DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11968.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 141-19
DROPS Design: Mynstur nr ne-083
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
850-950-1000-1100-1250-1350 gr litur nr 4311, grár/fjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 6 – eða sú stærð sem þarf til að 16 l og 19 umf með mynstri verði 10 x 10 cm og 15 l og 19 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – fyrir stroff.
DROPS HORNATALA, NR 537: 2 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11968.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá teikningu A.1 til A.7. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Veljið mynstur fyrir rétta stærð.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu þannig:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki. Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

LEIÐBEININGAR (á við um kant að framan):
Til að kantur að framan verði ekki of stífur að framan eru prjónaðar stuttar umferðir yfir kant að framan í hverri umf merktri með ör í mynstri A.5/A.6 þannig: * Byrjið frá réttu á hægra framstykki (= miðja að framan), í umf merktri með ör í mynstri og prjónið 1 umf slétt yfir síðustu 16-16-18-18-22-22 l (= kantur að framan – aðrar l á prjóni eru ekki prjónaðar), snúið við, herðið á þræði og prjónið sl út umf, snúið við og prjónið 1 umf eins og áður (með garðaprjón og mynstri) yfir allar l, snúið við, prjónið 1 umf slétt yfir síðustu 16-16-18-18-22-22 l (= kantur að framan á vinstra framstykki – aðrar l á prjóni eru ekki prjónaðar), snúið við, herðið á þræði og prjónið sl út umf *, endurtakið frá *-* í hverri umf merktri með ör í mynstri.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir 2 hnappagötum í hægri kanti að framan þannig: Prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið síðan þar til 5 l eru eftir í kanti að framan, prjónið 2 næstu l slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 239-251-269-305-335-347 l (meðtaldar eru 16-16-18-18-22-22 l í kanti í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 5 með Nepal.
Prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-3-4-4-5-5 sinnum, 3 l sl, prjónið mynstur A.1 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 35-35-35-44-44-44 l), * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3-3-4-5 sinnum, 3 l sl, prjónið mynstur A.1 í stærð S + M + L (= 35 l) og mynstur A.2 í stærð XL + XXL + XXXL (= 44 l), * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-3-4-4-5-5 sinnum, 3 l sl, prjónið mynstur A.1 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 35-35-35-44-44-44 l), * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3-3-4-5 sinnum, 3 l sl, prjónið mynstur A.1 í stærð S + M + L (= 35 l) og mynstur A.2 í stærð XL + XXL + XXXL (= 44 l), * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-3-4-4-5-5 sinnum, 3 l sl og 3 kantlykkjur GARÐAPRJÓN. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 5 cm.
Skiptið yfir á hringprjóna nr 6 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið sl JAFNFRAMT er fækkað um 8-7-9-12-12-10- l jafnt yfir næstu 21-21-27-27-33-33 l, prjónið síðustu umf í A.3 yfir l frá A.1 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 9-9-9-10-10-10 l færri), prjónið sl JAFNFRAMT er fækkað um 5-7-7-7-11-11 l jafnt yfir næstu 15-21-21-21-27-33 l, prjónið síðustu umf í A.3 í stærð S + M + L yfir l frá A.1 (= 9 l færri) og síðasta umf í A.4 í stærð XL + XXL + XXXL yfir l frá A.2 (= 10 l færri), prjónið sl JAFNFRAMT er fækkað um 6-4-4-10-8-4 l jafnt yfir næstu 21-21-27-27-33-33 l, prjónið síðustu umf í A.3 yfir A.1 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 9-9-9-10-10-10 l færri), prjónið sl JAFNFRAMT er fækkað um 5-7-7-7-11-11 l jafnt yfir næstu 15-21-21-21-27-33 l, prjónið síðustu umf í A.3 í stærð S + M + L yfir l frá A.1 (= 9 l færri) og prjónið síðustu umf í A.4 í stærð XL + XXL + XXXL yfir l frá A.2 (= 10 l færri), prjónið sl JAFNFRAMT er fækkað um 8-7-9-12-12-10 l jafnt yfir næstu 21-21-27-27-33-33 l og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni = 171-183-197-217-241-261 l.
