DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 149-21
DROPS Design: Mynstur nr x-398
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22 - 24 - 27 cm

Efni:
DROPS ALASKA frá Garnstudio
200-200-250 gr litur nr 04, grár

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 fl á breidd og ca 20 umf á hæ verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLAÐ Í HRING:
Eftir síðustu fl í umf, haldið áfram að næstu umf með 1 fl í næstu fl (= fyrsta fl frá fyrri umf). ATH: Merkið byrjun umf með prjónamerki á milli síðustu fl í umf og fyrstu fl í næstu umf, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll.
Umferðin endar á 1 kl í ll frá byrjun fyrri umferðar.

ÚRTAKA:
Heklið 1 fl en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá tá og að hæl, síðan er heklað fram og til baka fyrir hæl.
Að lokum er stroff / leggur heklað frá hlið og stykkið heklað á sokkinn.

SOKKUR:
Heklið 4 l ll með heklunál nr 3,5 með Alaska og tengið saman í 1 hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 6-6-5 fl um hringinn – LESIÐ HEKLAÐ Í HRING!
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12-12-10 fl.
UMFERÐ 3 (og síðan í aðra hverja umf): Heklið 1 fl í hverja fl.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-6-5 sinnum = 18-18-15 fl.
UMFERÐ 6: * Heklið 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-6-5 sinnum = 24-24-20 fl.
UMFERÐ 8: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-6-5 sinnum = 30-30-24 fl.
UMFERÐ 10: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-6-5 sinnum = 36-36-30 fl. Útaukningu er nú lokið í stærð 35/37.
UMFERÐ 12: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 5 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-5 sinnum = 42-35 fl. Útaukningu er nú lokið í stærð 38/40.
UMFERÐ 14: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 6 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 40 fl.
UMFERÐ 16: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 7 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 45 fl. Útaukningu er nú lokið í stærð 41/43.
ALLAR STÆRÐIR:
= 36-42-45 fl í umf. Heklið í hring með 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist 14-16-18 cm. Heklið nú fl fram og til baka yfir fyrstu 24-30-32 fl (þ.e.a.s. ekki er heklað yfir síðustu 12-12-13 fl í umf) – lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Þegar sokkurinn mælist 20-22-25 cm (þ.e.a.s. ca 6-6-7 cm frá skiptingunni) setjið 1 prjónamerki í mitt stykkið (= 12-15-16 fl hvoru megin við prjónamerki). Í næstu umf er fækkað um 1 fl hvoru megin við prjónamerki, þ.e.a.s. byrjið 2 l á undan prjónamerki og heklið 4 næstu fl saman 2 og 2 – LESIÐ ÚRTAKA (= 2 fl færri). Heklið 1 umf án úrtöku. Endurtakið úrtöku í næstu umf (= 2 fl færri) = 20-26-28 l eftir í umf. Heklið 1 umf án úrtöku, sokkurinn mælist nú ca 22-24-27 cm frá tá og að hæl. Geymið stykkið.

STROFF / LEGGUR:
Stroff / leggur er heklað þannig: Heklið 33 lausar ll með Alaska og heklunál nr 3,5. Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, síðan 1 fl í hverja ll út umf = 32 fl. Heklið fram og til baka með fl einungis aftan í lykkjubogann þar til stykkið mælist 16-16-18 cm, passið uppá að langhliðin passi við opið á sokknum. Leggið stroff / legg og opið á sokknum saman og heklið saman frá röngu með einni umf kl í gegnum bæði stykkin, ATH – samskeytin á stroff / legg eiga að vera við miðju að aftan á sokknum.

FRÁGANGUR:
Snúið sokknum við, leggið hann saman og heklið saman bakhlið á stroff / legg frá röngu með einni umf kl í gegnum bæði stykkin. Klippið frá og festið enda.

Heklið annan sokk á sama hátt.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (62)

country flag Lilith wrote:

Moin, Ich weiß nicht ob die Frage blöd ist aber ich häkel noch nicht so lange. Wenn ich die 4 LM zu einem Ring gemacht habe und dann nach der ersten Runde 5 haben soll müsste ich doch einen Increase machen oder sehe ich das falsch? Vielleicht verstehe ich auch etwas falsch xD Danke achonmal für die hilfe

29.12.2023 - 00:50

DROPS Design answered:

Liebe Lillith, es wird ab 2. Runde und jede 2. Runde zugenommen, so nach 2. Runde sind es 12-12-10 fM, nach 4. Runde 18-18-15 fM. Jede ungerade Runde häkeln Sie einfach ohne Zunahme. Viel Spaß beim häkeln!

02.01.2024 - 10:13

country flag Zizzi wrote:

Hej! Ska skaftet monsteras från mitt bak. på hällappens ena sida, över vristdelen på foten och sist över hällappens andra sida? OM då räcker skaftets 16 cm ( Enl mönstret) inte till. Når bara över ena sidan hällapp + vristdel. Ska jag lägga till maskor (många?) eller har jag förstått fel? Finns det någon monteringsanvisning, som klart och tydligt visar hur fot och skaft ska monsteras? (inte hur man virkar ihop 2 stycken). Tacksam för svar Zizzi

14.10.2023 - 14:57

DROPS Design answered:

Hei Zizzi. Skaftet er heklet som en vrangbord og er ganske elastisk, så når du skal hekle skaftet og sokkens åpning sammen, dra litt i skaftet. Vi har dessverre ingen video på hvordan det gjøres, men håper vi kan få laget en i nær fremtid. mvh DROPS Design

23.10.2023 - 11:13

country flag Erik wrote:

So i am at the "all sizes" part. and i am supposed to place a marker with 15 sc on each side of it. but there is not one stitch that i can place them in. Because there is 30 sts. so im supposed to put the marker between st. 15 and 16? Then it says 1 sc dec on each side of marker. but how do i travel from one side of the marker to the other?

