DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS SS24

Now and Then

Prjónuð peysa úr DROPS Delight og DROPS Kid-Silk í garðaprjóni og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 158-30
DROPS Design: Mynstur nr de-122
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
250-250-300-300-350-400 gr litur nr 02, plómu/beige/fjólublár
og einnig
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
100-125-125-150-150-175 gr litur nr 20, ljós beige

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l og 32 umf með garðaprjóni – eða 13 l og 32 umf MYNSTUR með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA NR 522: 5 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
UMFERÐ 1 (= rétta): 1 l sl, * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið á 1 l sl.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið allar l (og uppslátt) slétt.

STUTTAR UMFERÐIR:
FYRSTA MYNSTUREINING: Prjónaðar eru stuttar umferðir til að ná fram bogalaga formi á stykkið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 l eru eftir (= 33 l), snúið við.
UMFERÐ 2 og síðan umf frá röngu: Prjónið til baka og fitjið upp 1 nýja l í lokk umf.
UMFERÐ 3: Prjónið þar til 6 l eru eftir, snúið við.
UMFERÐ 5: Prjónið þar til 9 l eru eftir, snúið við.
UMFERÐ 7: Prjónið þar til 12 l eru eftir, snúið við.
UMFERÐ 9: Prjónið þar til 15 l eru eftir, snúið við.
Haldið svona áfram að prjóna yfir 3 l færri í hvert skipti, JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný l í lok hverrar umf frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 22 umf í garðaprjóni í ytri kant á boga = 47 l.
Prjónið nú 2 umf MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, yfir allar l. Nú hafa verið prjónaðar 22 umf í garðaprjóni + 2 umf mynstur í ytri kant á boga og 2 umf mynstur innst í boga.
Haldið áfram að fitja upp 1 nýja l í lok hverrar umf frá röngu þar til fitjaðar hafa verið upp alls 15-21-27-33-39-45 nýjar l frá byrjun á 1. mynstureiningu = 51-57-63-69-75-81 l. JAFNFRAMT er haldið áfram með stuttar umferðir eins og útskýrt er frá að neðan:

ÖNNUR OG ÞRIÐJA MYNSTUREINING: Prjónið eins og 1. mynstureining en 1. umf er prjónuð yfir 45-47-41-41-41-41 l áður en snúið er við. Haldið áfram að prjóna yfir 4 l færri í hverjum snúning þar til prjónaðar hafa verið 24-28-28-28-28-28 umf garðaprjón + 2 umf mynstur í ytri kant á boga og 2 umf mynstur innst í boga.

FJÓRÐA OG FIMMTA MYNSTUREINING: Prjónið eins og 1. mynstureining en 1. umf er prjónuð yfir 48-52-56-60-68-72 l. Haldið áfram að prjóna yfir 4 l færri í hverjum snúningi þar til prjónaðar hafa verið 24-26-28-30-32-34 umf garðaprjón + 2 umf mynstur í ytri kant á boga og 2 umf mynstur innst í boga.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá prjónamerki á hlið):
STÆRÐ S: 6, 11, 16, 21 og 26 cm.
STÆRÐ M: 6, 12, 17, 23 og 28 cm.
STÆRÐ L: 6, 12, 18, 24 og 30 cm.
STÆRÐ XL: 7, 14, 20, 26 og 32 cm.
STÆRÐ XXL: 7, 14, 20, 27 og 34 cm.
STÆRÐ XXXL: 8, 15, 22, 29 og 36 cm.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 46-52-56-62-72-78 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta).
Prjónið nú þannig: * 2 umf MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, 4 umf garðaprjón *, endurtakið frá *-* til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2-3-3-3-3-4 cm aukið út um1 l í hvorri hlið með 2-2-2-2-3-3 cm millibili alls 3 sinnum = 52-58-62-68-78-84 l. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Lykkjur sem ekki ganga upp í mynstur eru prjónaðar slétt! Þegar stykkið mælist 8-9-10-11-12-13 cm fitjið upp nýjar l fyrir ermar í hvorri hlið þannig: 1 l 8 sinnum og 10-9-8-7-4-2 l 1 sinni = 88-92-94-98-102-104 l. Þegar stykkið mælist 27-29-31-33-35-37 cm haldið áfram með mynstur eins og áður, JAFNFRAMT er prjónað garðaprjón yfir miðju 20-20-22-22-24-24 l. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 29-31-33-35-37-39 cm. Í næstu umf eru felldar af miðju 12-12-14-14-16-16 l fyrir hálsmáli = 38-40-40-42-43-44 l eftir á öxl/ermi. Prjónið nú hvora öxl til loka fyrir sig. Haldið síðan áfram með 4 síðustu l við hálsmál í garðaprjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 32-34-36-38-40-42 cm – stillið af þannig að prjónaðar verði 2 umf garðaprjón á eftir 2 umf með mynstri og fellið síðan LAUST af. Prjónið hina öxlina á sama hátt, nema spegilmynd.

