DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 172-41
DROPS Design: Mynstur nr ai-036
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio
300-300-350-350-400-450 g nr 14, bleikfjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 12 tbst x 4,5 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Stykkið er heklað fram og til baka, en er heklað saman í lokin í hverri umf þannig:
Hver umf með fl (= frá röngu) byrjar með 1 ll (kemur í stað fyrstu fl) og endar með 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf, snúið við og heklið næstu umf frá réttu.
Hver umf með tbst (= frá réttu) byrjar með 4 ll (kemur í stað fyrstu tbst) og endar með 1 kl í 4. ll í byrjun umf, snúið stykkinu og heklið síðan áfram frá röngu.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 tbst með því að hekla 2 tbst saman þannig: Heklið 1 tbst, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta tbst í næstu l, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað i hring.

FRAMSTYKKI:
Heklið 4 ll, með heklunál nr 6 með Air og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið A.1 fram og til baka (fyrsta umf = ranga), en hver umf er hekluð saman – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!

ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Endurtakið umf 6 og 7 (þ.e.a.s. 2 síðustu umf í mynstri), þ.e.a.s. í hverri umf með tbst er aukið út um 4 tbst í hvorri hlið á ferhyrningi (= alls 16 tbst útaukning í umf). Í hverri umf með fl er aukið út um 2 fl í hvorri hlið á ferhyrningi (= alls 8 fl fleiri í umf). Þ.e.a.s. Það eru heklaðir fleiri og fleiri tbst/fl á milli allra horna.

Heklið síðan eftir stærðum þannig:

STÆRÐ S-M-L-XL:
Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 50-54-58-63 cm alls (þ.e.a.s. 25-27-29-31½ cm mælt frá miðju). Passið uppá að síðasta umf sé 1 umf með tbst. Klippið frá og festið enda. Heklið nú stykkið áfram fram og til baka yfir aðra hliðina þannig: Byrjið í einu horninu (þ.e.a.s. ll-boginn á milli kúlna), passið að fyrri byrjunin/lokin í umf snúi út að hlið. Heklið frá röngu þannig: Heklið 1 kl um ll-bogann, 1 ll, heklið 2 fl um sama ll-boga, 2 fl um næsta ll-boga, 1 fl í hvern tbst fram að næsta ll-boga JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í miðju-l, 2 fl um næsta ll-boga, 2 fl um síðasta ll-boga, snúið stykkinu. Heklið þannig:

UMFERÐ 1 (= frá réttu): Heklið 1 tbst í hverja fl.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Heklið 1 fl í hvern tbst.
Endurtakið umf 1 til 2 þar til stykkið mælist ca 56-58-60-64 cm, passið að síðasta umf sé 1 umf með fl frá röngu.

VINSTRI ÖXL:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Heklið 1 tbst í hverja fl þar til eftir eru 7-7-8-8 fl á undan prjónamerki, heklið næstu 2 tbst saman (= 1 tbst færri) – LESIÐ ÚRTAKA!
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Heklið 1 fl í hvern tbst.
UMFERÐ 3 (= frá réttu): Heklið 1 tbst í hverja fl þar til eftir eru 2 fl, heklið næstu 2 tbst saman (= 1 tbst færri).
Heklið umf 2 til 3 alls 2 sinnum. Klippið frá og festið enda.

HÆGRI ÖXL:
Byrjið 7-7-8-8 fl frá prjónamerki. Þ.e.a.s. nú hefur verið hoppað yfir alls 14-14-16-16 fl fyrir hálsmáli.
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Heklið fyrstu 2 tbst saman (= 1 tbst færri), heklið 1 tbst í hverja fl út umf.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Heklið 1 fl í hvern tbst.
UMFERÐ 3 (= frá réttu): Heklið fyrstu 2 tbst saman (= 1 tbst færri), heklið 1 tbst í hverja fl út umf.
Heklið umf 2 til 3 alls 2 sinnum. Klippið frá og festið enda.

STÆRÐ XXL-XXXL:
Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 64-66 cm alls (þ.e.a.s. 32-33 cm mælt frá miðju). Stillið af að síðasta umf sé 1 umf með fl.
Klippið frá og festið enda. Byrjið mitt á annarri hliðinni, passið að fyrri byrjun/lok á umf snúi út að hlið. Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og áður þannig:

UMFERÐ 1 (= frá réttu): Hoppið yfir fyrstu 9-9 fl (= fyrir hálsmáli), heklið næstu 2 tbst saman (= 1 tbst færri) – LESIÐ ÚRTAKA, heklið mynstur og aukið út eins og áður þar til eftir eru 11-11 fl í umf, heklið 2 næstu tbst saman (= 1 tbst færri), snúið stykkinu. Þ.e.a.s. nú hefur verið hoppað yfir alls 18-18 fl fyrir hálsmáli og fækkað er um 1 tbst hvoru megin við þessa fl.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Heklið mynstur og aukið út eins og áður.
UMFERÐ 3 (= frá réttu): Heklið 2 fyrstu tbst saman (= 1 tbst færri), heklið mynstur og aukið út eins og áður þar til eftir eru 2 fl, heklið næstu 2 tbst saman (= 1 tbst færri).
Heklið umf 2 til 3 alls 2 sinnum, heklið síðan umf 2 1 sinni til viðbótar. Framstykkið mælist ca 72-74 cm alls. Klippið frá og festið enda.

