DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-1153
DROPS Design: Mynstur nr mb-022
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio
550-600-650-700-800-850 gr litur nr 06, gleym-mér-ei

DROPS HEKLUNÁL NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 13 st verði 10 cm á breidd og A.2 (= 6 l) verði 4,5 cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með tbst er fyrsta tbst skipt út fyrir 4 ll.

ÚTAUKNING:
Heklið 2 tbst í sama tbst.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 164-177-193-207-223-235 ll (meðtaldar 4 ll til að snúa við með) með heklunál nr 5,5 með Big Merino. Snúið við og heklið 1 tbst í 5. ll frá heklunálinni (= 2 tbst), 1 tbst í hverja og eina af næstu 4-2-3-2-3-5 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 tbst í hvern af næstu 4 tbst *, endurtakið frá *-* út umf = 130-140-153-164-177-187 tbst.

Snúið við og heklið 1 tbst í hvern tbst – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR – JAFNFRAMT er aukið út um 10-12-11-12-11-13 tbst jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 140-152-164-176-188-200 tbst.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

Snúið við og heklið frá réttu þannig: Heklið 1 tbst í hvern af fyrstu 7 tbst (= hægri kantur að framan), A.2 (= 6 l) alls 21-23-25-27-29-31 sinnum á breiddina, 1 tbst í hvern af 7 tbst (= vinstri kantur að framan). Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er endurtekin umf í A.x og kantlykkjur að framan eru heklaðar eins og áður til loka.

Þegar stykkið mælist ca 44-46-46-48-48-50 cm – stillið eftir umf 1 í A.x, heklið næstu umf frá réttu (= umf 2 í A.x) Jafnframt er sett 1 prjónamerki í hvora hlið þannig:

STÆRÐ S-L-XXL:
Heklið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, A.2 alls 5-6-7 sinnum, setjið 1 prjónamerki í síðasta tbst í A.2 – sjá ferhyrning í mynstri (= hægri hlið), heklið A.2 alls 11-13-15 sinnum, setjið 1 prjónamerki í síðasta tbst í A.2 (= vinstri hlið), heklið A.2 alls 5-6-7 sinnum, endið á 7 kantlykkjur að framan eins og áður.
Heklið nú hvort framstykki og bakstykki til loka fyrir sig, klippið frá.

STL M-XL-XXXL:
Heklið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, A.2 alls 6-7-8 sinnum, setjið 1 prjónamerki í síðustu ll í A.2 – sjá stjörnu í mynstri (= hægri hlið), heklið A.2 alls 12-14-16 sinnum, setjið 1 prjónamerki í síðustu ll í A.2 (= vinstri hlið), heklið A.2 alls 5-6-7 sinnum, endið á 7 kantlykkjur að framan eins og áður.
Heklið nú hvort framstykki og bakstykki til loka fyrir sig, klippið frá.

BAKSTYKKI/ERMAR:
Heklið síðan framstykki og bakstykki með byrjun frá röngu (= umf í A.x) þannig: Heklið 23-21-23-21-23-21 LAUSAR ll fyrir vinstri ermi, A.3 0-1-0-1-0-1 sinni, A.2 11-11-13-13-15-15 sinnum, A.3 0-1-0-1-0-1 sinni, endið á 22 LAUSUM ll fyrir hægri ermi (misjafn ll-fjöldi í vinstri og hægri ermi vegna mynsturs).

Næsta umf frá réttu er hekluð þannig: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR – (ATH: Heklið fyrstu umf í A.1-A.3 yfir ll). Heklið 1 tbst í hverja af fyrstu 7 ll (= hægri kantur á ermi, A.1 alls 1-0-1-0-1-0 sinnum, A.2 alls 15-17-17-19-19-21 sinnum, A.3 alls 1-0-1-0-1-0-1 sinni, endið á 1 tbst í hverja af síðustu 7 ll (= vinstri kantur á ermi). Haldið svona áfram, en endurtakið síðan A.x, heklið svo 1 tbst í hvern af 7 tbst í hvorri hlið til loka.

Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm – stillið af eftir umf frá réttu – ekki er lengur heklað yfir miðju 3 mynstureiningarnar á A.2 (= háls). Heklið 1 umf eins og áður yfir l fyrir vinstri öxl. ATH: Klippið frá áður en heklað er yfir afgang af l fyrir hægri öxl.

