Magnus Set |
|
|
|
Sett með: Peysu fyrir börn í garðaprjóni, prjónuð frá hlið og húfa. Settið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS Extra 0-639 |
|
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Öll peysan er prjónuð sem eitt stykki. Prjónað er frá hlið frá vinstra framstykki, yfir ermi, eftir það er bakstykki prjónað, yfir hina ermina og að lokum hægra framstykki. Öll peysan er prjónuð í garðaprjóni, þ.e.a.s. prjónað lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið LAUST upp 54-58-66 (74-80) lykkjur á prjón 4,5 með litnum natur DROPS Merino Extra Fine. Prjónið 10 umferðir fram og til baka að kant að framan (umferð 1 = rétta, byrjar frá neðri kanti). Prjónið síðan stuttar umferðir og rendur þannig: * Prjónið 36-38-44 (50-54) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 49-53-61 (69-75) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið yfir allar lykkjur með litnum natur, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 36-38-44 (50-54) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 49-53-61 (69-75) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 52-56-64 (72-78) lykkjur með litnum natur, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka *. Endurtakið frá *-* (þ.e.a.s. 1 mynstureining = 12 umferðir yfir neðstu lykkju og 2 umferðir yfir efstu lykkju). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 14-15½-17 (18½-19½) cm mælt þar sem er breiðast (stillið af að næsta umferð sé prjónuð yfir allar lykkjur með litnum natur) setjið neðstu 32-34-40 (46-50) lykkjur á nælu (= hlið). Klippið frá. Fitjið upp 28-32-36 (44-52) nýjar lykkjur (yfir lykkjur á nælu) í byrjun á prjóni með litnum natur fyrir ermi og prjónið út umferðina = 50-56-62 (72-82) lykkjur á prjóni. Snúið stykkinu og prjónið til baka yfir allar lykkjur. ERMI: Prjónið síðan þannig: * Prjónið 32-36-40 (48-56) lykkjur með litnum ljós grár, snúið við, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 45-51-57 (67-77) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 48-54-60 (70-80) lykkjur með litnum natur, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 32-36-40 (48-56) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 45-51-57 (67-77) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið yfir allar lykkjur með litnum natur, snúið stykkinu og prjónið til baka *. Endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist ca 16-17-18 (18-20) cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir ermi – mælt þar sem stykkið er breiðast (stillið af að næsta umferð sé prjónuð yfir allar lykkjur með litnum natur). Í næstu umferð frá réttu eru felldar af fyrstu 28-32-36 (44-52) lykkjur með litnum ljós grár. Setjið 22-24-26 (28-30) lykkjur sem eftir eru á nælu. Setjið til baka 32-34-40 (46-50) lykkjur frá fyrri nælunni á prjóninn. FLEYGUR Í HLIÐ: Prjónið síðan þannig (umferð 1 = rétta): Prjónið yfir allar lykkjur með litnum natur, snúið stykkinu og prjónið til baka. Prjónið 10-11-13 (15-16) með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 20-22-26 (30-32) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið yfir allar lykkjur með litnum natur (setjið eitt prjónamerki í stykkið = mitt í hlið), snúið stykkinu og prjónið til baka. Prjónið 10-11-13 (15-16) með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 20-22-26 (30-32) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið yfir allar lykkjur með litnum natur, JAFNFRAMT í lok umferðar eru 22-24-26 (28-30) efstu lykkjur á nælu prjónaðar til baka á prjóninn, snúið stykkinu og prjónið til baka yfir allar lykkjur = 54-58-66 (74-80) lykkjur. BAKSTYKKI: Haldið síðan áfram með stuttar umferðir og rendur samkvæmt útskýringu á framstykki. Prjónið þar til stykkið mælist ca 27-30-33 (36-38) cm frá prjónamerki