DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4290.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 155-27
DROPS Design: Mynstur nr ks-089
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
75-100-100-100-125-125 gr litur nr 03, ljós bleikur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 48 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA, NR 521: 3 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4290.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚRTAKA 1:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 3 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚRTAKA 2:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 5 l garðaprjóni þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 1 l færri.
Fækkið um 2 l á undan 5 l garðaprjóni þannig: Prjónið 2 l slétt saman = 1 l færri.

ÚRTAKA 3:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan og á eftir prjónamerki í annað hvert skipti.
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki. Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að taka upp þráðinn á milli 2 l frá fyrri umf – prjónið þessa l snúna slétt, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjuna í stað framan til að koma í veg fyrir gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Mælt frá byrjun á berustykki og fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 2, 9 og 16 cm.
STÆRÐ M: 1, 9 og 17 cm.
STÆRÐ L: 2, 10 og 18 cm.
STÆRÐ XL: 1, 10 og 19 cm.
STÆRÐ XXL: 2, 11 og 20 cm.
STÆRÐ XXXL: 1, 11 og 21 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

PEYSA:
Fitjið upp 218-238-256-276-304-332 l á hringprjóna nr 3 með Kid-Silk. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – fram og til baka þar til stykkið mælist 3 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og haldið áfram í sléttprjóni með 12 kantlykkjum í garðaprjóni að framan í hvorri hlið á stykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram fram og til baka, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki þannig: Prjónið 12 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 46-51-55-60-67-74 l sléttprjón, setjið eitt prjónamerki hér, 102-112-122-132-146-160 l sléttprjón, setjið prjónamerki hér, 46-51-55-60-67-74 l sléttprjón, 12 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA 1! Endurtakið sömu úrtöku í hverjum cm 4 sinnum til viðbótar (= alls 5 sinnum) = 198-218-236-256-284-312 l. Síðan þegar stykkið mælist 16-16-16-17-17-17 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið sömu útaukningu með ca 3-3½-3½-4-4-4 cm millibili 4 sinnum til viðbótar (= alls 5 sinnum) = 218-238-256-276-304-332 l.
Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm prjónið garðaprjón yfir 20 l í hvorri hlið (þ.e.a.s. prjónað er yfir 10 l hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm prjónið frá réttu þannig: Prjónið 12 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * sléttprjón þar til 10 l eru eftir á undan prjónamerki í hlið, 5 l garðaprjón, fellið af 10 l fyrir handveg (þ.e.a.s. 5 l hvoru megin við prjónamerki), 5 l garðaprjón *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Prjónið út umf. Nú eru 92-102-112-122-136-150 l eftir á bakstykki o g 53-58-62-67-74-81 l (meðtaldar kantlykkjur að framan) á hvoru framstykki.
Prjónið 1 umf til baka yfir vinstra framstykki frá röngu. Snúið við og prjónið yfir vinstra framstykki þannig: Prjónið 5 l garðaprjón (við handveg), fækkið um 1 l – LESIÐ ÚRTAKA 2- sléttprjón og garðaprjón yfir 12 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram þar til fækkað hefur verið alls um 4 l innan við 5 l garðaprjón við handveg = 49-54-58-63-70-77 l. Prjónið nú bakstykki alveg eins nema með 5 l garðaprjón og 4 úrtökur við handveg í hvorri hlið = 84-94-104-114-128-142 l.
Prjónið hægra framstykki á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd = 49-54-58-63-70-77 l.