HÆGRA FRAMSTYKKI/ERMI:
Heklið 22 LAUSAR ll fyrir ermi, heklið síðan áfram í lok á fram- og bakstykki með byrjun frá röngu (= 3. umf í A.x) þannig: A.3 0-1-0-1-0-1 sinni, A.2 5-5-6-6-7-7 sinnum, endið á 7 kantlykkjum að framan eins og áður.

Næsta umf frá réttu er hekluð þannig: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR – (ATH: Heklið fyrstu umf í A.2/A.3 yfir ll). Heklið 1 tbst í hvern af fyrstu 7 tbst (= kantlykkjur að framan), A.2 alls 7-8-8-9-9-10 sinnum, A.3 alls 1-0-1-0-1-0 sinnum, endið á 1 tbst í hverja af 7 ll (= kantur á ermi). Haldið svona áfram, en endurtakið síðan A.x, heklið svo 1 tbst í hvern af 7 tbst á hlið til loka.

Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm – stillið af að endað er í sömu umf og á bakstykki (= frá röngu) þá er öxlin tilbúin og sjalkragi er heklaður yfir fyrstu 13 l.

SJALKRAGI:
Heklið sjalkraga fram og til baka með byrjun frá réttu þannig: * Heklið 1 tbst í hvern af fyrstu 7 tbst, 1 tbst í hvern og einn af næstu 6 tbst/ll, snúið við og heklið 1 fl í hvorn af fyrstu 2 tbst, 1 hst í hvorn af næstu 2 tbst, 1 st í hvorn af næstu 2 tbst, 1 tbst í hvern af næstu 7 tbst, snúið við *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist ca 8 cm innst þar sem stykkið er minnst. Klippið frá og festið enda.

VINSTRA FRAMSTYKKI/ERMI:
Heklið síðan fram- og bakstykki. Heklið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. heklið A.1 í stað A.3 og gagnstætt, heklið síðan 23-21-23-21-23-21 ll fyrir ermi í lok umf frá röngu. Klippa verður frá áður en sjalkraginn er heklaður yfir fyrstu 13 st/ll í umf með byrjun frá röngu.

FRÁGANGUR:
Leggið framstykki ofan á bakstykki og heklið axlir saman þannig: 1 fl í gegnum bæði stykkin, * 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* meðfram allri öxlinni – ATH: Í kant á ermum er hoppað yfir 2 tbst á undan næstu fl. Heklið kragann saman við miðju að aftan þannig: 1 fl í hverja l. Heklið saman undir ermum þannig: * 1 fl í ll með tbst-hóp, 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 3 ll *, endurtakið frá *-* undir allri erminni – ATH: Í kant á ermi er hoppað yfir 2 tbst á undan næstu fl.

Mynstur

symbols = ll
symbols = tbst í tbst/ll
symbols = tbst um ll/ll-boga
symbols = 1 tb/1 ll - umferðin er útskýrð í uppskrift
symbols = byrjið hér
symbols = á við skiptingu á fram- og bakstykki - útskýring í uppskrift
symbols = á við um skiptingu á fram- og bakstykki - útskýring í uppskrift
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1153

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Boisson Elena wrote:

Bonjour. Les explications a partir de DOS/MANCHES ne sont pas claires. Comment et dans quel endroit integrer les ml? Avez vous des photos intermediaires de l'ouvrage sur les quels on peut voir la configuration de l'ouvrage avant l'assamblage? J'ai achetė la laine sur ce site et je n'ai pas de magasin au tour de chez moi pour me consulter comment continuer a crocheter. Merci.

20.10.2019 - 22:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Boisson, vous crochetez maintenant les manches, vous avez coupé votre fil et montez maintenant 21-23 mailles en l'air (cf taille) pour la manche gauche, crochetez le rang suivant sur les mailles du dos comme avant (A.3, A.2, A.3) et terminez en montant 22 mailles en l'air, tournez et crochetez sur l'endroit dans les mailles en l'air de la manche droite, au-dessus du dos, et dans les mailles en l'air de la manche gauche. Le motif doit continuer, et on a 7 DB de chaque côté pour la bordure des manches. Bon crochet!

