DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 152-22
DROPS Design: Mynstur nr r-663
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS Muskat frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 gr litur nr 18, hvítur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf tilað 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm eða 2 mynstureiningar af A.3/A.5 verði 10 cm á breiddina.
DROPS PERLUTALA NR 521: 6-6-7-7-7-7 stk

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR:
Þegar úrtaka fyrir hálsmáli byrjar er haldið áfram með gataumferðina sem nú þegar er byrjuð, en ekki byrja á nýrri gataumferð. ATH! Passið uppá að fækka ekki lykkjum fyrir hálsmáli í 4 fyrstu umf í mynstri A.4/A.6.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.6. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ATH: Mynstur passar ekki yfir hvert annað á hæðina þegar það er endurtekið, en gataumferðin heldur áfram eins og áður, JAFNFRAMT er byrjað á nýrri gataumferð í 16. hverri umf. Þegar A.4 og A.6 mætast við miðju að aftan er prjónað 1 gati meira í A.6, en ekki í A.4 (þ.e.a.s. að það eykst um 1 gat á milli A.4 og A.6).

ÚRTAKA (á við úrtöku við hálsmál):
Fækkið lykkjum innan við 2 l garðaprjón. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 2 l á undan 2 l: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 2 l: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá hlið þar sem stykkið er styst).
STÆRÐ S: 7, 13, 19, 25, 31 og 37 cm.
STÆRÐ M: 9, 15, 21, 27, 33 og 39 cm.
STÆRÐ: 4, 10, 16, 22, 28, 34 og 40 cm.
STÆRÐ XL: 6, 12, 18, 24, 30, 36 og 42 cm.
STÆRÐ XXL: 7, 13, 19, 25, 31, 37 og 43 cm.
STÆRÐ XXL: 9, 15, 21, 27, 33, 39 og 45 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 229-253-277-301-325-349 l (meðtaldar 6 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með Muskat. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þær 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Prjónið síðan þannig: Prjónið 6 l sl (= kantlykkjur að framan), A.1 (= 12 l) alls 18-20-22-24-26-28 sinnum á breiddina, síðan 1 l sléttprjón (prjónið svona svo að hliðarnar verði eins) og 6 l sl (= kantur að framan).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 193-213-233-253-273-293 l á prjóni. Prjónið síðan A.2 (= 10 l) yfir A.1 1 sinni á hæðina, endið umf á 1. l í A.2 á undan síðustu 6 l sl (þannig að mynstrið verði alveg eins við kant að framan). Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan 6 l garðaprjón (= kantur að framan), A.3 (= 10 l) yfir A.2 alls 9-10-11-12-13-14 sinnum á breiddina (= miðja að aftan), prjónið síðan A.5 (= 10 l) yfir A.2 alls 9-10-11-12-13-14 sinnum á breiddina, 1 l sléttprjón, endið á 6 l garðaprjón (= kantur að framan). Mynstur A.3/A.5 færist til síðan við 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið sem prjónuð er í garðaprjóni til loka. ATH: Umf 9 í A.5 er prjónuð þannig: Prjónið mynstur og garðaprjón eins og áður þar til 8 l eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir – sjá mynstur, endið á 6 l garðaprjón (= kantur að framan). Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 13 cm.

Næsta umf er frá réttu og lykkjum fækkað í A.3 þannig: Í staðinn fyrir að prjóna 2 l slétt saman eins og útskýrt er í mynstri eru prjónaðar 3 l slétt saman (= 1 l færri) í annarri hverri gataumferð (þ.e.a.s. í annarri hverri mynstureiningu af A.3), í sömu umf er lykkjum fækkað í annarri hverri gataumferð í A.5 þannig: Í staðinn fyrir «takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir» - prjónið þannig: Takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir (= alls 9-10-11-12-13-14 l færri). Endurtakið úrtöku 1 sinni til viðbótar á þeim gataumferðum sem eftir eru þegar stykkið mælist 15 cm (= alls 18-20-22-24-26-28 l færri) = 175-193-211-229-247-265 l eftir á prjóni. ATH: Fækkið um 1 l í hverri mynstureiningu (þ.e.a.s. nú er 1 mynstureining 9 l).

