DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Magnus Set

Sett með: Peysu fyrir börn í garðaprjóni, prjónuð frá hlið og húfa. Settið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine.

DROPS Extra 0-639
DROPS Design: Mynstur nr ME-047-by + ME-048-by
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56 - 62/68 - 74/80 (86/92 - 98/104)

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
150-150-200-(200-200) g litur nr 05, ljós grár
100-150-150-(200-200) g litur nr 01, natur

DROPS PRJÓNAR NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 40 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA NR 521: 5 st.

HÚFA:
Höfuðmál:
Ca 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50 - 50/52) cm

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
50-50-50-(50-50) gr litur nr 05, ljós grár
50-50-50-(50-50) gr litur nr 01, natur

DROPS PRJÓNAR NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 40 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Öll peysan er prjónuð sem eitt stykki. Prjónað er frá hlið frá vinstra framstykki, yfir ermi, eftir það er bakstykki prjónað, yfir hina ermina og að lokum hægra framstykki. Öll peysan er prjónuð í garðaprjóni, þ.e.a.s. prjónað lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið LAUST upp 54-58-66 (74-80) lykkjur á prjón 4,5 með litnum natur DROPS Merino Extra Fine.
Prjónið 10 umferðir fram og til baka að kant að framan (umferð 1 = rétta, byrjar frá neðri kanti).
Prjónið síðan stuttar umferðir og rendur þannig: * Prjónið 36-38-44 (50-54) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 49-53-61 (69-75) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið yfir allar lykkjur með litnum natur, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 36-38-44 (50-54) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 49-53-61 (69-75) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 52-56-64 (72-78) lykkjur með litnum natur, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka *. Endurtakið frá *-* (þ.e.a.s. 1 mynstureining = 12 umferðir yfir neðstu lykkju og 2 umferðir yfir efstu lykkju). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist ca 14-15½-17 (18½-19½) cm mælt þar sem er breiðast (stillið af að næsta umferð sé prjónuð yfir allar lykkjur með litnum natur) setjið neðstu 32-34-40 (46-50) lykkjur á nælu (= hlið). Klippið frá. Fitjið upp 28-32-36 (44-52) nýjar lykkjur (yfir lykkjur á nælu) í byrjun á prjóni með litnum natur fyrir ermi og prjónið út umferðina = 50-56-62 (72-82) lykkjur á prjóni. Snúið stykkinu og prjónið til baka yfir allar lykkjur.

ERMI:
Prjónið síðan þannig: * Prjónið 32-36-40 (48-56) lykkjur með litnum ljós grár, snúið við, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 45-51-57 (67-77) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 48-54-60 (70-80) lykkjur með litnum natur, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 32-36-40 (48-56) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 45-51-57 (67-77) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið yfir allar lykkjur með litnum natur, snúið stykkinu og prjónið til baka *. Endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist ca 16-17-18 (18-20) cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir ermi – mælt þar sem stykkið er breiðast (stillið af að næsta umferð sé prjónuð yfir allar lykkjur með litnum natur). Í næstu umferð frá réttu eru felldar af fyrstu 28-32-36 (44-52) lykkjur með litnum ljós grár. Setjið 22-24-26 (28-30) lykkjur sem eftir eru á nælu.
Setjið til baka 32-34-40 (46-50) lykkjur frá fyrri nælunni á prjóninn.

FLEYGUR Í HLIÐ:
Prjónið síðan þannig (umferð 1 = rétta): Prjónið yfir allar lykkjur með litnum natur, snúið stykkinu og prjónið til baka. Prjónið 10-11-13 (15-16) með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 20-22-26 (30-32) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið yfir allar lykkjur með litnum natur (setjið eitt prjónamerki í stykkið = mitt í hlið), snúið stykkinu og prjónið til baka. Prjónið 10-11-13 (15-16) með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 20-22-26 (30-32) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið yfir allar lykkjur með litnum natur, JAFNFRAMT í lok umferðar eru 22-24-26 (28-30) efstu lykkjur á nælu prjónaðar til baka á prjóninn, snúið stykkinu og prjónið til baka yfir allar lykkjur = 54-58-66 (74-80) lykkjur.

BAKSTYKKI:
Haldið síðan áfram með stuttar umferðir og rendur samkvæmt útskýringu á framstykki. Prjónið þar til stykkið mælist ca 27-30-33 (36-38) cm frá prjónamerki í hlið mælt þar sem stykkið er breiðast (stillið af að næsta umferð sé prjónuð yfir allar lykkjur með litnum natur). Setjið neðstu 32-34-40 (46-50) lykkjur á nælu.

Klippið frá. Fitjið upp 28-32-36 (44-52) nýjar lykkjur (yfir lykkjur á nælu) í byrjun á prjóni með litnum natur fyrir ermi og prjónið út umferðina = 50-56-62 (72-82) lykkjur alls. Snúið stykkinu og prjónið til baka yfir allar lykkjur.

