DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 178-1
DROPS Design: Mynstur ai-054
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
450-500-550-600-700-750 g litur 03, perlugrár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 hæð.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp. Stykkinu er skipt upp þegar fellt er af fyrir handveg og bakstykki og framstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. Ermarnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. Að lokum er hálsmálið prjónað og vasar.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 176-192-208-224-240-264 lykkjur á hringprjóna 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-16-16-16-12-16 lykkjur jafnt yfir = 164-176-192-208-228-248 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar og 1 prjónamerki á eftir 82-88-96-104-114-124 lykkjur (= í hliðum). Prjónið síðan sléttprjón – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-59 cm fellið af 2-2-4-4-4-4 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 1-1-2-2-2-2 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Framstykki og bakstykki eru prjónuð til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 80-86-92-100-110-120 lykkjur. Fellið nú af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: 2 lykkjur 0-0-1-2-3-4 sinnum og 1 lykkja 0-0-0-0-1-3 sinnum = 80-86-88-92-96-98 lykkjur. Þegar stykkið mælist 65-68-71-74-77-79 cm fellið af fyrir hálsmáli JAFNFRAMT er byrjað að fella af fyrir öxl.
Prjónið þannig:
HÁLSMÁL:
Fellið af miðju 30-30-32-32-34-36 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi.
ÖXL:
Fellið af í annarri hverri umferð í hvorri hlið þannig: 6-6-6-7-7-7 lykkjur 4 sinnum, 0-3-3-1-2-2 lykkjur 1 sinni (= alls 24-27-27-29-30-30 lykkjur felldar af fyrir öxl í hvorri hlið).

FRAMSTYKKI:
= 80-86-92-100-110-120 lykkjur. Fellið af fyrir handveg eins og á bakstykki = 80-86-88-92-96-98 lykkjur. Þegar stykkið mælist 55-58-61-64-67-69 cm fellið af miðju 26-26-28-28-30-32 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af frá hálsi þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1 sinni = 24-27-27-29-30-30 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 65-68-71-74-77-79 cm fellið af fyrir öxl eins og á bakstykki.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 38-38-42-42-46-46 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Prjónið stroff í 4 cm, skiptið síðan yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 34-34-38-38-42-42 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 7-7-6-6-6-7 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 5½-4-4-3-2½-2 cm millibili alls 6-8-8-10-11-12 sinnum = 46-50-54-58-64-66 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-37-36-35-34-32 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur, 1 sinni, 2 lykkjur 4-4-3-5-6-8 sinnum, síðan eru felldar af 3 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 42 cm í öllum stærðum. Fellið af.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í og saumið sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 92-104 lykkjur í kringum hálsmál á stutta hringprjóna 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 92-92-96-100-100-104 lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

VASI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 32-32-34-34-36-36 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 18-18-18-20-20-20 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, fellið af. Prjónið annan vasa til viðbótar alveg eins. Saumið vasana niður á framstykki – saumið þá beint yfir stroff og hafið ca 16-16-18-18-20-20 cm bil á milli vasa við miðju að framan.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Astrid Kuhlmann wrote:

Hallo und guten Tag, ich habe die beiden Ärmel jetzt bis zur Länge von 36 cm gestrickt (Größe L). Ich bin mir aber unsicher, ob ich jetzt schon mit den Abnahmen für die Armkugel beginnen soll. Der ganze Ärmel kommt mir auf der Schemazeichnung mit 42 cm sehr kurz vor. Von meiner Schulter bis zum Handgelenk messe ich außen bei mir 60 cm. Ist der Pulli nur mit 3/4 -Ärmeln? Der Pulli ist doch eher für den Winter bei dieser dicken Wolle (Drops Air) oder? Danke für Ihre Mühe!

01.02.2023 - 21:50

DROPS Design answered:

Liebe Frau Kuhlman, die Ärmel sind hier nicht so lang (auch keine echten 3/4 Ärmel) - vergleichen Sie die Maßen in der Skizze mit einem ähnlichen Pullover, die Sie gerne haben, und passen Sie die Länge der Ärmel je nach Wunsch wenn nötig ist. Viel Spaß beim stricken!