HÆGRA KANTSTYKKI / FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað frá hlið frá miðju að aftan, prjónaðir eru stuttar umferðir sem gefa flíkinni bogalagað form, síðan er framstykkið prjónað áfram með úrtöku innan við kant að framan.
Fitjið upp 36 l í öllum stærðum á hringprjóna nr 6 með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið garðaprjón fram og til baka (1. umf = rétta). Þegar stykkið mælist 1-3-3-5-8-2 cm er haldið áfram þannig: * 2 umf mynstur, 7-7-8-8-8-8 cm garðaprjón *, endurtakið frá *-* alls 2-2-2-2-2-3 sinnum, síðan eru prjónaðar 2 umf mynstur. Stykkið mælist nú ca 18-20-22-24-27-30 cm.
Prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta). Eftir stuttar umferðir eru 51-57-63-69-75-81 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í hlið – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið 4 umf garðaprjón, prjónið nú þannig: * 2 umf mynstur, en síðustu 5 l við miðju að framan eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur að framan), 4 umf garðaprjón yfir allar l *, endurtakið frá *-* til loka, JAFNFRAMT er fækkað um 1 l innan við 5 kantlykkjur að framan – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með ca 1-1-1-½-½-½ cm millibili 22-25-29-32-34-36 sinnum til viðbótar (= alls 23-26-30-33-35-37 úrtökur við kant að framan). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2-3-3-3-3-4 cm er aukið út um 1 l í hlið (þ.e.a.s. í lok umf frá réttu) með 2-2-2-2-3-3 cm millibili alls 3 sinnum. Munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8-9-10-11-12-13 cm eru fitjaðar upp nýjar l fyrir ermi í lok umf frá réttu í hlið þannig: 1 l 8 sinnum og 10-9-8-7-4-2 l 1 sinni. ATH: Lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri á ermi eru prjónaðar slétt! Þegar útaukningu og úrtöku er lokið eru 49-51-52-54-55-57 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 26-28-30-32-34-36 cm prjónið garðaprjón yfir fyrstu 15-15-16-16-16-17 l. Þegar stykkið mælist 28-30-32-34-36-38 cm fellið af fyrstu 11-11-12-12-12-13 l frá réttu. Haldið síðan áfram með 4 l garðaprjón inn við háls og mynstur yfir þær 34-36-36-38-39-40 l sem eftir eru á öxl/ermi eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist ca 32-34-36-38-40-42 cm – stillið af eftir bakstykki og fellið síðan LAUST af.

VINSTRA KANTSTYKKI / FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra kantstykki / framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. áður en stuttar umferðir byrja, prjónið 1 umf slétt frá réttu, prjónið síðan stuttar umferðir með byrjun frá röngu (í stað byrjunar frá réttu). Eftir stuttar umferðir er aukið út í hlið eins og á hægra framstykki, nema í lok umf frá röngu (í stað lok umf frá réttu). Fellið ekki af fyrir hnappagötum. Fitjið upp nýjar l fyrir ermi í lok umf frá röngu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma (fram- og bakstykki) í eitt yst í lykkjubogann (saumið A við A og B við B – sjá mynsturteikningu).
Saumið uppfitjunarkant á hægra og vinstra kantstykki saman við miðju að aftan yst í lykkjubogann. Saumið síðan við neðri hluta á bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna.
Byrjið efst við hliðarsaum og takið upp 46-48-52-55-57-60 l með 1 þráð Delight og 1 þráð Kid-Silk (= 2 þræðir) á hringprjóna nr 6 í kringum handveg. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki með því að prjóna 2 l slétt saman. Endurtakið úrtöku með 3-3-2½-2-2-1½ cm millibili 5-5-6-7-8-9 sinnum til viðbótar = 34-36-38-39-39-40 l. Fellið LAUST af þegar ermin mælist 25 cm. Saumið sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Marie wrote:

Oui mais ce que vous dites c’est bien pour la seconde Série ou on fait encore dix augmentations mais pour la troisième série, celle dont je vous parle, plus d’augmentations à faire.\r\nJe laisse pr le série 3 il ne faudrait pas tricoter sur 47 m mais sur 56. Séries 4 et 5 pas de problème. Merci pr vos tête. Je ne vais pas recommencer une 3eme fs. MERCI 🙏

29.01.2024 - 22:17

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, ces 47 mailles ne concernent que la 2ème série, à la 3ème série, vous tricotez toutes les mailles moins les 4 dernières, de même pour la 4ème et la 5ème, au début de la 4ème, vous tricotez les 52 premières mailles, mais au début de la 5ème série, vous tricoterez toutes les mailles moins les 4 dernières. Bon tricot!

30.01.2024 - 08:08

country flag Marie wrote:

Ce vous m’écrivez je l’ai fait pr la2e série 47 m. et on augmenté de 10 m. on a donc 57 m. et 21 augm. là c’est bon mais après la 3è série on a bien au 52 m.plus d’aug à faire et il faut travailler sur 47m. et on ne peut pas faire 14 côtes car 14 × 4 ça fait 56 m et on n’en a que 47 ! Séries 4 et 5 c’est bien, on travaille sur 52 m. et faire 13 côtes 13x4= 52

26.01.2024 - 11:17

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, je ne suis pas bien sûre de comprendre vos calculs, désolée. Au 1er rang sur l'endroit, vous tricotez 47mailles, au 1er rang sur l'envers, vous augmentez = 48 m, au 2ème rang sur l'endroit, vous tricotez 4 m en moins = 48-3=45, au 3ème rang, vous augmentez 1 m = 46 m et ainsi de suite jusqu'à ce que vous ayez augmenté votre bon nombre de mailles sur l'envers et tricotez 4 mailles en moins à la fin de chaque rang sur l'endroit, vous devez voir le bon nombre de mailles et de côtes mousse. Bon tricot!

29.01.2024 - 11:15

country flag Marie wrote:

Je ne me fais pas bien comprendre. 1e et 2 è séries TB, on fait les 21 aug.mais à partir de la série3 , plus d’augm. ! et donc impossible de faire 14 rangs sur 47 m en ôtant 4m. Soit on travaille sur 47 m. et on enlève 3m. (3x14=42). Soit on travaille sur 52m.comme aux séries 4 et 5, là ça va. À partir de série trois, on a 47 m.on enlève 4m. à chq fs, on ne fait que 12 côtes, 12 A et R, LOGIQUE. Pour moi il y a une erreur quelque part . Merci ☺️

25.01.2024 - 22:29

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, le 1er rang se tricote sur l'endroit sur 47 m, puis vous augmentez 1 m à la fin du rang suivant sur l'envers et tricotez 4 m en moins à la fin de chaque rang sur l'endroit, autrement dit, vous allez augmenter encore 10 mailles au total et tricoter 13 x 4 mailles en moins soit: 47+10-52=5 mailles au tout dernier rang raccourci. Bon tricot!

26.01.2024 - 08:06

country flag Marie wrote:

Bonjour j’ai bien mes 21 augm. et 57 m. comme je vous précise mais pour la 2è et 3è séries c’est écrit tricoter le 1er rang sur 47 m. avt de tourner. Continuer en tricotant 4 m. en moins à chaque fs jusqu’à 14 côtes mousse et c’est là mon problème ! Je n’arrive pas à avoir 14 côtes mais seulement 12 !! Et les réponses reçues ne m’éclairent pas. Mais je vous remercie pr vos retours.

25.01.2024 - 09:53

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, les rangs raccourcis se font sur l'endroit, ainsi, vous tricotez 47 mailles au 1er rang sur l'endroit, mais vous augmentez sur l'envers = vous aurez ainsi 48 mailes et plus 47 et ainsi de suite. Autrement dit, on tricote moins de mailles en fin de rang sur l'endroit et on augmente le nombre de mailles en fin de rang sur l'envers. Exactement comme vous avez fait pour la 1ère partie des rangs raccourcis. Bon tricot!