ERMI:
Haldið síðan áfram samkvæmt útskýringu á fyrri ermi þar til prjónaðar hafa verið jafn margar umferðir á báðum ermum. Prjónið nú næstu umferð frá réttu, fellið af fyrstu 28-32-36 (44-52) lykkjur af með litnum ljós grár. Setjið næstu 22-24-26 (28-30) lykkjur á nælu. Setjið til baka neðstu 32-34-40 (46-50) lykkjur af fyrri nælu á prjóninn. Prjónið síðan FLEYGUR Í HLIÐ samkvæmt útskýringu að ofan. Eftir fleyginn eru 54-58-66 (74-80) lykkjur á prjóni.

HÆGRA FRAMSTYKKI.
Prjónið nú stuttar umferðir og rendur eins og áður og prjónið jafn margar umferðir á hægra framstykki og á vinstra framstykki (fyrir utan 10 umferðir í kanti að framan). Prjónið síðan kant að framan með natur þannig (umferð 1 = rétta: 4 umferðir fram og til baka yfir allar lykkjur, í næstu umferð er fellt af fyrir 5 hnappagötum þannig: Prjónið 18-18-22 (26-28) lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, 6-7-8 (9-10) lykkjur slétt*, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum og endið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman og 2 lykkjur slétt. Snúið og prjónið til baka yfir allar lykkjur. Prjónið 4 umferðir fram og til baka yfir allar lykkjur og fellið síðan LAUST af.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma undir ermum kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið tölur í.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Allt stykkið er prjónað í garðaprjóni, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HÚFA:
Fitjið upp 31-33-35 (37-39) lykkjur á prjón 4,5 með litnum ljós grár DROPS Merino Extra Fine.
Prjónið síðan þannig: * Prjónið 12-14-14 (16-16) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 25-27-31 (33-35) lykkjur með litnum ljós grár, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið yfir allar lykkjur með litnum natur, snúið stykkinu og prjónið til baka *, endurtakið frá *-* og fellið af þegar stykkið mælist 40-42-44 (46-48) cm þar sem það er breiðast.
Prjónið upp 80-84-88 (92-96) lykkjur frá réttu í neðri kanti á húfu með litnum ljós grár. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir = 74-78-82 (86-90) lykkjur. Prjónið 4 umferðir slétt og fellið síðan laust af frá réttu.

Saumið húfuna saman kant í kant, saumið í ystu lykkjubogana.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.12.2017
Nýtt efnismagn í peysu

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-639

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (45)

country flag Norsa Laurence wrote:

Bonjour, Auriez-vous des modeles gratuits de chaussons et bonnets taille prématurés svp ? Cordialement Laurence Norsa

01.03.2022 - 14:03

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Norsa, vous trouverez tous les modèles en taille pématuré ici, pensez à utilisez les filtres pour cibler votre recherche. Bon tricot!

01.03.2022 - 16:35

country flag Norsa Laurence wrote:

Bonjour, J aurais voulu adapter ce modèle pour un petit prématuré. Comment puis je faire ?

28.02.2022 - 21:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Norsa, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande; vous trouverez nos modèles de gilets en taille préma ici, en espérant que vous y trouviez votre bonheur. Bon tricot!

01.03.2022 - 09:57

country flag Brigitta Zueger wrote:

Hallo , in der verkürzten 1.reihe muss ich 36M stricken...dann drehen, und müsste 49 M zurück stricken...........nun habe ich 13 M zu wenig , ?, danke für Ihre Hilfe

09.06.2020 - 15:38

DROPS Design answered:

Liebe Frau Zueger, bei den verkürzten Reihen (1. Größe) stricken Sie: *2 Reihen über 36 Maschen mit hellgrau, 2 Reihen über 49 maschen mit hellgrau, 2 Reihen über alle Maschen mit weiss, 2 Reihen über 36 Maschen mit hellgrau, 2 Reihen über 49 M mit hellgrau, 2 Reihen über 52 Maschen mit weiss* = es sind 12 Reihen (= 6 Krausrippe) über die ersten Maschen (unten) und 2 Reihen (= 1 Krausrippe) oben beim Hals. Viel Spaß beim stricken!

09.06.2020 - 19:06

country flag LAUNAY wrote:

Bonjour Aucun problème pour la veste merci ! super modèle original ! Par contre pour le bonnet, du fait qu'on tricote (pour la taille 1) les 31 mailles en écru après avoir tricoté 25 en gris , on obtient une bande blanche de 6 mailles sur le dessus du bonnet qu'on ne voit pas sur la photo. Est-ce normal ou faut-il tricoter plutôt 31 mailles en gris une fois sur 2 ??? Merci pour votre réponse.

