DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5148.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-419
DROPS design: Mynstur nr R-462
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M – L
Ummál: Yfirvídd: 84-96-106 cm,
Lengd: 54-56-58 cm.
Efni:
DROPS Muskat 450-500-550 gr litur natur

DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 OG 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkjur og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5148.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikning sýnir allt mynstrið séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út innan við ystu lykkjuna í garðaprjóni.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og prjónið uppsláttinn snúinn slétt í næstu umferð svo að ekki myndist gat. Útauknu lykkjurnar eru prjónaðar í garðaprjóni upp úr.

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Fækkið lykkjum innan við 4 kantlykkjum í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið lykkjum á eftir 4 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum á undan 4 lykkjum í garðaprjóni þannig: 2 lykkjur slétt saman.
--------------------------------------------------------

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ PRJÓNA!
Fitjið upp 190-214-238 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 3,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 3 cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 4 – prjónið nú 2 umferðir slétt JAFNFRAMT í fyrstu af þessum umferðum er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir = 192-216-240 lykkjur – setjið 1 prjónamerki 49-55-61 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 94-106-118 lykkjur á milli prjónamerkis á bakstykki). Eftir 2 umferðir slétt er næsta umferð prjónuð frá röngu þannig:

STÆRÐ S: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, M.1A, M.1B, 4 lykkjur brugðið, M.1A, M.1B og 4 kantlykkjur í garðaprjóni.
STÆRÐ M: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, M.1A, 1 lykkja slétt, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðiðr, 1 lykkja slétt, M.1B, 4 lykkjur brugðið, M.1A, 1 lykkja slétt, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, M.1B og 4 kantlykkjur í garðaprjóni.
STÆRÐ L: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, M.1A, 1 lykkja slétt, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, M.1B, 4 lykkjur brugðið, M.1A, 1 lykkja slétt, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, M.1B og 4 kantlykkjur í garðaprjóni.

Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið við miðju að framan – sjá ÚTAUKNING að ofan í 4. hverri umferð 6 sinnum og síðan í annarri hverri umferð 7 sinnum.
Útaukning á hliðum: Jafnframt þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur slétt í hvorri hlið í 6. hverjum cm alls 4 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar brugðið séð frá réttu.

HÁLSMÁL:
Jafnframt þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir á eftir síðustu útaukningu við miðju að framan (stykkið mælist ca 17 cm) er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við miðju að framan fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA að ofan. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 13 sinnum og í 4. hverri umferð 5 sinnum, síðan í 6. hverri umferð 6 sinnum.

HANDVEGUR:
Jafnframt þegar stykkið mælist 35-36-37 cm fellið af 6 lykkju á hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin) og hvort stykki er nú prjónað áfram fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 96-108-120 lykkjur. Fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1-3-4 sinnum og 1 lykkja 3-3-5 sinnum = 86-90-94 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 51-53-55 cm prjónið 4 umferðir í garðaprjóni yfir miðju 26 lykkjur (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Fellið síðan af miðju 18 lykkjur fyrir hálsmáli = 34-36-38 lykkjur eftir fyrir hvora öxl. Haldið áfram með mynstur með 4 lykkjum garðaprjón að hálsi þar til stykkið mælist ca 53-55-57 cm – passið uppá að prjóna nokkrar umferðir í sléttprjóni á eftir 1 snúning á kaðli. Prjónið 6 lykkjur í hverjum kaðli saman 2 og 2 (þetta er gert til að öxlin víkki ekki út) = 28-30-32 lykkjur á prjóni. Í næstu umferð er felldar af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist ca 54-56-58 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fellið af fyrir handveg á hlið eins og á bakstykki JAFNFRAMT sem affelling fyrir hálsmáli heldur áfram eins og áður. Etir affellingu fyrir handveg og hálsmáli eru 34-36-38 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með mynstur með 4 lykkjum garðaprjón við háls þar til stykkið mælist ca 53-55-57 cm – stillið af þannig að prjónaðar séu nokkrar umferðir í sléttprjóni á eftir snúning á kaðli. Prjónið nú 6 lykkjur á hverjum kaðli saman 2 og 2 (eins og á bakstykki) = 28-30-32 lykkjur á prjóni. Í næstu umferð eru þær lykkjur felldar af sem eftir eru. Stykkið mælist ca 54-56-58 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið áfram eins og á hægra framstykki nema gagnstætt.

