DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1650.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 154-29
DROPS Design: Mynstur nr ee-496
Garnflokkur E
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 – 38/40 – 42/44
Lengd fótar: 22 - 25 - 27 cm

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
100-100-100 gr litur nr 47, ljós beige
50-100-100 gr litur nr 51, púðurbleikur

DROPS HEKLUNÁL NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 12 fl verði 10 cm á breiddina.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1650.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
í byrjun á hverri umf með fl, er fyrsta fl skipt út fyrir 1 ll.
Umferðin endar á 1 kl í ll frá byrjun umf.

LITASKIPTI:
Til þess að fá fallegar skiptingar við litaskipti er síðasta kl í umf hekluð með nýja litnum þannig:
Stingið heklunálinni í síðustu ll frá byrjun umf, sækið nýja þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið þráðinn í gegnum l á heklunálinni.

--------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR:

SÓLI:
Stykkið er heklað í hring.
Heklið 16-16-18 ll með heklunál nr 6 með litnum ljós beige.
UMFERÐ 1: Heklið 1 ll (kemur í stað 1. fl), heklið 1 fl í annan bogann í hverja af fyrstu 15-15-17 ll, heklið 2 fl í annan bogann á síðustu ll, snúið síðan stykkinu og heklið í sömu ll til baka í hinn bogann á l, heklið 2 fl í sömu ll (þ.e.a.s. í sömu ll og heklað var í 2 fl áður en stykkinu var snúið við), heklið 1 fl í hverja af næstu 14-14-16 ll, 2 fl í síðustu ll, endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 36-36-40 fl (= 18-18-20 fl á hvorri hlið).
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 14-14-16 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 14-14-16 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í síðustu fl, endið á 1 kl í fyrstu ll = 40-40-44 fl (meðtalin 1 ll).
UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 14-14-16 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 4 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 14-14-16 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hvora af næstu 2 fl = 44-44-48 fl (meðtalin 1 ll).
UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 14-14-16 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 6 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 14-14-16 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af 3 næstu fl = 48-48-52 fl (meðtalin 1 ll).
UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 14-14-16 fl JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í 8.-8.-9. Fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 8 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 14-14-16 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 4 fl = 52-52-56 fl (meðtalin 1 ll). ATH: Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Hér er efri hlutinn festur saman við hliðar.

Nú hefur sólinn verði heklaður til loka í stærð 35/37, en heldur áfram í 38/40-42/44 þannig:

UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 14-16 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 10 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 14-16 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af 5 næstu fl = 56-60 fl (meðtalin 1 ll). ATH: Kanturinn er heklaður með litnum púðurbleikur – sjá LITASKIPTI.

KANTUR:
Stykkið er heklað í hring með litnum púðurbleikur.
UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í hverja fl aftan í lykkjubogann – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR = 52-56-60 fl.
UMFERÐ 2-7: Heklið 1 fl í hverja fl.
Klippið frá og festið enda.

EFRI HLUTI:
Efri hlutinn er heklaður sem laust stykki en það er heklað á síðar. Heklið nú áfram fram og til baka.
Heklið 8-8-9 ll með heklunál nr 6 með litnum ljós beige – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR.
UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í annan lykkjubogann í hverja af næstu 6-6-7 ll, heklið 2 fl í annan lykkjubogann á næstu ll, snúið síðan stykkinu og heklið síðan til baka í sömu ll en í hinn lykkjubogann á l, heklið 2 fl í sömu ll (þ.e.a.s. í sömu ll og 2 fl voru heklaðar áður en stykkinu var snúið við), heklið 1 fl í hverja af næstu 7-7-8 ll = 18-18-20 fl. Snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hverja af næstu 6-6-7 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 7-7-8 fl = 20-20-22 fl. Snúið við.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja af næstu 6-6-7 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 4 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 7-7-8 fl = 22-22-24 fl. Snúið við.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja af næstu 6-6-7 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 6 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 7-7-8 fl = 24-24-26 fl. Snúið við.
UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja af næstu 6-6-7 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 8 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 7-7-8 fl = 26-26-28 fl. Snúið við.

Nú er efri hlutinn heklaður í stærð 35/37, en haldið áfram með stærð 38/40-42/44 þannig:

UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja af næstu 6-7 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 10 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 7-8 fl = 28-30 fl. Snúið við.

FRÁGANGUR:
Heklið efri hlutann við kantinn með litnum ljós beige þannig: Heklið 1 ll, 1 kl í gegnum 1. fl frá efri hluta og fl með prjónamerki á kanti. Heklið 1 kl í hverja fl í gegnum efri hlutann og kanti, í kringum allan efri hlutann. Heklið síðan meðfram kanti á efri hluta þannig: * Heklið 1 ll, 1 fl í næstu umf *, endurtakið frá *-*. Klippið frá og festið enda.

SKÚFUR:
Vefjið þræði með litnum púðurbleikur utan um fingurna 4 sinnum og klippið frá. Takið nýjan þráð með litnum púðurbleikur, snúið 2 sinnum í kringum toppinn á 4 lykkjunum og hnýtið hnút. Klippið upp lykkjurnar, klippið skúfinn í óskaða lengd og festið á efri hluta á tátiljunni.

Heklið aðra tátilju á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.11.2014
Nýtt efnismagn: 50-100-100 gr litur nr 51, púðurbleikur
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag Sofia Burman Rogozinska wrote:

Får inte maskorna att stämma på sulan. Om jag har 18 lm och virkar en luftmaska (=första fm) , 1 fm i kommande 17 så finns det ingen m kvar att virka 2 fm i.

