DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8800.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-817
DROPS Design: Mynstur nr x-384
Garnflokkur C
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL

GARN:
DROPS ALASKA frá Garnstudio
650-700-750-850-950-1050 g litur nr 37, grár/blár
100-100-100-150-150-150 g litur nr 03, ljós grár
50-50-100-100-100-100 g litur nr 55, beige

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TRÉTALA NR 520: 6 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8800.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir 6 hnappagötum í hægri kanti að framan, öll affelling er gerð frá réttu. 1 HNAPPAGAT = prjónið 5. og 6. lykkju frá miðju að framan brugðið saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
Stærð S: 6, 14, 22, 30, 38 og 46 cm
Stærð M: 6, 15, 23, 31, 39 og 47 cm
Stærð L: 6, 15, 24, 32, 40 og 48 cm
Stærð XL: 6, 15, 24, 33, 41 og 49 cm
Stærð XXL: 6, 15, 24, 33, 42 og 50 cm
Stærð XXXL: 6, 15, 24, 33, 42 og 51 cm

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, mynsturteikning sýnir 2 einingar á breiddina. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um hálsmál að framan):
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkjur þannig: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 210-226-242-270-286-314 lykkjur á hringprjón 4 með litnum grár / blár DROPS Alaska.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir og endið með 2 lykkjur slétt og 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 6 cm. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan.
Eftir stroff er skipt yfir á hringprjón 5 og næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið (= 14 kantlykkjur að framan), prjónið sléttprjón þar til 14 lykkjur eru eftir í umferð – JAFNFRAMT er fækkað um 49-53-57-61-65-69 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan), endið með 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur garðaprjón = 161-173-185-209-221-245 lykkjur.
Setjið 1 merki 44-47-50-56-59-65 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 73-79-85-97-103-115 lykkjur á milli merkja á bakstykki). Látið merkin fylgja með í stykkinu. Prjónið síðan sléttprjón með 14 kantlykkjum að framan í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm prjónið A.1 þannig: Prjónið 14 kantlykkjur að framan eins og áður með litnum grár / blár, prjónið A.1 þar til 15 lykkjur eru eftir, prjónið 1. lykkju í A.1 (þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt í hvorri hlið í kanti að framan) og endið með 14 kantlykkjur að framan eins og áður í litnum grár / blár.
Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 13 lykkjur, setjið 1 merki (þetta merki sýnir hvar byrja á að prjóna upp kragann), prjónið út umferðina. Snúið og fellið af fyrstu 13 lykkjur, setjið 1 merki (þetta merki sýnir hvar enda á að prjóna upp kragann), prjónið út umferðina = 135-147-159-183-195-219 lykkjur. Nú skiptist stykkið við merkin í hliðum og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 73-79-85-97-103-115 lykkjur. Haldið áfram með A.1 (þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með litnum grár / blár að loka máli) – JAFNFRAMT er nú fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 3 lykkjur 0-1-2-2-3-4 sinnum, 2 lykkjur 1-1-1-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 3-2-1-2-1-1 sinnum = 63-65-67-69-71-73 lykkjur eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm, fellið af miðju 17-19-19-21-23-23 lykkjur fyrir hálsmáli. Prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. Síðan er felld af 1 lykkja í næstu umferð frá hálsmáli = 22-22-23-23-23-24 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 31-34-37-43-46-52 lykkjur. Haldið áfram með A.1 á sama hátt og á bakstykki með 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handvegi í hlið á sama hátt og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm, fækkið um 1 lykkju við hálsmál – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í 4. hverri umferð alls 2-2-3-3-4-4 sinnum og síðan í 8. hverri umferð alls 2-3-2-3-3-3 sinnum. Eftir alla úrtöku eru 22-22-23-23-23-24 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt.

ERMAR:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna / hringprjóna.
Fitjið upp 48-48-52-52-56-56 lykkjur á sokkaprjóna 4 með litnum grár / blár DROPS Alaska.
Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff = 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið.
Þegar stykkið mælist 6 cm er skipt yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 9-7-9-7-9-9 lykkjur jafnt yfir = 39-41-43-45-47-47 lykkjur. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merki mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu alls 9-10-11-12-13-15 sinnum með 4½-4-3½-3-3-2½ cm millibili = 57-61-65-69-73-77 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20 cm er sett 1 merki í miðjulykkju í umferð (= mitt á ermi).
Prjónið A.1. ATH: Sú lykkja sem er merkt með ör í mynsturteikningu á að passa við lykkju með merki í mitt á ermi. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með litnum grár / blár að loka máli.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 47-47-46-46-45-45 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu) fellið af 4-6-6-6-6-6 lykkjur mitt undir ermi. Síðan er stykkið prjónað til loka fram og til baka. JAFNFRAMT er nú fellt af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið: 2 lykkjur 0-2-3-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 3-3-4-4-5-6 sinnum. Síðan eru felldar af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-55-55-56-56-57 cm, síðan eru felldar af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist ca 55-56-56-57-57-58 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma, saumið ermar í.

