DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9350.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 143-13
DROPS Design: Mynstur nr ee-423
Garnflokkur E
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
850-900-1000-1100-1200-1300 gr litur nr 70, natur/ryð

DROPS HRINGPRJÓNN nr 8 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN nr 7 (80 cm) - fyrir garðaprjón.
DROPS HORNATALA NR 538 (25 mm): 6 stk í öllum stærðum.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9350.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu þannig:
Fækkið um 1 l í byrjun umf: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um 1 l í lok umf: Prjónið þar 3 l eru eftir á prjóni, prjónið næstu 2 l slétt saman, 1 kantlykkja í garðaprjóni.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, mynsturteikningin sýnir allar umf í 1 mynstureiningu séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellt er af frá réttu fyrir 6 hnappagötum í kanit á hægra framstykki þannig: Prjónið 4 l, fellið af næstu 2 l, prjónið 6-6-6-8-8-8 l, fellið af næstu 2 l = 2 hnappagöt í sömu umf (4 l eftir í kanti að framan). Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 l yfir þær l sem felldar voru af.
Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
Stærð S: 36, 45 og 54 cm
Stærð M: 38, 47 og 56 cm
Stærð L: 40, 49 og 58 cm
Stærð XL: 42, 51 og 60 cm
Stærð XXL: 44, 53 og 62 cm
Stærð XXXL: 46, 55 og 64 cm
Eftir er ca 1 cm þar til prjónaður er garðaprjónn yfir allar l í kanti að framan.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 62-66-70-76-82-90 l ( meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) með Snow á hringprjóna nr 7. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 5-5-5-6-6-6 cm (1. umf = rétta). Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á hringprjóna nr 8 og prjónað áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í hvorri hlið í garðaprjóni. ATH! Allar kantlykkjur í hliðum eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 12-12-13-13-14-14 cm er fækkað um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 7-7½-7½-8-8-8 cm millibili 6 sinnum til viðbótar (= alls 7 l færri) = 48-52-56-62-68-76 l.
Haldið áfram þar til stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm. Fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í báðum hliðum: Fellið af 3 l 0-0-1-1-1-1 sinni, 2 l 1-1-1-1-2-3 sinnum, og 1 l 2-3-1-3-3-4 sinnum = 40-42-44-46-48-50 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 77-80-83-86-89-92 cm. Fellið af miðju 8-8-10-10-12-12 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsi er felld af 1 l = 15-16-16-17-17-18 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 80-83-86-89-92-95 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 44-46-47-52-54-58 l (meðtalin er 1 kantlykkja) á hringprjóna nr 7.
Prjónið 1. umf frá réttu þannig: Prjónið sl þar til eftir eru 18-18-18-20-20-20 l, prjónið A.1 yfir þær l sem eftir eru (= kantur að framan). Haldið áfram með A.1 yfir kant að framan og garðaprjón yfir þær l sem eftir eru í 5-5-5-6-6-6 cm.
Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 8 og næsta umf frá réttu eru prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 18-18-18-20-20-20 l, haldið áfram með A.1 yfir kant að framan. Prjónið sléttprjón með A.1 yfir kant að framan þar til stykkið mælist 12-12-13-13-14-14 cm.
Fækkið um 1 l eftir 1 kantlykkju í byrjun umf frá réttu. Endurtakið úrtöku með 7-7½-7½-8-8-8 cm millibili 6 sinnum til viðbótar (= alls 7 færri = 37-39-40-45-47-51 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm er prjónað garðaprjón yfir 18-18-18-20-20-20 l í kanti að framan til loka.
Þegar stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm er fellt af fyrir handvegi í byrjun hverrar umf frá réttu þannig: Fellið af 3 l 0-0-1-1-1-1 sinnum, 2 l 1-1-1-1-2-3 sinnum, og 1 l 2-3-1-3-3-4 sinnum = 33-34-34-37-37-38 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 80-83-86-89-92-95 cm. Í næstu umf frá réttu eru felldar af fyrstu 15-16-16-17-17-18 l (= öxl) = 18-18-18-20-20-20 l með garðaprjóni eru eftir á kanti að framan.
Haldið áfram í garðaprjóni yfir þessar l – JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir með byrjun frá hálsmálli (ranga) þannig: * Prjónið 2 umf með garðaprjóni yfir allar l. Í næstu umf frá röngu eru prjónaðar 14-14-14-16-16-16 l sl, snúið við og prjónið sl til baka *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm þar sem fellt var af fyrir öxl (styttri hliðin). Fellið laust af allar l.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd – JAFNFRAMT er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan – í kanti að framan.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 26-26-30-30-34-34 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) með Snow á hringprjóna nr 8. Prjónið A.1 í 5-5-5-6-6-6 cm. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 l – LESIÐ ÚTAUKNING – innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 6½-4½-5-4½-5-4 cm millibili alls 6-8-7-8-7-8 sinnum = 38-42-44-46-48-50 l.
Þegar stykkið mælist 47-46-45-44-43-43 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs) fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Prjónið 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 3-3-4-5-6-5 sinnum. Fellið nú af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 56 cm, fellið nú af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 57 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsaumana og saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið hliðar- og ermasaumana í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið kant saman að miðju að aftan við kraga – ATH! Saumurinn verður að vera á bakhlið svo að hann sjáist ekki þegar kraginn er brotinn saman. Saumið kragann meðfram hálsmáli að aftan við hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

VASI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 18-18-18-20-20-20 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) með Snow á hringprjóna nr 8. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 16-16-16-18-18-18 cm. Prjónið nú 4 umf garðaprjón áður en fellt er af (stykkið mælist ca 18-18-18-20-20-20 cm á hæðina). Prjónið annan vasa til viðbótar á sama hátt.
Saumið vasana niður á framstykkin, ca 12-12-12-13-13-13 cm frá neðri kanti og 18-18-19-19-20-20 cm inn frá miðju að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.08.2012
Ný teikning
Yfirfarið á vefsvæði: 31.10.2012
VINSTRA FRAMSTYKKI:...Haldið áfram með garðaprjóni yfir þessar l – JAFNFRAMT eru prjónaðar styttri umf með byrjun frá hálsi(ranga)þannig: * Prjónið 2 umf með garðaprjóni yfir allar l. Í næstu umf frá röngu eru prjónaðar 14-14-14-16-16-16 l sl, snúið við og prjónið sl til baka * ...