í hlið mælt þar sem stykkið er breiðast (stillið af að næsta umferð sé prjónuð yfir allar lykkjur með litnum natur). Setjið neðstu 32-34-40 (46-50) lykkjur á nælu. Klippið frá. Fitjið upp 28-32-36 (44-52) nýjar lykkjur (yfir lykkjur á nælu) í byrjun á prjóni með litnum natur fyrir ermi og prjónið út umferðina = 50-56-62 (72-82) lykkjur alls. Snúið stykkinu og prjónið til baka yfir allar lykkjur. ERMI: Haldið síðan áfram samkvæmt útskýringu á fyrri ermi þar til prjónaðar hafa verið jafn margar umferðir á báðum ermum. Prjónið nú næstu umferð frá réttu, fellið af fyrstu 28-32-36 (44-52) lykkjur af með litnum ljós grár. Setjið næstu 22-24-26 (28-30) lykkjur á nælu. Setjið til baka neðstu 32-34-40 (46-50) lykkjur af fyrri nælu á prjóninn. Prjónið síðan FLEYGUR Í HLIÐ samkvæmt útskýringu að ofan. Eftir fleyginn eru 54-58-66 (74-80) lykkjur á prjóni. HÆGRA FRAMSTYKKI. Prjónið nú stuttar umferðir og rendur eins og áður og prjónið jafn margar umferðir á hægra framstykki og á vinstra framstykki (fyrir utan 10 umferðir í kanti að framan). Prjónið síðan kant að framan með natur þannig (umferð 1 = rétta: 4 umferðir fram og til baka yfir allar lykkjur, í næstu umferð er fellt af fyrir 5 hnappagötum þannig: Prjónið 18-18-22 (26-28) lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, 6-7-8 (9-10) lykkjur slétt*, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum og endið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman og 2 lykkjur slétt. Snúið og prjónið til baka yfir allar lykkjur. Prjónið 4 umferðir fram og til baka yfir allar lykkjur og fellið síðan LAUST af. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermum kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Allt stykkið er prjónað í garðaprjóni, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HÚFA: Fitjið upp 31-33-35 (37-39) lykkjur á prjón 4,5 með litnum ljós grár DROPS Merino Extra Fine. Prjónið síðan þannig: * Prjónið 12-14-14 (16-16) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 25-27-31 (33-35) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið yfir allar lykkjur með litnum natur, snúið stykkinu og prjónið til baka *, endurtakið frá *-* og fellið af þegar stykkið mælist 40-42-44 (46-48) cm þar sem það er breiðast. Prjónið upp 80-84-88 (92-96) lykkjur frá réttu í neðri kanti á húfu með litnum ljós grár. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir = 74-78-82 (86-90) lykkjur. Prjónið 4 umferðir slétt og fellið síðan laust af frá réttu. Saumið húfuna saman kant í kant, saumið í ystu lykkjubogana. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (45)
Mirja wrote:
Hi! I have a question about finishing the hat in this set. The hole on top is way too big to just pull together. What kind of method was originally used on the hat in the picture? Or perhaps there's an even better method for finishing it?
08.04.2011 - 20:26Mina wrote:
Min svigermor opgav efter flere hundrede forsøg på at lave ærmerne så de passede både efter barnes arm og efter vejledningen her. Der må være en fejl i opskriften. Nu overvejer jeg at prøve med denne her opskrift garnstudio.com/lang/dk/visoppskrift.php?d_nr=b16&d_id=3&lang=dk som ligner denne cardigan bare i andre farver og som jeg ser på det så skulle ærmerne være lidt anderledes. Tror nogen at den anden er bredere i ærmerne?
14.01.2011 - 20:38Solfrid wrote:
Les om igjen instruksjonene for høyre forstykke, der finner du knapphullene :)
20.05.2010 - 22:45Grethe wrote:
Det stemmer ikke at det skal brukes like mye garn på alle størrelser,og det hadde vel vært litt rart også.Jeg strikket den største og da brukte jeg 5 lys grå og litt av det 4. med natur.
15.05.2010 - 09:50Josephine wrote:
Hej! det verkar inte vara instruktioner för knapphål med i mönstret?
11.04.2010 - 22:09