DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 156-52
DROPS Design: Mynstur nr ne-157
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22 - 24 - 27 cm
Hæð á sokk: 25 - 25 - 26 cm

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
200-250-250 gr litur nr 3112, púðurbleikur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 19 l og 25 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

SPÍRALMYNSTUR:
Prjónið * 2 l br, 5 l sl *,endurtakið frá *-* umf hringinn. Mynstrið nær yfir 7 l og lykkjufjöldinn í stykkinu er deilanlegur með 7-1. Þegar prjónað er í hring þá færist mynstrið sjálfkrafa til um 1 l til vinstri í hverri umf og myndar spíralmynstur.

SPÍRALMYNSTUR 2:
Í fyrstu umf er fækkað um 1 l í byrjun á hverri mynstureiningu með sl (= 5 l færri) haldið áfram með spíralmynstur eins og áður, þ.e.a.s. að prjónaðar eru 2 l br og 3 l sl. Þ.e.a.s. mynstrið heldur áfram að færast til um 1 l til vinstri í hverri umf.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 5-6-6 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 5-6-6 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 4-5-5 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 4-5-5 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 10-10-12 l eru eftir á prjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 56-56-63 l á sokkaprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff þannig: * 2 l br, 1 l sl, 1 l br, 1 l sl, 1 l br og 1 l sl *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Prjónið svona þar til stroffið mælist ca 3 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið síðan SPÍRALMYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 1 l í lok umf = 57-57-61 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og látið það fylgja áfram í stykkinu. Prjónið þar til stykkið mælist ca 15-15-16 cm. Í næstu umf er fækkað um 1 l í hverri mynstureiningu með sl með því að prjóna 2 fyrstu l slétt saman = 49-49-55 l. Prjónið síðan áfram með spíralmynstri með 2 l br og 4 l sl þar til stykkið mælist 25-25-26 cm.
Í næstu umf er prjónað sléttprjón yfir l fyrir hæl (= 20-20-24 l), JAFNFRAMT er fækkað um 2-0-2 l = 18-20-22 l. Þær 29-29-31 l sem eru eftir eru settar á þráð (= ofan á fæti). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hæl-l í 5-5½-6 cm. Færið prjónamerki hingað – héðan er nú mælt! Fækkið nú lykkjum fyrir hæl – SJÁ HÆLÚRTAKA. Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 10-11-12 l hvoru megin við hæl og 29-29-31 l af þræði eru settar til baka á prjóninn = 59-61-67 l. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 29-29-31 l ofan á fæti. Prjónið síðan SPÍRALMYNSTUR 2 – sjá útskýringu að ofan, ofan á fæti og sléttprjón undir fæti, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu l á undan l ofan á fæti snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) og 2 fyrstu l eftir l ofan á fæti eru prjónaðar slétt saman. Fækkið lykkjum í annarri hverri umf alls 9-8-9 sinnum = 36-40-44 l. Prjónið þar til stykkið mælist 18-20-22 cm frá prjónamerki frá hæl (= 4-4-5 cm að loka máli). Nú er sett 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 18-20-22 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Prjónið nú sléttprjón JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin.
Fækkið lykkjum þegar 3 l eru eftir á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa l), 2 l snúnar slétt saman.
Fækkið lykkjum í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 4-3-4 sinnum og síðan í hverri umf 2-4-4 sinnum = 12-12-12 l eftir á prjóni. Í næstu umf eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.11.2017
Nýtt efnismagn: DROPS NEPAL frá Garnstudio 150-200-200 g litur nr 3112, púðurbleikur
Yfirfarið á vefsvæði: 25.01.2019
Leiðrétting: Efni: DROPS NEPAL frá Garnstudio 200-250-250 gr litur nr 3112, púðurbleikur

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-52

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Claudia wrote:

Hallo, ich habe eine Frage zum Spiralmuster. In der Musteranleitung steht "teilbar durch 7 minus 1" und dadurch verschiebt Sicht das Muster automatisch. In der Sockenanleitung steht aber, das ich nach dem Bündchen eine Masche zunehmen soll....also Teilpaar durch 7 plus 1. Was stimmt denn jetzt? Plus oder Minus? LG Clauida

02.09.2020 - 21:49

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, nach der Zunahmen haben Sie entweder 57 oder 64 Maschen, dh:57-1=56/7=8 und 64-1=63/7=9. Viel Spaß beim stricken!

03.09.2020 - 08:52

country flag Marie wrote:

Déception ! J\'ai tricoté ce modèle en 35/37 mais avec 150 g, je n\'ai pas eu assez (j\'ai utilisé 168 g) pourtant j\'ai bien respecté les dimensions et l\'échantillon. Puisque j\'ai acheté la laine en ligne, j\'ai dû recommander une pelote et donc payer à nouveau les frais de port. Dommage que la quantité correcte de laine n\'est pas renseignée et il faudrait corriger cela. Le modèle de la chaussette est fort large aux chevilles donc il faut plus de laine.

