DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 158-42
DROPS Design: Mynstur nr db-047
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL:
Stærð: S/M – M/L – L/XL
Mál:
Ummál: 66-70-74 cm.
Hæð við miðju að framan: 34-40-42 cm.

Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio
200-200-200 gr litur nr 12, gallabuxnablár

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 14 st x (5 umf st + 4 umf fl) verði 10 x 10 cm.

EYRNABAND:
Stærð: S/M – M/L – L/XL
Höfuðmál: 54/56 – 56/58 – 58/60 cm.

Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio
100-100-100 gr litur nr 12, gallabuxnablár

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 14 tbst x (4 umf tbst + 4 umf fl) verði 10 x 10 cm.

HANDSTÚKUR:
Stærð: S/M – M/L – L/XL
Mál:
Ummál: 16-17-18 cm.
Lengd: 18-19-20 cm.

Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio
100-100-100 gr litur nr 12, gallabuxnablár

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 14 tbst x (4 umf tbst + 4 umf fl) verði 10 x 10 cm.

Í allt settið þarf: 200-300-300 gr.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll.
Í byrjun á hverri umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.
Í byrjun á hverri umf með tbt (á ekki við um hálsskjól) er fyrsta tbst skipt út fyrir 4 ll.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka neðan frá og upp og saumað saman í lokin.

HÁLSSKJÓL:
Heklið 3 ll á heklunál nr 5 með Big Delight og tengið saman í 1 hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 3 ll + 4 st um ll-hringinn. Snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 fl í hvern st. Snúið við.
UMFERÐ 3: Heklið 5 ll + 2 tbst + 1 st í 1. Fl, 1 st í hverja fl þar til 1 fl er eftir, heklið 1 st + 3 tbst + 2 þbst í síðustu fl. Snúið við.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja l. Snúið við. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Endurtakið umf 3 og 4 þar til 47-53-53 fl eru í umf – stillið af eftir umf með fl (ranga) og heklið 23-23-26 LAUSAR ll í lok þessarar umf * klippið EKKI frá (síðar er heklað héðan)! Notið nýjan þráð og heklið upp nýjar ll í 1. fl í sömu umf þannig: Heklið 1 kl + 23-23-26 LAUSAR ll – klippið frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu l 93-99-105 l í umf. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram frá *-* þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 1 st í hverja ll og fl = 93-99-105 st. Snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 fl í hvern st. Snúið við.
Endurtakið umf 1 og 2 þar til stykkið mælist ca 18-22-24 cm.
Klippið frá (haldið eftir smá enda fyrir frágang).
Hálsskjólið mælist ca 34-40-42 cm á hæð við miðju að framan.

FRÁGANGUR:
Saumið saman skammhliðar.

-------------------------------------------------------

EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka og saumað saman í lokin.

EYRNABAND:
Heklið 69-72-74 LAUSAR ll á heklunál nr 5 með Big Delight.
UMFERÐ 1 (= ranga): Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 fl í hverja ll, snúið við.
UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið 1 tbst í hverja fl.
Endurtakið þessar 2 umf alls 4 sinnum – ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Endurtakið umf 1 einu sinni til viðbótar.
Stykkið mælist ca 10,5 cm á hæð og 49-51-53 cm á breidd. Klippið frá – haldið eftir smá enda fyrir frágang.

Heklið nú band þannig: Heklið 7 ll. Snúið við og heklið 1 fl í hverja l. Haldið áfram með 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist ca 10 cm – haldið eftir smá enda fyrir frágang.

FRÁGANGUR:
Saumið saman skammhliðar á bandi í hring og þræðið á eyrnabandið. Saumið saman skammhliðar á eyrnabandi í hring.

-------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka neðan frá og upp og saumað saman í hlið, síðan er þumallinn heklaður.

HANDSTÚKA:
Heklið 22-24-25 LAUSAR ll á heklunál nr 5 með Big Delight.
UMFERÐ 1 (= ranga): LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 fl í hverja ll, snúið við.
UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið 1 tbst í hverja fl, snúið við.
Endurtakið umf 1 og 2 alls 2 sinnum – ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið 2-3-4 umf með 1 fl í hverja fl. Endurtakið síðan umf 1 og 2 einu sinni. Setjið eitt prjónamerki í hlið (hér verða l teknar upp fyrir þumal síðar). Endurtakið umf 1 og 2 þar til stykkið mælist ca 18-19-20 cm, stillið eftir umf 1.

FRÁGANGUR:
Brjótið handstúkuna saman tvöfalda, saumið saman kant í kant meðfram hliðum í gegnum bæði stykkin frá byrjun á stykki að prjónamerki. Festið enda. Mælið 3-3½-4 cm (þumall) upp frá prjónamerki og saumið þaðan upp að kanti.
Heklið í kringum op fyrir þumal þannig: 1 kl, * 1 ll, 8-10-11 fl í kringum op fyrir þumal, endið á 1 kl í 1. fl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum. Heklið nú 1 umf þar sem auknar eru út 2 fl jafnt yfir með því að hekla 2 fl í sömu fl = 10-12-13 fl. Klippið frá og festið enda.