26.09.2023 - 15:08

DROPS Design answered:

Dear Erik, if you have 30 sc, you should insert the marker after the 15th stitch and then, crochet 2 sc together on each side of this marker: work 1 sc in each sc until 2 sts remain before marker, crochet 2 sc together, (marker), crochet 2 sc together, work to the end of the row. = you have decreased 2 sts. Work 1 row without decreasing and repeat the decrease row one more time the same way. Happy crocheting!

26.09.2023 - 15:22

country flag Simone wrote:

Hej igen. Det jeg mente med mit spørgsmål, var ikke hvordan man hækler sammen, men hvordan skal skaftet side på selve foden? Kan ikke få det til at se rigtigt ud.

12.09.2023 - 11:09

DROPS Design answered:

Hei Simone. Jo, når du har heklet ferdig skaftet har det en form som et det rektangel. Åpningen på skaftet skal være midt bak på sokken/hælen. Avpass slik at den ene langsiden på skaftet passer med åpningen bak på sokken/hælen. Legg skaftet og sokkens/hælens åpning mot hverandre og hekle sammen fra vrangen med en rad kjedemaske gjennom begge lag (både skaftet og sokken). Åpningen på skaftet skal være midt bak på sokken. mvh DROPS Design

18.09.2023 - 11:32

country flag Simone wrote:

Hej.. Jeg forstår ikke hvordan jeg skal sætte skaftet på hele sokken?

06.08.2023 - 13:07

DROPS Design answered:

Hej Simone, se videoen nederst i opskriften hvordan man hækler dele sammen :)

10.08.2023 - 14:04

country flag Yiqi Huang wrote:

Dear Drops Team, I think there must be something wrong with the leg design. If done according to the instructions, the piece would measure 16x17 cm, but neither side would fit the opening on the sock or anyone’s calf… I see that many people already raised this question, please review your instructions and correct it so no more people will be confused. Thanks for the great pattern otherwise!

16.07.2022 - 16:06

DROPS Design answered:

Dear Mrs Huang, the leg is worked sideways, you crochet for 16-16-18 cm (around leg) - adjust if necessary this length so that it fits the foot, but remember, it should be somewhat tighten around the leg to fit. Happy crocheting!

01.08.2022 - 10:16

country flag Vicky wrote:

Eg slite litt med å forstå at denne oppskrifta tilsvare det som visast på biletet. Og for ein nybegynnar så ser eg no at denne oppskrifta i grunn er veldig vanskeleg. Når eg heklar no så bli ikkje hæl-delen det slag det same som visast på biletet. Kva er grunn til at de ikkje har betre videoar evt bilete som visar denne oppskrifta. Har funne oppskrift andre stader og det er forklaring og bilete veldig mykje betre enn det eg har erfart her.

27.03.2022 - 21:44

DROPS Design answered:

Hej Vicky, dejligt at høre at du har fundet ud af opskriften ved hjælp af andre videoer. Vi skriver en video af denne på ønskelisten til en anden gang. God fornøjelse!

30.03.2022 - 15:04

country flag Heilie Steeneveld wrote:

Ik heb deze sokken met wol besteld maar ik heb wol tekort . Kan ik dit bij bestellen? En de kleur is grijs/ blauw. Ik hoop dat u kunt achterhalen welke wol het was

09.10.2021 - 13:34

DROPS Design answered:

Dag Heilie,

Voor vragen over het bestellen van bollen garens in specifieke kleurnummers en verfbaden kun je het beste terecht bij je verkooppunt. Zij kunnen je wellicht verder helpen om het juiste kleurbad te vinden.

16.10.2021 - 13:52

country flag Anne wrote:

Je veux débuter un de vos patron et je ne comprend pas votre expressions pour 6-6-5 mailles serrer dans le rond pour travailler en spirale pouvez vous m’aider

09.02.2021 - 23:52

DROPS Design answered:

Bonjour Anne, vous crochetez au 1er tour soit 6 ms soit 5 ms selon la taille, puis, avant de commencer le 2ème tour, mettez un fil marqueur après la dernière maille serrée du tour 1 et donc juste avant la première maille du tour 2 et crochetez ensuite 2 ms dans chaque ms, à la fin de chaque tour, mettez bien le marqueur entre la dernière m du tour et la première du tour suivant pour bien repérer le début des tours. Bon crochet!

10.02.2021 - 07:00

country flag Miriam De Bie wrote:

Waarom haak je 4 lossen in het begin en dan 6 v in lossenring? Op welk gedeelte van patroon heeft dit betrekking: INFORMATIE VOOR HET HAKEN: Vervang eerste v aan het begin van elke v toer door 1 l. Eindig elke toer met 1 hv in l van het begin van de toer?

08.02.2021 - 20:22

DROPS Design answered:

Dag Miriam,

De vier lossen in het begin haak je samen tot een ring en in de lossenring haak je dan weer de 6 vasten. De 4 lossen heb je dus nodig als basis om de vasten in te haken. De informatie voor het haken heeft betrekking op elke toer, dus in plaats van een vaste in de eerste vaste te haken, haak je een losse en sla je de eerste vaste over. Je sluit de toer af door een halve vaste in die eerste vaste te haken.

23.02.2021 - 14:07