21.10.2019 - 11:41

country flag Kamila P wrote:

Dobrý den,\r\nJsem cca v půlce práce, ale neumím si teď schematicky představit, jak bude celá práce vypadat. \r\nChápu správně, že \"TRUP\" a \"ZADNI DIL/RUKAVY\" je jeden kus. A pote \"PRAVY PREDNI DIL/RUKAV\" a \"LEVY PREDNI DIL/RUKAV\" jsou dalsi dve casti? \r\nNemate prosim nakres kusu zvlast? \r\nDekuji.

20.09.2019 - 14:52

DROPS Design answered:

Dobrý den, Kamilo, nejprve háčkujeme všechny díly dohromady jako jeden kus, až dojdeme k průramkům. Tam oddělíme záda (zadní díl/trup) a oba přední díly. Přidáme oka pro rukávy a jednotlivé díly postupně doháčkujeme k rameni. Sešívat/sháčkovávat nakonec budeme náramenice, dolní hranu rukávů a podpaží. Hodně zdaru! Hana

06.12.2019 - 18:10

country flag Hilde wrote:

Hallo.. Ik heb de toer met de steek markeerders gehaakt. Nu moet is verder met het achterpand/mouwen. Je begint met de lossen. Waar haak ik deze vast. Aan het begin van de toer? Of begin ik bij de steekmarkeerder? Ga ik dan verder haken tot de juiste lengte? Dan de steken overslaan voor de hals en dan weer aanhechten aan de rechterkant die af haken en weer aanhechten aan de linker kant? Volgens mij ga ik ergens fout.. misschien kunnen jullie mij op weg helpen?Alvast bedank. groetjes hilde.

26.02.2018 - 19:53

DROPS Design answered:

Hallo Hilde, Je haakt inderdaad eerst lossen en hier doe je verder niks mee, dan begin je op het pand, dus bij de markeerdraad en aan het eind haak je ook weer lossen. Dan keer je en haakje over de lossen (dit wordt de mouw) dan over het pand en dan weer over de lossen (dit wordt de andere mouw)

04.03.2018 - 19:46

country flag Elke Giesen wrote:

Hallo, ich habe Schwierigkeiten mit den Ärmel im Vorderteil, wo und wie ich sie mit den Luftmaschen anhäkeln muss. Besteht da die Möglichkeit ein kurzes Video zu erstellen ? Wäre super. Ich stricke und häkel vieles von ihren Anleitungen, hatte bisher , wenn Fragen waren, immer Antwort gefunden, Nur leider zu dieser Anleitung nicht. Mit freundlichen Grüßen Elke Giesen

20.05.2017 - 07:18

DROPS Design answered:

Liebe Frau Giesen, hier finden Sie mit Fotos wie man die Ärmel häkeln wird, das Tutorial wurde für ein anderes Modell gemacht, aber die Technik ist dieselbe. Viel Spaß beim häkeln!

22.05.2017 - 08:45

country flag Linh Khuu wrote:

I really love this pattern, can you help me step by step ? My English is poor thank you very much?

03.02.2017 - 21:06

DROPS Design answered:

Dear Mrs Linh Khuu, for any personnal assistance please feel free to contact the store where you bought your yarn, find DROPS retailers in Canada here. Happy crocheting!

06.02.2017 - 13:39

Claudia wrote:

Hello, I'm working on this beautiful pattern but I find it somehow difficult to follow. When the pattern says "back piece/sleeves" I understand that what is tied is the central is just the repetition of pattern A.2,11 times + 2 times on the sleeves (instead of 15), correct? Plus, when I start working on the right sleeve, the pattern says to work on 23 ch sts: do they include the 4 ch sts to replace the first dtr? Thank you very much, Claudia

14.11.2016 - 11:22

DROPS Design answered:

Dear Claudia, when working back/sleeves, you start 1st row there with a new chain (= 23 ch in your size) for left sleeve, then work as explained over back piece, and finish with 22 ch for right sleeve, then work next row as stated, replace 1st st at beg of row as before (not included in the 22 ch). Happy crocheting!

14.11.2016 - 11:35