25.01.2024 - 10:23

country flag Marie wrote:

Bonjour, j’ai bien fait la série 1, série2, j’en suis à la série 3 sur 47 mailles (57 entour Augustin. finies) je n’arrive pas à 14 côtes puisqu’on travaille sur 47,43, 39, 35,31, 27, 23,19, 15,11, 7,3 mailles et quand il me reste 3 mailles, ça me fait 12 côtes et non 14 côtes ! Je n’arrête pas de faire, défaire, j’ai fait le 1er côté sans doute mal ? Je reste bloquée . Merci pour votre aide

24.01.2024 - 14:28

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, dans votre décompte, vous ne comptez pas les augmentations faites en fin de rang sur l'envers, raison pour laquelle votre nombre de mailles diminue trop vite, vous devez continuer à augmenter 1 maille en fin de rang sur l'envers (comme vous l'avez fait pour la 1ère série des rangs raccourcis) jusqu'à ce que vous ayez augmenté 21 m au total et que vous ayez 57 mailles sur l'aiguille (y compris les mailles non tricotées pour les rangs raccourcis); Bon tricot!

25.01.2024 - 08:20

country flag Marie wrote:

Bonjour, quand vous parlez de 2 rangs fantaisie a t-on 2 rgs ? ( le Rg 1 + le Rg 2 ou 4 rgs ? ( 2 GS le point fantaisie ??\\r\\nEt après ce ou ces rgs fantaisie passe t-on de suite au rg raccourci de la série ? Ou faisons nous une côte ?\\r\\nJe crois qu’il ne faut pas de rg côte ? \\r\\nJe vais devoir tout défaire encore une fois ! Merci 🙏 \\r\\nJ’y suis depuis 3 semaines tant je fais et défais !😞

23.01.2024 - 12:40

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, les 2 rangs du point fantaisie sont les 2 rangs décrits sous POINT FANTAISIE. Quand ces 2 rangs sont tricotés après la 1ère série des rangs raccourcis, on fait la 2ème série de rangs raccourcis (en commençant sur 47 m), et en augmentant en même temps sur l'envers. Bon tricot!

24.01.2024 - 07:55

country flag Marie wrote:

Bonjour, Je vous remercie pour votre réponse mais oui j’ai bien 57 mailles mais on nous dit de faire 14 côtes en commençant les rangs raccourcis sur 47 mail, je n’y arrive pas, ça ne me fait que 14 côtes ( coté gauche, 1er rang point fantaisie à faire sur l’envers) d’ailleurs différent que lorsqu’il est fait sur l’endroit). Merci beaucoup.

23.01.2024 - 09:44

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, sur l'envers, sur l'endroit, vous tricotez 4 mailles en moins et sur l'envers vous augmentez le nombre de mailles, donc vous pourrez tricoter vos 14 côtes mousse car le nombre de mailles augmente progressivement. Bon tricot!

24.01.2024 - 07:25

country flag Marie wrote:

Je n’arrive pas pour la série 2 côté gauche taille M comment sur 47 mailles faire 14 Côtes, je ne peux en avoir que 12 j’ai fait et défait je ne sais combien de fois j’ai fait les dessins, impossible pour moi Merci

22.01.2024 - 21:33

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, n'oubliez pas que vous devez augmenter 1 maille à la fin de chaque rang sur l'envers jusqu'à ce que vous ayez monté 21 mailles au total depuis le début de la 1ère série, autrement dit jusqu'à ce qu'il y ait un total de 57 mailles sur l'aiguille (y compris les mailles en attente). Bon tricot!

23.01.2024 - 07:37

country flag Ewa wrote:

W rzędach skróconych w 3 serii nie można wykonać 14 rzędów po 4 oczka mniej zaczynając od 41 oczek bo 14x4=56. to chyba jakis błąd?

10.09.2022 - 00:20

DROPS Design answered:

Witaj Ewo, zgadzam się z Tobą. Już to wyjaśniam, proszę tylko o chwilę cierpliwości. Pozdrawiamy!

14.09.2022 - 07:50

country flag Eveline wrote:

Bonjour, je tricote la veste mais je ne comprends ps le décompte des séries. Pour moi, il n'y a que 3 séries : série 1, série 2 et 3 puis série 4 et 5. D'autre part comment faire point fantaisie sur bord extérieur et intérieur ? pour moi tout est sur le même rang ? Merci pour votre réponse

23.10.2021 - 18:38

DROPS Design answered:

Bonjour Eveline, les rangs raccourcis se tricotent sur 5 séries comme expliqué. Les rangs en point fantaisie se tricotent sur toutes les mailles, ex; dans la 1ère série, vous tricotez les rangs raccourcis jusqu'à ce 11 côtes mousse ont été tricotées, puis vous tricotez 2 rangs point fantaisie sur toutes les mailles. Bon tricot!

02.11.2021 - 13:08