BERUSTYKKI:
Berustykkið er prjónað í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið frá réttu þannig: Prjónið yfir allar l á hægra framstykki, fitjið laust upp 86-92-96-100-106-110 nýjar l yfir hægri handveg, prjónið yfir allar l á bakstykki, fitjið laust upp 86-92-96-100-106-110 nýjar l yfir vinstri handveg og prjónið út umf = 354-386-412-440-480-516 l. Í næstu umf eru sett 8 prjónamerki í stykkið þannig: 49-55-58-63-71-78 l garðaprjón, setjið eitt prjónamerki hér, 26-27-28-29-31-32 l l garðaprjón, setjið eitt prjónamerki hér, 33-36-38-39-42-45 l garðaprjón, setjið eitt prjónamerki hér, 26-27-28-29-31-32 l garðaprjón, setjið eitt prjónamerki hér, 86-96-108-120-130-142 l garðaprjón, setjið eitt prjónamerki hér, 26-27-28-29-31-32 l garðaprjón, setjið eitt prjónamerki hér, 33-36-38-39-42-45 l garðaprjón, setjið eitt prjónamerki hér, 26-27-28-29-31-32 l garðaprjón, setjið eitt prjónamerki hér, 49-55-58-63-71-78 l garðaprjón. Síðan í næstu umf frá réttu byrjar úrtaka – LESIÐ ÚRTAKA 3, JANFRAMT er fellt af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Fellið af þannig: 1 l í hverjum cm 9-10-10-11-11-12 sinnum, síðan er fellt af í 4. hverri umf 7-5-6-4-2-0 sinnum og í annarri hverri umf 1-6-7-11-17-21 sinnum. Þegar úrtöku er lokið eru 218-218-228-232-240-252 l eftir á prjóni. Síðan í næstu umf frá réttu eru felldar af 42-38-42-42-42-52 l jafnt yfir í umf = 176-180-186-190-198-200 l. Fellið laust af með sl frá röngu þegar stykkið mælist alls 48-50-52-54-56-58 cm.

FRÁGANGUR:
Festið þræðina og saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Yellah wrote:

In Größe S müssen für die Passe viel weniger Maschen aufgenommen werden, ansonsten entstehen Flügelärmel. Ich hab statt 86 Maschen nur 66 aufgenommen. Dann aber mit den Abnahmen laut Anleitung weitergearbeitet. So passt alles perfekt.

01.04.2024 - 14:36

country flag Anne wrote:

Att lägga upp 2 x 110 maskor löst för oket i XXL är alldeles för mycket. Även efter blockning är ärmhålen och ringningen enorma. Stickfastheten stämmer precis... Garnet är inget man lätt river upp så får nog betrakta arbete och garnkostnad som bortkastade.

16.03.2023 - 20:33

country flag Renata wrote:

Dzień dobry, chciałabym zrobić ten model z włóczki Lace ale zastanawiam się czy nie jest ona zbyt wiotka, "lejąca się"? Nie znalazłam wzoru na sweter z Lace stąd moje wątpliwości.

19.12.2019 - 13:42

DROPS Design answered:

Witaj Renato! Lace jest bardzo cienka, idealna na szale, które są wykonywane na nieco grubszych drutach, wtedy wzór ażurowy jest dobrze widoczny po zblokowaniu. Na sweterek możesz jej użyć, będzie bardzo cienki, przezroczysty i delikatny. Ja bym jej użyła w połączeniu z włóczką DROPS Kid-Silk, wtedy sweterek nie będzie prześwitujący. Powodzenia!

30.12.2019 - 00:50

country flag Francesca wrote:

Buongiorno, sto eseguendo la taglia M di questo modello; se volessi aggiungerci le maniche lunghe, come dovrei regolarmi? Grazie, saluti cordiali. Francesca

13.11.2019 - 11:23

DROPS Design answered:

Buonasera Francesca, per un aiuto così personalizzato può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

19.11.2019 - 22:50

country flag Jacqueline wrote:

Bonjour, J\'aimerai une explication pour poursuivre mon tricot, je suis arrivée à : \"Tricoter ensuite le dos de la même façon mais avec 5 m point mousse et 4 diminutions de chaque côté (emmanchures) = 84-94-104-114-128-142 m.\" Si je comprend bien je dois couper le fil après avoir tricoter les 4 diminutions du côté gauche, pour poursuivre les diminutions du dos, et recouper le fil de nouveau pour reprendre le côté droit .