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (67)

country flag Anna wrote:

Buongiorno, bello il modello. lo vorrei però realizzare con le tasche laterali interne e non esterne. Come posso fare? Potreste indicarmi dove posso trovare le istruzioni? Grazie mille

15.04.2021 - 14:50

DROPS Design answered:

Buonasera Anna, per un'assistenza così personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

15.04.2021 - 19:20

country flag Virginie wrote:

Bonjour , pour le col châle, devant droit , les rangs raccourcis doivent ils être opposés c’est à dire inversés par rapport au devant gauche. J ai dû mal à visualiser comment faire . Je suis bloquée.

28.02.2021 - 12:00

DROPS Design answered:

Bonjour Virginie, pour le devant gauche, vous avez commencé les rangs raccourcis sur l'envers (ainsi vous avez davantage de rangs côté extérieur du col que côté épaule = partie qui sera cousue le long de l'encolure dos. Pour le devant droit, commencez les rangs raccourcis sur l'endroit ainsi, vous aurez davantage de rangs côté extérieur et moins côté épaule. Bon tricot!

01.03.2021 - 09:29

country flag Monica wrote:

Gentilissimi, innanzi tutto complimenti per i modelli sempre molto belli e per l'opportunità che date a tutte noi di avere le spiegazioni gratuitamente. Sto confezionando il davanti sinistro ma non riesco a capire come devo fare l'allungo del collo a scialle, non mi tornano i conti delle maglie. Se il bordo è di 18 maglie perché dopo la costa legaccio ne devo lavorare solo 14? Le altre 4 che fine fanno? Grazie Monica

07.01.2021 - 21:04

DROPS Design answered:

Buonasera Monica, una volta intrecciate le maglie per la spalla si prosegue la lavorazione a ferri accorciati, cioè solo su una parte delle maglie del ferro, come indicato nel lavoro; le altre maglie semplicemente non vengono lavorate. Buon lavoro!

07.01.2021 - 21:39

country flag Nicoletta wrote:

Salve, nella descrizione del davanti sinistro non riesco a capire come dividere le maglie, la spiegazione dice di lavorare a legaccio finché non rimangono 18 maglie, quindi lavorate il diagramma A1 che però è divisibile per 4...Grazie mille per i vostri preziosi consigli

25.10.2020 - 22:13

DROPS Design answered:

Buongiorno Nicoletta. E' sufficiente che lavori le ultime due maglie come indicato per le prime due maglie del diagramma A1. Buon lavoro!

27.10.2020 - 13:43

country flag Ines wrote:

Ich finde das Diagramm A1 nicht auf der Seite. Können Sie mir das bitte schicken?

16.08.2020 - 15:50

DROPS Design answered:

Liebe Ines. Das Diagramm A.1 befindet sich rechts von der Jackenzeichnung.

16.08.2020 - 16:17

country flag Nancy A Keller wrote:

When doing the collar, the short rows, says 9 cm or 3.5 in. Where to measure? Inside collar next to neck? Or??

18.02.2020 - 17:16

DROPS Design answered:

Dear Mrs Keller, measure from the cast off stitches for shoulder, this should be the shortest measurement (the longest one is outside), this part will be then sewn along neck on back piece. Happy knitting!

19.02.2020 - 08:38

country flag Nancy A Keller wrote:

What is the A1 stitch please? Is it knit 2 pearl 2, and on next row Pearl 2, knit2?

29.01.2020 - 19:28

DROPS Design answered:

Dear Mrs Keller, on row 1 work K2/P2. On row 2, work K over K and P over P. On row 3, work P2/K2. On row 4 work K over K and P over P. Repeat these 4 rows. Happy knitting!

30.01.2020 - 09:15

country flag Paqui wrote:

Se puede hacer ese patrón en 2 agujas en vez de aguja circular? Gracias

02.01.2020 - 00:15

DROPS Design answered:

Hola Paqui! Si, mira una de nos lecciones AQUI. Buen trabajo!

02.01.2020 - 09:46

country flag Anita Famaey wrote:

Als ik het zo lees zou een vest van maat large ongeveer 160 cm rondom breed zijn klopt dit nu ? of zie ik het verkeerd , ik twijfel namelijk aan mijn maat

14.09.2019 - 07:44

DROPS Design answered:

Dag Anita,

Maat L is steeds het 3e getal vanaf links, dus het vest is 62 breed aan de onderkant en in omtrek 124 cm. (160 is de omtrek voor de grootste maat, maat XXXL) De borstwijdte in maat L is (49 x 2 =) 98

Als je twijfelt welke maat je moet kiezen, kun je een vergelijkbaar kledingstuk nemen die goed past en de maten daarvan opnemen.

17.09.2019 - 08:22

country flag Karen wrote:

Wow! Thank you very much! I did a sample and worked it out how to do the collar section at top of front and your explanation works out much easier that pattern instruction. Thank you very much.

17.08.2019 - 06:17