SJALKRAGI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna 4 með litnum grár / blár DROPS Alaska.
Prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju meðfram hálsmáli þannig: Byrjið mitt að framan við merki í hægra framstykki, prjónið upp að öxl, síðan meðfram hnakka og niður meðfram vinstra framstykki að merki = ca 90 til 110 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu JAFNFRAMT því sem lykkjufjöldinn er aukinn út til 118-122-126-130-138-146 lykkjur.
Prjónið síðan stroff þannig (séð frá réttu): 2 lykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til kraginn mælist ca 5 cm.
Nú er aukið út um 1 lykkju í hvera af miðju 12 brugðnu einingunum, séð frá réttu (= aftan í hnakka) = 130-134-138-142-150-158 lykkjur.
Haldið síðan áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kraginn mælist ca 7 cm.
Nú er prjónað áfram þannig: Prjónið 1 umferð eins og áður og setjið fyrstu 10 lykkjur sem voru prjónaðar á þráð, snúið stykkinu, prjónið út umferðina og setjið fyrstu 10 lykkjur sem voru prjónaðar í byrjun umferðar á annan þráð. Snúið stykkinu, prjónið út umferðina og setjið inn fyrstu 10 lykkjur sem voru prjónaðar í byrjun umferðar á fyrri þráðinn, snúið stykkinu, prjónið út umferðina og setjið fyrstu 10 lykkjur sem voru prjónaðar í byrjun umferðar á seinni þráðinn. Haldið svona áfram þar til það eru alls 40 lykkjur á þræði í hvorri hlið. Síðan eru lykkjurnar settar af þráðunum til baka yfir á prjóninn og prjónuð er 1 umferð eins og áður yfir allar 130-134-138-142-150-158 lykkjur. ATH: Til að koma í veg fyrir göt í hverri skiptingu þegar stykkinu er snúið við er hlekkurinn á undan næstu lykkju prjónaður snúinn á vinstri prjóni og er prjónaður saman með fyrstu lykkju á prjóni.
Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Saumið kragann fallega niður neðst í hvorri hlið við kant að framan – saumið kant í kant svo saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = grár / blár
symbols = beige
symbols = ljós grár
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-817

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Paola Pedroni Kaune wrote:

He desarmado 2 veces las mangas, el rebaje de las mangas no coincide con el rebaje del cuerpo, me faltan como 10 centimetros en el contorno de la manga para poder coserlo al cuerpo. No sé si pueden aconsejarme algo, por el momento me iré probando y añadiendo filas a la labor, hasta que coincidan ambas partes. Muy lindo modelo, lamentablemente me encontré con este problema, Saludos

02.06.2022 - 00:13

DROPS Design answered:

Hola Paola, debido al patrón de jacquard, es posible que esta parte quede más tensa y que el ancho sea menor de lo recomendado por el patrón. En este caso, lo recomendable es aumentar cada menor número de filas (es decir, trabajar más aumentos) para tener más puntos/ más cm al llegar al largo final de la manga y que se pueda coser al cuerpo.

04.06.2022 - 19:03

country flag Carlin wrote:

Patroon graag in Nederlands

29.12.2021 - 11:34

country flag Rosy wrote:

Buonasera. Grazie per aver risposto ma non capisco...il ferro 5in blu lo lascio al diritto e il rovescio lo faccio in grigio. Come posso poi ripartire con il blu al diritto se l ho lasciato al rovescio? E cosi anche per aktri ferri. Come il 12 con il 14 ad esempio....confido in aiuto

24.10.2021 - 20:37

DROPS Design answered:

Buongiorno Rosy, ha due possibilità: o si porta il filo blu sul rovescio del lavoro, intrecciandolo ogni 2 o 3 maglie, mentre lavora con il grigio, ma rischia di vedersi sul diritto del lavoro, oppure lavora con tanti gomitolini di filato che può lasciare ai lati del lavoro. Buon lavoro!

20.11.2021 - 12:07

country flag Rosy wrote:

Come devo fare al giro 4, 5, 6, con il bordo in blu? Devo avere due gomitoli per i bordi e uno per lo schema? Grazie

22.10.2021 - 21:17

DROPS Design answered:

Buonasera Rosy, o continua a portarsi il colore blu lungo il lavoro oppure si, deve utilizzare 2 gomitoli di blu. Buon lavoro!