30.09.2022 - 22:28

DROPS Design answered:

Hei Sofia. Jo, du hekler 18 luftmasker (husk at masken på nålen ikke skal telles), så hekler du 1 luftmaske (som erstatter 1. fastmaske). Så nå har du egentlig 19 luftmasker + masken på nålen. Så hekler du 1 fastmaske i det ene leddet i hver av de første 17 luftmaskene (husk å hoppe over luftmasken som erstattet 1. fastmaske). Du har 1 luftmaske igjen på raden. I denne luftmaskene hekler du 2 fastmasker. mvh DROPS Design

10.10.2022 - 11:15

country flag Songül wrote:

Hallo ik heb een vraag wat is een rondt dat snao ik niet. Moest ik de los ketting niet aan elkaar vast zetten zodat het een ronde word. Hopelijk antwoorden jullie .

25.09.2022 - 12:49

DROPS Design answered:

Hi, if you can write your question in English, we can try to help you :)

16.11.2022 - 13:47

country flag Elise wrote:

Volgens mij is geen moeilijk patroon maar begijp maar weinig van de uitleg. Ik ben nu eindelijk bij de bovenkant maar loop hier echt vast; Klopt het dat de 1e losse in de 8 opzetlossen zit? Zoals ik het lees bestaat de 1e toer eigenlijk uit 2 toeren? Begin ik na het keren met een losse? Haak ik na het keren alleen in de 1e lus een 2 vasten of ook in de tweede? Er wordt dus maar aan 1 zijde gemeerderd? "Haak in dezelfde l terug in de andere lus van de st" wat wordt hiermee bedoeld?

15.05.2020 - 16:45

DROPS Design answered:

Dag Elise,

Er zit inderdaad 1 keerlosse bij (is niet duidelijk aangegeven in de tekst). De eerste toer zijn geen 2 toeren, maar je haakt in beide lusjes van de opzetlossen, dus haakt a.h.w. steeds heen en weer in een u-vorm.

20.05.2020 - 09:15

country flag Myriam wrote:

Bonjour, quand on crochette des ms en rond, sa dit que la premiere ms est remplacer par une ml. Alors si le premier tour: 1 ms dans les 2 prochaine m, je fait 1 ml pour remplacer la 1ere ms et la 2e ms je la fait dans la m suivante ou je dois sauter la maille qui aurait du servir pour la 1ere ms qui a ete remplacer par la ml? Et quand on fini un rang(mc dans la 1ere ml) comment compter le total de maille? Sa dit incluant la 1ere ml mais il y a la mc dans la 1ere ml je peut pas la compter 2 fois?

06.02.2020 - 04:03

DROPS Design answered:

Bonjour Myriam, vous commencez le tour par 1 ml pour remplacer la 1ère ms et crochetez 1 ms dans la ms suivante (vérifiez bien votre nombre de mailles pour être sûre). cette vidéo montre comment crocheter des ms en rond. Bon crochet!

06.02.2020 - 10:41

country flag Jacqueline Brouwer wrote:

Heeft u hier ook een diagram van ,ik lees en begrijp dat beter .Mag ook van een andere slof het gaat mij om de zool .B.v.d

02.12.2019 - 15:15

DROPS Design answered:

Dag Jacqueline

Helaas is er alleen een geschreven patroon. Als je aangeeft waar je precies tegenaan loopt kunnen we je misschien beter helpen.

07.12.2019 - 10:42

country flag Laura Falk wrote:

Jeg synes min hæklefasthed ligner den som på billedet, men kan ikke få størrelsen til at passe.. str 35/37 bliver MEGET lille.. er str 6 i nål for småt til denne opskrift??

23.11.2018 - 18:14

country flag Laura wrote:

Kan man lægge en sål i, når man er færdig så det blev mere tøffel/sutsko fremfor “sokker”? Så de bliver lidt mere “stive”. Eller vil det ikke virke? (Er nybegynder)

07.11.2018 - 06:55

DROPS Design answered:

Hei Laura. Det er ikke noe i veien for at du legger en såle i når du er ferdig. Men ha det i bakhodet når du da velger størrelse, så du vet det blir plass. God fornøyelse.

07.11.2018 - 11:14

country flag Hengie Hengelmann wrote:

Bonjour j'ai tricoté la semelle en suivant scrupuleusement les explications mais j'obtiens une semelle vraiment trop petite... une idée pour m'aider ...merci

13.08.2017 - 18:58

DROPS Design answered:

Bonjour, je vous conseille de faire des tours supplementaires pour obtenir les dimensions de votre taille. Essayez de faire un echantillon avant de commencer la suite des chaussons. Bon crochet!

20.08.2017 - 17:39

country flag Marylène Thibault wrote:

Comment peut-on faire des mailles en l'air dans les quatre mailles suivantes? Je ne comprends pas , quand on fait des ml on ne pique pas dans la maille du tour précédent?. Merci de me répondre Modèle drops 154-29 pour le dessus du chausson

17.03.2015 - 19:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Thibault, il faut effectivement bien faire des ms et non des ml au 1er tour du dessus du pied - correction faite, merci. Bon crochet!

18.03.2015 - 09:39

country flag Martine wrote:

Hei. Jeg forstår virkelig ikke hvordan sålen skal hekles. Hvordan kan man hekle 2 fm i samme lm som man heklet 2fm i før man roterte? Hva menes med 1 omg her? Jeg har sett på videoen lengre ned, men den hjalp lite. Jeg har lagt opp 16 lm 1lm, hekler mot venstre 2fm i siste lm, så forstår jeg ikke noen ting. Skal man hekle rundt i 1omg? I såfall hvor mange?

25.02.2015 - 14:33

DROPS Design answered:

Hej Martine, jå således hekler du på hver side af første lm-række:

DROPS Crochet Tutorial: How to crochet on both sides of a chain band. from Garnstudio Drops design on Vimeo.

10.08.2015 - 14:04