09.01.2019 - 13:04

country flag Lisa wrote:

Jeg strikker størrelse 38/40 og har kommet dit hvor jeg skal felle til tå. Det står lenger opp i oppskriften at jeg skal ha 61 masker på pinnen, og at jeg skal felle 2 masker totalt 8 ganger. 61-16=45. Dit hvor jeg har kommet nå, og skal felle til tå står det at jeg skal ha 40 masker på pinnen. Har jeg misforstått noe, eller er det en feil i oppskriften?

20.03.2018 - 16:39

DROPS Design answered:

Hei Lisa. Når du begynner å strikke spiralmønster på foten står det i forklaringen til SPIRALMØNSTER 2 at du på første omgang feller 5 masker. Da blir masketallet 40 når du skal begynne å felle til tå. God fornøyelse.

04.06.2018 - 11:15

country flag Anja Grotelüschen-Jachner wrote:

Guten Tag, bei mir haben die angegebenen 100g für Grösse 35/37 nicht gereicht. Habe pro 50g Knäul lediglich die Schäfte der Socken stricken können. Daher musste ich das Projekt in Beinstulpen Umwandeln, die gerade einmal 21cm lang geworden sind. Das sollte vom Design Team nochmal überprüft werden. Schätze dass 150-200g für 1 Paar benötigt werden. LG

08.11.2017 - 10:46

DROPS Design answered:

Liebe Frau Grotelüschen-Jachner, Danke für den Hinweis, Garnangabe wird korrigiert. Viel Spaß beim stricken!

09.11.2017 - 13:12

country flag Anja Grotelüschen wrote:

Guten Tag, ich komme mit der angegebenen Wollmenge nicht hin. Habe angefangen (nach Maschenprobe-korrekt) die Socken zu stricken. Die Angegebenen 100g für 35/37 reichen nicht. Schätze dass ca 200g benötigt werden. Da ich in der ausgewählten Farbe nur 100 gr da hatte hab ich einfach Beinstulpen daraus gemacht. Das sollte eventuell nochmal nachgeprüft werden. LG

07.11.2017 - 08:59

country flag Johanneke wrote:

Na het minderen voor de hiel en het minderen om de naald staat er brei tot het werk 18-20-22 cm meet vanaf de markeerden op de hiel. Nog 4-4+5 cm te breien. De laatste opmerking klopt volgens mij niet. Ik meer 10 cm vanaf de hiel en zou dus nog 10 cm moeten breien. Klopt die opmerking over hoeve cm nog te breien wel? Of is het minder dan de 18-20-22 cm in totaal?

15.07.2017 - 21:22

DROPS Design answered:

Hoi Joanneke, Wat ermee bedoeld wordt is dat je, ná die 18-20-22 cm nog 4-4-5 cm moet breien. Dus dat komt er daarna nog bovenop, zeg maar.

16.07.2017 - 13:13

country flag Karen Marie wrote:

Hælindtagning: har taget 5 masker ind på 1'ste pind oven på foden og har nu 24 masker tilbage. Derudover samlet 2 x 11 masker op i siderne, hvor der skal strikkes retmasker. Hvordan får jeg et spiralmønster ved at strikke de samme 2vr 3 r på pinden indtil indtagningen til tå

01.02.2017 - 14:50

DROPS Design answered:

Hej Karen Marie, Spiralmønsteret skal kun strikkes over maskerne ovenpå foden, så du skal selv forskyde dem en maske, som skete automatisk på skaftet. Se også tips under Spiralmønster 2. God fornøjelse!

07.03.2017 - 09:17

country flag Christina Berggren wrote:

Kul mönster, lätta att sticka.

22.01.2015 - 09:09

country flag Luisier Yvette wrote:

En taille M je n'obtiens pas les 40 m. après les diminutions du cou-de-pied : 61 m. avant dimin., moins 16 m. (8*2) . Merci d'avance

13.12.2014 - 10:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Luisier, en taille 38/40, on a 61m quand on a relevé les mailles de chaque côté du talon, mais on continue en point fantaisie 2 sur le dessus du pied (= on diminue 5 m au 1er rang - cf "Point fantaisie Spirale 2"), on a donc 61 - 5 - 16 = 40 m. Bon tricot!

13.12.2014 - 18:35

country flag N. Helling wrote:

Hallo, sind die socken mit Nadeln 4 oder 4,5 gestrickt ? Es gibt ja zwei Angaben im Überblick steht 4 und im Text dann 4,5. Danke für eure Hilfe, ich freu mich schon so aufs stricken dieser super schönen Socken !!

26.07.2014 - 10:31

DROPS Design answered:

Hallo, da stimmt tatsächlich etwas nicht, die Frage wird ans Designteam weitergeleitet. Sie können sich aber, wenn Sie gerne direkt losstricken möchten, an die Maschenprobe halten und schauen, welche Nadel Sie benötigen (das müssen Sie ja sowieso, die Nadelstärke gilt immer nur als Richtwert).

26.07.2014 - 11:16