24.10.2021 - 20:07

country flag Kerstin wrote:

Hallo, ich benötige dringend Hilfe.....Ich habe den Ärmel gestrickt, habe Ai fast beendet und habe die benötigte Maschenzahl erreicht. Ich habe aber große Bedenken, das der Ärmel viel zu eng ist, wenn ich ihn nach Anleitung stricke. Das vorgegebene Armloch ist viel zu groß für den engen Ärmel. Kann man den Ärmel bei diesem Modell auch direkt anstricken? Wie müsste ich dann abnehmen? Hoffentlich kann mir jemand helfen🙏

30.01.2021 - 20:14

DROPS Design answered:

Liebe Kerstin, sollte Ihre Maschenprobe stimmen, dann sollte die Ärmel auch so passen. -siehe auch Maßen in der Maßskizze. Leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder individuellen Anfrage anpassen aber sicher kann Ihnen Ihr DROPS Laden damit helfen - auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!

01.02.2021 - 09:08

country flag Sawnuy wrote:

Sehrgeehrte Damen und Herren, Ich habe diese Anleitung schön 3 Jacke gestrickt. 2 Jacke mit Alaska und eine Jacke mit Nepal. Sie sind sehr sehr schön.. Und jetzt stricken ich die 4. Jacke. Aber ich habe wieder vergessen.. Was bedeutet das?: ( , A-1 bis noch 15 M. zu stricken sind, 1. M. in A-1 (damit das Muster vorne überein stimmt), ) Vielen Dank für ihre Hilfe... Mit freundlichen Grüßen Sawnuy

05.06.2019 - 20:11

DROPS Design answered:

Liebe Sawnuy, damit das Muster symetrisch wird, muss man am Ende der Hinreihe der ersten Masche in M.1 noch stricken, dann die 14 Blendemaschen - bein den Rückreihen stricken Sie die erste Masche in M.1 dann lesen Sie M.1 links nach rechts. Viel Spaß beim stricken!

06.06.2019 - 09:50

country flag Sawnuy wrote:

Hallo,kann ich diese Jacke mit Drops Nepal auch stricken? Ich habe schon 2 Jacke mit Alaska gestrickt..Sie sind sehr schön.... und ich möchte nochmal diese Jacke stricken aber mit anderen Drops . Mit freundlichen Grüßen

13.10.2018 - 16:52

DROPS Design answered:

Liebe Sawnuy, DROPS Nepal und Alaska gehören beide der Garngruppe C, so können Sie Nepal auch hier benutzen - Hier lesen Sie mehr über die Wahl der Garne, hier lesen Sie mehr über Garnalternativen - den Garnumrechner können Sie gerne benutzen. Viel Spaß beim stricken!

15.10.2018 - 08:55

country flag Grammatico wrote:

Pourquoi ne pas mettre en Français s'il vous plait. Ce serait déjà plus facile, votre modèle est magnifique et j'aimerais pouvoir le faire.

07.06.2018 - 10:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Grammatico, tous nos modèles sont disponibles en français, changez simplement la langue en cliquant sur la flèche sous la photo et sélectionnez "français". Bon tricot!

07.06.2018 - 10:56

country flag Evelyn wrote:

Hallo, ich habe eine Frage zum Rückenteil: "GLEICHZEITIG auf beiden Seite für das Armloch abk.: 0-1-2-2-3-4 Mal 3 M., 1-1-1-3-3-4 Mal 2 M. und 3-2-1-2-1-1 Mal 1 M." Verstehe ich es richtig, dass ich für Größe L so vorgehe: 1. und 2. R.: die ersten 3 M und die letzten 3 M abketten. 3. R.: die ersten 2 M und die letzten 2 M abketten. 4. R.: die erste und letzte M abketten. Vielen Dank vorab!

11.04.2018 - 10:55

DROPS Design answered:

Liebe Evelyn, in der Größe L sollen Sie: 3 M 2 x, 2 M x 1 und 1 Mx 1 auf beiden Seiten abketten, dh Reihe 1 bis 4: die ersten 3 M abketten, R 5 + 6: die ersten 2 M abketten und R 7 + 8: die erste Masche abketten = 18 M werden insgesamt abgekettet (= 9 auf beiden Seiten), es waren 85 M - 18 = 67 M bleiben übrig. Viel Spaß beim stricken!

11.04.2018 - 13:42

country flag Evelyn wrote:

Hallo, ich habe eine Frage zum Rückenteil: "GLEICHZEITIG auf beiden Seite für das Armloch abk.: 0-1-2-2-3-4 Mal 3 M., 1-1-1-3-3-4 Mal 2 M. und 3-2-1-2-1-1 Mal 1 M." Verstehe ich es richtig, dass ich für Größe L so vorgehe: 1. und 2. R.: die ersten 3 M und die letzten 3 M abketten. 3. R.: die ersten 2 M und die letzten 2 M abketten. 4. R.: die erste und letzte M abketten. Vielen Dank vorab!

11.04.2018 - 10:54