BAKSTYKKI:
STÆRÐ S-M-L-XL:
Heklið eins og framstykki þar til stykkið mælist 56-58-60-64 cm alls (án þess að fækka l fyrir hálsmáli). Heklið síðan þannig:

UMFERÐ 1 (= frá réttu): Heklið 1 tbst í hverja fl.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Heklið 1 fl í hvern tbst.
UMFERÐ 3 (= frá réttu): Heklið 1 tbst í hverja fl.
UMFERÐ 4 (= frá röngu): Heklið 1 fl í hvern tbst.

HÆGRI ÖXL:
UMFERÐ 5 (= frá réttu): Heklið 1 tbst í hverja fl fram þar til eftir eru 10-10-11-11 fl á undan prjónamerki. Klippið frá og festið enda.

VINSTRI ÖXL:
UMFERÐ 5 (= frá réttu): Hoppið yfir 10-10-11-11 fl á eftir prjónamerki (= alls 20-20-22-22 fl fyrir hálsmáli), heklið 1 tbst í hverja fl út umf. Klippið frá og festið enda. Bakstykkið mælist ca 64-66-68-72 cm alls á lengd.

STÆRÐ XXL-XXXL:
Heklið á sama hátt og framstykki þar til stykkið mælist alls 64-66 cm. Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og áður þar til stykkið mælist 69-71 cm. Passið að síðasta umf sé 1 umf með fl. Nú er eftir 1 umf með tbst og 1 umf með fl áður en bakstykkið hefur verið heklað til loka, stillið af við framstykki. Klippið frá og festið enda. Byrjið mitt í annarri hliðinni, passið að fyrri byrjun/lok umf snúi út að hlið. Haldið áfram með mynstrið og aukið út eins og áður þannig:

UMFERÐ 1 (= frá réttu): Hoppið yfir fyrstu 12-12 fl, heklið mynstur og aukið út eins og áður þar til eftir eru 12-12 fl í umf, snúið stykkinu (= alls 24-24 fl fyrir hálsmáli)
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Heklið mynstur og aukið út eins og áður.
Bakstykkið mælist ca 72-74 cm alls. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Ermin er hekluð ofan frá og niður, fram og til baka. Heklið 50-52-56-58-61-64 ll (meðtaldar 4 ll til að snúa við með) með heklunál nr 6 með Air. Heklið 1 tbst í 5. ll frá heklunálinni (= 2 tbst), 1 tbst í hverja af næstu 3-5-2-4-0-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 tbst í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* = 41-43-46-48-50-53 tbst.

UMFERÐ 1 (= frá röngu): Heklið 1 fl í hvern tbst.
UMFERÐ 2 (= frá réttu): Heklið 1 tbst í hverja fl.
Endurtakið umf 1 til 2.

Þegar stykkið mælist 4 cm, passið uppá að næsta umf sé 1 umf með tbst, fækkið um 1 tbst í hvorri hlið á stykki innan við 1 tbst (= 2 tbst færri). Fækkið l svona alls með 5½-4½-3½-3-3-2 cm millibili alls 6-7-8-9-9-10 sinnum = 29-29-30-30-32-33 l. Þegar stykkið mælist 37-36-35-33-31-29 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), passið uppá að síðasta umf sé 1 umf með fl, klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma, passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. Saumið ermasauma og hliðarsauma niður þar til eftir eru ca 12 cm (= klauf).

HÁLSMÁL:
Byrjið við annan axlasauminn. * Heklið 1 fl, 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm *, endurtakið frá *-* hringinn allt hálsmálið, endið með 1 kl í fyrstu fl. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = loftlykkjuhringur: 4 loftlykkjur og 1 keðjulykkja í fyrstu loftlykkju
symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = fastalykkja um loftlykkjuboga / loftlykkjuhring
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = loftlykkja
symbols = keðjulykkja
symbols = Kúla: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu fastalykkju / hálfur stuðull, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 2 tvíbrugðna stuðla til viðbótar í sömu lykkju alveg eins, dragið síðan þráðinn í gegnum allar 4 lykkjur á heklunálinni
symbols = Kúla: Heklið 4 loftlykkjur, 1 tvíbrugðinn stuðull í fyrstu fastalykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 tvíbrugðinn stuðul til viðbótar í sömu fastalykkju alveg eins, dragið síðan þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni
symbols = hálfur stuðull
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-41

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Sarah wrote:

Lagde mærke til at der ikke er en skulder sektion under de større str. Er det fordi der ikke er brug for skulder specifikation ved dem? Er næsten færdig med frontstykket, så har tid til at vente på svar. Tak for alle disse opskrifter, dette er den første jeg har slået mig ud i, og var virkelig glad for at finde så mange at vælge i mellem.

04.04.2020 - 07:34

DROPS Design answered:

Hej Sarah, ja skulderen i de større størrelser er ikke så høj som i de små størrelser. Følg forklaringen under XXL-XXXL. God fornøjelse!

21.04.2020 - 10:41

country flag Veerle wrote:

Deze trui in S , maar met lange mouwen , heb ik dan evenveel nodig ?

22.10.2016 - 20:43

DROPS Design answered:

Hoi Veerle. Ik zou dan voor de zekerheid een extra bolletje nemen

01.11.2016 - 14:20

country flag Rebecca Gibbs wrote:

This looks like one of those sweaters you make for when you just want to be comfortable. I love the color. I am sure this will be on my to make list!

15.06.2016 - 06:18

country flag Gina wrote:

Hier wil je meteen aan beginnen. Lijkt me ook enig in een garen met kleurverloop.

07.06.2016 - 23:46

country flag Lauren McRoberts wrote:

Very unique! Love it!

04.06.2016 - 22:27

country flag Git wrote:

En av mina favoriter!

04.06.2016 - 01:15