03.06.2020 - 18:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Launay, les rangs raccourcis sont ainsi exacts, dans la 1ère taille, vous aurez bien 6 mailles tricotés uniquement en écru en haut du bonnet. Bon tricot!

04.06.2020 - 08:26

country flag Trine Winther wrote:

Jeg har strikket ovenstående trøje til mit barnebarn. Nu vil min datter gerne have en magen til, hvordan regner jeg opskrifter ud til størrelse 38? Kan I hjælpe med det? På forhånd tak og også tak for de dejlige strikkeopskrifter på jeres hjemmeside. Med venlig hilsen Trine Winther

08.05.2020 - 18:46

DROPS Design answered:

Hei Trine. Så hyggelig at din datter vil ha en maken jakke. Vi har dessverre ikke muligheten til å regne om denne oppskriften til en voksen oppskrift, men ta en titt på DROPS 110-2. Den er strikket nesten på samme måte, men i voksen størrelse. Ellers så kan du bruke søkeordet: "Sidelæns" under Vælg en teknik/søgeord og "Damer" under kategori, da vil du se andre modeller som er strikket sidelangs, kanskje noen som vil falle i smak hos din datter. God Fornøyelse!

11.05.2020 - 09:35

country flag Andrea wrote:

Ich habe mehrfach versucht, den Keil zu stricken,leider klappt es nicht. Wenn ich die letzte Reihe in Natur stricke, komme ich nicht weiter, dann fehlt eine Reihe Natur. Ich würde mich über weitere Informationen, wie man den Keil strickt, wirklich sehr freuen. Vielen Dank!

16.08.2019 - 18:51

DROPS Design answered:

Liebe Andrea, mit 1 Hinreihe anfangen und so stricken: 2 Reihen über alle Maschen mit Natur, dann verkürzten Reihen stricken: 2 R. über 10-16 M mit hellgrau, 2 R. über 20-32 M mit hellgrau, 2 Reihen über alle Maschen mit natur (= Markierer für die Seite hier einsezten), 2 R über 10-16 M mit hellgrau, 2 R über 20-32 M mit hellgrau, dann alle Maschen mit Natur stricken und die stillgelegten Maschen jetzt wieder stricken = 54-80 M, wenden Sie und die Rückreihe über alle Maschen stricken. Viel Spaß beim stricken!

19.08.2019 - 08:56

country flag Lilian Andersen wrote:

Huen: jeg forstår ikke, at der slås op med lys grå, jeg har lavet det om, så jeg slår op med natur, og lukker af med natur - ellers kommer der en umotiveret lys grå stribe et eneste sted på huen - jeg tilpasser naturligvis sammensyning

24.07.2019 - 14:02

country flag Deb wrote:

I’m lost with this we’re do I add the st.for the gusset is there some place I can send a picture of my sweater what you told me is what is on the instructions but it doesn’t say where to pick up the stitches If you could inbox me this instead of putting it on the page I would appreciate it

13.07.2019 - 17:15

DROPS Design answered:

Dear Deb, can you please tell us more? Did you already worked the sleeve? have you started gusset or didn't you start gusset? Remember you can alsways contact the store where you bought the yarn for any individual assistance showing them your work. They will answer you even per mail or telephone. Happy knitting!

15.07.2019 - 09:38

country flag Deb wrote:

I’m with the other lady I can seam to get the GUSSET I have the st.on from after the sleeve I did the off white BUT I don’t have enough st. From the under arm up where do I get them from .

12.07.2019 - 00:45

DROPS Design answered:

Dear Deb, gusset should be worked over the bottom 32-34-40 (46-50) sts you slipped aside at the end of front piece, work 1 row with off white over all stitches, then work short rows beg. from bottom of jacket, 2 rows over 10-16 sts (see size) with grey, 2 rows over 20-32 sts with grey, 2 rows over all stitches with off white (mid of side), 2 rows over 10-16 sts with grey, 2 rows over 20-32 sts with grey, 1 row with off white over all sts working the 22-30 sts from the top of yoke at the end of row, 1 row back over all stitches. Happy knitting!

12.07.2019 - 08:43

country flag Meg Steele wrote:

Slip the bottom 32-34-40 (46-50) sts on a stitch holder (= the side). Cut the thread. Cast on 28-32-36 (44-52) new sts (over sts on stitch holder) at beg of row with off-white for sleeve and work remaining sts on row = 50-56-62 (72-82) sts on needle. Turn piece and work return row on all sts. If i cast on over the stitches on stitch holder does that not mean sleeve is at the bottom. Or do you slip stitches from the top edge I find this confusing

29.05.2019 - 10:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Steele, you have cut the yarn, then cast on with the ball yarn the new stitches for sleeve, then work the remaining stitches on needle (top of yoke). Happy knitting!

29.05.2019 - 11:24