Haldið áfram með mynstur í annarri hverri umf þar til stykkið mælist 23 cm. Næsta umf er prjónuð frá réttu og aukið er út í A.3 og A.5 þannig: Í stað fyrir að prjóna 2 l slétt saman eins og útskýrt er í mynstri er fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sl fram að uppslætti, sláið 1 sinni uppá prjóninn (uppslátturinn verður auka l), prjónið sl eftir uppsláttinn, prjónið síðan áfram eins og áður. Endurtakið útaukningu í annarri hverri gataumferð (= 9-10-11-12-13-14 l fleiri). Endurtakið útaukningu í gataumferðum sem eftir eru þegar stykkið mælist 25 cm = 193-213-233-253-273-293 l á prjóni. ATH: Aukið einungis út um 1 l í hverri mynstureiningu (þ.e.a.s að 1 mynstureining er nú í 10 l). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 25 cm (stillið af að prjónuð er 1 heil mynstureining af A.3/A.5), prjónið A.4 yfir A.3 og A.6 yfir A.6. Mynstrið færist til og prjónast til loka. ATH: 1. umf í A.6 er prjónuð þannig: Prjónið mynstur og garðaprjón eins og áður þar til 8 l eru eftir, 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn – sjá mynstur, endið á 6 l garðaprjón (= kantur að framan). Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm skiptið stykkið, framstykki og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig: Setjið fyrstu 51-56-61-66-71-76 l (= hægra framstykki) og síðustu 52-57-62-67-72-77 l (= vinstra framstykki) á þráð (ATH: Það er 1 l fleiri á vinstra framstykki til þess að mynstrið verði eins í báðum hliðum), klippið frá, prjónið nú yfir miðju 90-100-110-120-130-140 l (= bakstykki).

BAKSTYKKI:
Haldið áfram með mynstur eins og áður JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l fyrir ermi í hvorri hlið á stykki í lok hverrar umf þannig: Fitjið upp 4 l alls 2 sinnum í hvorri hlið, síðan 9-8-8-8-7-7 l alls 2 sinnum í hvorri hlið = 142-148-158-168-174-184 l á prjóna. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur og þegar útaukningu er lokið eru prjónaðar 4 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki fyrir kant á ermum. Haldið áfram með gatamynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 38-40-41-43-44-46 cm – sjá LEIÐBEININGAR að ofan, prjónið 4 umf garðaprjón yfir miðju 4 l (= 69-72-77-82-85-90 l í hvorri hlið), þær l sem eru eftir eru prjónaðar eins og áður. Haldið síðan áfram að prjóna garðaprjón yfir 4 l og mynstur eins og áður, JAFNFRAMT er stykkinu skipt í v-hálsmál og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (= 71-74-79-84-87-92 l á hvorri öxl). Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir 2 síðustu l við hálsmál JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l fyrir hálsmál innan við 2 l garðaprjón – lesið ÚRTAKA – endurtaki úrtöku í hverri umf frá 16-16-17-17-18-18 sinnum til viðbótar (= alls 17-17-18-18-19-19 sinnum) = 54-57-61-66-68-73 l eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af. Þegar stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 51-56-61-66-71-76 l. Fitjið nú upp nýjar l fyrir ermi í lok hverrar umf frá réttu þannig: Fitjið upp 4 l alls 2 sinnum, síðan 9-8-8-8-7-7 l alls 2 sinnum = 77-80-85-90-93-98 l (ATH: Það er 1 l fleiri á vinstra framstykki þ.e.a.s. eftir útaukningu eru 78-81-86-91-94-99 l á prjóni). Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur og þegar útaukningu er lokið eru síðustu 4 l í garðaprjóni prjónaðar fyrir kant á ermum.
Haldið áfram með gatamynstur eins og áður. Munið eftir HNAPPAGAT! Þegar stykkið mælist 38-40-41-43-44-46 cm – sjá LEIÐBEININGAR að ofan – fellið af 4 kantlykkjur að framan í byrjun á næstu umf frá réttu = 73-76-81-86-89-94 l eftir á prjóni. Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir 2 síðustu kantlykkjur að framan við háls og mynstur eins og áður, JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l fyrir hálsmál innan við 2 kantlykkjur að framan – sjá ÚRTAKA – endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu alls 19-19-20-20-21-21 sinnum = 54-57-61-66-68-73 l eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af. Stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Þegar lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli eru 4 síðustu kantlykkjur að framan felldar af í byrjun á næstu umf frá röngu, prjónið 2 l garðaprjón, prjónið síðan 2 næstu sl lykkju br saman (þ.e.a.s. nú eru jafn margar l á hægra og vinstra framstykki). Prjónið síðan áfram á sama hátt og hægra framstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma og sauma undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = l sem ekki er til
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = Auka l sem hafa bæst við á vinstra framstykki svo að l verði jafn margar á báðum hliðum.
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 152-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (49)

country flag Alexandra MATHIEU wrote:

Bonjour, J'ai fait A.3 et A.5 une fois en hauteur et je suis à 10cm. Comment continuer le motif pour arriver à 13cm et pour continuer à suivre les explication. Une fois les 16 rangs terminer comment doit-on continuer le motif pour la suite du gilet? Merci d'avance.

19.07.2023 - 10:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mathieu, continuez les point ajourés pour continuer les diagonales (si vous n'avez pas suffisamment de mailles pour tricoter les 2 m ens, 1 jeté, tricotez 1 m end). Bon tricot!