ERMI:
Fitjið upp 60-64-68 lykkjur á sokkaprjón 3,5 og prjónið 1 umferð slétt. Haldið áfram með stroff * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. Þegar stroffið mælist 3 cm er skipt yfir á sokkaprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 61-65-69 lykkjur í síðustu umferð. Prjónið síðan næstu umferð þannig (setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = mitt undir ermi): 1 lykkja slétt, 2-4-6 lykkjur brugðið, M.2 (= 55 lykkjur) og endið með 2-4-6 lykkjur brugðið og 1 lykkja slétt. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur slétt mitt undir ermi í 5. hverri umferð alls 8 sinnum = 77-81-85 lykkjur (útauknar lykkjur eru prjónaðar brugðið).
Þegar stykkið mælist 18 cm eru felldar af 6 lykkjur mitt undir ermi og stykkið er prjónað til loka fram og til baka. Haldið áfram að fella af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 4 sinnum og 1 lykkja 2-4-5 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 25-27-28 cm, að lokum fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist ca 26-28-29 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju.

BELTI:
Beltið er hægt að prjóna á tvo sokkaprjóna.
Fitjið upp 6 lykkjur á sokkaprjón 4. Prjónið snúruprjón þannig: * prjónið 1 lykkju slétt, setjið þráðinn fyrir framan stykkið (að þér), taktu 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið leggið þráðinn aftur fyrir aftan stykkið (frá þér) *, endurtakið frá *-* í öllum umferðum. Fellið af þegar beltið mælist ca 110-150 cm.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = 1 KÚLA: Prjónið 5 lykkjur í þessa lykkju með því að prjóna til skiptis framan í og aftaan í lykkjuna, snúið við. Prjónið 4 lykkjur sléttprjón yfir þessar 5 lykkjur. Eftir það er 2. lykkjan steypt yfir 1. lykkjuna, áfram er 3. lykkjunni steypt yfir 1. lykkjuna, steypið síðan 4. lykkjunni yfir 1. lykkjuna og að lokum er 5. lykkjan steypt yfir 1. lykkjuna (= 1 lykkja eftir), prjónið stykkið áfram
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálpaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-419

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Irene Simeone wrote:

Buongiorno, gli aumenti ai lati della giacca sono 2+2, corretto? vanno fatti sul diritto del lavoro e poi lavorati sempre a rovescio? Inoltre vi segnalo un errore nella taglia M nella suddivisione delle 216 m dopo i primi 2 aumenti. "Inserire un segnapunti all’interno di 49-56-61 m da ogni lato (= 94-106-118 m tra il segnapunti sul dietro)". Secondo quanto indicato 106+56+56, risultano 218 m. Potreste indicarmi come correggere: 108+54+54 oppure 104+56+56? Grazie mille.

23.08.2022 - 16:00

DROPS Design answered:

Buonasera Irene, abbiamo inoltrato la sua richiesta al settore design: se dovesse essere necessario troverà il modello corretto direttamente online. Buon lavoro!

27.09.2022 - 21:38

country flag Christine 40 wrote:

Bonjour je me suis aperçu qu’il manque une partie de texte sur les diminutions des manches. Je l’ai retrouvé dans le texte en norvégien et traduit: rabattre pour l'arrondi de la manche de chaque côté tous les 2 rangs : 4 fois 2 m et 2-4-5 fois 1 m. Rabattre ensuite 2 m de chaque côté jusqu'à 25-27-28 cm de hauteur totale, puis 1 fois 3 m de chaque côté. Je crois qu’il manque à toutes les traductions. Merci pour votre site et vos modèles c’est génial cdlt Christine

04.10.2021 - 15:39

Pat Whetstone wrote:

I love this pattern but only difficulty I have is that on the charts, bobbles and cables are on even number rows that is, wrong side rows, surely they should be on rs rows. Has anyone else found this or am I doing something wrong ?

21.09.2015 - 11:58

country flag JW wrote:

Size L: pattern is 6 stitches short. Should have an additional K2, P4 before K1, M18

01.07.2012 - 02:02

DROPS Design answered:

Dear JW, Size L pattern has been edited. Thank you ! Best regards !

04.12.2012 - 19:00

country flag Pecriaux wrote:

Dans les explication de ce modèle : DROPS Extra 0-419 DROPS Extra 0-419 by DROPS Design Gilet irlandais à manches courtes DROPS en « Muskat » les explications du diagramme sont en langue étrangère (pour moi en tout cas! ;-D) j'aimerais bien les avoir en français si c'était possible...je guetterai dans les jours qui viennent...

15.05.2012 - 17:35

DROPS Design answered:

Bonjour Pecriaux, la légende apparaît maintenant directement au-dessus du diagramme. Bon tricot !

16.05.2012 - 08:42

country flag DROPS Design wrote:

Denne oppsk. finnes dessverre ikke på norsk. Bare på dansk og svensk.

26.10.2009 - 09:29

country flag M.E. wrote:

Hei Mangler oppskriften her?

25.10.2009 - 22:20