02.02.2023 - 09:30

country flag Louise Baril wrote:

Quand je dois terminer le dos et le devant séparément, est-ce que je dois utiliser des aiguilles qui ne sont pas circulaires?

09.12.2022 - 19:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Baril, vous pouvez continuer soit en allers et retours sur aiguille circulaire (cf vidéo pour savoir comment faire), soit sur aiguilles droites; si vous changez d'aiguilles, veillez juste bien à conserver la même tension qu'auparavant. Bon tricot!

12.12.2022 - 08:47

country flag Goret Liliane wrote:

Op het einde van de mouw schrijft u bij de laatste mindering aan de kop van de mouw :kant dan nog 3 steken af langs beide zijde tot 42 cm hoog .betekent dit dat je maar 1 keer deze 3 steken moet afkanten of meerdere keren tot je de 42 cm hebt bereikt ? Hoeveel steken blijven er nog over alvorens men afkant

22.02.2021 - 20:23

DROPS Design answered:

Dag Liliane,

Je gaat inderdaad door met afkanten van 3 steken aan beide kanten totdat je op een hoogte van 42 cm bent. Ik weet niet hoeveel steken er dan precies over blijven, maar dat is niet zo belangrijk.

23.02.2021 - 12:23

country flag Gaétane wrote:

Bonjour, La photo ne correspond pas à la description ! Il a fallu que j'arrive au col pour m'en apercevoir :( Je voulais un col presque bateau (photo) et je me rends compte que c'est un col rond (descriptif)... tout ce travail pour ça, c'est vraiment dommage. Je pense d'ailleurs que je ne le terminerai pas.

02.10.2020 - 13:59

country flag Tez wrote:

I can't see the amount of wool that is needed for this jumper. Before a start has the sizing issues been sorted.

26.09.2020 - 10:06

DROPS Design answered:

Dear Tez, you will find the total amount of yarn required in grams in each size at the beg of the pattern, ie for example in size S your require 450 g 28.09.2020 - 11:15

country flag Nadezda wrote:

Jeg lurer på bredden av tunika i oppskriften. Tunakaen ser ut bare litt romslig på bildet, ikke oversize. Men 248-164 = 84 masker mellom S og XXXL dvs 50 cm forskjell i bredden (!) med 17 masker pr. 10 cm. Er dette ikke litt overkill? Jeg bruker strørrelse 48-50, strikket størrelse XL: 208-164 = ca 26 cm forskjell i bredden. Fikk en posete oversize. Jeg måtte bruke mål for størrelse L for at dette skulle sitte riktig.

12.05.2020 - 13:54

DROPS Design answered:

Hei Nadeza. Vi prøver så godt det er mulig å bildet til å stemme overens med plagget, men det er ikke alltid så enkelt å få størrelsefølelsen på et bildet i alle størrelsene. Derfor er det veldig viktig å sjekke målene på målskissen for å vite hvordan målene vil bli i de andre størrelsene. Men din kommentar er formidlet videre til design avd, takk for ditt innspill. mvh DROPS design

18.05.2020 - 11:11

country flag Nataly wrote:

Hello! There is a very wide neckline on the photo but the size on the pattern is 11-14cm. It's too small for such a cutout. Is there a mistake?

16.02.2020 - 19:20

DROPS Design answered:

Dear Nataly., the pattern is correct. However, we've sent your question to the Design Department so that they check the pattern.

16.02.2020 - 23:22

country flag Nataliya wrote:

Здравствуйте! На фотографии очень широкий вырез горловины, а на выкройке указаны размеры 11-14см - это очень мало. Ошибка?

13.02.2020 - 20:12

DROPS Design answered:

Здравствуйте Наталья. Мы направили ваш вопрос в отдел дизайна.

16.02.2020 - 23:16

country flag Katja wrote:

Taschen: "1 Rück-Reihe rechts stricken. Dann glatt rechts weiterstricken"- bedeutet das, daß die erste Reihe linksgestrickt vorn ist?

07.02.2019 - 23:35

DROPS Design answered:

Liebe Katja, die erste Reihe bei der Tasche wird eine Rückreihe (= und wird rechts gestrickt). Dann stricken Sie glatt rechts bei der nächsten Reihe (= Hinreihe) . Viel Spaß beim stricken!

08.02.2019 - 09:10