27.07.2023 - 11:21

country flag Inga-Siv Lennartsson wrote:

Förstår inte varv 9 på mönster A3 och A5, ska det vara 9 maskor mellan varje omtag och ihoptagning? Omtagen stämmer inte.

01.08.2019 - 08:55

DROPS Design answered:

Hej Inga-Siv, du stickar hela tiden 8 räta maskor mellan varje omtag och ihoptagning, både i A.3 och A.5. Lycka till

01.08.2019 - 14:57

country flag Diane wrote:

Ik vind dit een supermooi model, maar ik brei absoluut niet graag met rondbreinaald. Is de uitleg voor dit model niet beschikbaar op de traditionele manier, ttz rug +2 voorstukken ? Of hebt u een ander vergelijkbaar model op de traditionele manier ? Alvast hartelijke dank.

05.03.2019 - 17:20

DROPS Design answered:

Dag Diane,

Vanwege het kantpatroon dat doorloopt op over de zijnaad is dit patroon helaas is allen geschikt om met de rondbreinaald te breien.

07.03.2019 - 22:25

country flag Natalie wrote:

Good evening. I accidently asked this question in the comment section so I will attempt to ask it here. I'm a little confused as to what to do on row 9 section A5. it's showing an 11sts pattern instead of the usual 10 sts. If I do this the pattern gets moved to the left an extra st at each repetition and distorts the pattern. can you please advise me on how to work this specific row and where to add the extra stitch... Thank you

07.07.2018 - 06:34

DROPS Design answered:

Dear Natalie, the lace pattern is going diagonnaly so that on row 9 you will knit together the last st each repeat with the first st next repeat and at the end of row tog with the last stitch in stocking st so that pattern looks symetrical on both sides - see "star" under diagram key. Happy knitting!

09.07.2018 - 07:45

country flag Natalie Paquet wrote:

Ok so i'm stuck on row 9 of A5. If i knit 9 sts befoe the yo slip k psso i end up out of pattern and distorting the pattern to the right. Please clarify or attempt to guide me as to what I am doing wrong.

06.07.2018 - 18:34

Christine wrote:

Hello. When the decrease starts at A3/A5 pattern at 13cm, I note the pattern repetition is then reduced to 9 stitches. I’m confused as the pattern illustrated for A3/A5 and then A4/A6 has a pattern repetition of 10 stitches. If we are reducing to 9, what stitch do we ignore in the repetition ??

31.03.2018 - 13:51

country flag Gisela wrote:

Habe Problem mit dem Muster A3/A5 Reihe 11: in der Rückenmitte endet A3 mit 2 rechts zusammenstricken und 1 Umschlag. Dann geht es weiter mit A5: 1 Umschlag, 1 abheben, 1 rechts, abgehobene Masche überziehen. Das heißt, es gibt 2 Umschläge nebeneinander, ist das richtig?

03.02.2018 - 20:39

DROPS Design answered:

Liebe Gisela, wiederholen Sie die Diagramme mit den korrekten Maschenanzahl inzwischen, dann sollen nur 1 Umschlag in der Mitte vom Rückenteil sein - gerne können Sie Markierungsfaden zwischen jedem Rapport einsetzen. Viel Spaß beim stricken!

05.02.2018 - 13:18

country flag Marita wrote:

Jeg forstår ikke overgangen mellom A3 og A5 på pinne 11. Her skal man starte ny hullmønsterrekke, men er det meningen å lage dobbelt kast? Og det blir bare 7 rettmasker mellom hullmønsterrekkene i første A5 rapport - dette vil jo synes godt etterhvert.

20.05.2017 - 20:31

DROPS Design answered:

Hei Marita. Hvis du strikker etter diagrammene så får du automatisk 9 masker glattstrik mellom hver hullrekke, hvis du er usikker på hvor diagrammet starter og slutter i ditt arbeid, så sett gjerne noen merketråde. God fornøyelse!

24.05.2017 - 16:18

SIrina wrote:

Continuing: ... because the next row of the diagram A1 has in the middle of it : slip 1 as if to k, k 2 together, psso, so I believe this row needs to be knitted not purled, so the first row needs to be purled?

12.05.2016 - 13:24

DROPS Design answered:

Dear Slrina, see answer below. Happy knitting!

12.05.2016 - 17:51

SIrina wrote:

Hello! What do I do with the st that is not there from the diagram A1? Do I slip it? Do I knit it? And another question: When I start diagram A1 do I k in the first row(is it the front of the work) or do I purl the row? I am wondering because the next row of the diagram has in the middle of the diagram

12.05.2016 - 13:20

DROPS Design answered:

Dear Slrina, start reading diagrams from the bottom corner on the right side towards the left from RS and from the left towards the right from WS - read more here. This mean, you are working each repeat of M.1 over 12 sts, dec 2 sts in each repeat, on 2nd row, you will have only 10 sts left in each repeat (= row 2 in M1 is worked from WS = P all sts). Happy knitting!

12.05.2016 - 17:51