Prjónið 1 umf frá röngu með sl yfir sl og br yfir br, en þær 16-16-18-18-22-22 síðustu l í hvorri hlið eru prjónaðar slétt (= kantur að framan).
Prjónið nú mynstur með byrjun frá réttu – LESIÐ LEIÐBEININGAR þannig: Prjónið 16-16-18-18-22-22 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 0-1-3-0-2-4 l sléttprjón með rönguna út, prjónið mynstur eftir A.5 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 26-26-26-34-34-34 l), prjónið sléttprjón yfir næstu 10-14-14-14-16-22 l, prjónið A.5 í stærð S + M + L (= 26 l) og A.6 í stærð XL + XXL + XXXL (= 34 l), 0-1-3-0-2-4 l í sléttprjóni með rönguna út, prjónið mynstur A.7 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 15-15-17-17-21-21 l), 0-1-3-0-2-4 l sléttprjón með rönguna út, prjónið A.5 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 26-26-26-34-34-34 l), prjónið sléttprjón yfir næstu 10-14-14-14-16-22 l, prjónið A.5 í stærð S + M + L (= 26 l) og A.6 í stærð XL + XXL + XXXL (= 34 l) og endið með 0-1-3-0-2-4 l sléttprjón með rönguna út og 16-16-18-18-22-22 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 47-50-54-59-66-71 l inn frá hvorri hlið = 77-83-89-99-109-119 l á milli prjónamerkja. Haldið áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm fækkar um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 10-10-10-8-9-9 cm millibili, 3-3-3-4-4-4 sinnum til viðbótar = 155-167-181-197-221-241 l. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm fellið af fyrir 2 hnappagötum í hægri kanti að framan - sjá HNAPPAGAT í útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm fellið af fyrstu 15-15-17-17-21-21 l á prjóni, setjið 1 prjónamerki (prjónamerkið merkir hvar byrja á að prjóna upp kraga), prjónið út umf. Snúið við, fellið af fyrstu 15-15-17-17-21-21 l á prjóni, setjið 1 prjónamerki (prjónamerki merkir hvar enda á að prjóna upp kraga), prjónið út umf = 125-137-147-163-179-199 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm fellið af 2-4-4-4-6-8 l á hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 1-2-2-2-3-4 l hvoru megin við bæði prjónamerki) = 67-71-77-85-93-101 l á bakstykki og 27-29-31-35-37-41 l á framstykki. Hvor hluti er nú prjónaður til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 75-78-81-84-87-90 cm fellið af miðju 11-11-13-13-17-17 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 27-29-31-35-37-41 l eftir á prjóni. Prjónið nú áfram þar til stykkið mælist 77-80-83-86-89-92 cm og fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 77-80-83-86-89-92 cm – passið uppá að prjóna jafn langt eins og á bakstykki, fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring. Fitjið upp42-42-42-48-48-48 l á sokkaprjóna nr 5 með Nepal. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff (= 3 l sl, 3 l br). Þegar stykkið mælist 8 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 6. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 8-7-6-11-10-9 l jafnt yfir = 34-35-36-37-38-39 l. Prjónið nú sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki undir ermi. Endurtakið útaukningu með 13-10-7½-6-5-4 cm millibili, 3-4-5-6-7-8 sinnum til viðbótar = 42-45-48-51-54-57 l. Þegar stykkið mælist 52-52-51-50-48-45 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) prjónið stykkið til loka fram og til baka frá miðju undir ermi þannig:
Stærð S + M + L + XL: Fitjið upp 1 nýja l í hvorri hlið (= kantlykkja til að sauma í) og prjónið síðan þar til stykkið mælist 53-53-52-51 cm, fellið laust af.
Stærð XXL + XXXL: Fitjið upp 1 nýja l í hvorri hlið (= kantlykkja til að sauma í) og prjónið síðan þar til 2 umf eru eftir þar til stykkið mælist 50-48 cm. Fellið nú af 5 l í byrjun á næstu 2 umf áður en fellt er laust af allar l.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju (einingin sem prjónuð var fram og til baka upp meðfram ermi á að passa inn í úrtöku fyrir handveg. Saumið tölur í.