Heklið aðra handstúku á sama hátt.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-42

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Renata Groen-Hoogendoorn wrote:

Ik wil de polswarmers maken. "Haak 2-3-4 toeren met 1 v in elke v. Herhaal dan de 1e en 2e toer een keer. Plaats 1 markeerder aan de zijkant (haak de st voor de duim hier later). Herhaal de 1e en 2e toer tot het werk ongeveer 18-19-20 cm meet, pas zo aan dat het na toer 1." Mis ik iets hier aan het eind van de zin?

02.12.2022 - 12:08

DROPS Design answered:

Dag Renata,

Het is de bedoeling dat je het zo aanpast dat je eindigt na een 'TOER 1', dus een toer met vasten. Het stond inderdaad een beetje ongelukkig omschreven, het is nu aangepast.

04.12.2022 - 16:23

country flag Carla wrote:

Hi I am making the headband, but I am unsure of how to do the ribbon part. how do I sew it unto the headband. should i sew it together before adding it to the headband or after. How do i sew it unto the headband. thank you!

14.07.2022 - 23:37

DROPS Design answered:

Dear Carla, ribbon is sewn together on its short sides to form a ring. Then, pass the headband inside the ring and sew the headband to the ribbon afterwards . Happy crocheting!

15.07.2022 - 12:56

country flag Mylène wrote:

Bonjour, je suis entrain de faire ce modèle et je ne comprends pas les dimensions car ça ne ressemble pas du tout à la photo ! Ce serait bien d’avoir le modèle à plat ! La pointe est importante par rapport à l’écharpe qui doit faire deux tours de coup (trop serré) Merci pour votre aide 😊

15.11.2020 - 14:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mylène, le tour de cou se crochète de bas en haut, la petite pointe se voit un peu sur la photo: la partie qui "rebique" un peu en bas - vous augmentez à partir du 3ème rang et ainsi tous les 2 rangs jusqu'à ce que vous ayez 47-53 ms, et montez ensuite les mailles en l'air qui vont faire le tour de cou et continuez ensuite sur toutes les mailles sans augmenter. Vérifiez bien votre tension en largeur et en hauteur pour obtenir le même résultat que sur la photo. Bon crochet!

16.11.2020 - 10:20

country flag Ninna LH wrote:

Hej! Mönstret ser fantastiskt ut! Jag undrar om man kan byta ut mot ett garn i merinoull? Ni kanske isf har förslag på ett då? Samt om man då ska ändra virknålsstorlek? Tack på förhand! Mvh, Ninna

13.09.2020 - 12:25

DROPS Design answered:

Hej Ninna. Du kan använda DROPS Big Merino till detta mönster. Det är samma rekommenderade storlek på virknål, men se bara till att få den virkfasthet som uppges i mönstret. Tänk bara på att beräkna riktig garnåtgång om du byter garn. Mvh DROPS Design

15.09.2020 - 07:52

country flag Patrizia Vallarani wrote:

Ho acquistato la rivista sulla quale è riportato questo modello che vorrei realizzare ma non ho capito le spiegazioni perché manca uno schema del modello. Soprattutto dopo la 4^ riga quando si dice di avviare a nuovo delle catenelle??? non si capisce come si sviluppa il lavoro. Prima che io inizi mi potete aiutare; grazie?

23.01.2019 - 12:13

DROPS Design answered:

Buongiorno Patrizia. Lo scaldacollo presenta una punta al centro sul davanti. Quindi ha una forma di rettangolo con una punta che sporge al centro di uno dei lati lunghi. Questa punta corrisponde alla prima parte lavorata, fino a quando non ottiene 47 o 53 maglie, a seconda della taglia. Avvia poi le catenelle da un lato e dall'altro e lavora la parte rettangolare. Buon lavoro!

23.01.2019 - 13:55

country flag R.D wrote:

Oh ! I found these crochet wrist warmer video tutorials : 167-9 , 166-44 , 108-25 . Thank you.

14.03.2018 - 03:50

R.D wrote:

Please, do you have a video tutorial for a crocheted wrist warmer?

14.03.2018 - 02:37

DROPS Design answered:

Hi RD, If you click on video tutorials, crochet and then search for wristwarmers a number of tutorials come up. I hope this helps and happy crocheting!

14.03.2018 - 07:58

Karen wrote:

Please help I am having a problem understanding the pattern for the neck warmer from the do not cut part could you please explain

11.11.2015 - 22:25

DROPS Design answered:

Dear Karen, join a new thread in 1st dc on last row made (from WS) and crochet loosely a chain with 23-26 ch, cut this yarn. Take the last st of your last row on neckwarmer and crochet then from RS: 1 tr in every chain (the one you just worked extra with another yarn) + 1 tr in every dc from previous row + 1 tr in every ch worked at the end of last row from WS. You have now increased on each side with a chain. Happy crocheting!

12.11.2015 - 10:09

country flag Terrier wrote:

Cest le modèle que je cherche mais fermé merci

21.04.2015 - 12:27

country flag Gloria Cannon wrote:

Do you have instructions for your stitches?I have a hard time with your patterns. Thank you

01.10.2014 - 00:50

DROPS Design answered:

Dear Mrs Cannon, you will find all relevant videos to the sts used in that pattern under tab "video" at the right side of the picture - take care you are reading US-English patterns since crochet terminology is different in British and American English. Happy crocheting!

01.10.2014 - 09:32