22.07.2018 - 13:42

DROPS Design answered:

Bonjour Jacqueline, tout à fait, après avoir rabattu les mailles des emmanchures, vous tricotez quelques rangs sur les mailles du devant gauche seulement, puis coupez le fil et tricotez le dos en diminuant de chaque côté (= 8 m diminuées),coupez le fil et tricotez le devant droit (= 4 diminutions). À la fin du devant droit, ne coupez pas le fil, vous continuez l'empiècement à partir du devant droit (sur l'endroit). Bon tricot!

23.07.2018 - 08:07

country flag Frøydis Gustavsen wrote:

Hei Jeg holder på å strikke modell 155-27 og skal strikke bærestykke. Det er uklart hvordan fellingen skal skje, så jeg ber om en forklaring på dette. Spes gjelder det Det felles slik: 1m for hver 1, cm 10 x etc. Hvordan skal dette forstås?? Hvor skal det felles ? Har satt 8 Merketråder men de er det angitt hvordan fellingen skal vær. B er om svar snarest.

27.06.2018 - 15:12

DROPS Design answered:

Hei Frøydis, Hvis du leser felletips-3 så forklarer det hvordan du skal felle til raglan ved hvert merke og du feller vekselvis før og etter merket annenhver gang. Da feller du 1 maske hver cm 9-10-10-11-11-12 ganger ved hvert merke, hver 4. pinne 7-5-6-4-2-0 ganger og deretter hver 2. pinne 1-6-7-11-17-21 ganger. Håper dette hjelper of god fornøyelse!

29.06.2018 - 06:33

country flag Valeria wrote:

Hallo, ik heb nu gebreid tot dit punt in instructie “Brei 1 nld over het linkervoorpand aan de verkeerde kant. Keer het werk en brei als volgt over het linkervoorpand”. Moet ik nu andere naalden gebruiken en apart linkervoorpand breien. Daarna draad losknippen en achterland breien, draad los knippen en rechtervoorpand apart breien?

14.05.2018 - 16:41

DROPS Design answered:

Hallo Valeria, Dat zou kunnen, maar het werkt prettiger om de steken die je niet breit gewoon op de naald te laten zitten, dus je hoeft er geen andere naald bij te pakken om het linker voorpand te breien. De steken van het acherpand en het rechter voorpand kun je dus gewoon op de naald latern terwijl je het linker voorpand breit.

14.05.2018 - 18:51

country flag Alessandra wrote:

Sto eseguendo appunto una taglia M e la mia perplessità riguarda appunto le maglie da avviare per le maniche nell'esecuzione dello sprone. 92 maglie sono tantissime!! Leggendo gli altri commenti mi è venuto il dubbio. È forse un errore? Buona serata 🌆

16.10.2016 - 18:00

DROPS Design answered:

Buongiorno Alessandra. Il modello è pensato per avere un’apertura comoda intorno alle braccia. Se preferisce un’apertura più stretta è sufficiente che avvii un numero inferiore di maglie per le maniche. Buon lavoro!

17.10.2016 - 13:51

country flag Alessandra wrote:

Salve, Mi potreste gentilmente dire che taglia indossa la modella? Grazie mille 😊

16.10.2016 - 13:55

DROPS Design answered:

Buongiorno Alessandra. Le nostre modelle indossano generalmente la taglia M. Buon lavoro!

16.10.2016 - 14:24

Anna Valueva wrote:

Hello, I can't find any size guide on your website. My bust is 100 sm. Should I knit size XL?

12.04.2016 - 16:07

DROPS Design answered:

Dear Mrs Valueva, you will find at the end of the pattern a measurement chart with all measurements in cm, taken flat from side to side. Compare these to a similar garment you have and like the shape to find out the matching size. Read more about sizing here. Happy knitting!

12.04.2016 - 16:26