KRAGI:
Prjónið upp frá réttu (innan við 1 kantlykkju) á hringprjóna nr 5 – byrjið við miðju að framan við prjónamerki á hægra framstykki þannig: Prjónið upp ca 38 til 46 l upp að öxl, síðan 16 til 22 l meðfram hnakka og 38 til 46 l niður meðfram vinstra framstykki að prjónamerki = 92 til 114 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið nú 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn aukin jafnt yfir til 137-143-149-155-161-167 l. Prjónið nú stroff (frá röngu) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 3 l br, 3 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir og endið með 3 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni (frá réttu verða 3 l sl í hvorri hlið innan við kantlykkju). Haldið áfram með stroff þar til kraginn mælist ca 5 cm. Aukið út um 1 l í hverja af miðju 12 br einingunum, séð frá réttu (= aftan við hnakka) = 149-155-161-167-173-179 l. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br þar til kraginn mælist ca 9-9-11-11-13-13 cm. Prjónið nú áfram þannig: Prjónið 1 umf eins og áður og setjið fyrstu 16 l sem prjónaðar voru á 1 þráð, snúið við, prjónið út umf og setjið fyrstu 16 l sem prjónaðar voru í umferð á 1 þráð. Snúið við, prjónið út umf og setjið fyrstu 15-15-15-18-18-18 l sem prjónaðar voru í byrjun umf yfir á fyrri þráðinn, snúið við, prjónið út umf og setjið fyrstu 15-15-15-18-18-18 l sem prjónaðar voru í byrjun umf yfir á seinni þráðinn. Haldið svona áfram að setja fyrstu 15-15-15-18-18-18 l sem prjónaðar voru á þráði í hvorri hlið þar til það eru alls 61-61-61-70-70-70 l á þræði í hvorri hlið. Setjið nú lykkjur af þræði til baka á prjóninn og prjónið 1 umf eins og áður yfir allar 149-155-161-167-173-179 l – ATH: til að koma í veg fyrir göt í skiptingum þegar stykkinu er snúið við er þráðurinn í vikinu á undan næstu l sett snúið á prjóninn og prjónað saman með fyrstu l á prjóni. Í næstu umf er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. Saumið kragann fastan neðst niðri í hvorri hlið við kant að framan – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

VASI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 28-28-28-36-36-36 l á hringprjóna nr 6 með Nepal. Prjónið mynstur eftir teikningu A.5 (veljið mynstur fyrir rétta stærð) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar vasinn mælist ca 17-17-17-20-20-20 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu með gatamynstri í miðju – fellið af frá réttu, 2 l yfir hvorn kaðal og 3 l yfir gatamynstur fyrir miðju = 21-21-21-27-27-27 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið 4 umf garðaprjón og fellið af með sl frá röngu.
Prjónið annan vasa til viðbótar á sama hátt, en í stærð XL + XXL + XXXL er prjónað mynstur A.6 í stað A.5.
Saumið 1 vasa á hvort framstykki með lykkjuspori innan við 1 kantlykkju – ca 13-13-13-17-17-17 cm frá neðri brún (mátið peysuna til þess að ná fram réttri staðsetningu) – mynstur á vasanum á að passa við mynstureiningu á framstykki.

BELTI:
Fitjið upp 9 l á prjóna nr 5 og prjónið garðaprjón fram og til baka þar til beltið mælist ca 150-190 cm, fellið af.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.08.2012
HÆGRA FRAMSTYKKI: Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju með garðaprjóni á hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 77-80-83-86-89-92 cm....

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = setjið 1 lykkju á hjálparprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Birch leaves cardigan

Nawaal, South Africa

Birch Leaves

Vesna, Serbia

Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (65)

country flag Eefje wrote:

Wanneer je in het patroon met rondbreinaald 6 moet beginnen staat er een aantal keer aangegeven dat bepaalde stukken recht gebreid moeten worden. Ik heb nu het volgende gebreid: 3 knt.stk. - 14 r. - 26 p. (patroon) - 14 - 26 p. - 17 r. - 26 p. - 14 - 26 p. - 14 - 3 knt stk. Ik heb nu 183 steken, dat klopt, maar de stukken recht komen me nogal willekeurig voor. Klopt dat?

16.02.2015 - 15:20

DROPS Design answered:

Hoi Eefje. Het patroon zou correct moeten zijn. Maar twijfel je nog, dan geef aan waar in het patroon je precies bent, dan kan ik nakijken en bevestigen. bvd.

