88-92 l. Þegar stykkið mælist 41-41-40-40-39-39 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir miðju undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við prjónamerki) = 64-68-72-72-76-80 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón eins og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir ermar = 293-319-345-359-391-423 l. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Byrjið frá réttu og prjónið síðan sléttprjón með litnum ljós grár JAFNFRAMT í fyrstu umf er lykkjum fækkað hvoru megin við 4 prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-2 (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), 6-7-9-6-7-9 sinnum til viðbótar (= alls 7-8-10-7-8-10 sinnum) = 237-255-265-303-327-343 l. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umf br frá röngu (kantur að framan í garðaprjóni) JAFNFRAMT er fækkað um 10-4-14-4-4-20 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 227-251-251-299-323-323 l á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið eftir mynstri A.2 (veldu mynstur fyrir þína stærð) þar til 6 l eru eftir á prjóni, prjónið 1. l í A.2 (þannig að mynstrið verði eins báðum megin við miðju að framan) og endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur og úrtöku þar til A.2 hefur verið prjónað á hæðina = 146-161-161-179-193-193 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf slétt frá réttu með ljós grár JAFNFRAMT er fækkað um 30-39-39-45-47-47 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 116-122-122-134-146-146. Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjónið eins og áður, prjónið mynstur eftir A.3 þar til 6 l eru eftir á prjóni, endið á 1. l í A.3 og 5 kantlykkjum að framan eins og áður. Eftir A.3 er prjónuð 1 umf br frá röngu með litnum vínrauður. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og haldið áfram með litnum vínrauður þannig (1. umf = rétta): Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 6 l eru eftir á prjóni og endið á 1 l sl og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff – munið eftir síðasta hnappagatinu í hægri kanti að framan/hálsmál. JAFNFRAMT eftir 2 umf með stroff er prjónuð upphækkun við hnakka með stuttum umferðum þannig: Prjónið stroff (og kant að framan) eins og áður þar til 35-35-38-38-41-41 l er eftir, snúið við og prjóni stroff til baka þar til 35-35-38-38-41-41 l eru eftir í annarri hliðinni. Snúið við og prjónið stroff þar til 41-41-44-44-47-47 l eru eftir, snúið við og prjónið stroff til baka þar til 41-41-44-44-47-47 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið stroff þar til 44-44-47-47-50-50 l eru eftir, snúið við og prjónið stroff til baka þar til 44-44-47-47-50-50 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið stroff út umf. Haldið nú áfram með stroff fram og til baka yfir allar l eins og áður þar til stroffið mælist ca 3 cm þar sem það er minnst við miðju að framan. Í næstu umf frá réttu er öllum 2 l br fækkað í 1 l br (byrjið á 2 fyrstu l br á eftir kant að framan) = 98-103-103-113-113-123-123 l eftir á prjóni. Fellið nú laust af með sl yfir sl og br yfir br. Berustykkið mælist nú ca 25-26-27-28-29-30 cm með kanti í hálsmáli og öll peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (91)
Eli Heimen wrote:
Hei Jeg tror det må være feil i mønsteret, i teksten står det at det skal felles til ermehull når arbeider måler 39 cm, i str xxl, men på målskissen av jakken står det 68 cm til ermehull. Det er vel målskissen som er korrekt?
31.07.2014 - 21:42DROPS Design answered:
Hei Eli. Det er den totale højde der er 68 cm. Ærmegabet er heraf 29 cm = 39 cm når du lukker af for ærmegab.
04.08.2014 - 15:52Hanne wrote:
Er ikke så erfaren på større strikkeprosjekter, skal A1 strikkes med rett/vrang som en del av bolen, eller skal det være glattstrikk?
25.06.2014 - 20:10DROPS Design answered:
Hei Hanne. Du strikker A.1 paa bolen i glatstrik. Du er nu faerdig med din vrbord (altsaa ret/vrang).
26.06.2014 - 16:15Olga Guga wrote:
Me ha encantado realizar esta chaqueta. me ha quedado muy bien.Muchas gracias por vuestros patrones
12.04.2014 - 21:12Annie Egede wrote:
Hvad svarer størrelserne f.eks xxl til i cm. Det kunne være brystvidde og længde? Jeg har ikke kunne finde noget målskema nogen steder på jeres hjemmeside. Og det undrer mig.
04.03.2014 - 08:32DROPS Design answered:
Hej Annie. Der er en maalskitse nederst paa mönstret. Her finder du maal per störrelse i cm.
04.03.2014 - 14:53Hilde wrote:
Når jeg begynner på A2 så strikker jeg jo en pinne rett i grått først, så starter jeg på mønsteret. Blir det da å starte fra venstre i A2 med mønsteret?
29.01.2014 - 22:14DROPS Design answered:
Hej Hilde Ja, annenhver rad i diagr er vrang p, og då leses diagr fra venstre till höyre (og maskerne strikkes vrang).
06.02.2014 - 20:46Paris wrote:
I notice that all of drop patterns are done on double pointed needles can I knit on normal needles?
14.11.2013 - 11:59DROPS Design answered:
Dear Paris, double pointed needles are most of the time used to work in the round, if you rather like to work back & forth, add edge st for seams (this may require a bit more yarn - do not hesitate to contact your Drops store for further help). Happy knitting!
14.11.2013 - 13:26Nina wrote:
Jag ger upp!
12.11.2013 - 20:56Gunn wrote:
Hei.Det er samme diagram som var feil på, som ligger inne enda.
12.11.2013 - 18:04DROPS Design answered:
Jo, siksakken nederst i diagrammen er ændret i A.2 - S+M+L ! Du starter øverst i siksak-mønsteret i den ene side og du slutter øverst i siksak-mønsteret i den anden side.
13.11.2013 - 11:24Sara wrote:
5+(10x24)+6=251!
11.11.2013 - 18:38Gunn wrote:
Hei.Jeg kan ikke se at diagrammet er blitt rettet?
11.11.2013 - 17:57DROPS Design answered:
Jo det er det nye diagram som ligger inde på opskriften Det er nederst i diagrammet det er blevet ændret.
12.11.2013 - 09:31