17.02.2015 - 15:40

country flag Frieda wrote:

Bedankt voor het patroon. Hij is mooi geworden en ik ben er erg blij mee

15.02.2015 - 11:39

country flag Frieda wrote:

Ik ben nu met de laatste naalden van de kraag bezig, maar kom er niet zo goed uit. In de beschijving staat om gaatjes te voorkomen, een lus voor de volgende steek gedraaid op de naald gezet moet worden. Welke lus wordt hiermee bedoeld?

07.02.2015 - 10:15

DROPS Design answered:

Hoi Frieda. Je neemt een steken op tussen de te breien st een de st op de nld en plaatst deze verdraait op de nld (zet de lus vóór de volgende st). Zie hier hoe je een st opneemt:

10.02.2015 - 15:16

country flag Karin WITTEVEEN wrote:

Bij de tekening A5 staat bij de regels 11 en 12 in het midden niets. Wat moet je hier breien. Ik heb nog een vraag, Er wordt bij het begin van het patroon gezegd om 0 1 3 0 2 4 in averechts tricotsteek te breien. Maar wat wordt hiermee bedoeld.

04.02.2015 - 16:34

DROPS Design answered:

Hoi Karin. Je begint dat weer opnieuw met de teltekening in het midden (het ajourpatroon). 1 herhaling van het kabelpatroon is gewoon meer naalden dan 1 herhaling van het ajourpatroon in het midden. De getallen 0-1-3-0-2-4 verwijzen naar welke maat je breit, dus brei je bijv maat S, dan moet je 0 st breien, en maat M 1 st averechte tricotst enzovoort.

05.02.2015 - 13:42

country flag Karin Witteveen wrote:

In het patroon 141-19 staan bij de laatste regels niets ingevuld wat moet ik hier breien.

04.02.2015 - 08:57

DROPS Design answered:

Hoi Karin. Wat bedoel je precies? Dan zal ik proberen je verder te helpen :-)

04.02.2015 - 13:18

country flag Iliane wrote:

Hallo, ich habe diese Jacke (etwas kürzer) gestrickt und finde das Muster wunderschön! Im Nachhinein würde ich die Maschen an der Seite, die hier in der Anleitung gl re gestrickt dind, links stricken. So fügen sie sich zwischen den Zöpfen besser ein und die Abnahmen fallen nicht gleich so auf. Das gl re sieht zu aufgesetzt aus, als würde es dort nicht hingehören. Liebe Grüße, iliane

09.10.2014 - 22:59

country flag Anika wrote:

Hallo, ist es möglich, die Antworten auf die Fragen von Birgit (30.08.12) und Wera (10.09.12)in die Anleitung mit aufzunehmen? Diese Informationen sind m.E. unerlässlich, um korrekt stricken zu können. Danke und viele Grüße

30.04.2014 - 19:19

DROPS Design answered:

Liebe Anika, die Antwort auf die Frage vom 30.08.12 findet sich bereits in der Anleitung, unter "Muster": "Die Diagramme zeigen alle R der Muster, wie sie auf der Vorderseite erscheinen." Ob die Diagramme A.5 und A.6 noch deutlicher erklärt werden müssen, werde ich anfragen. Viel Spaß beim Stricken!

30.04.2014 - 23:58

country flag Claudia wrote:

Die Abnahmen neben den Markierern befinden sich jedoch in den Mustern. Oder habe ich da etwas missverstanden?

21.10.2013 - 22:07

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, die Markierer sitzen in den glatt re Streifen zwischen A.5 bzw. A.6 (je nach Grösse). Siehe: "Nach den ersten 47-50-54-59-66-71 M und vor den letzten 47-50-54-59-66-71 M je 1 Markierer anbringen".

22.10.2013 - 09:14

country flag Claudia wrote:

Leider komme ich nach dem Abnahmetipp nicht mehr mit dem Muster A5 klar. Ich habe nur noch 8 Maschen in der Mitte anstatt den 10?

20.10.2013 - 20:58

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, die Abnahmen werden in den glatt re gestrickten Streifen gemacht und nicht innerhalb des Musters A5.

21.10.2013 - 12:15

country flag Kate wrote:

I can't see any finished measurements for the sizes. Will a large be the same as a UK size 16? Thanks.

25.06.2013 - 22:26

DROPS Design answered:

Dear Kate, you will find at the end of the pattern a measurement chart The measures in the chart is in cm and measured from side to side. So to figure out wich size to make, the best is to measure a garment you already have and like the size of and then compare with the chart. Happy knitting!

26.06.2013 - 09:03